NT


NT - 19.12.1984, Side 24

NT - 19.12.1984, Side 24
1 a Miðvikudagur 19. desember 1984 24 L \ LKI 0 3 a Fyrirhyggjusamur fánagerðarmaður Tcl Aviv-Reutcr. ■ Hann Yit/hak Bcrnian, ísraelskur fánagerðarmað- ur, ætlar ekki á láta stórvið- hurði í heimspólitíkinni koma sér frainar á óvart. Nei, hann vill hafa vaðið fyrir neðan sig, reynslunni ríkari síðan hann fékk að- eins þrjá daga til að sauma þúsund egypska fána þegar Amvar Sadat koin í heim- sókn til ísraels árið 1978. Nú er Berman farinn að sauma jórdanska fána ef vcra kynni að Husscin Jórdaníukon- ungur hirtist allt í einu í Isracl. Samt hefur stjórnin ekki farið þess á leit við Berman að hann saumi fánana. enda hafa opin- hcrir aðilar ekkert rætt um heimsókn Husseins. „Eg ætla ekki að standa uppi. með buxurnar á hælunum cf allt í einu vantar jórdanska fána," scgir Bermán. Fyrr í þcssum mánuði skýrði franska hlaöið Lc Monde frá því að Shimon Peres. forsætis- ráðherra ísraels, hefði átt leynifund með Hussein. Tals- menn Percsar hafa neitaö því. En þetta var nóg til að Bcrm- an varð sér úti um svart. hvítt, rautt og grænt klæði og hóf að sauma jórdanska fána. „Svona hlutir fara hægt af staö," segir hann. „Fyrst segir Peres að Hussein sé ágætur, og svo segir Hussein aö það sé allt í lagi með Pcres. Þctta er eins og-þegr strákar eru að eltast viö stelpur." ■ Það iná kannski segja, frekar í gríni en alvöru, að þessi unga stúlka hafí fengið óvenjulega jólagjöf. Hún er sænsk, 14 ára gömul og heitir Mees. Hún hefur lengi þjáðst af illkynjuðum lifrarsjúkdómi. Um miðjan nóvember var hún lögð inn á sjúkrahús í grennd við Stokkhólm og þar var grædd í hana ný lifur. Aðgerðin tókst svo vel að fyrr í vikunni var hún útskrifuð af sjúkrahúsinu og fór heirn til að halda jólin með foreldrum sínum. Hér er hin ánægða fjölskylda samankomin á mynd. símamvnd-Poifato. KÍKTU í... ÖLKELDUNA og léttu af þér skammdegisleiðanum viö Ijúffengar veitingar. Opið virka daga til kl. 1.00 og til kl. 3.00 föstudaga og laugardaga Boröapantanir í síma 13628. ÖLKELDAN Laugavegi 22, 2. hœö (gengiö inn frá Klapparstíg) TVlL, Skemmtir gestum með spili og söng. Fimmtudags, föstudags, laugardags og sunnudagskvöld. Keisaralegur matseöill KEISARINN FRÁ KÍNA LAUGAVEGI 22 Ungherjar vilja nýja popptónlist Moskva-Keutcr. ■ „Er það ckki svolítið skrítið að vin- sælustu lögin frá árunum 1981-82 séu ekki gefín út fyrr en í árslok 1984?“ Svo erspurt í Komsomolskaya Pravda, daglegu málgagni æskulýðshréyfingar sovéska kommúnistaflokksins um helg- ina. í greininni er sárlega kvartað yfir því að Malodya, hljómplötuútgáfa ríkisins, standi sig ekki í stykkinu. kynni ekki nýjar hljómsveitir og gefi ekki út vinsæl dægurlög fyrr en seint og um síðir. Afleiðingin er sú, segir blaðið, að ungt fólk hlustar á popptónlist í vestrænum útvarpsstöðvum og á diskótekum bráð- vanti nýlegar hljómplötur. Ungur maður segir í viðtali viö blaðið að liann hafi ekki efni á því að kaupa vestrænar hljómplötur á svörtum mark- aði, þar sem þær kosta allt að 100 rúblum (næstum 5000 ísl. kr.). Þessi grein stingur nokkuð í stúf við aðrar greinar sem birst liafa í málgögnum kommúnistaflokksins um þessi mál. Þar hafa ungherjar veriö hvattir til að reyna að sporna við spillandi áhrifum vestrænn- ar tónlistar og tísku. Kína: Tölvutækni notuð í hjúskaparmiðlun ■ Kínverjar hafa tekið tölvutækninni tveimur höndum ekki síður en aðrar þjóðir. Þeir eru nú meira að segja farnir að nota tölvur til að aðstoða við hjónabandsniiðlun fyrir þá sem eiga erfitt með að fínna sér hæfílegan ntaka. Peking-vikublaðið segir frá því að þrjátíu ógiftir einstaklingar leiti daglega til hjónabandsmiðlunar í Peking þar sem tölvutækninni er beitt. Einkcnni, menntun, fjölskylduaðstæður. starf og áhugamál er skráð inn á tölvu hjá hjúskaparmiöluninni. Þannig cr auðvelt að finna einstaklinga sem passa við óskir hinna ógiftu. Hjónabandsmiðlunin býður unga fólkinu líka að skoða myndbandsupptöku af líklcgum mökum svo að það geti bctur ákveðið sig hvort það vill ræða nánar við viðkomandi. Sameinuðu þjóðirnar: Laun aðalritarans hækkuð Sameinuðu þjóðirnar-Keuter ■ Fjárhagsnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur sam- þykkt 24.000 dollara launahækkun fyrir aðalritar- ann, Javier Perrez de Cuellar. Hann niun nú fá 163.300 dollara (rúml. 6,5 milljonir ísl. kr.) í árslaun. Launahækkunin stafar af því að nú verður sérstök launauppbót vegna uppihalds gerð aö föstum hluta launanna. Það verður aftur til þess að eftirlaun aðalritarans hækka þar sem hann hefur rétt á að fá sem svarar helmingi heildarlaunatekna sinna í eftirlaun. Brasilíumenn vilja ekki fá eiturgas frá Bandaríkjunum Rio l)e Janero-Kculer ■ Yfírvöld í Kio Janeiro í fírasilíu hafa neitað að taka við 13 tonnum af eiturgasinu methyl isoc- yanate sem varð 2.500 inönnum að bana á Ind- landi fyrir skönimu. Gasið var framleitt af bandaríska fyrirtækinu Union Carbide en það er notað við framleiðslu skordýraeiturs. Það verð- ur nú sent aftur til Banda- ríkjanna. Talsmenn Union Car- bide-fyrirtækisins segja að yfirvöld í Rio De Janeiro muni ekki leyfa framar uppskipun á methylisoc- yanate í höfninni þar. Upphaflega átti að senda gasið til verksmiðjnu í Resenda sem er í um 160 kílómetra fjarlægð frá Rio De Janeiro. GERIÐ SKIL DREGIÐ 23. DESEMBER UM 200 VINNINGA Happdrætti Framsóknarflokksins

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.