NT


NT - 19.12.1984, Side 27

NT - 19.12.1984, Side 27
Miðvikudagur 19. desember 1984 27 Handknattleikur: Þrír leikir í 1. deild karla í kvöld ■ Þrír leikir fara fram í 1. deild karla á íslandsmótinu í handknattleik í kvöld. Aðal leikurinn verður tví- mælalaust viðureign íslands- meistara FH og Vals í Hafnar- firði kl. 20.00. Þetta er fyrsti leikur félag- anna á þessu keppnistímabili og spurning hvort Valsmönn- um tekst það sem hinum liðun- um hefur mistekist, þ.e. að vinna FH. í Laugardalshöll fara fram tveir leikir. Kl. 20.00 leika KR og Þór og kl. 21.15 mætast Víkingur og Breiðablik. Knattspyrnupunktar: Sigurjón Gylfason hornamaður í liði Þróttar er knár þótt hann sé smár. Hér sést hann skora glæsimark gegn Stjörnunni í gær. ® ** ‘ NT-mynd: Sverrir. Fyrsti sigurinn hjá Þrótturum í vetur ■ Einn leikur var í ensku 'bikarkeppninni í fyrradag. Brentford vann Northampton á útivelli með tveimur mörkum gegn engu og leikur við Old- ham í næstu umferð... Gary Mills, sem leikur með Nottingham Forest á Eng- landi, brotnaði í leik Forest og Everton á laugardaginn var. Mills, sem er með stálpinna í hægri fæti sínum eftir meiðsl sem hann hlaut er hann spilaði með Seattle Sounders í banda- rísku knattspyrnunni, brotnaði á vinstra fæti. Hann verður frá keppni í minnst sex vikur... Kýpurbúar sigruðu Lúx- emborgara í vináttulandsleik í knattspyrnu á Kýpur í fyrra- dag. Sigurinn er aðeins sá ann- ar hjá Kýpurbúum á heimavelli í 10 ár. Tsikkos skoraði eina mark leiksins. Síðast sigruðu Kýpurbúar Grikki heima á Kýpur árið 1975. Áhorfendur áleiknumífyrradagvoru 1000. Valur langstigahæstur ■ Það var ekki mikið púður í leik Þróttar og Stjörnunnar í 1. deildinni í handbolta í Laug- ardalshöll í gærkvöldi. Lengst af voru varnirnar mjög lélegar hjá liðunum og sóknirnar voru ekki snarpar né markvissar þrátt fyrir að skor- uð hafi verið 56 mörk í leikn- um. En það voru Þróttarar sem fóru með sigur af hólmi, 29-27 og var þetta fyrsti sigur þeirri í deildinni. í fyrri hálfleik voru Stjörnu- menn ákveðnari og komust í 7-3 eftir 16 mínútna leik. En Þróttur minnkaði muninn smám saman og komst yfir 11-10 þegar 2]h mínúta voru eftir af hálfleiknum. Stjarnan skoraði tvö síðustu mörkin og hafði yfir 12-11 í leikhléi. í seinni hálfleik náðu Þrótt- arar að jafna 14-14 eftir 5 mín. komustsíðan yfir 15-14 og eftir það létu þeir ekki forystuna af hendi. Mestur varð munurinn 6' mörk, 22-16 og 25-19 en Stjarnan minnkaði muninn í tvö mörk fyrir lok leiksins 27-29. Þó var aldrei spurning hvort þeim tækist að jafna. í heild var leikurinn lélegur og engin spenna í honum. Sérstaklega voru varnirnar daprar og lítt á verði. Hjá Þrótti var markvörður- inn Guðmundur Jónsson bestur, hann varði alls 14 skot og lék ekki með nema 3A af leiknum. Páll Ólafsson var einnig góður en aðrir voru ekki sannfærandi í vörninni þó sumir hafi skorað nokkuð af mörkum. Hjá Stjörnunni átti enginn góðan leik. Mörkin skoruðu fyrir Þrótt: Páll Ólafsson 9, Konráð Jónsson 6, Sverrir Sverrisson 5, Lárus Lárusson 3, Sigur- jón Gylfason 3, Gísli Óskarsson, Birgir Sigurðsson og Haukur Hafsteinsson 1 mark hver. Fyrir Stjörnuna: Eyjólfur Bragason 6, Guðmundur Þórðarson 4, Guðmundur Óskarsson 5, Hannes Leifsson, Gunn- laugur Jónsson, Eggert ísdal, Her- mundur Sigmundsson, Magnús Teits- son og Sigurjón Guðmundsson 2 mörk hver. Dómararnir þeir Þorgeir Pálsson og Guðmundur Kolbeinsson voru mjög lé- legir og sumir dómar þeirra furðulegir. Kvennakarfan: ■ Stigahæstu nienn úr- valsdeildarinnar í körfu- knattleik eru þessir: Valur Ingimundars. Njarðvík . 281 ívar Webster Haukum.......216 Pálmar Sigurðsson Haukum .. 214 Guðni Guðnason KR.........188 Kristján Ágústsson Val....178 Tómas Holton Val .........173 Birgir Mikaelsson KR .....170 Árni Guðmundsson ÍS.......162 Torfi Magnússon Val.......156 Guðmundur Jóhannsson ÍS .. 155 Hreinn Þorkelsson ÍR.......152 Jón Steingrímsson Val.....132 Ragnar Torfason ÍR.........130 ÍBak Tómasson Njarðvík....128 Gunnar Þorvarðarson Njarðv.. 111 Árni Lárusson Njarðvík ....111 Leifur Gústafsson Val......110 Ólafur Rafnsson Haukum .... 109 Gylfi Þorkelsson ÍR........107 Aðrir hafa skorað færri en 100 stig. KR hef ur tekið f orystuna ■ 11. deild kvenna voru 4 leikir háðir í síðustu viku og um helgina. Á þriðjudag léku KR og Haukar og sigraði KR með 15 stiga mun, 51-36,og á laugar- daginn voru KR-stelpurnar aftur á ferðinni, unnu Njarðvík með 23 stiga mun, 57-34. Hina tvo leikina unnu Hauka-stelpurnar. Á fimmtu- daginn tóku þær IR í karphúsið 44-25 og á sunnudag unnu þær ÍS, skoruðu aftur 44 stig en ÍS 37. Staðan í 1. deild kvenna: KR Haukar ÍR ÍS Njarðvík 7 6 1 338-246 12 7 5 2 278-250 10 8 4 4 281-294 8 7 3 4 295-249 6 7 0 7 175-328 0 Borðtennis: ■ Staðan í flokkakeppninni í borðtennis er þessi eftir fyrri keppnishelgi. 1. deild karla KR-a KR-b Víkingur Örninn-a Örninn-b 2. deild karla A-riðill UMFK KR-c Víkingur-c B-riðill Stjarnan Víkingur-b Örninn-c 1. deild kvenna UMSB-a KR UMSB-b Víkingur Stjarnan Unglingar A-riðill Stjarnan KR-b Víkingur-a UMFK Gerpla B-riðill KR-a Stjarnan-b Víkingur-b 4 4 0 0 24:2 8 4 3 0 1 19:7 6 4202 13:17 4 4103 10:20 2 4 0 0 4 4:24 0 2 2 0 0 12:3 4 2101 8:10 2 2 0 0 2 5:12 0 2 2 0 0 12:4 4 2 10 1 8:10 2 2 0 0 2 6:12 0 440 12:1 8 431 9:4 6 422 7:6 4 4 1 3 4:9 2 404 0:12 0 440 12:2 8 431 10:3 6 422 7:3 4 413 3:11 2 4 0 4 2:12 0 2 2 0 6:0 4 2 11 3:4 2 2 0 2 6:1 0 Tómas Guðjónsson KR er efstur í punktakeppninni um Stigagullspaðann með 30 punkta. Annar er Tómas Sölva- son KR með 15 pt. og í 3.-4. sæti eru þeir Kristinn Már Eiríksson KR og Guðmundur Maríusson KR með 7 puukta. NYTSAMAR JÓLAGJAFIR Á GÓÐU VERÐI Ruggustólar í dökkum og Ijósum við. Verð frá 3.970. Úrval af ódýrum blaðagrindum Hornhillur Verð 2.350 Gjöfin fyrir hann, fatapressa með rafmagni. Verð 7.800. Nýjar gerðir af símaborðum Verð 7.800 B ORöÆR húsqöqn Hreyfilshúsinu, v/Grensásveg Símar 685944 og 686070

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.