NT


NT - 25.11.1984, Page 10

NT - 25.11.1984, Page 10
Jón og vinir hans \\\ Sunnudagur 25. nóvember 1984 10 LlL ■ Þær eru orðnar margar brúðurnar sem orðið hafa til í höndunum á Jóni E. Guðmundssyni í gegnum árin. Hér er hann ásamt vini sínum kínverskum píanóleikara. ■ Nú á sunnudag lýkur sýningu Jóns E. Guðmundssonar á leikbrúðum hans í kjallara Norræna hússins. Jón er fyrir löngu orðinn landskunnur fyrir starf sitt að brúðuleikhús- málum og á þessari stórkostlegu sýningu gefur að líta margar þekktustu brúður hans. Við heimsóttum þennan undraheim á dögunum og áttum skemmtilega stund með Jóni og vinum hans, brúðunum. Þegar okkur bar að garði var hópur nemenda úr Kennara- háskólanum að koma í sömu erindagerðum og við. Jón stökk fimlega upp á borð í salnum og lét nokkrar brúðurnar leika listir sínar. Eftir þetta sjónarspil fylgdum við meistaran- um um salinn og hann sagði okkur eitt og annað af brúðunum og starfi sínu.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.