NT - 19.12.1984, Page 26
■ Lúxemborgariiin Marc
Girardelli sigraði helsta
keppinaut sinn í risa-stór-
svigi, Pirmin Zurbriggen á
móti í Madonna Di Campigl-
io á mánudag. Munurinn á
þeim köppum var heil cin
sekúnda.
Þetta er þriðji sigur Girar-
delli í heimsbikarkeppninni
og hann er nú í öðru sæti í
samanlögðu stigakeppninni,
rétt á eftir Zurbriggen.
Þriðji í risa-stórsviginu í
fyrradag varð Martin Hangl
frá Sviss. Hann er fyrrum
brunkappi.
Staða efstu manna í licims-
bikarkeppninni eftir mótið í
fyrradag er þessi:
Stig
Zurbriggen, Sviss ........ 104
Girardelli, Luxemb ........ 95
Andreas Wensel, Liechtenst 7
Robert Erlacher, Ítalíu ... 64
Max Julen, Sviss ............60
Á myndinni hér að ofan
eru þeir Girardelli (í miðið),
Zurbriggen (t.h.) og Hangl
eftir mótið á inánudag.
Símamynd-Polfoto.
Albertsemurekki
við belgíska félagið St. Niclaas
■ Það verður ekkert ur því
að Albert Einarsson, knatt-
spyrnumaðurinn efnilegi frá
ísafirði, gerist atvinnumaöur
með belgíska liðinu St. Nic- i
laas.
Albert hefur verið í Belgíu “
undanfarið og faðir hans, Ein-
ar Valur Kristjánsson, fór utan
til að standa í samningaviðræð-
um fyrir hann.
í samtali við NT í gærkvöldi
sagði Einar að það hefði ekkert
staðist sem forseti félagsins
hefði sagt. „Það er greinilegt-
að þessi maður segir annað í
dag en hann gerði í gær" sagði
Einar.
Einar sagði að þjálfarinn
hefði verið mjög hrifinn af
Albert og viljað fá hann í
aðalliðið strax eftir áramótin
en því miður hefði hann ekki
ráðið neinu um samningana.
Einar sagði að aðstaðan væri
ntjög góð til æfinga og honum
hefði litist vel á fjölskylduna
setn Albert hefði átt að dvelj-
ast hjá.
„En ég er á móti því að ungir
íslenskir strákar fari í atvinnu-
ntennsku fyrir ekki neitt" sagði
Einar að lokum.
Norðmaður
stökk lengst
■ Norðmaðurinn
Geir Andersen sigraði í
norrænni tvíkeppni á
móti sem fór fram í
Planica í Júgóslavíu á
sunnudag. Andersen
varð sjötti í stökki af 70
m palli en sigraði auð-
veldlega í 8 km göngu.
Hann fékk 418,8 stig
alls en næstur honum
varð Hubert Schwartz
frá V-Þýskalandi með
416,0 stig.
Sex Norðmenn voru í
efstu 15 sætunum en
þess má geta að engir
skíðagarpar frá Finn-
landi, Sovétríkjunum,
Svíþjóð eða Póllandi
tóku þátt í þessu móti
sem þó var liður í heims-
bikarkeppninni.
GamlárshlaupÍR
■ Kl. 14:00 á gamlárs-
dag hefst við IR-húsið
við Túngötu hið árlega
gamlárshlaup félagsins.
Hlaupinn verður
hefðbundinn hringur út
á Seltjarnarnes og
Suðurgötu og endað við
ÍR-húsið.
Jólamót ÍR
■ Jólamót ÍR fer fram
eins og undanfarin 40 ár
á 2. degi jóla 26. janúar
í húsi félagsins við
Túngötu, ÍR-fiúsið.
Keppnisgreinar
verða langstökk, þrí-
stökk og hástökk án at-
rennu og hefst keppnin
Id. 14:00.
Uwe Hohn bestur
í A-Þýskalandi
■ Spjótkastarinn Uwe
Hohn. sent á heimsmetið ótrú-
lega í spjótkasti (um 104m),
var valinn íþróttamaður A-
Þýskalands í vali sem skipulagt
er af dagblaðinu Junge Welt.
Annar í valinu varð skíða-
stökkvarinn Jens Weissflog.
Skautadrottningin unga
Katarina Witt var valin
íþróttakona A-Þýskalands og í
öðru sæti var spretthlauparinn
Marita Koch.
Guðlaugsbikarinn afhentur
■ Um síðustu helgi var af-
hentur í Vestmannacyjum
Guðlauesbikarinn svokallaði.
Bikar þessi var gefrnn til íþrótta-
bandalags Vestmannaeyja dl
minningar um hið mikla afrek
er Guðlaugur Friðþórsson
synti til lands eftir að Hellisey
VE hvolfdi langt frá landi.
Bikarinn skal, samkvæmt
reglugerð sem honum fylgdi,
veitast þeim Vestmannaeyingi
er að mati íþróttabandalags
Vestmannaeyja vinnur mest
sundafrek á hverju ári.
Að þessu sinni, í fyrsta sinn,
var bikarinn veittur Árna Sig-
urðssyni sundmanm úr Eyjum.
Árni tók m.a. þátt í Ólympíu-
leikunum í Los Angeles.
Á myndinni. sem Ingveldur
fréttaritari í Eyjum tók fyrir
NT, eru foreldrar Árna og litla
systir ásamt Guðlaugi. Þau
tóku við bikarnum fyrir hönd
Árna sem sést á litlu myndinni.
Miðvikudagur 19. de$ember 1984 2C
íþróttafréttamenn og innanhússknattspyrna:
Stórmótið
á Selfossi
annað kvöld - stórliðin pollar og öldungar
1
■ Annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, verður Stórmót íþrótta-
fréttamanna í innanhússknatt-
spyrnu haldið í íþróttahúsinu á
Selfossi. Keppt er um ADIDAS-
bikarinn í annað sinn, en fyrst
var keppt um hann á þessu móti
í fyrra, og hlaut hann þá Knatt-
spyrnufélagið Fram.
Mótið vakti mikla athygli á
Selfossi í fyrra, og var mikil
stemmning, troðfullthús. Mótið
annað kvöld mun hefjast klukk-
an 19.30, og mun Ijúka upp úr
klukkan 22.00. Þar mæta til
Ieiks 6 fyrstudeildarfélög, ásamt
liði heimamanna og liði Sam-
taka íþróttafréttamanna. Fyrstu
deildarfélögin eru: Akranes,
Keflavík, Valur, Fram. Þróttur
og KR.
Stórmót íþróttafréttamanna
er boðsmót. Þangað er boðið
liði heimamanna, að þessu sinni
liði Ungmennafélags Selfoss, ís-
landsmeisturunum innanhúss,
Þrótti, sigurvegaranum í fyrra,
Fram, og fjórum efstu liðum
fyrstu deildar í sumar, ÍA, Val,
ÍBK og KR.
Keppnin er hrein útsláttar- f
keppni, fyrst fjórir leikir,
undanúrslit og loks úrslit. Fyrsti
leikurinn annað kvöld er á milli
Iiðs Samtaka íþróttafrétta-
manna og KR, þá keppa Akra-
nes og Keflavík, svo Þróttur og
Valur og loks Selfoss og Fram.
Eftir fyrstu leikina fjóra
munu ungir og efnilegir knatt-
spyrnumenn á Selfossi, úr 6.
flokki, keppa, og síðan verða
leiknir undanúrslitaleikirnir
tveir. Þá koma „öldungar" frá
Selfossi og mæta úrvalsliði
„öldunga" víðs vegar að af land-
inu. Að lokum er úrslitaleikur
keppninnar.
Hver leikur ( keppninni er 10
mínútur hvor hálfleikur, eða
um 20 mínútur.
Skíðakeppnin í Geilo:
Daníel varð
nítjándi
■ Eins og NT skýrði frá fyrir
stuttu þá eru nokkrir íslending-
ar við skíðaæfingar og keppni í
Geilo í Noregi. í fyrradag var
keppt í svigi í Geilo. Þetta var
alþjóðlcgt mót og hluti af svo-
kaliaðri Scan cup-keppni. Sigur-
vegari á þessu móti var Norð-
maðurinn Torjus Berge með
tímann 1:45,11.
Daníel Hilmarsson náöi bestj
um árangri íslendinganna, hafn-
aði í 19. sæti ineð tímann
1:50,88. Guðmundur Jóhanns-
son varð 26. á tímanum 1:52,51
og Árni Grétar Árnason varð
33. á 1:53,88. Keppendur voru
alls 98. Árni Þór Árnason var
fjórtándi eftir fyrri umferð en
féll úr leik í þeirri síðari.
Þessi árangur íslendinganna
er með ágætum og hafa þeir allir
bætt sig verulega í svokölluðum
FlS-punktalista. Þeirhöfðu allir
tekið þátt í tveimur stórsvigs-
mótum fyrr og náði Daníel
bestum árangri Islendinganna á
þeim báöunt.
Kópavogshlaupið:
Sighvatur Dýri
vann örugglega
■ Álaugardaginnfórframhið
árlega Kópavogshlaup sem
Heimsbikarkeppnin:
Næstumverkfall
■ Litlu munaði að fresta yrði
keppni í svigi kvenna í heims-
bikarkeppninni á skíðum sem
fram fór í Madonna Di Cam-
piglio á Ítalíu. Starfsfólk sem
vinnur við lyftur á skíðasvæðum
á Itah'u hafði hótað að fara í
verkfall.
A síðustu stundu náðist sam-
komulag milli atvinnurekenda
og lyftufólks og allt gekk að
óskum í Madonna Di Campigl-
io.
frjálsíþróttadeild UBK stendur
fyrir. Keppt var í 3 flokkum.
Urslit í hlaupinu urðu þessi:
Karia, 7,2 lan:
Sighvatur Dýri Guðmundss. ÍR . . 31:37,5
Magnús Haraidsson FH .... 32:06,7 mín
Stefán Friðgeirsson ÍR........ 32:26,4 min
Jóhann Ingibergsson FH .... 37:10,8 mín
Ronur, 3 km:
Guðrún Eysteinsdóttir FH . . . 17:33,1 mín
Rakel Gylfadóttir FH.......... 19:15,9 mín
Súsanna Helgadóttir FH .... 20:07,7 mín
Drengir, 4 km:
Kristján Ásgeirsson FH .... 17:563 mín
Finnbogi Gylfason FH.......... 18:34,7 mín
Þess má geta að Sighvatur
Dýri vann bikar til varðveislu í
eitt ár en um þennan sama bikar
hefur nú verið keppt í 12 ár og
hefur hann aldrei unnist til eign-
ar. Þá var líka keppt um bikar í
kvennaflokki.