NT - 06.12.1984, Side 14

NT - 06.12.1984, Side 14
Fimmtudagur 6. (Jesember 1984 14 Páskar aðalhá tíð kaþólskr - segir Hinrik Frehen biskup ■ „Flestir íslendingar líta á jólin sem stærstu hátíð ársins. Vió kaþólikk- ar lítuni ekki svo á. Við teljum jólin vera hluta ai' þeim undirbiiningi sem er nauðsynlegur fyrir pásk- ana sem samkvæmt okkar trú er mikilvægasta hátíð kirkjunnar," sagði ka- þólski biskupinn í Reykja- vík Hinrik Frehen. Hann vildi þó ekki vera að gera lítið úr jólunum sem hátíð og sagði að það væri vel skiljanlegt að fólk á norðurhveli jarðarinnar héldi mikla hátíð til þess að fagna komu Ijóssins, hvort sem að það væri sólarljósið eða hin eina sanna birta sem stafaði frá komu frelsarans. ltÞað er eitt sem ég sé hér seni ég undrast hver jól, Þaðer það hvernig hin mikla ást til barnanna setur svip sinn á jólin og allt tengt þeim. Yngstu meðlimir fjölskyldunnar cru eins og konungar á heimilun- um og allir keppast við að gera jólahátíðina sem veglegasta fyrir þessa aðila. Þetta er mjög fögur jólahugsun og vel við hæfi, vegna þess að við tökurn á móti Jesú Kristi í gegnum börnin. Margt fólk telur að jólin hér á íslandi séu gengin úr hófi Hinrik Frehen biskup. fft HS fram. Ég tel að svo sé ekki, það er í eðli þjóðarinnar að skemmta sér vel þessa hátið og ekkert er of gott til þess að gera þessa hátíð eins bjarta og ánægjulega eins og hægt er.“ Hinrik sagði að það væri eitt sem hann saknaði virkilega úr kaþólskum sið, og væru það næturmessur á aðfangadags- kvöld, en eins og fólk vissi væru messur á aðfangadags- kvöld í Landakotskirkjunni. Landakotskirkja. NT-mynd: Ámi Bjama. Gleðjumst yf ir jólunum - segir Erling Snorrason einn af fulltrúum safnaðarins, og varar jafnframt við því að gera þessa fjölskylduhátíð að mammonshátíð ■ „Við sjöunda dags aövent- istar gleðjiiinst yiir jólunuin, en viljum jafniramt vara lölk við |>ví að gera þessa hátíð ekki að cinhverri manimonshátíð þar sein allir eru að yfirkeyra hver annan í kapphlaupi uin hin veraldlegu gæði.“ Þetta hafði ErlingSnorrason að segja um jólin þegar viö slógum á þráöinn til hans. Erling tók það skýrt fram aö aðventistar héldu hátíölcg jól og þá sérstaklega börn þeirra. „Viö skiptumst á gjöfum og kortum, og höldum mikla há- tíð þegar jólin ganga í garð. Hinsvegar gerum viö okkur fyllilega grein fyrir því að 25. desember er ekki fæðingardag- ur frelsarans, og lítum því fyrst og frcmst á jölin sem jákvæða fjölskylduhátíð. Erling taldi að jólahald á íslandi væri mjög skemmtilegt miðað við margar aðrar þjóðir, og hefur Itann oft dvalist er- lendis yfir jólin, og saknaði þá mjög íslensks jólahalds." Það er náttúrulega mikið sem er að gerast rétt í kringum jólin og verður fólk að hafa í huga að þetta er fyrst og fremst hátíð þar sem revnir á andlega verð- leika einstaklingsins. Kaup- menn og aðrir þeir sent hvaö mcst undirbúa sig fyrir jólin ættu að varast að gera þessa hátíð að einhverri gullkálfs- dýrkun. Persónulega finnst rnér ekki skemmtilegt þegar ég sé að kaupmenn eru að freista einstaklinga til þess að eyða meiru fyrir jólin en þcir ættu að gera." .■ra Aðvcntkirkjan í Reykjavík. Við höldum ekki jólin hátíðleg - sagði Sigurður Ingi Ásgeirs- son starfsmaður safnaðarins ■ Baháí söfnuöurinn á ís- landi samanstendur af 190 manns og eru flestir virkir félagar að sögn viðmælanda okkar Sigurðar Inga Ásgeirs- sonar. „Við höldum ekki uppá jólin sem slík enda grundavallast okkar trú á allt öðrum hlutum en kristnin. Við höfum allt annað tímatal og eru nítján mánuðir í árinu hjá okkur og nítján dagar í hverjum mánuði. Þetta þvðir það að á hverju ári ganga af þrír dagar, nema þegar hlaupár er, þá eru þessir dagar fjórir. Við notum þessa af- gangsdaga til að gleðjast og gefa gjafir. Við förum í heim- sóknir á elliheimili og aðrar slíkar stofnanir. og beitum okkur fyrir annarri góðgerða- starfsemi. Annars höfum við níu helgi- daga í árinu, og þar á meðal er fæðingardagur spámannsins Baháullah 12. nóvember. Við höldunt uppá áramótin þann 21. mars. en þá eru jafndægur á vori. Árið hjá okkur núna er 141 og miðum við þá við yfir- lýsingu Bábsins frá árinu 1844. Bábinn er fyrirrennari Bahá- ullah sem er höfundur Bahaí truarmnar."

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.