NT - 19.12.1984, Síða 1
Félagsdómur hefur úrskurðað:
Borgin braut
ekki samnmgana
■ Félagsdómurhefurúrskurð-
að að Reykjavíkurborg hafi
ekki verið skyldug til að greiða
laun út fyrirfram fyrir þann
tíma sem borgarstarfsmenn
höfðu boðað að þeir færu í
verkfall.
BSRB kærði borgarstjórann í
Reykjavík, fyrir hönd Reykja-
víkurborgar til Félagsdóms fyrir
að greiða aðeins út laun fyrir
fyrstu 3 daga októbermánaðar,
á þeirri forsendu að það hefði
verið brot á kjarasamningum.
Dómur Félagsdóms féll á þá
leið að svo hefði ekki verið.
Hliðstætt mál verður flutt fyr-
ir Félagsdómi í dag en það
höfðuðu blaðamenn á hendur
Félags íslenskra blaðaútgefenda
fyrir að greiða ekki fyrirfram út
laun fyrir allan októbermánuð
þar sem verkbann var boðað 4.
október.
Dómur Félagsdóms og for-
sendur BSRB og Reykjavíkur-
borgar eru reifaðar á blaðsíðu
4.
Vinsælustu bækurnar:
Á Gljúfra-
steini enn í
efsta sæti
■ Bók Eddu Andrés-
dóttur og Auðar Laxness,
Á Gljúfrasteini, er enn í
efsta sæti listans yfir mest
seldu innlendar bækurnar
fyrir þessi jól, samkvæmt
könnun Kaupþings, sem
birt var í gær. Könnunin
nær til vikunnar 10.-15.
desember. Alistair
MacLean er enn sem fyrr
söluhæsti höfundur er-
lendur. Bók Eðvarðs Ing-
ólfssonar, Fimmtán ára á
föstu, er í efsta sæti bóka
handa börnum og ungling-
Sjá nánar listann í heild á
bls. 2.
Ný skýrsla Seðlabanka um vaxtahækkun:
Mætir verulegri andstöðu,
einkum í Framsóknarf lokki
„Ef ég væri
söngvari,
myndi ég
syngja
Ijóð mín.“
- sjá viðtal við
Matthías Johannes*
sen á bls. 5.
Lýkur Reagan
ferli sín-
um sem friðar-
höfðingi?
- sjá Vettvangsgrein
Þóararins Þórarins-
sonar á bls. 6*7
Ekki búist við vaxtahækkun fyrir áramót
■ í nýrri skýrslu Seðlabankans, sem væntanlega verður rædd í
ríkisstjórn og þingflokkum stjórnarflokkanna í dag, heldur bankinn
fast við fyrri tillögur um að vextir af afurðalánum hækki úr 18 í 25%
og að bankar hafi áfram frjálsræði til að ákveða vexti af almennum
skuldabréfum, en það þýðir að þeir muni hækka verulega. Mikil
andstaða er gegn þessum tillögum í þingflokki Framsóknarflokksins
og er ekki búist við því að ráðherrar hans leggi blessun sína yfir
vaxtahækkun a.m.k. ekki að svo komnu máli. Efasemda gætir
einnig í þingliði Sjálfstæðisflokksins.
þannig að þeir verði alltaf 5%
yfir skuldabréfavöxtum bank-
anna. t»á verði sú regla tekin
upp frá byrjun næsta árs að
vextir af almennum skuldabréf-
um sem gefin voru út fyrir 11.
ágúst sl. fylgi meðalvöxtum af
nýjum skuldabréfum á hverjum
tíma.
Röksemdir bankakerfisins
eru í stuttu máli þær að hindrað
verði að vextir verði neikvæðir
með vaxandi verðbólgu þar sem
slíkt kalli á aukna eyðslu og þar
lántökur. Röksemdirþeirraserr
eru á móti vaxtahækkun ert
hins vegar þær að vaxtabyrðin é
almenning og fyrirtæki sé allt ol
mikii og hafi verið allt of mikil
undanfarna mánuði; úr henni
þurfi að draga og auk þess
myndi vaxtahækkun nú aðeins
magna verðbólguna.
í þessari nýju skýrslu, sem
barst viðskiptaráðherra í fyrra-
dag, dregur Seðlabankinn
nokkuð í land frá fyrri tillögum
sem dagsettar eru 6. desember
sl., en ekki þó í neinum grund-
vallaratriðum. Auk ofangreindra
tillagna um hækkun útlánsvaxta
af afurðalánum og almennum
skuldabréfum leggur bankinn
til að vextir af verðtryggðum
útlánum verði lækkaðir um 3%
og verði 4% af lánum allt að
2'/í> ári, en.5% af lánum sem
eru til lengri tíma. Vextir af
almennu sparifé verði hækkaðir
um 7%. Tekið verði upp breytt
fyrirkomulag dráttarvaxta,
■ Mikið fjör er nú í sölu jólatrjáa, enda ekki nema 5 dagar eftir til hátíðarinnar miklu. Þessi mynd
var tekin á einum útsölustaðnum í gær. NT-mynd svemr.
Jólatrén
renna út
■ Jólatréssalan er nú komin í
fullan gang, samkvæmt upplýs-
ingum, sem NT fékk hjá nokkr-
um útsölustöðum í gær. Sums
staöar er meira að segja búið að
fá aukasendingar til þess að
hægt sé að anna eftirspurninni.
Vinsælustu tegundirnar í ár
virðast vera íslenskt rauðgreni
vann
sinn
fyrsta
Sjá bls. 27
og Normannsþinur frá Dan-
mörku. Þá er dönsk fura sömu-
ieiðis nokkuð vinsæl, enda búin
þeim eiginleika, eins og Nor-
mannsþinurinn, að hún fellir
ekki barr. íslensku rauðgreni-
trén sem íbúar höfuðborgar-
svæðisins skreyta híbýli sín með
um hátíðarnar eru komin úr
Þjórsárdal, Skorradal og Hauka-
dal. Alls eru 10-12 þúsund tré
felld á landinu í þessum tilgangi.
Eftirsóttustu stærðirnar af
trjám eru frá 1.25 m upp í 1.75
m. Verð trjánna er nokkuð
mismunandi eftir tegundum, en
það er þó hið sama á útsölu-
stöðunum. Þannig kostar rauð-
greni 1.25-1.50 m að hæð 735
krónur, sama stærð af Nor-
mannsþin kostar 1010 krónur,
sem er hið sama og í fyrra og
furutré kostar 960 krónur.
Til þess að trén haldist sem
fallegust yfir jólin er mönnum
ráðlagt að láta þau standa vel í
vatni. Þá þarf að skera til stilk-
inn og setja bakteríudrepandi
efni í vatnið.