NT - 15.08.1984, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 15. ágúst 1984
Markaðsverð á heyi:
Viku þurrkur og það
yrði á tombóluverði
- segir f ramkvæmdastjóri Fáks, en heyverð er þegar
komið undir framleiðslukostnað
■ „Við vitum af því að hægt er að fá
hey á 3,50 til fjórar krónur kílóið komið
til Reykavíkur og það er mikið framboð
á heyi að norðan og austan. Ef það
kæmi viku þurrkur á suðurlandi þannig
að við næðum okkur uppúr rigningunni
þá yrði hér hey á tombóluverði,“ sagði
Örn Ingólfsson framkvæmdastjóri
Hestamannafélagsins Fáks í samtaii við
NT. Heyskap er víða lokið austan- og
norðanlands en sums staðar slá menn
aftur og ná þannig inn enn meiru.
Heyfengur er þegar orðinn mikill vegna
þeirra einmuna sprettu sem verið hefur
í sumar. Öm sagði að af þessum lands-
hlutum fengju þeir hjá Fáki 5 símtöl á
degi hverjum þar sem hey er boðið til
kaups.
Heyverð virðist þegar komið undir
útreiknað framleiðsluverð Búreikni-
stofnunar sem er 3,80 kr. á hey á velli.
Það sama og jafnvel lægra er nú boðið
fyrir hey með flutningi til Reykjavíkur
Friedman kemur
■ Milton Friedman, Nobelsverðlauna-
hafi í hagfræði og jafnframt einn um-
deildasti hagfræðingur síðari tíma, er
væntanlegur til íslands 29. ágúst. Kemur
hann á vegum viðskiptafræðideildar
Háskóla íslands og Stofnunar Jóns Þor-
lákssonar, og mun halda fyrirlestur í
hátíðasal Háskólans um ríkisafskipti.
Friedman starfar nú við Hoover stofn-
unina, sem tengd er Stanford háskóla í
Kaliforníu. Hann var iengi prófessor við
Chicago-háskóla, og er höfuðleiðtogi
svonefnds Chicago-skóla í hagfræði.
Helstu rit Friedmans eru Peningasaga
Bandaríkjanna, Neyslukenningin og
Kapitalismi og frelsi.
Ásgarðsmálin:
Óskiljanleg af-
staða hreppsins
- Stefnir í dómsmál vegna 15 milljón-
anna, segir Sigurður Blöndal skóg-
ræktarstjóri
„Þetta eru okkur mikil vonbrigði og
algjörlega óskiljanleg þessi afstaða
Grímsnesinga,“ sagði Sigurður Blöndal
skógræktarstjóri þegar NT hafði sam-
band við hann vegna kaupa Grímsnes-
hrepps á jörðinni Ásgarði sem hafði
annars verið arflcidd Skógræktinni að
mestu leyti. „Ég sagði þeim að þeir
hefðu getað sparað sér þessar 15 millj-
ónir og allt hefði getað verið eins og það
var í sátt og samlyndi. Það er beinlínis
gert ráð fyrir því í erfðaskránni að
búskapur haldi áfram á jörðinni og þó
við hefðum náttúrlega orðið að taka
einhvern hluta af landinu þá hefði
búskapur alveg gengið. En það hljóp
einhver tilfínningasemi í þetta hjá
þeim.“
Aðspurður um það fé sem greitt hefur
verið fyrir jörðina sagði Sigurður að
náttúrlega reiknuðu þeir með að fá það
í sinn hlut. „Okkur finnst rétt að við
fáum þó þetta, altjent,“ sagði Sigurður
en játti því jafnframt að honum sýndust
yfirráð yfir þeim peningum stefna í
dómsmál. Eins og fram kom í NT í gær
er sú skoðun uppi meðal einhverra af'
lögerfingjum Sigurliða Kristjánssonar
sem átti Ásgarð að forsendur erfðagjaf-
arinnar séu brostnar.
Cabina rúmsamstæðan
er komin
Fæst í teak og beyki.
Dýnustæröir 200x90 teak
„ _ , 191 x92 í beyki
Verð kr. 12.600.- 3
Húsgögn og
~ a Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi 6-86-900
en það kostar með skipi 1 krónu frá
Akureyri og aðeins minna en það
með bíl úr Rangárvalla- og Arnessýsl-
um. Örn kvaðst búast við að ef framboð
yrði á heyi af Suðurlandi yrði verð þess
ekki hátt, innan við þrjár krónur af teig,
enda víðast um að ræða hrakinn og úr
sér sprottinn heyfeng af þeim slóðum.
Einn heimildarmanna NT hafði frétt af
heysölu á Suðurlandi á þessu sumri þar
sem kílóið gekk á þrjár krónur en
annars er heysala sunnan og vestan lítil
ennþá þar að heyskap er enn hvergi
nærri lokið.
Engu að síður óttast fæstir að hey-
skortur verði meðal bænda þar eð
spretta hefur verið með besta móti og
því vísast að bændur nái nógu inn, svo
fremi að einhvern tíma stytti upp. Fari
svo að góður þurrkur komi á næstu
dögum voru viðmælendur blaðsins sam-
mála um að offramboð yrði á heyi
sunnanlands og vestan rétt eins og í
öðrum landshlutum og þá „tombólu-
verð“ á heyinu eins og framkvæmda-
stjóri Fáks orðaði það.
TRAUSTIR HLEKKIR í
SVEIGJANLEGRI KEÐJU
Afgreiðslur okkar og umboðs-
menn eru sem hlekkir í keðju.
Samband við einn þeirra gefur
möguleika á tengingu við alla
hina og þar með geturðu notfært
þér sveigjanlega þjónustu, bæði
hér á landi og erlendis.
Við bjóðum bílaleigubíla til lengri
eða skemmri tíma og fjöldi
afgreiðslustaða gerir viðskipta-
vinum mögulegt að fá bíl -
afhentan á einum stað og skila
honum á öðrum.
Borgarnes: 93- 7618 Húsavlk: 96-41260/41851
Blðnduós: 95- 4136 . VopnafjðrðOr: 97- 3145/ 3121
Sauðárkrókur: 95- 5223 Egilsstaðir: 97- 1550
Siglufjörður: 96-71489 Hðfn Hornafirði: 97- 8303/ 8503 - ■ -x ' ‘ * \ \ í.'-* 'S*
interRent
Reykjavík: Skeifan9 91-86915/31615
Akureyri: Tryggvabraut 14 96-23515/21715
Með vísan til tilkynningar Seðlabankans um vexti og verðtryggingu láns- og
sparifjár frá 2. ágúst sl., hefur Alþýðubankinn ákveðið að frá og með 13. ágúst
1984 verði vaxtakjör bankans sem hér segir:
INNLÁN:
Nafnvextir Nafnvextir Ársávöxtun
áöur nú nu
1. Almennar sparisjóðsbækur 15,0% 17,0% 17,0%
2. 3ja mán. sparireikn. m. uppsögn 17,0% 19,0% 19,9%
3. 12 mán. sparireikn. m. uppsögn ... 19,0% 23,5% 24,9%
4. 3ja mán. verðtr. reikningar 0,0% 2,0%
5. 6 mán. verðtr. reikningar 2,5% 4,5%
6. Innlánsskírteini m. 6 mán. uppsögn 21,0% 23,0% 24,3%
7. Stjörnureikningar 5,0% 5,0%
8. Ávisanareikningar 5,0% 15,0%
9. Hlaupareikningar 5,0% 7,0%
10. innlendir gjaldeyrisreikningar:
- innstaeður í Bandaríkjadollurum . 9,0% 9,5%
- innstæöur í Sterlingspundum ... 7,0% 9,5%
- innstæður í Vestur-þýskum
mörkum 4,0% 4,0%
- innstæður í dönskum krónum ... 9,0% 9,5%
ÚTLÁN:
1. Víxlar (forvextir) 18,5% 22,0%
2. Hlaupareikningslán 18,0% 22,0%
3. Skuldabréfalán 21,0% 24,5% 26,0%
4. Verðtryggð skuldabréfalán:
- lánstími alit að 3 ár 4,0% 7,5%
- lánstími minnst 3 ár 5,0% 9,0%
5. Endurseljanleg lán 18,0% 18,0% 19,25%
6. Dráttarvextir* 2,5% 2,75%
‘Gildir frá 1. september nk.
Ath. Vextir eru breytilegir skv. ákvörðun bankaráðs Alþýöubankans hf
en vextir á eldri lánum breytast ekki.
Við gerum vei við okkar fólk
Alþydubankinn hf.