NT - 15.08.1984, Blaðsíða 26

NT - 15.08.1984, Blaðsíða 26
Miðvikudagur 15. ágúst 1984 26 Heimilistæki sem henta öllum hvaö viðvíkur verði og gæðum. Við bjóðum upp á hagkvæmar lánagreiöslur og að sjálfsögöu staðgreiðsluafslátt. Husqvarna Husqvarna-lánin Leið að nýju eldhúsi. ÁSKRIFTASÍMAR NT 686300-18300 Úrval af skrifborðum, bókahillum og skrifborðs- stólum fyrir skólafólk. Joker skrifborðið kostar aðeins kr. 3.850.- með yfirhillu. Vandaðir skrifborðsstólar á hjólum. Verð frá kr. 1.590.- Húsgögn og & & & Suðurlandsbraut 18 innrettmgar simi 6-86-900 ■ Með blómvönd frá menntamálaráðherra í annarri hcndinni og verðlaunapening frá Olympíuleikunum í hinni. Bjarni Friðriksson júdómaður við komuna til landsins í gær. NT-mynd: Róbert. „Þetta er engu líkt“ ■ Þráinn Hafsteinsson var fararstjóri og aðstoðarmaður frjálsíþróttafólksins á ÓL. Þráinn átti upphaflega að keppa á leikunum en gat það ekki vegna meiðsla. NT spurði Þráinn hvernig væri að vera á Ólympíuleikum. „Þetta er engu líkt,“ sagði hann „aðstað- an og allt annað var tíl fyrir- myndar og ekkert skorti.“ „Það sem kom mér mest á óvart á þessum leikum er að Bjarni skyldi vinna til verð- launa og ég tel það frábæran árangur." Um frammistöðu frjálsíþróttafólksins sagði Þrá- inn að hún væri mjög þolanleg yfir höfuð og hann var mjög ánægður með frammistöðu Ein- ars Vilhjálmssonar. „Ég gerði mér vonir um að hann yrði í einu af sex efstu sætunum og það rættist.“ Olympíufararnir komu heim í gær ■ Snemma, í gærmorgun komu íslensku Ólympíufararnir til lands- ins eftir vel heppnaða Ólympíuleika í Los Angeles. Á þessum Ólympíu- leikum komst íslendingur á verð- launapall í annað sinn síðan íslend- ingar hófu þátttöku á Ólympíu- leikum. Þetta var Bjami Friðriksson júdómaður en hann hreppti brons- verðlaun í 95 kg flokki. Árangur íslensku keppendanna var nokkuð góður í heild. Hand- knattleiksliðið varð í 6. sæti og tryggði sér þátttöku í A-keppni Heimsmeist- arakeppninnar, Einar Vilhjálmsson varð í sjötta sæti í spjótkasti, Oddur Sigurðsson komst í milliríðla í 400m hlaupi, sundfólk okkar setti nokkur íslandsmet og hinir íslensku kepp- endurnir stóðu sig með sóma og báru íslendingum gott vitni. Er vélin lenti með íþróttafólkið tóku á móti þeim m.a. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra og forvígismenn íþróttahreyfingarinnar auk útvarps-, sjónvarps- og blaða- manna. NT lét sig ekki vanta á staðinn þrátt fyrir að ekki væri klukkan margt. Náði blaðamaður tali af nokkrum Ólympíufaranna . „Besti árangur íslands" ■ „Árangur íslendinga á ÓL er mjög góður og reyndar sá besti frá upphafi og ég er mjög ánægður með heildar útkomuna,“ sagði Sveinn Björnsson forseti ISI og fararstjóri á Ólympíuleikunum í samtali við blaðamann NT við heimkomu ís- lensku íþróttamannanna í gærmorg- un. „íslendingar eru ein af rúmlega 40 þjóðum sem vinna til verðlauna en alls um 100 þjóðir vinna ekki til neinna verðlauna svo mér finnst sem við höfum sannað mjög tryggilega þátttöku okkar á Ólympíuleikum. Arangur handknattleiksliðsins, Ein- ars og Odds svo maður tali ekki um Bjarna er mjög góður og ég er ánægður með frammistöðuna í heild,“ bætti Sveinn Björnsson við. Aðspurður um minnisstæðasta at- vikið á nýliðnum Ólympíuleikum sagði Sveinn að það hefði verið ógleymanlegt í höllinni þar sem Bjarni Friðriksson var að keppa. „Er hann keppti við bandaríska meistarann þávoru allir áhorfendur, eins og í öðrum greinum, með sínum manni og ætlaði höllin að springa en svo smá fjaraði það út er Bjarni lagði Bandaríkjamanninn. Síðan lagði hann hvern kappann af öðrum og það var stór stund að sjá íslenska fánann dregin að húni við verðlauna- athöfnina,“ sagði Sveinn Björnsson. „Náðum okkar takmarki“ ■ Sigurður Gunnarsson var fjórði markhæsti leikmaður handknatt- leikskeppninnar á Ólympíuleikun- um og stóð sig með afbrigðum vel í keppninni. Hann var spurður hvort hann væri ekki Ijómandi ánægður með frammistöðu sína á leikunum. „Ég er það vissulega, en þetta var þó fyrst og fremst sigur liðsheildar- innar. Við náðum okkar takmarki ' og ég vil meina einu stigi betur því við höfðum ekki gert ráð fyrir að fá stig á móti Júgóslövum. Hins vegar hefði verið skemmtilegra að vinna Svíana þarna í restina," bætti Sigurð- ur við og brosti. „Ef við hefðum sigrað Júgóslava í fyrsta leiknum þá hefði þetta orðið allt önnur keppni og ómögulegt að segja til um hvað hefði gerst,“ sagði Sigurður Gunnarsson. „Fengum lánaðan bát“ ■ íslendingar sendu nú í fyrsta skipti siglingamenn til keppninnar á Ólympíuleikum. Fyrir valinu urðu Frá Eiríki Hmnannssyni íþróttafréttamanni NT á Suðumesjum ■ Njarðvíkingar unnu Einherja með þremur mörkum gegn engu í 2. deildinni í knattspyrnu í Njarðvík í gærkvöld og bættu þannig þremur mikilvægum stigum í söfnunina fyrir 1. deildarsæti. Heimamenn komu ákveðnir til leiks og sýndu góða knattspymu framan af. Þeir tóku forystuna strax á 5. mín. með föstu skoti Kristins Guðbjartssonar, eftir sendingu frá Jóni Halldórssyni, sem hafði leikið vörn Einherja grátt. Kristinn bætti þeir félagar Jón Pétursson og Gunn- laugur Jónasson. Þeir stóðu sig með mildlli prýði og þá sérstaklega fyrstu keppnisdagana. NT spurði Jón hvort íslenskir siglingamenn hefðu eitt- hvert eríndi á Olympíuleika? „Það er dálítið erfitt að dæma um það,“ sagði Jón. „Það verður bara að koma í ljós hverju sinni hvort rétt sé að senda siglingamenn út.“ „Við fengum lánaðan bát og síðan þurfti að setja á hann nýjan búnað og breyta honum dálítið og það var það sem tók dálítinn tíma. Annars eru þessir bátar mjög svipaðir að sigla þeim svo það háði okkur ekki mikið,“ sagði Jón. Aðspurður um aðstöðuna á keppnisstaðnum sagði Jón að hún hefði verið mjög góð allt hefði verið til alls þarna. „Við höfðum sérstakt viðgerðartjald sem við gátum notað til að ganga frá bátnum fyrir hvern dag og aðstæður voru allar mjög góðar.“ Þess má geta að Jón og Gunn- laugur höfnuðu í 23.sæti í keppninni, en voru um tíma mun ofar. fljótlega við öðru marki með hörku- skalla frá markteig miðjum. Ekkert mál enda óvaldaður og Hreiðar markvörður sem jarðfast bjarg á línunni. Eftir þetta misstu Njarðvíkingar tökin á leiknum og Einherjar sóttu í sig veðrið. Þeim tókst þó ekki að koma tuðrunni í netið. í síðari hálfleik tókst UMFN að bæta þriðja markinu við er Jón Halldórsson skoraði snaggararlega á 75. mín. eftir sendingu frá Frey Sverrissyni. Þannig var lokastaðan 3-0 fyrir Njarðvík. 2. deildin í knattspyrnu: GóðursigurUMFN

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.