NT - 06.12.1984, Side 2

NT - 06.12.1984, Side 2
ÁBÓT Mér sýnist allt vera á leið til andskotans“ Fimmtudagur 6. desember 1984 2 Baldur Kristjánsson prestur hjá Óháða söfnuðinum. - segir Baldur Kristjánsson prestur hjá Óháða söf nuðinum ■ „Mér sýnist |)jóðfélagið vera á hraðri leið til andskot- ans. Efnishyggjan tröllríður hér húsum og það cr auðgild- ið sem ræður ferðinni, ekki manngildið. Menn eru nietnir eftir ytri umbúðum en ekki eftir innra manni. Það er hafið til vegs sem fánýtt er en ekki það sem er grundvallandi og þroskandi,“ sagði Baldur Krist- jánsson prestur í Óháða söfn- uðinum, þegar við spurðum hann hvernig hann kynni við aðfaratíma jólanna eins og hann nú gcrist. Baldur sagði ennfremur að Islendingar svo og aðrar Vesturlandaþjóðir ættu að far'a að athuga sinn gang livað þetta lífsgæðakapphlaup sncrti. „Vesturlöndin eru hnignandi mcnningarsamfé- lög sem mega til með að fara að opna meir fyrir vitræna hugsun og nýjan mannskiln- ing ef ekki á illa að fara.“ Aðfaratími jólanna er raun- ar í sama stíl og allt okkar líf, og kemur þar betur fram en aðra daga okkar efnislegi hugs- unarþáttur." Helgihald hjá okkur um jólin veröur með alveg lilið- stæðu fyrirkomulagi og hjá hinni almennu þjóðkirkju. Við erum fríkirkjusöfnuður og eini meginmunur sent er á okkar söfnuði og þjóðkirkj- unni er sá að við crum ■ Kirkja Óháða safnaðarins. skipulagslega sjálfstæöur söfnuður og greiöum okkar presti sjálf laun“, sagði Baldur og bætti því við að þeir yrðu með guðsþjónustur á þessum hefðbundnu tímum um jólin. „f>að verða messur á aðfanga- dag og jóladag og svo aftur á nýja árinu á gamlársdag o nýjársdag.“ - segir Guðni Einarsson hjá Hvítasunnusöfnuðinum Leggjum mikla áherslu á jólahald ■ „Við erum kristin og höldum upp á jólin af þeini sökum. Við erum að fagna komu Krists og minnumst þcss að þá kviknaði Ijós heimsins. Við leggjum áherslu á að fólk haldi jól, og niinnist þessa að Guð gaf það besta og stærsta sem hann i átti,son sinn. Með því að gefa þessa jólagjöf opnaði Guð milliliðalaust samhand í gegn- um son sinn til sín,“ sagði Guðni Einarsson starfsmaður í Hvítasunnusöfnuðinum. Guðna fannst það sorglegt að mjög margir hreinlega glötuðu Jesú í jólaösinni og gleymdu þeim tilgangi sem jólin hefðu að gegna í trúnni. „Það cr einnig alvarlegur hlutur að á mörgum uppeldis- stofnunum cr verið að endur- vekja Grýlu og Leppaluða um jól, í stað þess að leggja áhersluna á ða kenna börnun- um aö á jólunum komi Jesús Kristur“. Guðni vildi meina að með þessu væri verið að innprenta fólki þjóðtrúna og væri þettá visst afturhvarf til miöaldamyrkursins. ■ í Hvítasunnusöfnuðinn gengur fólk ekki nema að það sé trúað, segir Guðni Einars- son starfsmaður hjá söfnuðin- um. „Biblían er nokkurskonar handbók, og við trúum því að Biblían sé handbók skapar- ans og við leitumst við að fylgja þeim staðreyndum sem Biblían ber á borð fyrir okkur“. Að lokum sagði Guðni að það sem skildi Hvíta- sunnusöfnuðinn frá þjóð- kirkjunni væri fyrst og fremst það að söfnuðurinn er söfnuður trúaðra. „Fólk hef- ur ekki gengið í söfnuðinn nema að það sé trúað. Við trúum því að hið biblíulega módel sé að fyrst tekur fólk trú og síðan skírist einstak- lingurinn til kristinnartrúar."

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.