NT - 07.11.1984, Blaðsíða 25
Miðvikudagur 7. nóvember 1984 25
Kosningamar í Bandaríkjunum
Kosningabarátta
- þjóðerniskennd eða sanngirni?
í auglýsingatíma
■ Forsetahjónin koma á kjörstað í Solvang, byggðarlagi danskra innflytjenda, í Kaliforníu í gær.
Símamynd-POLFOTO.
Ögn hjátrúarfullur forseti
■ Sjónvarpsahorfendur i
Bandaríkjunum fóru ekki var-
hluta af því í gærkvöldi að
forsetakosningar stæðu fyrir
dyrum. Þeir sem settust í róleg-
heitum fyrir framan tækin sáu
lítið af venjulegu efni, en þeim
mun meira af pólitískum auglýs-
ingum, lokatilraunum til að
vinna hug kjósenda fyrir kosn-
ingarnar í dag. Það voru bæði
forsetaframbjóðendur og minni
spámenn sem fluttu þjóðinni
boðskap sinn, hver með sínum
stíl.
Ronald Reagan talaði í sam-
fellt tuttugu mínútur úr forseta-
stólnum í Hvíta húsinu. Það var
fátt undir sólinni sem hann
minntist ekki á þegar hann bað
um umboð til að ljúka því verki
sem hann hóffyrirfjórum árum.
Hann lék á strengi þjóðernis-
stefnu og minnti á árangur
Bandaríkjamanna á Dlympíu-
leikunum í sumar, innrásina í
Grenada og endurheimtan virð-
ingarsess Bandaríkjanna á al-
þjóðavettvangi. „Við erum rétt
að byrja endurreisnina og eigum
mikið verk óunnið við að byggja
upp þetta stórkostlega land,“
sagði forsetinn á meðan brugðið
var upp rómantískum sólarlags-
myndum.
Auglýsingar Walters Mond-
ale voru með öðru sniði. „Ég vil
frekar verða undir í kosningum
sem snúast um siðgæði og sann-
girni, heldur en sigra í kosning-
um um eiginhagsmuni,“ segir
Mondale með alvöru í svip með-
an að eldri borgarar lýsa versn-
andi lífsafkomu sinni undir
stjórn Reagans. Lítil börn lýstu
framtíðardraumum sínum í
skugga kjarnorkueldflauga og
atvinnulausir verkamenn og
bændur töluðu um erfiðleika í
efnahagslífinu. Sanngirni og
samúð með þeim sem minna
mega sín var undirtónninn í
skilaboðum Mondales.
Mondale:
■ Walter Mondale, forseta-
frambjóandi demókrata, kom
snemma á kjörstað í gær í
■ Þegar sjónvarpsstöðvar
byrjuðu að spá úrslitum hér í
kvöld var enn ekki búið að loka
kjörstöðum á vesturströnd
Bandaríkjanna. Það er þriggja
stunda tímamunur á austur- og
vesturströndinni, en sjónvarps-
stöðvarnar miða fréttasending-
ar sínar við tímann á austur-
ströndinni. Þetta þýðir að þegar
kjörstöðum var lokað í New
York var enn verið að kjósa í
Los Angeles.
í kosningunum 1980 bárust
fregnir af fólki á vesturströnd-
inni, sem snéri frá kjörstað
hópum saman þegar það frétti
af sigri Reagans á austurströnd-
inni. Þetta voru bæði stuðnings-
menn Reagans sem töldu sig
Hugmyndaflugi auglýsinga-
framleiðenda virðast engin tak-
mörk sett þegar kemur að póli-
tískum auglýsingum. Þar sem
baráttan er hörð verða þær oft
ófyrirleitnar og meiðandi. í
Norður-Karólínufylki voru birt-
ar myndir af limlestum iíkum og
öldungadeildarþingmaður
bendlaður við dauðasveitir í El
Salvador. í Texas var vitnað í
þingmann þar sem hann sagði
að aðstoð við fatlaða hvetti fólk
aðeins til að vera áfram fatlað.
Sá svaraði fyrir sig með því að
benda á að samtök kynvillinga
heimabæ sínum, North Oaks í
Minnesotafylki. Hann var glað-
beittur þrátt fyrir að síðustu
ekki þurfa að kjósa og demó-
kratar sem ályktuðu sem svo að
Carter væri búinn að tapa og
eitt atkvæði breytti engu þar
um.
Bandaríkjaþing skoraði ■ í
sumar á sjónvarpsstöðvarnar að
byrja ekki að grein frá úrslitum
fyrr en búið væri að loka öllum
kjörstöðum. Sjónvarpsmenn
báru fyrir sig skyldu sína við
áhorfendur og prentfrelsisá-
kvæði í stjórnarskránni og neit-
uðu að verða við ósk þingsins.
Tvær af þeim þremur stærstu
ABC og CBS slökuðu þó aðeins
á núna síðustu vikurnar, en
NBC hyggst halda þessum sið
án tillits til þeirra áhrifa sem
þetta kann að hafa á kjörsókn á
vesturströndinni.
hefðu sett upp nektarsýningu til
að safna fé fyrir frambjóðendur
demókrata. í Massachusets var
frambjóðandi sakaður um að
vera njósnari fyrir Sovétríkin,
að því er virtist vegna andstöðu
hans við stríðið í Vietnam á
sínum tíma.
Slíkar auglýsingar dynja á
almenningi daginn út og inn,
sumar verri og aðrar skárri. En
áhrifamátturinn er mikill og að
líkindum rhá rekja úrslit þing-
kosninganna í dag í sumum
tilfellum beint til velheppnaðra
auglýsingaherferða.
skoðanakannanir sýndu að
hann nyti frá 11 til 25 prósent
minna fylgis en Reagan.
Kosningabarátta " Mondales
stóð yfir í nær heilt ár og er
einhver sú aldýrasta í sögu
Bandaríkjanna. Talið er að
hann hafi eytt um 5.1 milljón
dala meira en Reagan í kosn-
ingabaráttunni, en hvor fram-
bjóðandi um sig má eyða allt að
40.4 milljónum dala af ríkisfé í
kosningabaráttunni.
Mondale hélt áfram upptekn-
um hætti á síðustu tímum kosn-.
ingabaráttunnar og ásakaði Re-
agan enn um að vera fáfróðasta
forseta Bandaríkjanna á síðari
áratugum. Hann sagði ennfrem-
ur að þrátt fyrir fjögurra ára
setu í Hvíta húsinu hefði Reag-
an enn ekki haft sig í að hitta
mótherja sinn, æðsta valda-
mann Sovétríkjanna.
Mondale beið kosningaúrslit-
anna í North Oaks, en fram-
bjóðendurnir höfðu komið sér
saman um að tjá sig ekki um
úrslit kosninganna né lýsa yfir
sigri fyrr en síðustu kjörstaðir
lokuðu, en í Alaska var það
ekki fyrr en klukkan sex í
morgun.
■ Ronald Reagan forseti kom
í gær á kjörstað ásamt konu
sinni Nancy.í bænum Solvang í
nágrenni við búgarð sinn í Santa
Barbara í Kaliforníu. Reagan
vildi ekki tjá sig um þá skoðun
aðstoðarmanna sinna og flokks-
bræðra að hann myndi vinna
stórsigur í kosningunum og telj-
ast sigurvegari í nær öllum fylkj-
um Bandaríkjanna og sögðu
samstarfsmenn að forsetinn
Forseta-
frúin
dattúr
rúminu
Los Angeles-Reuter
■ Larry Speakes, tals-
maður Hvíta hússins,
sagði í gær að Nancy
Reagan forsetafrú væri
enn dálítið vönkuð eftir
að hún datt í fyrramorg-
un þegar hún var að
fara fram úr rúminu og
rak höfuðið í stól. At-
vikið átti sér stað í
Sacramento í Kaliforn-
íu þar sem Reagan var
að reka endahnútinn á
kosningabaráttuna.
Þegar forsetahjónin
komu til að greiða at-
kvæði í bænum Solvang
í grennd við búgarð
þeirra í Santa Barbara
var frúin föl yfirlitum
og virtist hafa skrámað
á sér ennið. Ljósmynd-
arar í Solvang töldu sig
einnig hafa séð hana
hrasa við þegar hún
gekk að kjörklefanum.
væri ekki laus við að vera hjá-
trúarfullur.
Margir fréttaskýrendur telja
að sjaldan hafi verið tekist á um
jafnólík grundvallarsjónarmið
í bandarískum forsetakosning-
um og nú í baráttu hins 73 ára
gamla forseta og hins 56 ára
gamla mótframbjóðanda.
Víst er að Ronald Reagan
myndi taka undir það. í síðustu
■ Forseti Bandaríkjanna er í
raun ekki valinn í þeim almennu
kosningum sem fram fóru í
Bandaríkjunum í gær. Ekki
formlega.
I gær kusu Bandaríkjamenn
sér í rauninni aðeins kjörmenn
í hverju hinna fimnrtíu fylkja.
Þessir kjörmenn koma síðan
saman seinna á árinu og kjósa
forsetann formlegri kosningu.
Forsetinn er síðan settur í em-
bætti í byrjun janúar og er
undirbúningur þeirrar athafnar,
sem fer fram í Washington,
löngu hafinn.
Kosningafyrirkomulagið í
Bandaríkjunum er þannig að sá
frantbjóðandi sem vinnur meiri-
hluta í hverju fylki fær alla
kjörmenn þess. Kjörmennirnir
eru alls 538 og nægja því 270
kjörmenn til að sigra í kosning-
unum. Kjörmennirnir eru mjög
mismargir eftir því hver fólks-
fjöldi er í fylkjunum. Kaliforn-
kosningaræðum sínum í Kali-
forníu sagði hann að Mondle
væri tákn mislukkaórar stefnu
sem heyrði fortíðinni til. Hann
myndi veikja varnir Bandaríkj-
anna og á sama tíma hækka
skatta til að fjármagna ofeyðslu
og bruðl heima fyrir.
Eftir kosningarnar mun Rea-
gan taka sér nokkurra daga frí
á búgarðinum í Santa Barbara.
ía, fólksflesta fylkið, hefur til
dæmis 47 kjörmenn, en sum
minnifylkinaðeinsþrjá. Höfuð-
borgin Washington, sem hefur
sérstöðu innan fylkjasambands-
ins, hefur aðeins einn
kjörmann. Því getur sigur, jafn-
vel mjög naumur, í fólkflestu
fylkjunum verið geysi dýrmætur
fyrir forsetaframbjóðendurna.
Sumir samstarfsmenn Reag-
ans hafa spáð því að hann muni
vinna sigur í öllum fylkjunum,
þeir sem eru ögn minna bjart-
sýnir spá því að hann vinni öll
nema eitt, Minnesota, heima-
fylki Mondales.
Hernaðaráætlun Mondales í
kosningunum hefur verið sú að
berjast til þrautar í sumum
fylkjum Bandaríkjanna, en gefa
eftir önnur fylki þar sem Reagan
á vísan sigur.
Í kosningunum 1980 vann
Jimmy Carter, þáverandi for-
seti, aðeins sigur í þremur
fylkjum.
Washington 6. nóvember
Frá Karli Birgissyni, fréttaritara NT í Was-
hington
■ Mondale þótti reka kosningabaráttu sína vel síðustu vikurnar
og gerði harða hríð að Ronald Reagan þótt allt kæmi fyrir ekki.
Hann greiddi atkvæði snemma í gær í heimabæ sínum, North Oaks,
í Minnesota. Simamynd-POLFOTO.
Dýr kosningabarátta
Sjónvarpsstöðvar
draga úr kjörsókn
Frá Karli Birgissyni, fréttaritara NT í Wash-
ington.
Bandaríska kosningakerfið:
Sigur í fólks-
flestu fylkjun-
um dýrmætur