NT - 27.11.1984, Page 1
■ Bronco jeppinn fannst mannlaus um hádegisbilið í gær. Þegar síðast fréttist til ungmennanna höfðu þau átt í brösum vegna bilana í
bílnum. NT-mynd: Árni Bjama
Þriggja ungmenna og tveggja
vélsleðamanna leitað í nótt
Þyrlan varð frá að hverfa sökum veðurs
spár áætluðu að ýtan næði að
skálanum um fimmleytið í nótt.
Sjá nánar bls. 2
■ Verðlagsráð telurauglýs-
ingu frá Sól hf. um að gefa
Fiat Uno einhverjum kaup-
anda Soda Stream vélar,
brjóta í bága við góða við-
skiptahætti og óhæfilega
bæði gagnvart neytendum og
samkeppnisaðilum. Þar sé
verið að örva sölu á einni
vöru með því að gefa kaup-
endum hennar von um að
eignast alveg óskylda vöru.
Davíð Scheving Thor-
steinsson hjá Sól hf. lýsti
furðu sinni á þessari afstöðu
Verðlagsráðs og kvaðst ekki
geta séð neitt saknæmt við
það að hafa í gleði sinni yfir
að hafa selt 20 þúsund Soda
Stream vélar frá því Sól hf.
byrjaði með þessa vöru, hafa
áicveðið að gefa einhverjum
af viðskiptavinum sínum,
nýjum og gömlum, bifreið í
jólagjöf. Kvað hann þau lög
sem vitnað væri til í frétta-
tilkynningu Verðlagsráðs,
um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta við-
skiptahætti nr. 55 frá 1978
minna sig einna helst á sögu
Orwells um félaga Napóleon
þar sem segi: „Öll svín eru
jöfn en sum svín eru jafnari
en önnur.“ Sagði hann að í
hinu íslenska lýðveldi ættu
allir að vera jafnir fyrir
lögum og væri ekki hægt að
mismuna fólki, eins og gert
hefur verið með setningu
þessara laga. Undirstrikaði
hann að bíllinn yrði gefinn,
þó hann yrði að fara á
Litla-Hraun fyrir vikið, enda
væri þess ekki krafist í sam-
þykkt Verðlagsráðs, að hann
hætti við gjöfina.
- segir Davíð Scheving Thorsteinsson, framkvstj.
■ Með jarðýtu í broddi fylk-
ingar ösluöu leitarmenn í átt að
sæluhúsinu við Hlöðufell í nótt,
í von um að finna þar imgmeiin
in sem leitað er, og tvo snjó
sleðamenn sem ekkert hefu
spurst til síðan í gær. Ungmenn
anna er saknað síðan á sunnu
dag en bifreið þeirra fannst
mannlaus á Laugdælaafrétti
gær.
Leitarmennirnir tveir sem
saknað er, lögðu af stað í átt að
skálanum laust upp úr hádegi í
gær. Talstöðvarsamband rofn-
aði fljótlega við þá, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir annarra
leitarmanna til að kalla þá upp.
Færð spilltist verulega strax upp
úr hádegi og síðdegis var ekki
lengur snjósleðafært á þessum
slóðum.
Þá fínkembdu gangandi
leitarmenn fjöll næst byggðum
en sú leit hafði engan árangur
borið, þegar NT fór í prentun í
■ Legið yfir kortunum í leitarstöðinni í Miðdal í gær, þaðan sem leitinni var stjórnað fram undir
kvöld. Þá var stjórnstöðin flutt niður á Laugarvatn í barnaskólann þar. NT-mynd: Amí Bjama
nótt. Þá var einn hópur leitar
manna enn að brjóta sér leið frá
Kaldadal að sæluhúsi við Kerl-
ingu sunnan undir Skjaldbreið.
Ofsaveður skall yfir leitar-
svæðið á sunnudagskvöld og
rénaði ekki fyrr en leið á gær-
daginn. Snemma í gærdag kom
þyrla Landhelgisgæslunnar til
leitar, en varð frá að hverfa
sökum slagviðrisogþoku. Hafði
veðrið þá máð burt öll spor
ungmennanna frá bílnum,
þannig að þefvísi sporhunds
sem björgunarsveitirnar höfðu
sér til aðstoðar, kom ekki að
haldi.
Helstar vonir eru bundnar
við að ungmennin hafi náð að
Hlöðufellsskálanum en það er
röskur þriggja tíma gangur í
góðu færi, frá staðnum þar sem
bifreið þeirra fannst. Hins vegar
var kolófært að skálanum fyrir
öll farartæki nema-jarðýtuna
sem mjakaðist áfram en átti í
sífelldum töfum. Bjartsýnustu
Bíllinn verður gefinn þó ég
verði að fara á Litla-Hraun!
Bæjarstarfsmenn:
Segja upp
samningum
Verkfall gæti
skollið á í febrúar
■ Nú um mánaðamólin
rennur út frestur fyrir þau
bæjarstarfsmannafélög
sem samþykktu sáttatil-
löguna í október, eða
sögðu aldrei upp launalið-
um samninga, til að segja
upp launaliðum samninga.
Samkvæmt þeim samn-
ingi sem var í gildi, þ.e.
febrúarsamningnum, eru
launaliðir samningsins
lausir 1. janúar, og þar
sem sáttatillagan fól ekki í
sér neina breytingu á því
atriði stendur það óbreytt.
Búast má við að Starfs-
mannafélag Akraness,
Keflavikur, Suðurnesja,
Ólafsfjarðar og Neskaup-
staðar segi upp nú fyrir
mánaðamótin.
í Garðabæ standa nú
yfir viðræður milli bæjar-
stjórnar og starfsmanna-
félagsins, en eins og fram
kom í fréttum var samið
þar m.a. um að samning-
urinn væri endurskoðaður
með tilliti til þess sem um
semdist annars staðar.
Þá má búast við að sömu
félög scgi einnig upp aðal-
kjarasamningi, því verði
það ekki gert fyrir áramót
framlengist hann um tvö
ár.
Gangi samningavið-
ræður treglega á þessum
stöðum gæti verkfall skoll-
ið á í febrúarbyrjun.