NT - 15.08.1984, Qupperneq 25
Miðvikudagur 15. ágúst 1984 25
Hætta
Kínverjar
æviráðn-
ingu?
■ Kínverjar víkja nú
stöðugt lengra af braut
hefðbundins ríkissósial-
isma. Svo virðist sem þeir
ætli meira að segja að
hætta æviráðningu á ríkis-
starfsmönnum.
Mörg fyrirtæki og stofn-
anir hafa kvartað yfir
þessu kerfi sem gerir það
að verkum að þau sitja oft
uppi með óhæfa starfs-
menn án þess að geta vikið
þeim úr starfi. Sumir
verkamenn hafa líka látið
freistast til lélegra mæt-
inga og að vinna illa þar
sem þeir vita að þeir eru
öryggir í störfum sínum.
Nú hafa sum ríkisfyrir-
tæki fengið l&yfi til að
lausráða starfsfólk með
ákveðnum skilyrðum til
skamms tíma í senn þann-
ig að því má segja upp ef
það stendur sig ekki í
störfum sínum. Stjórnvöld
stefna að því að fjölga
mjög slíku starfsfólki á
næstunni. Þetta fyrir-
komulag hefur þegar leitt
til aukinna afkasta í við-
komandi fyrirtækjum sem
fyrir bragðið hafa líka get-
að hækkað laun starfs-
mannanna.
Hið nýja fyrirkomulag
hefur þótt takast svo vel
að jafnvel er rætt um að
taka það upp í kínverskum
háskólum við ráðningu
kennara. Chongging-há-
skóli í Suður-Kína hefur
t.d. þegar fengið leyfi til
að stokka upp hluta af
starfsliði skólans og ráða
fyrirlesara eftir þörfum
hinna ýmsu dcilda. Þetta
þýðir m.a. að kennarar,
sem hafa litla kennsluhæfi-
leika eða litla faglega
þekkingu, verða að láta
sér nægja að starfa sem
aðstoðarmenn fyrirlesara
og bæti þeir ekki störf sín
missa þeir stöður sínar að
ári liðnu.
Þessar breytingar hafa
hingað til mætt lítilli sem
engri andstöðu meðal
starfsmanna viðkomandi
fyrirtækja eða stofnana
þar sem þau hafa leitt til
aukins sveigjanleika við
starfsval og hækkaðra
launa. Margir mennta-
menn og aðrir starfsmenn
með sérþekkingu hafa
kvartað yfir því að hæfi-
leikar þeirra nýtist ekki í
þeim störfum sem þeim
hafa verið fengin. Fram til
þessa hefur verið næstum
því ómögulegt fyrir þá að
skipta um starf en sveigj-
anlegra ráðningarkerfi
mun gera þeim kleift að
sækja um störf sem henta
þeim vel. Þannig nýtist
sérþekking þeirra mun
betur.
í mörgum greinum sem
birst hafa að undanförnu í
kínverskum blöðuni er
því haldið fram að núver-
andi kerfi æviráðningar
hafi leitt til mikillarsóunar
á menntuðum starfs-
mönnum. Nú sé kominn
tími til að breyta því þar
sem Kína þurfi á öllum
sínum menntamönnum og
sérfræðingum að halda við
hina hröðu uppbyggingu
landsins. Æviráðninga-
kerfið virðist því á hrað
fara undanhaldi í Kína.
Kínverjar og
Indverjar hefja
samvinnu um te-
söluogteræktun
■ Hópur indverskra embættis-
manna fór nýlega til Kína til að
semja um samvinnu um tesölu og
rannsóknir á sviði teræktunar og
teframleiðslu. Kínverjar munu
hafa tekið málaleitun Indverjanna
vel enda er líklegt að samvinna
þessara þjóða geti leitt til að
heimsmarkaðsverð á tei hækki en
það þýðir aftur meiri gjaldeyris-
tekjur fyrir þær.
Indverjar hafa að undanförnu
einnig rætt við yfirvöld á Sri Lanka
um teræktunar- og tesölusam-
komulag en meginið af öllu tei í
heiminum er ræktað í Kína, á Sri
Lanka og Indlandi. Takist þessum
þjóðum að koma sér saman um
sameiginlega markaðsstefnu er
ekki ólíklegt að þær hefji meiri-
háttar áróðursherferð til að auka
teneyslu í heiminum en slíkt gæti
leitt til áróðursstríðs við kaffi-
framleiðendur.
Kjarn-
orku-
birgi
yfir
tölvur?
Washington-Reuter
■ í skýrslu sem ríkisstjórn
Bandaríkjanna lét gera kemur
fram að nokkrar öflugar kjarn-
orkusprengjur í háloftunum
gætu gert varnarkerfi Banda-
ríkjanna óvirkt þar sem þær
myndu valda svo sterku rafseg-
ulsviði að það myndi rugla allan
rafeindabúnað á jörðu niðri á
svæði sem gæti náði til Banda-
ríkjanna allra.
I skýrslunni er lagt til að
Bandaríkjamenn búi sig þess
vegna undir hugsanlega kjarn-
orkuárás með því m.a. að útbúa
sérstök skýli sem væru kopar-
húðuð í von um að það geti
komið í veg fyrir truflandi áhrif
rafsegulsviðs á stjórnbúnað
bandarískra kjarnorkuvopna.
En það er nauðsynlegt að
stjórnbúnaðurinn og tilheyrandi
tölvur geti starfað eðlilega til
þess að Bandaríkjamenn geti
svarað með gagnárás.
Meðal þeirra vandamála sem
rafeindasérfræðingar áttu við að
stríða þegar þeir unnu umrædda
skýrslu er að allar kjarnorkutil-
raunir í andrúmsloftinu hafa
verið bannaðar. Menn vita því í
rauninni ekki hvað rafsegulsvið
sem myndast i kjarnorku-
sprengingum í andrúmsloftinu,
er sterkt né heldur hvernig best
væri að verja tækjabúnað fyrir
því.
■ Kóreanskir fangar ganga út í frelsið eftir sakaruppgjöf stjórnar-
innar í gasr. Símamynd-POLFOTO
■ Stjórnvöldum í Suður-Kór-
eu er nú mjög annt um að geta
sér gott orð erlendis í kjölfar
þess að þeim hefur verið falið
að sjá um Ólympíuleikana eftir
fjögur ár. Sakaruppgjöf 1.730
fanga í gær í tilefni af þjóðfrels-
isdeginum er tvímælalaust liður
í tilraunum stjórnarinnar til að
sýna útlendingum að lýðfrelsi
sé að aukast.
Sakaruppgjöfin er líka merki
um sterka stöðu stjórnarinn'ar
innanlands enda hefur henni að
mestu tekist að koma í veg fyrir
að sterk og sameinuð stjórnar-
andstaða yrði til.
Sautján hundruð
föngum sleppt
í Suður-Kóreu
■ Verkamenn í Gdansk skreyta með blómum minnismerki um þá sem féllu í óeirðum við
lögregluna fyrir fjórtán árum þegar verkamenn í skipasmíðaverksmiðjunum í Gdansk fóru í verkfall
til að mótmæla verðhækkunum á matvælum. Símamynd-POLFOTO
Fjögur ár f rá óeirðunum í Gdansk
Gdansk-Reuter
■ Yfir 2000 manns sóttu í
gær messu í pólsku borginni
Gdansk til að minnast þess að
þá voru fjögur ár liðin frá því
að verkamenn við skipasmíða-
stöðvarnar þar í borg hófu
mótmælaaðgerðir sem leiddu
til stofnunar óháðra verkalýðs-
félaga. Lech Walesa var meðal
kirkjugesta en hann var æðsti
leiðtogi óháðu verkalýðsfélag-
anna sem nú eru bönnuð.
Fólkið klappaði undir mess-
unni þegar presturinn, faðir
Henryk Jankowsky, sagði að
kirkjan myndi ekki draga til
baka kröfur sínar um mannlegt
þjóðfélagskerfi í Póllandi. Eft-
ir messuna ræddi Walesa við
prestinn á heimili hans. Um
150 manns kom þá saman fyrir
utan húsið þar sem Walesa
var. Fólkið hrópaði nafn hans
en fór samt í burt eftir að
presturinn bað það um að
halda til síns heima.
Pólska stjórnin sleppti ný-
lega úr haldi fjölda pólitískra
fanga sem tengdust hinum
óháðu verkalýðsfélögum.
Margir þeirra segja að skoðan-
ir sínar séu enn óbreyttar og
eru þeir nú að velta því fyrir
sér hvernig best sé að hefja
nýja sókn fyrir auknum lýð-
réttindum í Póllandi.
Verkamenn í Gdansk minnt-
ust þess líka í gær að þá voru
liðin fjórtán ár frá því að
hópur verkamanna lét lífið í
óeirðum við lögregluna vegna
verðhækkana á matvælum.
Meðal annars voru blómsveig-
ar lagðir á minnismerki þeirra
sem féllu í þessum átökum.
Los Angeles:
„Hetjan“ kom sjálf
sprengjunum fyrir
Vildi vekja á sér athygli
Los Angeles-Reuter.
■ Það hefur nú komið í ljós
að lögreglumaðurinn James
Pearson, sem „uppgötvaði"
sprengju á bíl tyrkneskra
íþróttamanna, hafði sjálfur
komið henni fyrir.
Pearson, sem er 40 ára
gamall, vildi vekja athygli á
því hvað hann væri góður
lögreglumaður með þessum
hætti. Hannþreifsprengjuna
og hljóp með hana 55 metra
vegalengd burt frá mann-
fjöldanum áður en hann
fleygði henni frá sér. Við
rannsókn kom í Ijós að úti-
lokað var að sprengjan hefði
verið á bíl Tyrkjanna þegar
hann kom inn á flugvöllinn.
Hún hlaut því að hafa verið
sett á bílinn inni á flugvellin-
um en þá voru lögreglumenn
þeir einu sem hefðu getað
gert það.
Við yfirheyrslur viður-
kenndi Pearson verknaðinn
og sagði að ætlun sín hefði
verið að vekja athygli yfir-
manna sinna í lögreglunni á
sér. Ekki er hægt að segja
annað en að honum hafi
tekist það.
Pearson á níu ára feril í
lögreglunni og hefur þótt
starfa þar með ágætum. Fyrst
eftir að hann „bjargaði-1
Tyrkjunum frá sprengjunni
var honum veitt heiðursorða
og bæði tyrknesk yfirvöld og
bandarísk hrósuðu honum
fyrir hugrekkið.
Brandarasmíð Reagans:
Hættuleg og
ábyrgðarlaus
- segir v-þýskt blað
London-Reuter
■ Fjölmiðlar bæði í Vestur-
og Austur-Evrópu, fordæmdu
Reagan Bandaríkjaforseta í gær
fyrir að hafa sagt frekar óheppi-
legan brandara um Sovétríkin
þegar forsetinn var að prófa
hljóðnema fyrir útvarpssend-
ingu.
Sovéskir fjölmiðlar hafa ekki
minnst á atvikið en Pólverjar,
Heimsmet
í rakstri
London-Reuter.
■ Breskur rakari komst
í heimsmetabók Guinness
í gær þegar hann rakaði
235 menn með rakhníf á
einum klukkutíma.
Rakarinn, sem heitir
Gerry Harley notaði 12
hárbeitta rakhnífa og
■ sagðist eftir törnina aðeins
hafa skorið einn mann-
anna 235.
Harley á einnig metið í
hraðrakstri með rakvél en
það er 987 kjammar á
klukkutíma.
sem urðu fyrir barðinu á kírnni-
gáfu Reagans árið 1982, sögðu
að nú hefði Reagan aftur gefið
yfirlýsingu sem hæfði alls ekki
stöðu hans sem leiðtoga risa-
veldis.
í hljóðnemaprófuninni, sem
barst óvart til eyrna frétta-
manna, sagðist Reagan hafa
verið að enda við að skrifa undir
lög sem myndu gera Rússa
óskaðlega í framtíðinni. „Við
byrjum að sprengja eftir fimm
mínútur!“ I hljóðnemaprófun
árið 1982 kallaði Reagan pólska
leiðtoga afdankaða ónytjunga.
Vestur-þýska blaðið Frank-
furter Rundschau sagði í gær að
suma hluti gætu menn í opinber-
um stöðum, og þá sérstaklega
forseti voldugasta ríkis heims,
ekki haft í flimtingum, ekki
einu sinni í einrúmi. „Það er
ekki hægt að afsaka þetta síð-
asta dæmi um kímnigáfu Banda-
ríkjaforseta. Orð hans eru
hættuleg og ábyrgðarlaus,“
sagði blaðið.
Franska blaðið Le Matin
gagnrýndi Reagan einnig en
sagði að hann væri í góðum
félagsskap. Því þegar Pompidou
fyrrum forseti Frakka heimsótti
Moskvu árið 1970, bað Brésnev
hann um að ýta á hnapp einn og
sagði síðan: „Nú varstu að eyða
París!“