NT - 22.06.1984, Blaðsíða 1
Tókst fálkaþjófin-
um að flýja land?
Horfinn frá Hjálpræðishernum
ráðsins sagði NT í gær að
þætti Admiral Braun ástæða
til að láta leita í skipum
sínum, léti hann vafalaust
gera það. Eins og kunnugt er
liggur nú allstór þýsk flota-
deild í höfn og stýrir henni
Admiral Franz Dieter
Braun. Um heimsókn flotans
verður fjallað síðar.
■ Lögreglan leitar nú Mir-
oslav Peter Baly, Pjóðverj-
ans sem kyrrsettur var vegna
stuldar á fálkaeggjum.
Hann sást síðast seinni-
partinn á þriðjudag, þegar
hann fór frá gistiheimili
Hjálpræðishersins, þar sem
hann hefur dvalist. A þriðju-
dag tilkynnti hann sig einnig
síðast hjá Útlendingaeftirlit-
inu.
í gær átti hann að mæta
hjá Utlendingaeftirlitinu íyrir
klukkan fimm en lét ekki sjá
sig.
Þegar hann fór frá gisti-
heimilinu var hann klæddur
léttum stakk en skildi farang-
ur sinn eftir.
Ef hann hefur ekki komið
fram seinna í dag má búast
við að lögreglan geri ein-
hverjar ráðstafanir til að hafa
uppi á honum. Hann hefur
ekki vegabréf sitt og er félít-
ill. Alls staðar þar sem hann
hefði getað komist úr landi
liggur lýsing á manninum.
Starfsmaður þýska sendi-
Breska flugvélin:
llla búin tækjum
villtist af leið
■ Ekkert hafði enn spurst til
vélarinnar sem saknað var, þeg-
ar NT fór í prentun í nótt. Tveir
breskir menn voru í vélinni
þegar hún lagði af stað frá
Reykjavíkurflugvelli í gær-
morgun áleiðis til Grímseyjar.
Síðast varð vélarinnar vart um
kl. 11.20 á ratsjá í Reykholti í
Borgarfirði, en þá stefndi hún í
austurátt, sennilega komin af
réttri leið.
Vélin mun hafa verið illa búin
tækjum til flugs við þær aðstæð-
ur sem voru í gærdag. Hún
hafði ekki blindflugsútbúnað
innanborðs og ekki neyðar-
sendi. Hið síðarnefnda torveld-
aði mjög leit að vélinni.
Pegar ljóst var að vélarinnar
var saknað, hófst eftirgrennslan
og í kjölfarið var leit hafin úr
lofti og á landi. Flugbjörgunar-
sveitin í Reykjavík fór til Húsa-
fells um kl. 17,00 og um kl.
19,00 fóru flugbjörgunarmenn
á svæðinu frá Reykjavík til
Akureyrar, að Varmahlíö í
Skagafirði og þaðan var gerð
skipulögð leit undir handleiðslu
flugmálastjórnar.
Vegna erfiðra leitarskilyrða
úr lofti reyndist örðugt að koma
við flugvélum, og því voru send-
ar þyrlur frá Landhelgisgæsl-
unni, bandaríska hernum og
árangur
Albínu Thordarson til leitar á
Arnarvatnsheiði, Grímstungu-
heiði og Auðkúluheiði. Fljót-
lega beindist leitin að Arnar-
vatnsheiði, hálendinu upp af
Borgarfirði og norðan Langjök-
uls, og allt norður að Eyjafjarð-
arhálendinu. Auk þess sveim-
uðu tvær flugvélar lengi yfir
leitarsvæðinu. Það voru flugvél
flugmálastjórnar og Hercules-
vél frá bandaríska hernum á
Keflavíkurflugvelli.
Síðast þegar fréttist, voru á
sjötta hundrað manns að leit á
svæðinu og leitarmönnum enn
að fjölga.
■ Bretarnir sem leitað er aðeru á flugvél af þessari gerð, Cherokee Arrow, en hún var hvorki útbúin
neyðarsendi né blindflugstækjum. Mynd: Baidur Svcinsson
Fiskverð ákveðið í gærkveldi:
Hækkar að meðal-
tali um 6 prósent
Fiskverð hækkar að meðal-
tali um 6%, ýsa og steinbítur
hækka um 7%, þoskurinn um
6% og aðrar tegundir hækka
flestar um 5,5%. Þetta varð
niðurstaðan af fundi í yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins í
gærkveldi, þar sem nýtt fiskverð
var ákveðið með atkvæðum selj-
enda og oddamanns en fulltrúar
kaupenda greiddu atkvæði á
móti.
Þetta nýja fiskverð var reynd-
ar orðið gamalt áður en það var
ákveðið því það gildir frá 1.
júní. Verðákvörðunin gildir
fram til áramóta sem er frávik
frá þeirri venju að ákveða fisk-
verð til þriggja eða fjögurra
mánaða í senn.
Þá var ákveðið 4% hækkun á
verðuppbót sem greidd er úr
verðjöfnunardeild Aflatrygg-
ingarsjóðs. Þetta þýðir að upp-
bótin til útgerðarinnar á verð
ufsa og karfa verður 16% en 6%
á verð annarra tegunda.
Ákvörðunin um uppbótar-
hækkunina (og í raun einnig
samningstímann) er tekin á
grundvelli bréfs sem sjávarút-
vegsráðherra skrifaði nefndinni
í gær. Þar lofar ráðherrann að
beita sér fyrir ráðstöfunum sem
tryggi þessa hækkun. 1 bréfinu
segir ennfremur að þessi
ákvörðun sé tekin til að bæta
stöðu sjávarútvegs og sjó-
manna, svo og til að greiða fyrir
ákvörðun fiskverðs er gildi frá
1. júní til áramóta.
Að því er útgerðinni viðkem-
ur, þýðir ákvörðun yfirnefndar-
innar samtals um 10% hækkun
að meðaltali, þar af þarf fisk -
vinnslan þó aðeins að bera 6%
hækkun.
Nýríki Nonni
að kaupa lóð?
a 1.7 milljomr
Borgarstjórn afgreiddi lóðirnar í Stigahlíð
í gærkvöid. Athygli vekur að fáir kaupenda
eru þekktir auðkýfingar. NT kynnir nöfn
ióðarhafa á bls. 2.
Tvö dauða-
slys á Suður-
Mitterrand í Moskvu:
Harðorður um mannréttinda-
brot, Afganistan og Pólland
landi í gær
- sjá bls. 2 og 28
■ Mitterrand Frakk-
landsforseti braut allar við-
teknar venjur er hann tók
upp mál Sakharovs í kvöld-
verðarborði í Kreml í gær-
kvöldi. Þar voru allir æðstu
menn Sovétríkjanna
samankomnir. Hann beindi
máli sínu beint til Tsjern-
enkós og æðstu leiðtoga
kommúnistaflokksins og
bað þá um að skilja tilfinn-
ingar Vesturlandabúa
vegna brota á mannrétt-
indaákvæðum Helsinki-
sáttmálans.
„Þannig tölum við stund-
um um málefni manna sem
eru dæmigerð. Þannig ber
að skilja tilfinningar Evr-
ópumanna og margra ann-
arra sem viðkemur málefn-
um þegna ríkis ykkar.“
Mitterrand gagnrýndi
einnig Sovétstjórnina fyrir
afskiptin í Afganistan og
fyrir að banna frjálsa verka-
lýðshreyfingu í Póllandi.
Lítil hrifning ríkti í
Kreml yfir ræðunni.
Tsjernenkó forseti
Sovétríkjanna sagði í sinni
ræðu að engum liðist að
gefa ráð um mannréttindi í
Sovétríkjunum né skipta
sér af innanríkismálefnum
þar.
Nánar á bls. 24