NT - 27.11.1984, Síða 4
fíF Þriðjudagur 27. nóvember 1984 4
lil |> Fréttir
■ Hinum slösuðu var safnað á einn stað þar sem hlynnt var að þeim og skyndigreining fór fram.
Yfirstjórn á slysstað var í bifreiðinni til vinstri á myndinni, en mörgum þótti hún ekki vera sem skyldi.
Hópslysaæfing á Keflavíkurflugvelli:
Flutningur slasaðra tók
allt of langan tíma og
skyndihjálpin var í molum
■ „l’egar á heildina er litið er
ég ánægður með hvernig tókst
til. Það er enn verið að vinna úr
niðurstöðum og við munum að
sjálfsögðu endurskoða núgild-
andi áætlun, sem er frá 1982, í
Ijósi þess er kann að koma
fram. Æfing sem þessi er haldin
til að leiða í Ijós galla og má því
segja að hún hafi vissulega verið
árangursrík,“ sagði Pétur
Guðmundsson, flugvallarstjóri
á Keflavíkurflugvelli, í samtali
við NT, um nýafstaðna hóp-
slysaæfingu sem Almannavarnir
Suðurnesja og Keflavíkurvallar
stóðu að.
Fram hefur komið í fréttum
að ýmsir þættir við æfinguna
hafi verið í molum og meðal
þess sem til var tekið var flutn-
ingur slasaðra á sjúkrahús.
Sagði Pétur að vissulega hefði
það tekið of langan tíma að
koma hinum „slösuðu" undir
læknishendur, en þar hefði ein-
ungis verið um tæknilegt atriði
að ræða. Slysið hefði verið svið-
sett úti á víðavangi og aðeins ein
akbraut niður að slysstaðnum.
Þeir hefðu hins vegar yfir að
ráða jarðýtu og tæknibúnaði
sem á augabragði gæti rutt slóða
fyrir sjúkrabíla og björgunar-
sveitir, ef um raunverulegt slys
væri að ræða, en hefðu talið
ástæðulaust að fara út í að spilla
gróðri að óþörfu. Mest um vert
hefði verið að þessi tækjabúnað-
ur hefði verið kominn á réttum
tíma á vettvang og því nýtan-
legur ef raunverulegt slys bæri
að höndum.
Annað sem gagnrýnt hefur
verið við þessa hópslysaæfingu
er yfirstjórn björnugnaraðgerða
á slysstað. Þótti mörgum sem
lítið samband og samræming
væri milli einstakra þátta. Upp-
lýsti Pétur að fjarskiptasam-
band væri við alla aðila sem að
björgunarstarfinu stæðu og í
þessu tilfelli hefði bilað stöð ,
þannig að það hefði riðlað
skipulaginu, en hins vegar væri
agi ekki neitt vandamál og allir
hlýddu fyrirskipunum.
Einnig hefur verið minnst á
að skyndihjálpin hafi verið í
molum og kvartað yfir því að
læknar og hjúkrunarfólk væri
ekki áberandi merkt, þannig að
ekki væri neitt vafamál
hvaða störfum það gegndi.
Sagði Pétur að þau mál yrðu
m.a. tekin til endurskoðunar,
en hitt væri Ijóst að frumgrein-
ing á slysstað væri alltaf gróf
slysagreining og vissum ann-
mörkum háð. Hjá því yrði aldrei
komist. Það væri aldrei fyrr en
slasaðir væru komnir á sjúkra-
hús sem hægt væri að ákveða
endanlega hvernig meðhöndlun
þeir ættu að fá.
Pétur undirstrikaði að gildi
æfingarinnar hefði legið í því að
sjá hversu vel menn skiluðu sér
á vettvang og hefði það verið
sérstaklega ánægjulegt að sjá
hversu mikill áhugi hefði verið
fyrir henni. Það hefði komið
einna best fram í þeirri reiði
sem braust fram meðal manna
er þeir komust ekki nægilega
fljótt á slysstað til að verða að
liði. Vildi hann þakka öllum
þeim er þátt tóku í hópslysa-
æfingunni fyrir fórnfúst starf
um leið og hann áréttaði, til að
leiðrétta hugsanlegan misskiln-
ing, að þessi hópslysaæfing
hefði verið takmörkuð við
Suðurnes vegna þess m.a.
hversu stutt væri síðan hópslysa-
æfing var haldin á Reykjavík-
urflugvelli með þátttöku sjúkra-
húsa og björgunarsveita á
höfuðborgarsvæðinu.
■ Slökkviliðsmenn voru fyrstir á staðinn og aðstoðuðu við að ná
slösuðum farþegum úr brakinu eftir að þcir höfðu slökkt eldinn.
NT-myndir: Sverrir
Græna brúðkaupsveislan
3 frábærir einþáttungar í Bæjarbíói
Hafnarfirði. Leikfélag Hafnarfjarðar
sýnir Veisluna eftir Ferenc Molnár.
Leikfélag Mosfellssveitar sýnir:
Ferðin til skugganna grænu, eftir
Finn Methling.
Leikfélag Kópavogs sýnir:
Brúðkaupsveislan, eftir Dorothy
Parker
2. sýning þriðjudag kl. 20.30
3. sýning fimmtudag kl. 20.30
Miðasala í Bæjarbíói frá kl. 18.00
sýningardagana.
Sjáumst.
Ólympíumótið í skák:
Jóhann tefldi skák
sína af gífurlegri
hörku gegn Sax
Sigurskák Helga Ólafssonar gegn Hort birt í heild
■ íslendingar gátu vel við unað að ná jafntefli við Ungverja í
7. umferð Ólympíuskákmótsins í Saloniki í Grikklandi. Að vísu
varð undirritaður að bíta í það súra epli að tapa á 1. borði fyrir
Portish. Ég lenti í hálfgerðu heimabruggi hjá Portish og fór illa
út úr byrjuninni og varð að gefast upp eftir 30 leiki.
í rauninni var útlitið held-
ur ekki gott í öðrum skákum
íslendinganna. Jón L. virtist
vera að tapa á fjórða borði,
Jóhann var með erfiða stöðu
gegn Sax og Margeir hékk á
jafntefli með þráskák. En
undir lok fyrstu setu lék
andstæðingur Jóns af sér og
tók þann kost að bjóða jafn-
tefli þó hann væri enn með
betri stöðu.
Jóhann náði mótspili gegn
Sax og þegar skákin fór í bið
sáum við að hann var kominn
með mun betra tafl. Liðs-
stjóri Ungverjanna, Forin-
tos, kom samt að máli við
Kristján Guðmundsson, liðs-
stjóra íslensku sveitarinnar,
í hléinu og bauð jafntefli
fyri'r hönd Sax. En þegar við
fórum að skoða skákina virt-
ist hún vera gjörunnin hjá
Jóhanni svo jafnteflisboðinu
var hafnað.
En þegar tekið var til við
skákina aftur kom í ljós að
Sax hafði leikið biðleik sem
við höfðum ekki komið auga
á og reyndist vera mjög öfl-
ugur, Jóhann fór við það úr
jafnvægi og valdi vafasamt
framhald, neyddist m.a. til
að fórna skiptamun. En þeg-
ar leið á skákina kom í ljós
að útreikningar Jóhanns
voru réttir, og hann stýrði
liði sínu örugglega til sigurs.
Ungverjarnir voru satt að
segja mjög miður sín eftir
þessa viðureign, höfðu reikn-
að með að vinna okkur stórt.
En þeir tóku úrslitunum karl-
mannlega og Sax sagði á eftir
að Jóhann hefði teflt sína
skák af gífurlegri hörku.
Sigurganga Sovétmanna
heldur áfram og í 7. umferð
sigruðu þeir Júgóslava 3-1.
Á fyrsta borði vann Beljavski
Ljubovich og er hann nú
búinn að vinna allar sínar
skákir og raunar búinn að
leggja alla sterkustu skák-
menn utan Sovétríkjanna á
mótinu.
Bandaríkjamenn og Rú-
menar gerðu jafntefli, 2-2,
og staðan í viðureign Tékka
og Englendinga er 11/2-1 1/2
og einni skák er ólokið. Hol-
lendingar töpuðu fyrir Kín-
verjum 2 1/2-1 1/2 en Svíar
unnu Chilebúa stórt, 3 1/2-
1/2.
Staðan er þá sú að Sovét-
menn eru efstir með 22 1/2
vinning . Svíar eru komnir í
2. sæti með 19 vinninga og
Tékkar eru í 3. sæti með 18
1/2 og biðskák. Englendingar
eru í 4. sæti með 18 vinninga
og biðskák og íslendingar
eru í 5.-9. sæti með 18 vinn-
inga ásamt Ungverjum,
Bandaríkjamönnum, Rú-
menum og Frökkum.
í kvennaflokki gekk ís-
landi einnig vel í 7. umferð.
Liðið tefldi við Itali og vann,
3-0. Þar hafa Sovétmenn
einnig forustu.
Helgi Ólafsson vann Tékk-
ann Vlastimil Hort í viður-
eign íslendinga ogTékka í 5.
umferð. Skák þeirra fer hér
á eftir.
Hvítt: Helgi Svart:Hort
Móttekið drottningarbragð
1. Rf3 d5
2. d4 Rf6
3. c4 dxc4
4. Rc3 a6
(Þetta afbrigði sem Hort tefl-
ir byggist á að reyna að halda
í peðið á c4. Honum tekst
það raunar en hvítur fær í
staðinn nokkurt frumkvæði.
Það vill nú svo til að Helgi
hafði hugboð um að Hort
myndi tefía þetta afbrigði og
var því undirbúinn)
5. e4 b5 ‘
6. eS Rd5
7. a4 Rxc3
8. bxc3 Dd5
9. g3 Bb7
10. Bg2 Dd7
11. Ba3 Bd5
(Svartur reynir að halda
stöðunni lokaðri en það
tekur tíma og hvítur fær að
þróa stöðu sína á meðan).
12. 0-0 Rc6
13. Hel g6
14. Bc5 Hd8
15. axb5 axb5
16. Rg5 Bxg2
(Staðan er nú mjög tvísýn en
Hort hafði þegar hér var
komið notað mikinn tíma.
Næsti leikur Helga er öflugur
millileikur. í stað þess að
drepa biskupinn aftur leikur
hann ).
17. e6! fxe6
18. Kxg2 Dd5t
19. Df3
. Helgi
Olafsson
skrifar
um skák
(Hvítur er tveim peðum und-
ir en vegna þess hve menn
hans eru virkir er óhætt að
fara út í endatafl. Hanngetur
auðveldlega náð þessum
peðum aftur)
19. ... Dxf3
20. Kxf3 Hd5
21. Rxe6 Kd7
22. He2 Bh6
23. Hael Ha8
24. g4 Bg5?
(Hort er greinilega hræddur
um að biskupinn lokist inni
og vill ekki leyfa hvítum að
leika g-peðinu áfram til g5.
En eftir þennan leik virðist
svo sem allir möguleikar
svarts séu úr sögunni. Hann
hefði þurft að leika hér Hb8
og hefur þá möguleika á
mótspili með því að færa b-
peðið áfram ).
25. Rxg5 Hxg5
26. Bxe7 Hd5
27. Bc5 b4
28. Ke4 Hg5
29. cxb4 Hxg4t
30. Kd5 Hb8
31. Kxc4 Hxd4t
(Hort sér að hann getur ekki
varist í þessari stöðu með
því að sitja aðgerðarlaus og
kýs því að fórna skiptamun).
32. Bxd4 Hxb4t
33. Kc5 Hxd4
34. He7t! Rxe7
35. Kxd4 Kd6
36. Ke4 Ke6
37. He3 c6
38. Hh3 h5
39. Kd4 h4
40. Ke4 g5
Hér fór skákin í bið og það
kom í ljós að vinningurinn
var auðveldur en Hort tefldi
samt áfram)
41. f4 Kf6
42. fxg5 Kxg5
43. Hc3 Kg4
44. h3t Kg5
45. Hc5t Kf6
46. Kf4 Rg6t
47. Kg4 Re5t
48. Kxh4 Kf5
49. Kg3 Ke4
50. h4 Kf5
51. h5 Kf6
52. Kh4 Rf3t
53. Kg4 Re5t
54. Hxe5t
Og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson