NT - 28.12.1984, Síða 2

NT - 28.12.1984, Síða 2
Tjónið skiptir milljónum króna Tveir menn í yfirheyrslum Strætójólagjöfin mæltist vei fyrir: En nú hækka fargjöldin ■ Strætisvagnar Reykjavíkur voru mjögmikiðnotaðiráföstu- dag og laugardag fyrir jól, enda frítt í vagnana. Ekki er Ijóst hversu margir ferðuðust með strætó þessa daga, þar sem engar talningar voru framkvæmdar, en Sveinn Björnsson, forstjóri SVR, sagði í samtali við NT, að hann teldi að þessi „jólagjöf borgarstjórn- ar“ hefði mælst vel fyrir. Sveinn sagði vel koma til greina að hafa frítt einn og einn dag, á ákveðnum leiðum, til að kynna leiðakerfi strætó fyrir fólki. Fargjöld strætisvagnanna hækka frá og með 29. des. þannig að almennt fargjald verður 18 krónur, en farmiða- spjald með 6 miðum kostar 100 krónur og spjald með 20 miðum 300 krónur. Farmiðaspjald aldraðra og öryrkja kostar eftir breytingu 150 krónur. Fargjald fyrir börn verður 5 krónur en spjald með 20 miðum 80 krónur. ■ Slökkvilið við störf að Ármúla 24 í gærnótt en nær fullvíst er nú talið að þar hafi verið um íkveikju að ræða. Tjónið nemur milljónum, - þak hússins er ónýtt. NT-mjnd: s*ernr. Mótmæli við sovéska sendiráðið: Sendiráðsmenn tóku ekki við skjalinu Tilkynnt var um eld í Armúla 24 rétt fyrir kl. 5.oo í gærmorg- un. í Ijós kom að brotist hafði verið inn í húsið og eldur síðan komið upp efst í stigagangi. Þaðan breiddist reykur um allt húsið og einnig logaði upp úr þaki þess. Tölvubúnaður og annar tækjabúnaður Korpus er talinn liafa eyðilagst af reyk. Hinsvegar var engu stolið í húsinu svo vitað sé. Vitað er um ferðir tveggja ungra manna í nágrenni við Ár- múla 24 fyrr um nóttina og voru þeir yfirheyrðir hjá Rannsókn- arlögreglunni í gær en ó.víst er hvort þeir eigi nokkra aðild að þessu máli. ■ Stefán Kalmanssnn (t.v.) og Sigurbjörn Magnússon koma úr sovéska sendiráðinu eftir að hafa afhent orðsendinguna. Sovét- mennimir neituðu að taka við henni en voru fúsir að ræða málin. N'l'-niyud: \rni Hjjrn;i. ■ „Fyrir 5 árum notuðuð þér jóla- hátíð kristinna manna til að ráðast inn í nágrannaríki yðar, Afganist- an. Upp frá því hafið þér háð grimmilegan hernað gegn íbúum landsins með þeim afleiöingum, að ein milljón Afgana hefur fallið og á fimmtu milljón manna hefur hrakist í útlegð. Viðsem hérerum saman komin við sendiráð yðar í Reykjavík mótmælum harðlega þessu svívirðilega athæfi yðar gegn hinni fátæku og hugrökku þjóð í Afganistan." Þannigsagði m.a. íorð- sendingu til ríkisstjórnar Sovét- ríkjanna sem afhent var í sovéska sendiráðinu í gær eftir stuttan mótmælafund, en í gær voru liöin 5 ár frá innrásinni í Afganistan. Um 100 manns voru á fundinum. ■ Davíð Oddsson brá sér einnig í strætó, en frítt var í strætó í 6 daga. Mikið var að gera á föstudag og laugardag fyrír jól, en hina dagana rólegt. NT-mynd: Ámi Bjama. Föstudagur 28. desember 1984 ■ „Tjónið skiptir milljónum", kom upp í húsnæði fyrirtækisins sagði Sigurður Bjarnason, ann- v'ð Armúla 24 í fyrri nótt og er ar eigenda prentþjónustunnar talið nær öruggt að um íkveikju Korpus, við NT í gær en eldur hafi verið að ræða. Tómas Árnason - skipaður seðla- bankastjóri ■ Tómas Árnason hefur verið skipaður Seðlabankastjóri og hefur því afsalað sér þingmennsku. Tómas tekur við starf- inu um áramótin, er Guðmundur Hjartar- son lætur af störfum við Seðlabankann. Guð- mundur heldur þó áfram sem formaður bygginganefndar Seðla- bankans. Tómas Árnason var fyrst kjörinn á þing 1974, en hafði áður set- ið sem varaþingmaður öðru hverju, allt frá 1958. Hann var fram- kvæmdastjóri Fram- kvæmdastofnunar ríkisins allt frá stofnun hennar 1972. Bruninn í Ármúla: Lögskráning skipshafna Skipstjórar! ★ Kynnið ykkur lögin um lögskráningu á bls. 265 í Sjómannaalmanakinu 1984. ★ Alltaf á að lögskrá á skip við fyrstu ferð eftir hver áramót og auk þess við hverja breytingu er verða kann á áhöfn. ★ Viðurlög við brotum á lögunum um lögskráningu getur varðaö fjársektum og réttindamissi ef um ítrekað brot er að ræða. Lögskráningarstjórar! (Tollstjóri/sýslumenn/bæjarfógetar eða umboðsmenn þeirra.) ★ Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna þá ber við lögskrán- ingu að framvísa tilskyldum skilríkjum til að gegna eftirfarandi störfum: - Skipstjóri - Yfirstýrimaður - Yfirvélstjóri II- stýrimaður l-vélstjóri III- stýrimaður ll-vélstjóri Vélavörður Ath.: Þeir sem hafa hlotið undanþágu til stýrimanns- eða vélstjórastarfa eigaeinnig að framvísa skilríkjum útgefnum af Siglingamálastofnun fyrir undanþágunni. Lögskráning skipshafnar hefur stórkostlega réttarþýðingu fyrir sérhvern skipverja um borð í skipi. Ef út af lögskráningunni er brugðið getur slíkt haft í för með sér réttarskerðingu í líf-, slysa- og örorkutryggingu skipverja. Óheimilt er að láta úr höfn (sjá þó lög um lögskráningu) hafi ekki verið réttilega lögskráð á skipið. Með bestu óskum um farsæld á nýju ári, Farmanna- og fiskimannasamband íslands. Yfirmenn á farskipum: Felldu kjarasamninginn ■ Yfirmenn á farskipum felldu fyrir jólin kjarasamning, sem gerður var í nóvember síðastliðnum, í kjölfar samkomulags ASÍ og VSÍ. Samkomulagið var borið undir fé- lagsmenn í allsherjaratkvæða- greiðslu og sögðu 152 nei, en já sögðu 136. Auðir seðlar og ógildir voru 4. Atkvæði greiddu 292 af 614 á kjörskrá, eða 47.56%. JOLATRES- SKEMMTUN Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrésskemmtun að Hótel Sögu Súlnasal fimmtudaginn 3. janúar 1985 kl. 15.00. Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu félagsins á 8. hæð í Húsi Verzlunarinnar við Kringlumýrarbraut. Miðaverð kr. 200.00 fyrir börn og 130,00 fyrir fullorðna Miðar verða ekki afhentir við innganginn Verzlunarmannafélag Reykjavíkur

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.