NT - 22.06.1984, Blaðsíða 25

NT - 22.06.1984, Blaðsíða 25
Föstudagur 22. júní 1984 25 Utlönd ■"s. Finnland: Græningjar vinna á, kommar og íhald tapa Helsinki-Reuter. ■ Fylgi yngsta stjórnmála- flokksins í Finnlandi hefur aukist gífurlega samkvæmt nýrri skoöanakönnun. Hér er um að ræða umhverf- isverndarsinna sem kalla sig græningja. í kosningunum 1983 fékk flokkurinn 1.5% atkvæða en samkvæmt skoð- anakönnuninni fengi hann nú 6.7% ef kosið yrði. Stærsti flokkurinn, sósíal- demókratar tapa fylgi. í síð- ustu kosningum fengu þeir 26.7%, en fengju nú 24.9%. Fylgið reitist jafnt og þétt af kommúnistum. I kosningun- um í fyrra fengu þeir 14% atkvæða en fengju nú 12.6%. Miðflokkarnir þrír, sem nú eru í stjórnarsamvinnu með sósíaldemókrötum, halda sínu fylgi og fá um 32% atkvæða. Samsteypa íhaldsflokka sem verið heáir utan stjórnar í fjölda ára missir fylgi. Fékk 22.1% í kosningum 1983 en fengi nú 20.4%. ■ Norskur trollbátur fékk rússneskan kafbát í vörpuna úti fyrir strönd Noregs s.l. miðvikudag eins og skýrt var frá í NT í gær. Bátsverjar kölluðu á varðskip og kom það á vettvang þegar báturinn var búinn að vera með kafbátinn í vörpunni í hálftíma. Varðskips- menn gáfu áhöfn kafbátsins merki um að koma upp á yfirborðið og tókst Rússunum þá fyrst að losa sig úr flækjunni, en þeir afþökkuðu alla aðstoð. Myndin er tekin um borð í varðskipinu og eru kafbátsmenn frammi á stefni að losa trollið. Togbáturinn Bentin, sem er 80 tonn að stærð er fjær. símamynd polfoto. Umsjón: Oddur Ólafsson og Ragnar Baldursson' Heimsliðið valið gegn Sovétliðinu London-Rcutcr. ■ Á sunnudag hefst í London skákmót þar sem tíu bestu skákmenn So- vétríkjanna keppa við úr- valslið allra annarra landa heims. Tefldar verða fjór- ar umferðir á 10 borðum. Annað hvort liðið þarf að ná 20'/i vinningi til að sigra í mótinu. Fyrir Sovétríkin tefla Karpov, Kasparov, Polugaevsky, Smyslov, Vaganian, Beliavesky, Tal, Petrosjan, Yusupov, Sokolov. Varamenn Tuk- maku, Romanishin. í alþjóðaliðinu eru: Anderson Svíþjóð, Timman Hollandi Korch- noi Sviss, Ljubojevic Júgóslavíu, Ribli Ung- verjalandi, Seirawan Bandaríkjunum, Nunn Bretlandi, Húbner Vest- ur-Þýskalandi, Miles Bretlandi, Torre Filipps- eyjum. Varamenn: Chandler Bretlandi og Larsen Danmörku. ■ í gærkvöldi kom suöur-afríkanski verkfræðingurinn David Kitson til London og var honum vel fagnað. Kitson hefur setið í fangelsi í 20 ár í Suður-Afríku og var hann ákærður fyrír að hafa tekið þátt í sprengjuárásum og fyrir að vera félagi í hinum bannfærðu Afrísku þjóðarsamtökum. símamynd polfoto. Stærsti glæpahringur í Japan: Valdabarátta í fjölmiðlum Tokyo-Reuter ■ Valdabarátta fer nú fram fyrir opnum tjöldum innan stærsta glæpahrings Japans, en lögreglan óttast að hún kunni að snúast í blóðug innanlands- átök. Pessi barátta stendur um leiðtogastöðu Yamaguchi sam- takanna sem telja nú yfir 13.000 meðlimi, en sæti síðasta leið- toga glæpahringsins Kazuo Ta- oka, sem lést af völdum hjarta- áfalls fyrir þrem árum er ófyllt enn. Taoka var óumdeilanlegur konungur glæpamanna í Japan og var líkt við A1 Capone og aðra ameríska stórglæpamenn. Hann stjórnaði Yamaguchihringnum í 17 ár og gerði hann að stórveldi innan skipulagðrar glæpastarf- semi í Japan. Sá sem tók við af Taoka lést skömmu síðar í fangelsi og síðan hafa leiðtoga- málin verið í ólestri. Ekkja Taoka reyndi síðan að höggva á hnútinn með því að lýsa því opinberlega yfir að þriðji valda- mesti rnaður Yamaguchi, Mas- ahisa Takenaka, - yrði næsti leiðtogi. Þá boðaði Hiroshi Yama- moto, sem hefur haft með hönd- um framkvæmdastjórn samtak- anna undanfarið, til blaða- mannafundar og mótmælti þar þessari ákvörðun. Hann sagðist hafa stuðning helmings með- lima í Yamagushi á bak við sig. Þessi opinbera valdabarátta endurspeglar stöðu glæpa- hringja í japönsku þjóðfélagi. Japönsk blöð vísa til leiðtoga Yamaguchisamtakanna sem framkvæmdastjóra sem hittist á fundum til að ræða viðskipti. Starfsemi samtakanna er þó hreinræktuð glæpastarfsemi sem skipuleggur fjárkúgun, eit- uriyfjadreifingu, fjárhættuspil og vændi, og fylgifiskur þess er ofbeldi og morð. Lögreglan í Japan hefur nú um 2330 glæpahringi á skrám sem telja tæplega 100.000 manns. Þessirglæpahringirsam- einast síðan í samtökum sem síðan bindast stærri samtökum og mynda þannig valdapíra- mída skipulagðrar glæpastarf- semi. Þar ríkir einskonar léns- skipulag; valdamestu mennirnir taka skatta af undirmönnum sínum, sem síðan heimta tolla af sínum undirmönnum og þannig koll af kolli. Nýjasta fjáraflabragðið er að krefjast gjalds af stórfyrirtækj- um sem borga til að komast hjá því að stjórnarfundir þeirra verði fyrir truflunum. Glæpa- mennirnir hafa þá keypt hluta- bréf í fyrirtækjunum og hóta að sitja stjórnarfundi og tefja þá með spurningum og málþófi nema fyrirtækin greiði uppsett verð. Yamaguchihringurinn var stofnaður árið 1915 og Taoka gekk í hann árið 1920. Hann varð fljótlega nafntogaður fyrir ofbeldisverk sín og reis til met- orða í samtökunum. Hann stjórnaði Yamaguchi í 17 ár og lifði af nokkur morðtilræði á þeim tíma. Nú býst lögreglan við að fyrrum samverkamenn hans berjist til þrautar um leið- togaembættið. Eiga Pakistanar kjarnorkuvopn? Bandarískur þingmaður staðhæfir að svo sé Washington-Reuter ■ Bandarískur öldungardeildarþingmaður sagði í þing- ræðu í gær, að hann hefði sannanir fyrir að Pakistanir væru fullfærir um að framleiða kjarnorkuvopn. Hann sagði að þeir gætu framleitt nokkrar sprengjur á ári. Alan Cranston kvað Pak- istana ráða yfir þekkingu, fjármagni og tækjum til að framleiða kjarnorkuvopn. Þessu hefðu þeir viðað að sér með hjálp margra þjóða, meðal annars frá Evrópu og Bandaríkjunum. Kínverjar hafi síðan hjálpað þeim til að koma sjálfri sprengjunni saman, en þeir hafa aðstoð- að Pakistana allt frá árinu 1970 til að koma upp kjarn- orkuvopnum. Cranston kvaðst ekki fullviss um hvort Pakistanar réðu þegar yfir kjarnorkuvopnum, en sér þætti það líklegt. Ólíklegt þykir að öldunga- deildin samþykki kjarnorku- aðstoð við Kína á þessu ári. Þegar Reagan forseti var á ferð í Kína í apríl gerði hann samkomulag við Kínverja um samvinnu á sviði kjarn- orkumála. Fyrir nokkru drógu Bandaríkjamenn að sér hendur og minna hefur orðið úr efndum. Þeir láta að því liggja að Kínverjar hjálpi öðrum ríkjum til að koma sér upp kjarnorku- vopnum en bandarísk aðstoð á þessu sviði miðast ein- göngu við það land sem sam- ið er við og mega þau ekki láta tækniþekkinguna ganga til annara. Kínverjar neita með öllu að þeir stuðli að útbreiðslu kjarnorkuvopna. Reagan vill topp- fundsem fyrst WashinKlon-krutvr ■ Reagan Bandaríkja- forseti ítrekaði í gær þann vilja sinn að hitta Tsjern- enkó forseta Sovetríkj- anna að máli. Hann telur að fundur æðstu manna risaveldanna geti orðið til þess að auka skilning milli ríkjanna og draga úr þeirri spennu sem nú ríkir á milli þeirra. Tsjernenko sagði í Moskvu í gær, að undir- búa þurfi slíkan fund vandlega og taldi öll tor- merki á að úr honum geti orðið í bráð. Reagan hefur nú breytt þeirri afstöðu sinni að langs undirbúnings þurfi við og vill hraða fundi æðstu manna. Sovétmenn telja aftur á móti að það sé kosningabragð hjá Re- agan að æskja fundarins og rnunu þeir lítið gera til að auðvelda honum að ná endurkjöri í kosning- unum að hausti. Olíubirgðir í hámarki Rollcrdam-Rcutcr. ■ Allirolíugeymarhinn- ar miklu olíuhafnar eru nú fullir og olíuhreinsun- arstöðvar geta tæpast tek- ið við meira magni en að berst. Vegna stríðsins við Persaflóa og árása'á olíu- flutningaskip hefur verið reynt að safna upp eins mikilli olíu og mögulegt er. En áfram streymir olí- an á heimsmarkaðinn og keppist hver sem betur getur við að koma sem mestu rnagni frá sér. Saudi-Arabar eiga birgðir víða um heim og á skipunr á höfum úti. Orðrómur er um að ír- anir selji nú olíu langt undir markaðsverði en þeir þurfa mjög á fjármun- um að halda vegna stríðs- rekstursins. Spánn: 5 ferðamenn fórust og margir slösuðust Loja, Spáni-Rcutcr ■ 5 manns fórust og 48 slösuðust, margir hættu- lega, þegar rúta með ferðamönnum lenti í árekstri við vörubíl á veg- inurn milli Malaga og Granada. Meðal hinna látnu eru ökumenn beggja bílanna og hollenskur far- arstjóri. 14 hinna særðu eru mjög illa slasaðir. Þeir eru allir erlendir ferðamenn.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.