NT - 01.09.1984, Side 5
Listasafn ASÍ:
Exsept-hópurinn
opnar sýningu
■ Exsept-hópurinn opnar sýningu á verk-
um sínum í Listasafni ASÍ í dag laugardag-
inn 1. september. Að þessu sini taka þátt í
sýningunni þeir Guðmundur Ármann, sem
sýnir grafík, Oli G. Jóhannsson, sem sýnir
akrílmyndir og grafík og Kristinn G. Jó-
hannsson, sem sýnir olíumálverk og teikning-
ar.
Peir þremenningarnir sýna alls um 60 verk
og eru þau afar ólík innbyrðis. Exsept-hópur-
inn var stofnaður fyrir einu ári og er
tilgangur hans að efna til sýninga, eins og
þeirrar sem nú er í Listasafni ASI.
Stórhátíð skáta í
Hljómskálagarðinum
■ Sipp, júdó, glíma, húlla, rokktónleikar,
breik, kajakróður og margt, margt fleira
verður til gamans gert á Reykjavíkurmóti
barna í Hljómskálagarðinum sem skátafé-
lagið stendur fyrir á sunnudaginn. Keppnin
er öllum opnin aðgangseyrir enginn og
þátttaka ókeypis.
Boðið verður upp á siglingar á tjörninni
en reynslan hefur sýnt að þær eru hinar
ákjósanlegustu fjölskylduferðir. Keppt
verður í þremur aldursflokkum í 10 íþrótta-
greinum, þar á meðal, kassabflaralli, skalla-
bolta, að labba á grindverki, reiðhjólakvart-
mílu og snú-snúi. Bráðfjörug fimmtar- og
tugþraut verður á dagskránni og svo koma
breikarar, glímumenn, kraftlyftingamenn,
karategæjar og margir fleiri og sýna listir
sínar. Tónleikar, dúfnasýning, talstöðva-
kynning, þjóðdansar og flugdrekasýning
verða meðal dagskráratriða og eru allir
hvattir til að hafa með sér flugdreka á
svæðið. Þá ætti enginn að þurfa að svelta því
gestum verður boðið að grijla sér gómsætar
pylsur á hlóðum. Skráning í keppnisgreinar
hefst fimm mínútur yfir tvö eftir hádegi en
dagskráin hefst klukkan hálf tvö og stendur
fram eftir degi.
Sýning á yatnsnuddpottum
að Grensásvegi 8
Laugardag kl. 1-5 Sunnudag kl. 1-5
Eigum á lager, til afgreiðslu strax nokkrar gerðir og liti af hinum
frábæru AKRYL nudd-baðlaugum. Henta úti sem inni.
★ Allur sundlauga- og potta
fíttings
★ Hreinsitæki
★ Ljós í sundlaugar og potta
★ Klór í duftformi
★ Yfirbreiðslur
★ Vatnsnudd
★ Leiktæki fyrir sundlaugar
★ Og margt annað
Fáanlegir með tvennskonar nuddi. Allir nuddpottar frá okkur
rispast ekki, upplitast ekki og eru því alltafsem nýir.
Verið velkomin á sýninguna um helgina milli 13 og 17 að
GRENSÁSVEGI8
K. Auðunsson h/f Á. Óskarsson h/f
sími 686088 sími 666600
Við erum sveigjanlegir
í samningum.
eru með AKRYLHÚÐ sem
Bændur — Athugið
Sláttuþyrlur
Vegna mikillar eftirspurnar
eftir okkar landsþekktu og vönduðu
búvélum, hefur okkur tekist að fá til
landsins viðbótarfarm af eftirtöldum
vélum á mjög góðu verði og greiðslu-
kjörum:
Heyhleðsluvagna
Hafið samband
við sölumenn okkar.
BUNAÐARDEILD SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK S. 38900
imeraational
Ásamt hinum
stórglæsilegu IH
dráttarvélum.
ffhv Heyþyrlur og
stjörnumúgavélar