NT - 28.12.1984, Síða 8
Sjónvarp kl. 22.35 mánudag (gamlársdag):
Þjoftlagatríóið „Þrjú lítift í hvoru á palli“ Edda Björgvinsdóttir, Gísli Rúnar Jónsson og Þórhallur Sigurðsson.
■■ ^cuiiicu arv vuiu ni.
kemur hið árlega Áramóta-
skaup. Titill þess í dagskrá
sjónvarpsins að þessu sinni er
Rás 84 - frjáls og óháð -
-Áramótaskaup 1984.
Höfundar skaupsins í ár eru:
Edda Björgvinsdóttir, Guðný
Halldórsdóttir, Hlín Agnars-
dóttir og Kristín Pálsdóttir.
Sem sagt í ár eru höfundar,
leikstjóri og stjórnandi upp-
töku allir konur.
Leikendur eru: Edda Björg-
vinsdóttir, Gísli Rúnar
Jónsson. Kjartan Bjargmunds-
son, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir og Þórhallur Sigurðsson.
Einnig koma fram Sigurveig
Hjaltested, þjóðlaga-
tríóið „Prjú lítið í hvoru á
palli" og fjöldi fólks á förnum
vcgi. Sérlegur heiðursgesturer
Fúll Guömundsson á móti.
Leikstjóri er Guðný Hall-
dórsdóttir, en stjórn upptöku
er í höndum Kristínar Páls-
dóttur.
Sjónvarp kl. 14.35 mánudag ■ ■ i Utvarp og sjónvarp gamlársdag kl. 20.
uivarp Kii 41.43 manuaag igamiarsuagj;
Árið kvatt með Ellington
■ Sigurður Einarsson á tón-
listardcild útvarpsins hefur
umsjón með þætti á gamlárs-
kvöld kl. 21.45, sent nefnist
„Árið kvatt mcð Eilington".
Þar cr auðvitað átt viö liinn
eina sanna Duke Ellington,
píanóleikara, lagasmið með
nteiru.
Leikin vcrður músík cftir
Duke Ellington, hæöi með
hljómsveit hans og eins þar
sem hann spilar einn á píanó,
sagði Sigurður Einarsson.
Hann sagöist byrja á clstu
lögununt hans og færa sig svo
frarn eftir í tímanum.
Svo verða leiknar upptökur
með öörum listamönnum, scm
liafa leikiö cða sungið lög eftir
Ellington, en annars er af svo
miklu að taka að í hálftíma
þætti verða cfninu ekki gerð
nein skil að ráði, en drepiö á
það hclsta í sambandi við
gömlu kempuna hann Duke.
Af öðrum tónlistarmönnum
en Ellington, sem heyrist í
þættinum má nefna t.d. Ellu
Fitzgerald, Louis Armstrong
og gítarleikarann Joe Pass,
sagði Sigurður.
Ellington hét fullu nafni
Edward Kennedy Ellington.
hann fæddist 1899 og lést árið
1974. Hann var einn af þekkt-
ustu jasspíanístum og hljóm-
sveitarstjórum á sínum tíma og
mörg lög hans eru komin í röð
þeirra sígildu. svo sem „Mood
Indigo" og Sophistcated
Lady."
■ Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra flytur þjóðinni áramótaávarp sitt á gamlárskvöld.
Ávarp
forsætisráðherra
■ Einn er sá liður sem er
árviss á dagskrá útvarps og
sjónvarps, en það er ávarp
forsætisráðherra, sem flutt er
kl. 20 á gamlársdag.
Það er yfirleitt með blendn-
um tilfinningum. sem þjóðin
fær fluttan boðskapinn um
hrakfarir liðins árs og dökkar
horfur framundan á því korn-
andi. Búast má við að ávarp
Steingríms Hermannssonar í
þetta skipti verði síst bjart-
sýnna en við eigum að venjast,
en sjálfsagt er að leggja eyrun
að því, sem hann hefur að
flytja okkur.
Föstudagur 28. desember 1984
Ijónví
Konur
stjórna
skaupinu
íár
Kroppinbakur litli
og Ivan litli
■ Á gamlársdag kl. I4.35 er
sovésk teiknimynd á dagskrá
sjónvarpsins, og ncfnist mynd-
ir Kroppinbakur litli. Myndin
er gerð cftir samnefndri þjóð-
sögu og þulu cftir Pjotr Ershof.
Söguþráðurinn erá þessa leið:
ívan er yngstur þriggja
bræðra og cr álitinn crkiflónið
á bænum. Hann crnáttúrubarn
og i nánu sambandi við ýmsar
góðar vættir, sem ciga honum
gott að gjalda. Þrjá hesta fær
hann að laununt frá þeim og
svo lítinn furðuhest mcð tvær
kryppur á bakinu. Þcssi litli
kroppinbakur veröur besti vin-
ur Ivans og förunautur. Kcis-
arinn sjálfur fær ni.a.s. auga-
stað á gæöingunum, cn þar sem
þeir hlýða cngnum ncma fvan.
þá gerir keisarinn liann að
hcstasveini sínum.
ívan finnur fjöður eldfugls-
ins og stingur hcnni í húfuna
sína - þrátt fyrir viðvaranir
Kroppinbaks, scm segir að
mikil ógæfa fylgi því. Það kcm-
ur á daginn: Fjööur eldfuglsins
á eftir að valda ívan litla mikl-
um crfiðleikum.-cnsvosjáum
við hvernig fer.
Mánudagur
31. desember
Gamlársdagur
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Séra Jón Bjarman flytur (A.v.d.v).
Á virkum degi - Stefán Jökuls-
son, María Maríusdóttir og Hildur
Eiríksdóttir.
7.25 Leikfimi. Jónína Benedikts-
dóttir (a.v.d.v.).
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð - Kristin
Waage talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir.
(RÚVAK)
9.25 Tilkynningar. Tónleikar. Þul-
ur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Forustugr. landsmálabl. (utdr.).
Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Kotra Endurtekinn þáttur Sig-
nýjar Pálsdóttur Irá kvöldinu áður.
(RÚVAK)
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Sólveig
Pálsdóttir.
13.30 Álfalög og íslensk þjóðlög
14.00 Nýárskveðjur
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Hvað gerðist á árinu? Fretta-
menn útvarps greina frá atburðum
á erlendum og innlendum vett-
vangi 1984 og ræða við ýmsa sem
þar komu við sögu.
17.50 Hlé
18.00 Messa i Háteigskirkju
Prestur: Séra Tómas Sveinsson.
Organleikari: Ortulf Prunner.
19 00 Kvöldfréttir
19 25 Þjóðlagakvöld Einsöngvara-
kórinn syngur með félögum i Sin-
fóniuhljómsveit Islands, þjóðlög í
útsetningu Jóns Ásgeirssonar.
sem stjórnar flutningnum.
20.00 Ávarp forsætisráðherra,
Steingrims Hermannssonar
20.20 Luðrasveit Reykjavíkur leik-
ur Stefán Þ. Stephensen stj.
20.45 Áramótavaka a. Nótt á Hellis-
heiði 1899 Þorsteinn frá Hamri
flytur þátt úr endurminningum Ind-
riða Einarssonar. b. Tímamóta-
Ijóð Jón Sigurösson, skólastjóri
les úr kvæðum Sigurðar Breiðfjörð.
c. Með álfum og mönnum Rann-
veig Löve les íslenska þjóðsögu. Á
milli atriða veröa leikin og sungin
álfalög. Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.45 Árið kvatt með Ellington
Umsjón: Sigurður Einarsson.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Þetta viljum við heyra Alfar á
tónlistardeild velja sér óskalög.
23.30 „Brennið þið vitar“ Karlakór-
inn fóstbræður og Sinfóníuhljóm-
sveit íslands flytja lag Páls ísólfs-
sonar; Róbert Ottósson stj.
23.40 Við áramót Andrés Björnsson
útvarpsstjóri flytur hugleiðingu.
23.55 Klukknahringing. Sálmur. Ára
mótakveðja. Þjóðsöngurinn.
(Hlé).
00.10 Bein útsending frá áramóta-
gleði útvarpsmanna, Stuð-
manna og landsmanna Stjörnur
kvöldsins, Merkúr, Venus og Jörð.
Kynnir: Jónas Jónasson. (01.00
Veðurfregnir). Upp úr kl. 02.00
hefst útvarp frá Rás 2 til kl. 05.00.
Mánudagur
31. desember 1984
13.50 Fréttaágrip á táknmáli
14.00 Fréttir og veður
14.15 Gamlársdagssyrpa Innlendar
og erlendar barnamyndir. Tommi
og Jenni, bandarísk teiknimynd.
Sögurnar hennar Siggu og Bósi,
þýskar teiknimyndir. Sigga og
skessan, brúðuleikrit eftir Herdísi
Egilsdóttur.
14.35 Kroppinbakur litli Sovésk
teiknimynd sem gerð er eftir sam-
nefndri þjóðsögu og þulu eftir Pjotr
Érshof. ívan litli er yngstur þriggja
bræðra og álitinn erkiflónið á
bænum. Hann er náttúrubarn og
hefur mikiðsaman við ýmsargóðar
vættir að sælda. Hjá þeim fær
hann þrjá hesta, tvo gæðinga og
furðugripinn Kroppinbak litla. Þeir
l'van verða óaðskiljanlegir og rata
saman í margvísleg ævintýri. Þýð-
andi Hallveig Thorlacius.
15.50 Hlé
20.00 Ávarp forsætisráðherra,
Steingrims Hermannssonar.
20.15 Innlendar og erlendar svip-
myndir frá liðnu ári. Umsjón:
Einar Sigurðsson, Helgi E. Helga-
son, Sigrún Stefánsdóttir og Óg-
mundur Jónasson.
21.35 I fjölleikahúsi Þýskur sjón-
varpsþáttur. Þrautþjálfuð dýr, lodd-
arar. trúðar og fjöllistamenn leika
listir sínar á hringsviðinu. Þýðandi
Jón Gunnarsson.
22.35 Rás 84 - frjáls og óháð -
Áramótaskaup 1984. Höfundar:
Edda Björgvinsdóttir, Guöný Hall-
dórsdóttir, Hlín Agnarsdóttir og
Kristín Pálsdóttir. Leikendur: Edda
Björgvinsdóttir, Gisli Rúnar
Jónsson, Kjartan Bjargmundsson,
Margrét Helga Jóhannsdóttir og
Þórhallur Sigurðsson. Einnig koma
fram Sigurveig Hjaltested, Þjóð-
lagatríóið „Þrjú lítið í hvoru á palli"
og fjöldi fólks á förnum vegi. Sér-
legur heiðursgestur: Fúll Guð-
mundsson á móti. Leikstjóri Guðný
Halldórsdóttir. Stjórn upptöku:
Kristín Pálsdóttir.
23.40 Ávarp útvarpsstjóra, Andrés-
ar Björnssonar
00.05 Miðnætursýning - Handa-
gangur i öskjunni. (High Anxiety)
bandarísk grinmynd frá 1977.
Leikstjóri Mel Brooks. Aðalhlut-
verk: Mel Brooks, Madeline Kahn,
Cloris Leachman, Harveg Korman
og Ron Careg. Sálgreinir nokkur
tekur að sér forstööu geðsjúkra-
húss þar sem ekki er allt með
felldu og æsilegir atburðir fara að
gerast. Þýðandi Jón Gunnarsson.
01.45 Dagskrárlok