NT - 19.12.1984, Page 2

NT - 19.12.1984, Page 2
Miðvikudagur 19. desember 1984 Framfærsluvísitalan hækkar um 4,85% í desember: Mælir 76,5% verðbólgu ■ Framfærsluvísitalan hefur hækkað um 4,85% á einum mánudi, þ.e. frá nóvemberbyrj- un til byrjunar desmebermán- aðar. Hækkun þessi samsvarar 76,5% hækkun á heilu ári, þ.e., ef verðhækkanir væru jafn mikl- ar í hverjum mánuði og þær voru nú. Um % af hækkuninni eru vegna verðhækkana á matvör- um og aukins bifreiðakostnað- ar. Af þessari 4,85% hækkun vísitölunnar er 1,6% vegna auk- ins kostnaðar við fjölskyldubíl- inn, þar af rúmur helmingur vegna verðhækkunar á bílum og tæpur heimingur vegna hækkunar á bensínverði. Þá stafar 1,4% af hækkuninni af hiekkun matvöru, þar af um helmingur vegna búvöruhækk- ana en hinn helmingurin af því að annars konar matvara hefur hækkað. Um 1,85 eru síðan vegna verðhækkana á ýmsum öðrum vörum og þjónustu. Framfærsluvísitalan í des- emberbyrjun reyndist sam- kvæmt útreikningi kauplags- nefndar. vera 117,2 stig (var 111,8 stig í nóbvemberbyrjun), sem þýðir að vörur og þjónusta sem vísitalan mælir hafa hækk- að um 17,2% síðustu 10 mánuð- ina, frá byrjun febrúar 1984. Harður árekstur í Garði ■ Harður árekstur varð í Garðinum á Reykjanesi í gærdag þegar fólksbíll og ruslabíll skullu saman. Var ökumaður fólksbíls- ins fluttur á sjúkrahús en fékk að fara heim eftir skoðun. Fólksbíllinn skemmdist mjög mikið og var fluttur af vettvangi með krana. Nýr bóksölulisti frá Kaupþingi: A Gljúfrasteini ennþá söluhæst - spennubækur hæstar þýddra bóka ■ Kaupþing birti í gær 2. lista sinn yfir mest seldu bækur á jólamarkaðnum í ár. Nær listinn yfir vikuna 10.-15. desember. Það vekur athygli, að á listanum yfir 15 mest seldu frumsömdu íslensku bækurnar eru aðeins 3 skáldsögur. Þá er athyglivcrt, að vinsælustu erlendu bækurnar eru spennu- 15 mest seldu frumsömdu íslensku bækurnar vikuna 10. til 15.12.1984. 1. Á Gljúfrasteini, Edda Andrésdóttir 2. Guðmundur skipherra Kjærnested, Sveinn Sæmundsson 3. Jón G. Sólnes, Halldór Halldórsson 4. Ekkert mál, Njörður P. Njarðvík og Freyr Njarðarson 5. Við Þorbergur, Gylfi Gröndal 6. Alfreðs saga og Loftleiða, Jakob F. Ásgeirsson 7. Eysteinn - í baráttu og starfi, Vilhjálmur Hjálmarsson ð. Og árin líða, Halldór Laxnes 9. Landið þitt, Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson 10. Lífið er lotterí, Ásgeir Jakobsson 11. Með kveðju frá Dublin, Árni Bergmann 12. Ágúst á Brúnastöðum, Halldór Kristjánsson 13. Gefðu þig fram Gabríel, Snjólaug Bragadóttir 14. Hátt uppi, Bryndís Schram 15. íslensk knattspyrna, Víðir Sigurðsson 10 mest seldu þýddu bækurnar vikuna 10. til 15.12.1984. 1. Dyr dauðans Alister Maclean eða ástarsögur. Á Gljúfrasteini er enn í efsta sætinu og því næst koma tvær aðrar ævisögur. Fyrsta skáldsagan á listanum, Ekkert mál, er í fjórða sæti. Listi Kaupþings lítur annars þannig út. 2. í næturvillu Desmond Bagley 3. Átök í eyðimörk Hammond Innes 4. Treystu mérástin mín Theresa Charles 5. í gildru á Grænlandsjökli, Duncan Kyle 6. Sigur ástarinnar Bodil Forsberg 7. Kyneðli og kynmök A.K. Ladas, B. Whipple og J.D. Perry 8. Spilabókin (þýð.: Guðni Kolbeinsson) 9. Systurnar frá Greystone Victoria Holt 10. Ást og hatur Erling Poulsen 10 mest seldu barna- og unglinga- bækurnar vikuna 10. til 15.12.1984. 1. Fimmtán ára á föstu, Eðvarð Ingólfsson 2. Töfftýpa á föstu, Andrés Indriðason 3. Sjáðu Madditt, það snjóar Astrid Lindgren og llon Wikland 4-5 Júlíus Klingsheim/Jakobsen 4-5 Tröllabókin Jan Lööf 6. Bróðir minn Ijónshjarta Astrid Lindgren 7. í ræningjahöndum, Ármann Kr. Einarsson 8. Veiran Tome og Jan Ry 9. Veistu svarið Axel Ammendrup 10. Með víkingum Peyo Chicken-King í Suðurveri ■ Chicken-King - kjúklinga- kóngurinn - er nýr skyndibita- staður í Suðurveri við Stigahlíð. Kóngurinn býður upp á djúp- steikta kjúklingabita með krydd- mylsnu frá Chicken King, en það er einmitt þessi mylsna, gerð samkvæmt leyniformúlu, sem er samnefnari staða með Chicken King nafninu. 'Sverrir Þorsteinsson á kjúkl- ingastaðinn í félagi við fjöl- skylduna. Hann sagði NT að eignarfyrirtæki Chicken King, Barbecue King, væri bandarískt fyrirtæki, sem samt sem áður byggði aðallega á markaðnum í Evrópu. Til dæmis væru áttatíu og þrír Chicken King matsölur í Flollandi. Staður Sverris er fyrsti Chicken King matsalan á Norðurlöndum. Chicken King er í sama hús- næði og Hlíðagrill var í áður, en þann veitingastað rak Sverrir einmitt síðustu sextán ár. ■ . í kjúklingastaðnum við opnunina: Sverrir Þorsteinsson, Anna Karen Sverrisdóttir og Stuart Green, sölufulltrúi Barbecue King. NT-mynd: Árni Bjama „Ekki samur eftir slíka lífsgöngu“ - sagði María Jóhanna Lárusdóttir um friðargöngu í Bandaríkjunum Frá frcttarítara NT í Gnúpverjahreppi, Guðmar Guðjónssyni ■ „Það verður enginn samur maður eftir að hafa tekið þátt í lífsgöngu scm þessari," sagði María Jóhanna Lárusdóttir í ræðu sem hún flutti á aðventu- kvöldi í félagsheimilinu Árnesi. Sagði María þar m.a. frá því þegar hún tók þátt í friðargöngu í Bandaríkjunum. Það var friðarhópur kvenna í Gnúpverjahreppi sem gekkst fyrir aðventukvöldinu, sem hófst með ávarpi Bjarnheiðar Guðmundsdóttur. Síðan flutti María ræðu sína sem vakti mikla athygli áheyrenda. Þá komu piltar frá Skálholtsskóla með uppákomu. Síðan stýrði Gylfi Jónsson skólastjóri í Skál- holti fjöldasöng. Husqvarna Optima Husqvarna Optima er fullkomin saumavél, létt og auðveld í notkun. Husqvarna Optima hefur alla nytjasauma innbyggða. Husqvarna Optima saumar allt frá þynnsta silki til grófasta striga og skinn. Husqvarna Optima óskadraumur húsmóðurinnar Verð frá kr. 12.000.- stgr. Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200 (h) Husqvarna Landssamband vörubifreiðastjóra: Heimamenn sitji fyrir vinnunni Telja framkvæmd útboða á vegum hins opinbera tilræði við afkomuskilyrði landsbyggðarinnar ■ Óánægja er ríkjandi meðal vörubif- rciðastjóra vegna þeirrar þróunar sem hefur orðið síðustu ár hjá verktökum að sniðganga forgangsrétt vörubflstjóra í heimabyggð og segja þeir þetta hafa valdið verulegri röskun á afkomuskilyrð- um vörubflstjóra, sem reka þjónustu- stöðvar í flestum byggðarlögum. Einnig gætir mikillar óánægju meðal vörubílstjóra vegna þeirrar þróunar sem orðið hefur í útboðsmálum hins opinbera í vega-, hafna- og flugvallagerð á lands- byggðinni. Telja þeir að tryggja verði að heimamenn njóti forgangsréttar síns til að vinna við slíkar framkvæmdir. Ganga þeir svo langt að kalla útboð á fyrrgreind- um verkefnum tilræði við búsetu og afkomuskilyrði fólksins á landsbyggðinni og segja fjölmörg dæmi vera því til sönnunar. Þetta kom fram á 16. þingi Landssam- bands vörubifreiðastjóra í Reykjavík í lok nóvember þar sem fjölmörg hags- munamál vörubílstjóra voru til umræðu. Formaður Landssambands vörubifreiða- stjóra næstu tvö ár var kjörinn Herluf Clausen úr Reykjavík.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.