NT - 11.12.1984, Qupperneq 19
Þriðjudagur 11. desember 1984 19
Úfönd
Indland:
Skaðabóta krafist fyrir
fórnarlömb gaseitrunar
Stuðningur Union Carbide svipaður og árslaun framkvæmdastjóra fyrirtækisins
■ Talsmenn Union Carbide-
stórfyrirtækisins státa sig nú af
því að þeir hafi af góðmennsku
sinni látið eina milljón dollara
renna til hjálparstarfs í Bhopal
þar sem að minnsta kosti 2.500
létust vegna gaseitrunar frá
verksmiðju fyrirtækisins og
125.000 urðu fyrir heilsutjóni.
En þessi „mikli“ stuðningur
fyrirtækisins er samt litlu meiri
en þau árslaun sem það veitir
aðalframkvæmdastjóra sínum,
Warren Anderson. Bandaríska
tímaritið Business Week maga-
zine telur að hann hafi fengið
um 837.000 dollara í laun á
síðasta ári.
Pað er hætt við að Union
Carbide verði að greiða mun
hærri upphæðir til fórnarlamba
gaseitrunarinnar áður en yfir
lýkur. Nú þegar hafa komið
kröfur um 15 milljarða dollara í
skaðabætur vegna gaseitrunar-
innar. Þessi krafa er sett fram af
tveim bandarískum lögfræðing-
um frá Miami, sem hafa umboð
fyrir hluta fórnarlambanna. Þeir
hafa náið samstarf við banda-
ríska saksóknarann Melvin Belli
frá San Fransisco, en hann kom
til Nýju-Delhi í gær.
Annar bandarískur lög-
fræðingur, John Coal, segist
hafa umboð um 5000 fórnar-
lamba. Hann er einnig mjög
þekktur í Bandaríkjunum fyrir
lögfræðistörf í Washington.
Coal kom til Bhopal í gær þar
sem hann mun kanna að-
stæður nánar áður en hann setur
fram skaðabótakröfur.
Talsmenn Union Carbide
segjast vona að þetta mál verði
leyst sem fyrst. En allar líkur
eru á því að það dragist í
nokkurn tíma þar sem enn er
langt frá því að öll áhrif eitrun-
arinnar séu komin fram. Ekki
er t.d. ljóst hvað fólkið, sem
varð fyrir eitruninni, verður
mikið bæklað eftir hana og hvað
margir missa sjónina. Ekki er
heldur vitað hvort óléttar konur
geti fætt heilbrigð börn eftir
eitrunina eða hvort börn þeirra
verða vansköpuð.
■ Enn deyr fólk úr gaseitruninni í Bhopal á Indlandi. Nú er unnið
að því að reyna að bera kennsl á hina látnu, en í sumum fjölskyldum
eru vart neinir eftirlifendur til að taka að sér þann dapurlega starfa.
Víða í bænum hanga nú veggspjöld með myndum af fólki sem ekki
þekkist, eins og sjá má á þessari mynd. Símamynd-POLFOTO
\ ? m' V \ 'm M WSm Jm ;" /W ■ jm : X ■ Ær 4 M
M1 1 \ rnF. 11
7 p W HT & kí'VmWtV'^' ^ j t 'Mtm
wW
bV Wr M ..>■ t?
\ ■ 'i*! ͧUv ■fefPWyV. . | t í ^ ^
|^ % tÉy| wm tT’í i fl fjjL
('uájVá "/«' "M
|!|?&: ] \ \f I W 0 | Wk ■rh. f'j
I IL
« i | | V JMpS1
Mpjpgi M
TT |^U|
W* m ' ÍSj
m | s V - wm
á ** ij'á 1
Samstöðuleiðtoga
sleppt úr fangelsi
■ Bogdan Lis, einum helsta leiðtoga Samstöðu,
hinna bönnuðu verkalýðsfélaga í Póllandi, var
slcppt úr fangelsi nú um helgina. Á sunnudaginn
fögnuðu um 7000 manns Lis í hafnarborginni
Gdansk, þar sem Samstaða er hvað sterkust.
Símamynd-POLFOTO
V-Þýskaland:
Deilt um
jólatré
Bonn-Reuter
■ Náttúruvemdarmenn í Vestur-Þýska-
landi hafa lagt til að kirkjur og bæjar-
stjórnir víðsvegar um landið velji greni-
tré sem greinilega séu sýkt vegna meng-
unar til að setja upp á opinberum
stöðum.
Sumir hafa meira að segja gengið svo
langt að leggja til að fólk kaupi ekki
lifandi jólatré til'að setja upp á heimilum
sínuni þessi jól heldur noti þess í stað
gerfijólatré úr plasti. En aðrir náttúru-
verndarmenn eru ekki hrifnir af þeirri
hugmynd. Þeir segja að plasttrjánum
yrði bara hent og þeim síðan brennt sem
aftur veldur mengun.
Rannsóknir á þýskum skógum .sýna
að nú er helmingur allra trjáa þar sýktur
vegna mengunar í andrúmslofti og jarð-
vegi. Nú þegar hafa bæjarstjórnir á
sumum stöðum í Svartaskógi sett upp
jólatré sem eru illa farin vegna mengun-
arinnar. Þannig vilja þær minna fólk á
mengunina sem er að eyða skógum
landsins. Aðstoðarmaður bæjarstjórans
í Hinterzarten segist vona að 3,5 metra
ræfilslegt jólatré á ráðhústorginu þar
setji eftir sem áður jólablæ á bæinn.
Albanir
aukasam-
vinnu við
Grikki
Vín-Reuler
■ Albanir hafa skrifað undir
fimm samninga um samvinnu
við gríska nágranna sína. Samn-
ingarnir kveða m.a. á um sam-
vinnu um vöruflutninga á
vegum, póstþjónustu, síma-
þjónustu, menningu og á sviði
tækni og vísinda.
Albanir hafa á undanförnum
áratugum haft ákaflega tak-
markaða samvinnu við vestræn
ríki. Þeir tóku t.d. ekki upp
stjórnmálasamband við Grikki
fyrr en árið 1971. En að undan-
förnu hafa Albanir sýnt aukinn
áhuga á samvinnu við Vestur-
lönd eins og þessi samningur við
Grikki sýnir.
Samningarnir voru undirrit-
aðir í Tirana, höfuðborg Alban-
íu, þar sem utanríkisráðherra
Grikkja, Carlos Papoulias, var
í opinberri heimsókn í síðustu
viku.
„Herormar“
valda spjöll-
um I Kenya
Nuirobi-Reuter
■ Skorkvikindi, sem í Kenya
nefnast „herormar", hafa upp
á síðkastið hámað í sig jarðar-
gróður í grennd Nairobi í Ken-
ya og eru nú byrjuð að snæða
gróðurlendi höfuðborgarinnar
sjálfrar.
Embættismenn í Nairobi
segja að á tæpum mánuði hafi
skordýrin unnið spjöll á
gróðurlendi, sem nemur um
400 ferkílómetrum. Uppskera
á maís, hveiti, sykri og byggi
hefur orðið fyrir miklum
skemmdum.
Ormarnir kallast á fræðimáli
„spodotera exempta“ og eru
afkvæmi mölflugu, sem verpir
eggjum á þúsundatali. Á fimm
dögum eru eggin síðan orðin
að matgráðugum ormum.
Nýverið var þessi plága
rædd á þinginu í Nairobi á
meðan að ormarnir gæddu sér
á hinum snyrtilegu trjám og
blómskrúði fyrir utan þinghús-
ið.