NT - 07.11.1984, Blaðsíða 27
■ Björn Jónsson UBK reynir skot að marki Þórs en Gylfi Birgisson er til vamar.
Holland:
Michels ráðinn
Miðvikudagur 7. nóvember 1984 27
íþróttir
Handknattleikur 1. deild:
Þórarar unnu
UBK örugglega
■ Nýliðarnir í 1. deild UBK
og Þór Ve. öttu saman hestum
sínum í Digranesskóla í Kópa-
vogi í gærkvöldi og lauk
leiknum með sigri Þórara sem
gerðu 23 mörk gegn 18 mörkum
UBK.
Það voru samt Kópavogs-
strákarnir sem byrjuðu leikinn
mun betur og höfðu yfirhönd-
ina fyrstu mínúturnar eða þar
til staðan var 4-2. Þá tóku
Vestmannaeyingarnir við sér
og skoruðu næstu 6 mörkin, 4-8
fyrir gestina.
Breiðablik gafst ekki upp og
náði að jafna fyrir leikhlé með
því að skora tvö síðustu mörkin
í hálfleiknum, 10-10.
í seinni hálfleik náðu Þórarar
fljótlega 4 marka forystu 15-11
og eftir það slökuðu þeir aldrei
á og tryggðu sér öruggan sigur
eins og áður sagði, 23-18.
Sigmar Þröstur Óskarsson,
markvörður Þórs var besti
maðurinn í þessum leik varði
alls 15 skot af öllum gerðum.
Páll Scheving og Sigurður
Friðriksson léku og vel og
skoruðu mest Þórara, 6 mörk
hvor. Gylfi Birgisson var ógn-
andi og gerði 4 mörk eins og
Óskar Brynjarsson.
Hjá UBK var markvörður-
inn Guðmundur Hrafnkelsson er skemmst frá því að segja að
bestur en Björn Jónsson og Stjarnan sigraði örugglega 28-
Kristján Gunnarsson léku 21 eftir 14-11 í hléi. Hjá Stjörn-
sæmilega og gerðu 4 mörk unni var Brynjar góður í mark-
hvor. inu og Sigurjón og Guðmundur
Strax á eftir leik Þórs og gerðu 7 mörk hvor. Jóhannes
UBK léku Stjarnan og KR og (8) var markahæstur KR-inga.
Opna sænska tennismótið:
McEnroe sigraði
■ John McEnroe, tennissnill-
ingurinn skapstóri, sigraði á
Opna sænska tennismótinu í
fyrrakvöld. Hann sigraði Sví-
ann Mats Wilander, fyrrum
sigurvegara á þessu móti, með
6-2, 3-6 og 6-2.
McEnroe, sem á á hættu að
verða dæmdur í 3ja vikna keppn-
isbann vegna tryllingslegrar
framkomu í undanúrslitaleiknum
gegn Anders J arryd, var ó venj u
stilltur í leiknum gegn Wi-
lander. Hann fékk að vísu að-
vörun í 2. lotu fyrir munn-
söfnuð en þar fyrir utan þá
einbeitti hann sér að leiknum.
Aðvörunin sem McEnroe
fékk var fyrir að segja áhorf-
endum að „halda kjafti“ eftir
að þeir höfðu púað á hann er
hann byrjaði að hjala í dómur-
unum.
í leiknum sýndi McEnroe
enn einu sinni að hann er besti
tennismaður í heiminum í dag.
Uppgjafir hans voru frábærar
en aftur á móti átti Wilander í
erfiðleikum með sínar uppgjaf-
ir.
McEnroe sagði eftir leikinn
að sér hefði fundist línudómar-
arnir í Stokkhólmi ekki vera
nógu góðir og ítrekaði þá
skoðun sína að atvinnudómar-
ar ættu að ferðast með atvinnu-
mönnum á stórmót og sjá
um alla dómgæslu. Hann hefur
ekkert látið uppi um hvort
hann muni kæra þann dóm sem
hann á yfir sér.
■ Rinus Michels, sá er var
einn af lykilmönnum í að gera
Hollendinga að stórveldi í
knattspyrnu í upphafi áttunda
áratugsins, hefur nú tekið við
stjórnartaumunum hjá hol-
lenska landsliðinu á ný. Honum
er ætlað það hlutverk að gera
Hollendinga aftur að knatt-
spyrnuveldi.
Hann var skipaður þjálfaii í
síðustu viku og tekur við af
Kees Rijvers sem sagði af sér
og bar við að hann hefði att
erfitt með að vinna í „andrúms-
loftinu“ í kringum liðið.
Michels, sem þjálfaði bæði
Ajax og Bercelona á sínum
tíma, sagði, eftir að hann var
ráðinn: „Það er gott að vera við
stjórnvölinn aftur en ég hefði
kosið að aðstæður hefðu vcrið
ákjósanlegri.“ Er talið að hann
hafi átt við að hann hefði ekki
viljað vera skipaður eftir upp-
sögn Rijvers.
Michels, sem er 56 ára og var
hjá Ajax er þeir unnu fyrsta
Evrópumeistaratitil félagsins,
sagði, að hans fyrsta verk yrði
að koma landsliðinu í úrslita-
keppni heimsmeistarakeppn-
innar í Mexíkó árið 1986. Hol-
■ Diego Armando Maradona
- það er erfitt að ímyndasér að
kappinn sé jafn dýr og raun ber
vitni. En hann hefúr þó rífandi
tekjur það vita allir.
lendingar töpuðu fyrsta
leiknum í síðnum riðli á móti
Ungverjum í Hollandi, 2-1.
„Ég mun gera nokkrar breyt-
ingar á liðinu,“ sagði Michels,
„það vantar fleiri reynslumikla
leikmenn, sérstaklega í vörn-
ina.“ Þá bætti hann við að sú
leikaðferð sem Rijvers hefði
beitt, þ.e. sóknarleikur, væri
mjög vandmeðfarin aðferð.
Michels var oft kallaður
„Herforinginn“ vegna þess hve
strangur hann var. Hann var sá
þjálfari sem skóp stjörnuna
JohanCruyff.Cruyfflfylgdi síðan
Michels frá Ajax til Barcelona
og þaðan til Los Angeles Azt-
ecs í Bandaríkjunum. Michels
er einnig hönnuður þess sem
Punktar...
...FYRIRTÆKIÐ DIEGO
MARADONA Productions
Ltd. hafa boðið ítalska sjón-
varpinu þjónustu argentínska
stórstirnisins við lýsingar á
leikjum. Ákveðnar greiðslur
hafa verið nefndar í þessu
sambandi af hálfu fyrirtækisins.
Maradona vill fá litlar 14 mill-
jónir ísl. krónurfyrir... klukku-
tímann...
...JOHAN TELEN sem spilar
með Standard Liege í Belgíu,
þar sem Ásgeir Sigurvinsson
var, mun sennilega hugsa sig
dálítið um áður en hann fagnar1
marki næst. Eftir að hafa skor-
að jöfnunarmark gegn Ander-
lecht þá hljóp hann út fyrir
völlinn til að heilsa áhorfendum
en þá réðist á hann lögreglu-
hundur og beit hann í lærið.
..ÆÆÆ... Sauma þurfti nokk-
ur spor í kappann og hann
fagnar ekki á næstunni nema
þá mjög hljóðlega...
...SEPP PONTIEK, þjálfari
danska landsliðsins, sem kos-
inn var „þjálfari ársins“ af
knattspyrnuritinu World
Soccer fyrir árið 1983, sagði í
viðtali við blaðið: „Það skiptir
engu máli fyrir mig hvort leik-
menn mínir fari út eftir leik og
drekki einn, 10 eða 15 bjóra og
kallað hefur verið „Total
football“ sem byggði á því að
allir tíu útispilararnir á vellin- j
um gátu tekið stöðu hvers ann-
ars og leikið þannig nokkuð
óháð hinum föstu leikkerfum.
Þessi leikaðferð kom Hollend-,
ingum í úrslit í heimsmeistara-1
keppninni bæði 1974 á móti
V-Þjóðverjum og 1978 á móti
Argentínumönnum. Þessir
leikir töpuðust að vísu báðir.
Næsti leikur Hollendinga í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar er á móti Austur-
ríkismönnum þann 14. nóvem-
ber.Hvort Michels verður búinn
að finna réttu blönduna af leik-1
mönnum til að vinna þann leik )
verður að koma í ljós.
vaki fram eftir nóttu ef þeir
mæta allir til að borða hádegis-
mat daginn eftir. Það sem skipt-
ir máli er að þeir fari inná
völlinn og spili eftir bestu
getu.“ Þetta sagði Sepp eftir að
Danir ,unnu Belga í Evrópu-
keppninni en það kvöld var
hraustlega tekið til við ölteiti...
...ROBERT HOPKINS sem
spilar með Birmingham var á
síðasta keppnistímabili rekinn
af velli einu sinni, bókaður 14
sinnum og hlaut fleiri en 50
refsistig. Hann sagði eftir
keppnistímabilið að nú myndi
hann slappa af og hegða sér
skynsamlega. Hvað hefur
gerst? Jú, hann hafði verið
bókaður þrisvar og einu sinni
rekinn af velli eftir aðeins 8
ieiki á þessu keppnistímabili.
Hvílík framför!...
...ÍTÖLSKU risarnir í knatt-
spyrnu AC Mílanó, Napóli, Fi-
orentina, Roma, Torinó og Ju-
ventus hafa lýst því yfir að þeir
vilji hleypa erlendum þjálfur-
um inn í ítölsku knattspyrnuna.
Eins og alkunna er, eru í
ítölsku knattspyrnunni stjörnur
hvaðanæva að úr heiminum
sem heilla ítaiska áhorfendur
og nú vilja stóru félögin fá
rjómann af þjálfurum allsstaðar
Afríkuleikir
■ Tveir leikir voru í
undankeppni heims-
meistarakeppninnar í
knattspyrnu um síðustu
helgi, báðir í Afríkuríðl-
um.
Nígería, sigraði Líberíu
1-0 og heldur áfram með
samtals 4-0 sigri. Temile
skoraði markið.
Gambía sigraði Ffla-
beinsströndina 3-2.
„Ströndin“ kemst þó á-
fram þar sem fyrrí leikur-
inn vannst, 4-0. Mballeh
2 og Saine skoruðu fyrir
Gambíu en Traore og
Tehi fyrir „Ströndina“.
að úr heimipum til að þjálfa
ítalska knattspyrnumenn....
...GUNTER NETZER hjá
Hamburger SV horfði á leik
Southampton og Man. Utd. á
The Dell sem lyktaði með jafn-
tefli 0-0 og hafði þetta um
leikinn að segja: „Ef annað
hvort liðið léki á þennan hátt
gegn Hamborg þá þyrftum við
að hafa 11 sjúkrabörur tilbúnar
á hliðarlínunni fyrir okkar-
menn“...
MÍCHF.L PLATINI lék 100.
leik sinn með Juventus þegar
þeir unnu Sambenedettese 5-0
í ítalska bikarnum.
Platini sem kom til Ítalíu frá
St. Etienne í Frakklandi árið
1982 hefur leikið 58 deildarleiki
(36 mörk), 25 bikarleiki (13
mörk) og 17 evrópuleiki (7
mörk)...
■ í 11. leikviku Get-
rauna komu fram 2 raðir
með 11 réttum og var
vinningur fyrir hverja röð
kr. 227.910.00 og 79 raðir
mcð 10 rétta og vinningur
fyrir hverja röð kr.
2.472.00.
punktar ■■■ punktar ■■■
■ John McEnroe - Besti tennisleikari í heimi og sá skapversti.
Peningar...peningar
■ Nú hefur komið til tals
hjá forráðamönnum Ólymp-
íuleikanna í Seoul að færa
úrslitakeppnir í hinum ýmsu
greinum fram, þannig að þær
verði háðar að morgni dags
en ekki seinnipartinn. Þessi
taillaga er til komin vegna
þess að bandaríska sjón-
varpsstöðin ABC hefur boð-
ist til að borga mun stærri
upphæð fyrir sjónvarpsrétt-
inn af leikunum ef hægt verð-
ur að sýna þessa atburði á
besta sjónvarpstíma í
Bandaríkjunum.
Á nýafstöðnum fundi hjá
158 fulltrúum ólympíu-
■ ■■
nefnda víðsvegar að úr heim-
inum, sem haldin var í Mex-
íkó fyrir stuttu, varð þetta
nokkuð hitamál. Einn full-
trúi frá Afríku sagði í viðtali
að bæði Kóreubúar og ABC
sjónvarpsstöðin vildu að
þetta yrði gert svo spurning-
m er bara hve miklu máli
peningar skipta.
Heyrst hefur að ABC sé
tilbúið að greiða 750 milljón-
ir dollara ef keppt verður að
morgni en aðeins 250 mill-
jónir ef keppt verður síðdegis.
750 milljónir dollara eru um
2 billjónir ísl. krónur. Það
gæti skipt rnáli...