NT - 19.12.1984, Page 5
Miðvikudagur 19. desember 1984 5
Ljóðið til fólksins
og fólkið til Ijóðsins
■ Matthías Johannessen með nýju hljómpiötuna.vr-invnd: Róbert
Rætt við Matthías Johannessen um nýja
hljómplötu með upplestri hans á eigin Ijóðum
■ Fálkinn hefur gefið út hljóm-
plötu með upplestri Matthíasar
Johannessen skálds á eigin Ijóðum
með tónlist. ..Ég les þarna úr
tveim Ijóðaflokkum, Dagur ei
meir, og Morgunn í maí." sagöi
Matthías er við hringdum í hann
til að forvitnast um plötuna. ..Fé-
lagar mínir, Árni Jörgensen,
Björn Vignir Sigurpálsson, Stefán
Halldórsson, Sveinn Guðjónsson
og Árni Þórarinsson, settu hana
saman. Stofninn er tvær útvarps-
dagskrár. sem Fálkinn hefur nú
gefið út endurskoðaðar,” sagði
Matthías. „Þeir sjá einnig um
tónlistina, sumt af henni er samið
af Árna Jörgensen. Björn Vignir
syngur eitt lag og þeir leika allir
undir.
„Dagur ei meir er hugrcnningar
um þjóðhátíðarárið 19_T4. en eins
og þú kannske manst var ég for-
maður Þjóðhátíðarnelndar. Ljóð-
íslenska hljómsveitin:
Jólatónleikarnir eru í
Bústaðakirkju í kvöld
■ Guðmundur Emilsson ■ Ásdís Valdimarsdótlir g Ma|s Rondin
■ íslenska hljómsveitin heldur sjöttu tónleika sína á starfsárinu í kvöld
kl. 20.30 í Bústaðakirkju, en efnisskráin var flutt í gærkvöldi í Nýja
íþróttahúsinu í Keflavík. Tónleikarnir í kvöld verða þriðju áskriftartón-
leikar hljómsveitarinnar á vetrinum og að þessu sinni tekur Söngsveitin
Fílharmónía þátt í flutningnum og leiðir fjöldasöng, sem er fastur liður
á jólatónleikum Islensku hljómsveitarinnar. Stjórnandi á tónleikunum
er Guðmundur Emilsson, aðalstjórnandi íslensku hljómsveitarinnar og
Söngsveitarinnar Fílharmóníu.
Einleikarar með hljómsveitinni í kvöld cru þau Ásdís Valdimarsdóttir
víóluleikari og Mats Rondin sellóleikari frá Svíþjóð, e-n hann er fyrsti
sellisti Sinfóníuhljómsveitarinnar í Malmö, þar sem Einar Grétar
Sveinbjörnsson er konsertmeistari. Ásdís er fædd 1962 og hóf tónlistar-
nám sitt í barnamúsíkskólanum, þar sem hún lærði á fiðlu hjá Gígju
Jóhannesdóttur. og hélt áfram námi í tónlistarskólanum hjá Rut
Ingólfsdóttur. 1980 hóf hún nám við Juliard skólann í New York oghaföi
þá snúið sér að lágfiðlunni sem aðalhljóðfæri. Hún er nú 1. lágfiðluleikari
í stærstu hljómsveit skólans og hyggst ljúka MA gráðu frá skólanum á
næsta ári.
Mats Rondin er fæddur 1960 og hóf sellónám aðeins sjö ára gamall.
Meðal kennara hans eru G.Norrby og Erling Blöndal Bengtsson.
Rondin lék fyrst cinleik með hljómsveit sextán ára gamall og hefur
síðan leikiö með sænsku útvarpshljómsveitinni, Fílharmóníusveit
Stokkhólms, sinfóníuhljómsveitum Gautaborgar og Malmö og leikið
einleik víða i Evrópu. Þá hefur hann gert fjölda hljóðritana fyrir útvarp
og sjónvarp og fyrsta hljómplata hans er væntanleg innan skamms.
Tónleikarnir í kvöld bera yfirskriftina „Aðventa" og efnisskráin er
fjölbreytt; á henni eru verk eftir Holst, Vaughan Williams, Fauré,
Tartini og Jón Nordal. Og að lokum sameinast flytjendur og gestir í
fjöldasöng, eins og áður segir.
in eru hins vegar ekki ort af
formanni þjóðhátíðarnefndar.
heldur af Matthíasi Johannessen
skáldi. Þegar hátíðinni var lokið
gat ég kastað fram af mér beislinu
og sagt það sem mér bjó í brjósti
án þess að setja mig í stellingar.
Á hinni plötusíðunni er svo
ljóðaflokkurinn Morgunn í maí.
Ég hef ekki verið eins lengi að
semja neina Ijóðabók. Hún kom
út 1978, en hafði verið að gcrjast
innra með mér frá því að ég var
drcngur. en Ijóðin lýsa æsku minni
í Reykjavík ástríðsárunum. Undir
lestrinum á plötunni er leikin tón-
list frá þeim tíma. Form Ijóðanna
ntinnir lika á stríðsárin á íslandi.
Stuðlarnir eru byrjaðir að falla
brott og Ijóðin verða hvorki hefð-
bundin né atóm. Rímið er þó
ennþá til staðar.
„Hugmyndin á bak við plötuna
er reyndar ekki ný," scgir Matthí-
as. Það var á Listahátíð 1974, að
ég var beðinn að lesa upp á Kjar-
valsstöðum með öðrum skáldum
og mér fannst ég þurfa að gera
eitthvað nýtt. Þá fékk ég í lið með
mér þessa félaga mína sem eru
með mér á plötunni og þeir sáu unt
tónlist undir lestrinum.
Ég er þeirrar skoðunar, að ljóð-
list hai'i upprunaiega veriö tcngd
seyði og sungin með einhverjum
hætti. Þannig hygg ég að hafi verið
með Eddukvæðin. um danskvæðin
okkar og rímurnar vitum við. Ég
held að það megi gera rneira af því
að flytja Ijóð með tónlist. Sjálfur
er ég ekki söngvari, ef ég væri það
myndi ég syngja Ijóðin mín. Éins
og LeonardCohen. Hannerskáld.
Ertu ekki sammála því?
Ég vona að þetta verði til þess
að hjálpa til við að koma Ijóðinu
til fólksins. Og fólkinu til Ijóðsins.
Við skáldin höfum verið allt of
hlédræg við að koma okkar hlutum
á framfæri. Ilitt er annað mál. að
ég tel að Ijóð séu fyrst og fremst
bókmcnntir. Reyndar ákaflega
cinmanalegt listform. Hlutverk
Ijóðskáldsins er að yrkja kvæði og
breyta öllum lcsendum sínum í
Ijóðskáld. Ljóðið verði eins og
hver annar viðburður í lífi lesand-
ans.
Skáldin eiga sjálf sinn þátt í því
að það hefur veriö troðið á ljóð-
inu. Þau hafa fjarlægst þessa geysi-
lega Ijóðelsku þjóð. Það er stór-
kostlegt að lesa Ijóð fyrir íslend-
inga.
Allt í jólamatinn
4
Rjúpur kr. 140,-stk.
Norðlenska hangikjötið vinsœla.
Hamborgarhryggir frá KEA.
Svínakjöt. Allt af nýslátruðu.
Mikið úrval af úrbeinuðu kjöti.
Peking-endur.
Veislu-gœsir
Nautakjöt. Allt af UN1.
Mikið úrval af ódýrri niðursuðuvöru
Mikið úrval af jólakertum og servíettum óisamt
stórkostlegu úrvali af konfekti og allskonar jól-
asœlgœti.
húsiö
Húsinu
JIS HOKMÐvJll PORTINUI
Avextir í heilum og hálfum köss-
um 20% afsláttur.
Ö1 og gosdrykkir ódýrari í heil-
um og hálfum kössum - djús.
Jll GRILLIÐ
Grillréttir allan daginn.
Munið grillkjúklingana.
Takið með ykkur heim.
f Jón Loftsson hf. .
Hringbraut 121 Sími 10600