NT


NT - 19.12.1984, Síða 8

NT - 19.12.1984, Síða 8
Miðvikudagur 19. desember 1984 8 Jóhanna Eyjólfsdóttir Fædd 3. október 1915. Dáin 9. desember 1984. Tengdamóöir mín Jóhanna Eyjólfsdóttir, Bárugötu 16, Reykjavík, andaðist í Landa- kotsspítala sunnudaginn 9. des- ember sl. eftir stutta en erfiða legu. Útför hennar verður gerð í dag frá Fossvogskirkju. Jóhanna fæddist þ. 3. október 1915, dóttir hjónanna Nikólínu Eyjólfsdóttur og Eyjólfs Sig- urðssonar skipstjóra og smiðs í Laugardal, Vestmannaeyjum. Jóhanna var elst 9 barna og eru nú þrjú þeirra á lífi. Jóhanna minntist ætíð foreldra sinna og æskustöðva með mikilli hlýju og virðingu. Vestmannaeyjar voru henni ofarlega í huga og fylgdist hún alla tíð vel með því sem þar fór fram. Um tvítugt fór Jóhanna til Ólafsfjarðar og starfaði þar um 5 ára skeið. Laust eftir 1940 fluttist Jó- hanna frá Ólafsfirði til Reykja- víkur og átti þar síðan heimili sitt. í Reykjavík kynntist hún eftirlifandi manni sínum Valdi- mar Guðmundssyni, fyrrv. skip- stjóra frá Þingeyri. Þau gengu í hjónaband árið 1946. Sama ár kcyptu þau húsið við Bárugötu 16 og áttu þar heinra síðan. Heimili þeirra Jóhönnu og Valdimars var þcim til mikils sóma. Þau voru ákaflega sam- hent um að hlúa að öllu á heimilinu á senr myndarlegastan hátt. Þar ríkti einstök snyrti- mennska og mikil gestrisni. Jó- hanna var mikil húsmóðir og gekk að öllu sem hcimilinu laut með sérstakri alúð og -um- hyggju. Ég er þess fullviss, að þeinr fjölmörgu, sem sóttu þau hjón heim mun nú minnisstæð sú sérstaka rausn og hlýja sem húsráðendur sýndu gestum sínum. Börn þeirra hjóna urðu þrjú. Elstur er Valdimar. kvæntur Þorgerði Einarsdóttur, þau eiga þrjú börn. Næstelsturer Eyjólf- ur, kvæntur undirritaðri, þau eiga tvö börn. Yngst er Helga, gift Óskari Alfreðssyni, þau eiga tvö börn. Öll börn Jóhönnu eru búsett í Reykjavík. Náin samskipti voru ætíð rnilli hennar, barn- anna og fjölskyldna þeirra. Barnabörnin áttu hjá henni mikið og gott athvarf enda hafði hún sérstakt lag á börnum. Mik- ill er missir þeirra þegar þau njóta ekki lengur samvista við ömmu sína. Vegna starfs síns var Valdi- mar löngum fjarverandi frá heimili sínu og féll það þá að miklu leyti í lilut Jóhönnu að annast heimilið og uppeldi barn- anna. Það gerði Inin með þeim myndarskap og umhyggju sem henni var eðlislæg. Kom sér þá vel kjarkur hennar og dugnað- ur. Ég mun ætíð minnast fyrstu heimsóknar minnar á Bárugötu 16. Jóhanna og Valdimar tóku mér opnum örmum og glöggt mátti finna, að í því húsi ríkti góður andi. Eftir þennan fyrsta fund okkar Jóhönnu leyndist mér ekki, að hún var rnörgum góðum kosturn búin. Ég taldi mig ekki þurfa að kvíða því að eignast hana fyrir tengdamóður. Það hugboð mitt reyndist rétt. Þau ár sem síðan eru liðin hef ég og fjölskylda mín ótal sinnum notið elskulegrar hjálpfýsi hennar og greiðvikni. Jóhanna var ráðagóð með afbrigðum og ekkert var henni fjær skapi en hugarvíl og uppgjöf. Það var því ævinlega uppörvandi að leita til hennar þegar á þurfti að halda. Fyrir allt þetta er mér nú efst í huga innilegt þakklæti. Síðustu ár var Jóhanna ekki alltaf heilsuhraust, en hún eyddi gjarnan öllu tali um veikindi ef á var minnst. Fyrir fáum vikum lagðist Jóhanna inn á sjúkrahús og stóðu góðar vonir til að hún myndi fá góðan bata við meini sínu. Þær vonir rættust ekki því í ljós kom, að veikindi hennar voru mun alvarlegri en ætlað var í fyrstu. Jóhanna tók sjúk- leika sínum með aðdáunar- verðu þreki og æðruleysi. Sunnudaginn 9. desember sl. var sonarsonur Jóhönnu skírður í kapellu Landakotsspítala. Rúmliggjandi var hún viðstödd ásamt öðrum allra nánustu ætt- ingjum barnsins. Að athöfninni lokinni óskaði hún barninu allr- ar gæfu og síðan kvaddi hún fólk sitt glaðlega eins og hennar var vandi. Að tæpri stundu liðinni sloknaði lífsljós þessarar mætu og góðu konu. Tengdafaðir minn hefur misst lífsförunaut sinn. Ég veit, að góðar minningar um trausta og kæra eiginkonu munu verða honum mikill styrkur. Ég og fjölskylda mín minn- umst nú ástkærrar móður, tengdamóður og ömmu með viröingu og söknuði, og þökk- um fyrir allt sem hún var okkur fyrr og síðar. Blessuð sé minning hennar. Hanna Unnsteinsdóttir. í dag þann 19. desember þegar ég kveð hinstu kveðju elskulega tengdamóður og ömmu barna minna, langar mig með nokkrum orðum að votta henni virðingu mína og elsku, þó ég geti aldrei með orðum sagt það sem í hjarta mínu býr, það bíður síns tíma. Jóhanna var fædd þann 3. október 1915 að Laugardal í Vestmannaeyjum, og ólst þar upp hjá foreldrum sínum Ey- jólfi Sigurðssyni og Nikólínu Eyjólfsdóttur. Fljótlega bar á því að Jó- hanna var íorkur til allra starfa. og ekki veitti af duglegum hönd- um á stóru heimili, hún fór fljótt að vinna öll þau verk sem til féllu, sérstaklega ræddi hún oft við mig um störfsín ásjúkrahús- inu þar á staðnum og fannst mér sem hugur hennar hefði um tíma staöið til hjúkrunarstarfa og held ég að þar hefði kraftur hennar, styrkur og manngæska notið sín vel. En útþráin gerði vart við sig um tvítugt og lá þá leið hcnnar til Ólafsfjarðar þar sem hún vann, til að byrja með öll venjuleg störf, sem til féllu við útgerð á þeim tíma. Iðulega sátum við saman og sagði hún mér þá hvernig þessum störfum var háttað, verður mér því oft hugsað til þeirrar miklu vinnu sem konur inntu af höndum á þessum tíma, störf sem nú telj- ast til grófustu karlmannsverka, og myndum við konur í dag veigra okkur við að fara í þeirra spor. En tengdamóður minni var ekki fisjað saman þegar um vinnu var að ræða. Seinni hlut- ann af veru sinni á Ólafsfirði vann hún hjá Ásgrími Hart- mannssyni og konu hans Helgu sem ráku þá, eftir því sem ég best veit eina veitinga- og gisti- húsið á staðnum. Heyri ég á öllum að Jóhanna vann sín störf vel og af alúð og kynnti sig f alla staði vel. Það sýnir hugur þeirra hjóna í gegnum árin að þar var ræktuð vinátta samhliða vinnu á þeim stað. En ekki fann Jóhanna það sem hún leitaði að á Ólafsfirði, heldur lá leið hennar til Reykja- víkur þar sem hún um skeið vann á Listamannaskálaum og heyrði ég á henni að þaðan átti hún margar skemmtilegar minningar. Eftir það tók hún til starfa á saumastofunni Spörtu sem á þeim tíma var þekkt sem góð saumastofa. Þar sýndi hún að henni var margt til lista lagt því allt sem að saumaskap snéri lék í höndum hennar eins og hver önnur list bæði handavinna allskonar og vélavinna. Á heið- ursstað í stofu hennar standa myndarlegir silfurkertastjakar sem Ragnar í Spörtu gaf henni sem viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Þeir sýna að störf hennar voru metin mikils. Árið 1976 fór Jóhanna aftur að vinna eftir nokkurt hlé og þá á saumastofu Halldórs Guð- jónssonar, hún mat hann mikils og með þeim tókst góð sam- vinna, saumastofan skipti síðan tvisvar um eigendur og vann Jóhanna hjá báðum þeim aðil- um,allt fram á þennan dag má segja. Árið 1945 flutti Jóhanna í húsið á Bárugötu 19, og má segja að þá byrji hamingjuhjól hennar að snúast og þar finni hún það sem hún leitaði að. í húsinu bjó einnig ungur maður, Valdimar Guðmunds- son, skipstjóri sem þann 19. ágúst 1946 gerðist hennar lífs- förunautur. Stuttu seinna festu þau kaup á húsinu að Bárugötu 16, þar sem þau hafa búið síðan, og hæg hafa verið heima- tökin þegar ekki þurfti að flytja lengra en yfir götuna. Jóhanna og Valdimar eignuð- ust 3 börn. Valdimar eiginmann minn f. 1948. Eyjólf kvæntan Hönnu Unn- steinsdóttur f. 1949, og Helgu gifta Óskari Al- freðssyni f. 1951. Öll bera þau það með sér að vel hefur verið að þeim búið í æsku og uppvexti og nutu þau þar þess sem svo tengdabörn og barnabörnin fengu að njóta síðar, ástar, umhyggju og já- kvæðu lífsviðhorfi. Valdimar maður Jóhönnu er sjómaður, og það að vera eigin- kona sjómanns er mikið álag og vita það sjálfsagt flestir að styrk og festu þarf til að halda um stýrið á þeirri skútu sem heima er siglt rétt eins og þeirri sem á sjó siglir. Áldrei urðu þó árekstrar á skipum þeirra Jóhönnu og Valdimars, heldur mættust þau á miðri leið í lífsins sjó og sigldu skipi sínu saman í ást og virð- ingu til enda. Elsku tengdapabbi,guð gefi þér styrk til að halda siglingunni áfram, þrátt fyrir mikinn missi. Elsku Valdimar, Eyjólfur og Hanna, Helga og Óskar, öll barnabörnin sem ömmu þótti svo vænt um, allir aðrir sem nú syrgja Jóhönnu. Hvert urn sig vitum við hvað við missurn mikið, en huggum okkur við það að þjáningar hennar og hetjuleg barátta eru á enda. Huggum okkur við, að svo lengi sem hún lifir í hjörtum okkar og huga þá er’ hún hjá okkur Elsku tengdamamma, ég þakka þér fyrir alla þá vináttu og blíðu sem þú sýndir mér og börnunum ætíð, og ég vona að ég hafi reynst sú tengdadóttir sem þú áttir skilið. Farðu í friði. friður guðs þig blessi. Eins og móðir reyndist mér sem vinur í raun ég huggun fann hjá þér hafðu Guds laun. Geröa. Lokabindi Borgf irzkrar blöndu ■ Borgfirzk blanda. Sagnir og fróðleikur úr Mýra- og Borgar- fjarðarsýslum. Áttunda bindi. Safnað hefur Bragi Þórðarson. Akrancsi, Hörpuútgáfan, 1984. 250 bls. Fyrir sjö árum hóf Hörpuút- gáfan á Akranesi að gefa út safnritið Borgfirzka blöndu, og hefur Bragi Þóröarson, forstjóri fyrirtækisins, jafnan verið rit- stjóri, auk þess sem hann hefur skrifað í ritið sjálfur. Undirtitill þess, Sagnir og fróðleikur úr IVlýra- og Borgarfjarðarsýslum (Akraneserþarmeðtalið), segir nánar til, hvcrt efni þess er. í formála fyrsta bindis kemur fram hjá ritstjóranum, að áherzla er lögð á frásagnir af fólki og atburðum eða þjóðleg- an fróðleik. Þar segir einnig, að eins og heiti safnsins beri með sér, sé því ætlaö að birta bland- að efni, og þar komi margt til grcina, sem oröið gctur til fróð- leiks og skemmtunar og snertir sögu viðkontandi byggðarlaga. Hefur þessari ritstjórnarstefnu ávallt verið fylgt, cn bindin eru að flestu leyti hliðstæð að allri gerð. Borgfirzk blanda hefur notið vinsælda, og hafa bindin orðið fleiri en áformað var í upphafi. Nú hafa forráðamenn útgáfunnar ákveðið, að þetta bindi verði hið síðasta, enda er safnið í heild hartnær 2000 blað- síður. Þessu bindi Borgfirzkrar blöndu, eins og hinurn fyrri, er skipt í hluta, sem bera sérstök heiti, eftir efnisflokkum. Hér eru flokkarnir fimm, en þeir eru fleiri í fyrri bindunum. Fyrst eru þjóðlífsþættir, sem svo eru nefndir, og síðan koma svokall- aðir persónuþættir, og eru það viðtöl og frásagnir af einstakl- ingum. Þessir tveir flokkar eru langefnismestir. Síðustu þrír tlokkarnir nefnast: „Hrakning- ar og slysfarir", „Draumar og dulrænar sagnir" og „Gam- anrnál". Alls eru kaflar í bind- inu þrjátíu talsins. Nokkuð af efninu hefur þegar birzt í blöðurn, tímaritum og bókum, en mest er áður óbirt. og er sumt samið sérstaklega fyrir Borgfirzka blöndu. Flestir eru höfundarnir og heimildarmenn efnis upprunnir í Borgarfirði. Margir þeirra eru á miöjum aldri eða eldri, en sumir látnir. í þessu bindi er langmest greint frá minnisstæðum atburðum og daglegu lífi alþýðufólks í lok 19. aldar og á fyrri helmingi 20. aldar, fyrst og fremst í því formi, að fólk rifjar upp ntinningar sínar. Hér er mjög lítið um sagnaþætti, þar sem fjallað er um eldri atburði en þetta. En slíkir þættir eru all- margir í fyrri bindum ritsins. Ekki er hægt að benda á ncitt safnrit, sern er fyllilega hliðstætt Borgfirzkri blöndu. Ymsir kafl- ar þar eru af svipuðu tagi og ritsmíðar, sem eru uppistaðan í ársritum, er fyrst og fremst fjalla um sögu einstakra héraða, en Borgfirzk blanda byggir óvenju mikiö á endurminning- um fólks. Sagnaþættirnir í ritinu eiga sér margar hliðstæður, og er samhengið í sagnaþáttagerð íslendinga allt frá dögum Gísla Konráðssonar til þessa dags raunar merkilegt rannsóknar- efni. Frásagnirnar af draumum og dulrænum atburðum falla fyllilega innan hefðar slíkra frá- sagna á síðustu áratugum. En áherzla sú, sem lögð er á fjöl- breytt efnisval, skapar Borg- firzkri blöndu nók'kra sérstöðu. 1 þjóölífsþáttunum í þessu bindi Borgfirzkrar blöndu er fjallað um ýmis merk atriði í borgfirzkri sögu. Má þar nefna þátt um kirkju og presta, eink- um í Stafholtssókn, er Þórunn Eiríksdóttir á Kaðalsstöðum skráði cftir Jóni Snorrusyni á Laxfossi (sem svör við spurn- ingalista frá Þjóðminjasafninu um þctta efni), þátt um sögu rafvæðingar á Ákranesi eftir Jón Sigmundsson í Görðum, þátt um upphaf bflferða í Borg- arfirði eftir Arnberg Stefánsson í Borgarnesi og þátt um ferðalög og flutninga á 19. öld og á öndverðri 20. öld eftir Braga Þórðarson. En í sumum tilvik- urn hefði ég kosið, að rækilegar væri greint frá viðkomandi efni. Og þegar litið er á Borgfirzka blöndu í heild, hefði það að mínu mati aukið gildi ritsins að birta þar lengri ritgerðir um afmörkuð svið borgfirzkrar sögu. En skylt er að geta þess, að í tvo áratugi hefur verið vettvangur fyrir slíkar ritsmíðar í Kaupfélagsrilinu.sem Kaupfé- lag Borgfirðinga gefur út, og nú unt skeið einnig í Borgfirðinga- bók, sem Sögufélag Borgfirð- inga hóf að gefa út 1981. Og vissulega var efninu í Borgfirzkri blöndu aldrei ætlað að rnynda samfellda héraðssögu. í við- tölunum og í þáttum af einstakl- ingunt er margt fróðlegt að finna um hag og háttu Borgfirð- inga í lok síðustu aldar og á þéssari öld. En eins og gengur mun lesendum, sem ekki eru kunnugir persónum þeim og byggðarlögum, er við sögu koma, þykja efnið misveigamik- ið. Þetta bindi Borgfirzkrar blöndu er í heild lipurlcga skrifað, og ýmsir þættirnir eru prýðilega stílaðir. Efnið er að- gengilegt lesendum. Ritstjórinn hefur samið nokkur inngangs- orð á undan mörgum kaflanna, og er það mjög gagnlegt. Þá er fengur í því, að nafnaskrá fylgir þessu bindi eins og hinum fyrri. Hér er að finna merkar Ijós- myndir, m.a. úr Héraðsskjala- safni Borgarfjarðar og Byggða- safninu að Görðum á Akranesi. Frágangur þessa lokabindis Borgfirzkrar blöndu, sem og hinna fyrri, er vandaður. Bragi Þórðarson á þakkir skildar fyrir útgáfu Borgfirzkrar blöndu. Safnritið geymir merki- legt efni um liðna tíð í Borgar- firði, og ýmislegt af því, sem ekki hefur sérstakt sögulegt heimildagildi, mun mörgum les- endunt þykja skemmtilegt af- lestrar. Ingi Sigurðsson. Gamlar íslandsmyndir Árni Björnsson, Halldór J. Jónsson: Gamlar Þjóðlífsmynd- ir. Bjallan 1984. 196 bls. ■ Myndadeild Þjóðminja- safnsins er mikil matarkista öll- um þeim, sem áhuga hafa á gömlurn myndum frá íslandi, og gildir þá einu hvort menn sækjast eftir Ijósmyndum eða annars konar myndum. Sá hængur er hins vegar á, að fram til þessa hefur alltof lítið af þessunt ntyndum vcrið aðgengi- legt almenningi. í þessari bók eru birtar gantl- ar myndir af íslensku þjóðlífi og eru allar frá því áður en Ijós- myndun var algeng. í inngangi lýsa höfundar því, hvað ráðið hafi vali myndanna með eftir- farandi orðum: ,/ I bók þessa völdum við ntynd- ir frá tveim sjónarmiðum öðrum fremur. í fyrsta lagi skyldu þær sýna fólk við nokkra iðju eða lýsa með einhverju nióti lifnaðar- háttum manna, kjörurn og lífs- skilyrðum á íslandi fyrir tækni- byltingu 20. aldar. Landslageða nafnkunn persóna er því jafnan aukaatriöi, þótt þess sé getið. ef fyrir kemur. í öðru lagi eru engar Ijós- myndir teknar nteð, heldur ein- vörðungu teikningar og grafísk- ar myndir, svo sern málmstung- ur, steinprent o.s.frv. Þessi kostur var tekinn til að meira samræmi yrði í áferð myndanna. auk þess sem það afmarkar nokkuð tímaskeið þeirra. Elsta teikningin mun vera frá því um 1720 (Kóngsgarðurinn á Bessa- stöðum), en hin yngsta frá því laust eftir síðustu aldamót (hey- ýta)". Myndirnar í bókina eru valdar. innan þeirra takmarka, sem höfundar settu sér, og greinl var frá í ofangreindum orðum. Þær sýna fólk við ýmis störf til sjós og lands, sýna gamlar húsagerðir, skepnur, gefa mynd af fyrstu íslensku kaupstöðunum og bregða skemmtilegu leiftri á samgöng- ur, eins og þeim var háttað á þessu tímabili. Að öllu saman- lögðu virðist rnér, að myndirnar í bókinni gefi dágóða yfirlits- mynd af íslensku þjóðlífi á 19. öld, og að nokkru leyti á þeirri 18., þótt því fari vissulega fjarri að sú ntynd sé á nokkurn hátt tæmandi. Var-og aldrei til þess ætlast að svo yrði. Höfundar myndanna eru flestir erlendir ferðamenn, sem hingað komu á 18. og 19. öld. Margar myndanna bera vitni uppruna sínum að því leyti, að þær voru oft rissaðar upp í teikniblokk á staðnum, ljós- myndun þeirra tíma, og síðan fullunnar að ferð lokinni. Slíkar myndir urðu oft ónákvæmar í smáatriðum, þótt heildarmynd- in komi víðast allvel fram. Þeir Arni og Halldór hafa skipt með sér verkum á þann hátt að Árni hefur samið texta, en Halldór valið myndirnar. Báðunt hefur þeim vel til tekist. Myndirnar eru vel valdar og textinn ágætlega skýr og fróð- legur aflestrar. Allur frágangur bókarinnar er með ágætuin og hún liinn eigulegasti gripur. Jón Þ. Þór Tenór kveður sér hljóðs ■ Út er komin hljómplata nteð söng Páls Jóhannessonar. Páll hóf söngnám árið 1973 hjá Sigurði D. Franzsyni. Haustið 1976 fór Páll til Reykjavíkur og stundaði nám í Söngskólanum hjá Magnúsi Jónssyni. Síðan lá leiöin til borgarinnar Piacenza á Ítalíu. Þar lærði Páll í 3 ár hjá Eguina Ratti og síðast hjá Picr Miranda Ferraro. Á plötunni syngur Páll 13 lög, 5 kirkjuaríur eftir m.a. Bach, Handel og Mozart eru á annarri hliðinni sem tekin var upp í Akureyrarkirkju, orgelleikari var JakobTryggvason. Hiðhlið- in hefur að geyma 8 einsöngslög eftir; Eyþór Stefánsson, Sig- valda Kaldalóns, Karl O. Run- ólfsson. Upptakan á þeirri hlið var gerð í Logalandi í Borgar- firði. Á píanóið lék Jónas Ingi- mundarson. Upptökumaður var Halldór Víkingsson. Útgefandi hljómplötunnar er Studio Bimbo á Akureyri.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.