NT


NT - 30.08.1984, Side 10

NT - 30.08.1984, Side 10
Fimmtudagur 30. ágúst 1984 10 NEYTENDA SÍÐA í NT Neytendablaðið i nýjum búningi ■ Blað Neytendasamtak- anna, Neytendablaðið, er komið út í breyttu formi. Framvegis er ætlunin að blaðið komi út tíu sinnum á ári og í dagblaðsbroti. Útgefendur segja tilganginn með breyting- unni fyrst og fremst þann að koma blaðinu örar út, vekja meiri áhuga á samtökunum og einstökum neytendafélögum og koma félagsmönnum í virk- ari tengsl við samtökin. Neytendablaðið er 12 síður að stærð og auglýsingar taka ekki mikið rúm í blaðinu (u.þ.b. 1 síða samanlagt). í blaðinu er nokkuð fjallað um sölu kartaflna en einnig er þar að finna fjölmargar greinar um ýmis hagsmunamál neytenda. Nefna má greinar um sparnað í heimilisrekstri, afgreiðslu- tíma verslana, verð sólarlanda- ferða, verðmerkingar o.s.frv. Neytendablaðið er sent öllum félögum Neytendasam- takanna auk þess sem jtessu tölublaði er dreift ókeypis í sýningarbás samtakanna á Heimilissýningunni í Laugar- dalshöll. I framtíðinni er mein- ingin að blaðið verði einnig selt í lausasölu. Verðskipting á erlendum vörum: Innkaupsverðið aðeins brot af heildarsummunni ■ Það er ýmislegt sem hleðst ofan á verð innflutts varnings áður en hinn íslenski neytandi fær liann í hendur og dregur upp budduna sína til að borga. Skýringarmyndirnar hér til hægri eru sýnishorn úr Neyt- endablaðinu nýja sem sagt er frá annars staðar á síðunni. Myndirnar sýna hvernig verð fjögurra vörutegunda skiptist milli ýmissa aðila. Eins og sjá má er hið raunverulega innkaupsverð vörunnar í mörgum tilvikum aðeins lítill hluti heildarverðsins. Aftur á móti tekur ríkið í sumum til- vikum meira en helming heild- arverðsins í sína varðveislu. Myndirnar eru unnar af Verðlagsstofnun. ■ Nú fer neytendasíðan af stokkunum hjá NT. Það hefur frá upphafi verið stefna hjá NT að veita lesendum sínum sem besta og fjölbreyttasta þjón- ustu og neytendasíða er sjálf- sagður liður í þeirri viðleitni, enda neytendur fjölmennasta stétt landsins þar eð sennilega má telja alla landsmenn til hennar á einn eða annan hátt. Það er líka stefna neytenda- síðunnar að fjalla um neyt- endamál í víðum skilningi og aðstandendur hennar vonast til að hún muni aldrei falla í þá gryfju að birta aðallega matar- uppskriftir. Með þessu er þó ekki verið að hafa horn í síðu matar- uppskrifta og ef lesendur eiga í fórum sfnum uppskriftir að sérstaklega ódýrum máltíðum, þá eru þær vel þegnar. Sparnaður er gulls ígildi, einkum á þessum síðustu og verstu tímum þegar kaupmátt- ur er lægri en verið hefur um langan tíma og heimilisút- gjöldin þar af leiðandi óyfir- stíganlegri en nokkru sinni, a.m.k. fyrir þá sem ekki hafa úr öðru að spila en lágum dagvinnutekjum. Neytendasíðan vill gjarnan hjálpa lesendum sínum að spara og öll sparnaðarráð frá lesendum eru því vel þegin. Má þá einu gilda hvort um er að ræða sparnað í matarinn- kaupum eða einhverju öðru. Skrifið neytendasíðunni bréf- korn og látið vita af hugmynd- um ykkar um sparnað. Lesendur neytendasíðunnar mega þó ekki ætlast til allt of mikils af henni í byrjun því að sjálfsögðu verður að reikna með nokkrum byrjunarörðug- leikum, bæði í efnisvali og efnisöflun og það má segja að þetta verði nokkurs konar til- raunastarfsemi til að byrja með. Fyrst um sinn er þó ætlunin að neytendasíðan verði í blaðinu þrisvar í viku; á mánudögum, fimmtudögum og föstudögum. Ríki Flutningsaðili Innkaupaverð Cheerios Verð til neytenda 100% Til umboðsaðila 14% Til ríkis 36% Til flutningsaðila 15% Innkaupsverð 35% Umboðsaðili Ríki Flutningsaðili= Innkaupsverð 100% 15% 52% 3% 30% Frystikista Verð til neytenda Til umboðsaðila Til ríkis Til flutningsaðila Innkaupsverð Innkaupsverð 100% 26% 43% 6% 25% íö •VSV-Vj ry.'VVS ' - ' .Í'A v N.' _ \ Ný bifreið Söluverð Til umboðsaðila Til ríkis Til flutningsaðila Innkaupsverð -VLVf/' V-/T'I Umboðsaðili Rfki "Flutningsaðili" Innkaupsverð Hjólbarðar Smásöluverð Til umboðsaðila Til ríkis Til flutningsaðila Innkaupsverð 100% 26% 40% 6% 28% Ekki hægt að hringja „kollekt“ alls staðar - samningar í gildi við um 25 lönd ■ - Ég ætla að fá kollekt til Kúlúsúk, takk. - Nei, því miður. Það er ekki hægt lengur. Grænlendingar sögðu upp samningnum í fyrra. ■ Margur íslendingurinn hefur þurft að bregða á það ráð eftir að hafa lent í kröggum erlendis að hringja „kollekt" heim til ættjarðarinnar þ.e. láta greiða símtalið heima. Þetta hringingaform er þó alls ekki jafn sjálfsagt og auðvelt og margur heldur. Um þessi símtöl gilda samningar milli einstakra landa og samkvæmt upplýsingum varðstjóra á tal- sambandinu við útlönd hefur ísland gert slíka samninga við um 25 ríki. Frá Norðurlöndunum öllum er hægt að hringja „kollekt“ til gildi, eru þeir gagnkvæmir. Holland íslands og sama gildir um flest þ.e. þá er hægt að hringja írland önnur ríki í Vestur-Evrópu „kollekt“ í báðar áttir. ísrael auk þess' sem ísland hefur Hér fer á eftir listi yfir þau Ítalía samninga um þessi mál við ríki sem hægt er að hringja Júgóslavía nokkur ríki utan Evrópu, þar „kollekt“ til - og frá: Kanada á meðal Ástralíu, Bandaríkin Alaska Kýpur og Kanada. Ástralía Lúxemburg Meðal Vestur-Evrópuríkja Belgía Noregur sem ekki eru til samningar við Danmörk Nýja Sjáland eru Spánn, Vestur-Þýskaland, England Portúgal Austurríki og Grænland sem Finnland Puerto Rico öll hafa sagt upp samningun- Færeyjar Sviss um. Frakkland Svíþjóð í þeim tilvikum sem samn- Grikkland Tékkóslóvakía ingar um þessi símtöl eru í Hawai USA

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.