NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 28.12.1984, Qupperneq 12

NT - 28.12.1984, Qupperneq 12
Föstudagur 28. desember 1984 12 Ungi maðurinn og konurnar sem stjórna vilja lífi hans Þau Ann Bancroft og Dustin Hoffman fara ineð aðalhlutverk í myndinni Lokapróf. ■ Bandaríska gamanmyndin Lokapróf (The Graduate) er föstudagsmyndin að þessu sinni og hefst sýning hennar kl. 22.55. Þar segir frá Benjamin Braddock, sem snýr aftur heim til Kaliforníu að loknu loka- prófi við virtan háskóla á aust- urströndinni. Hann á allt lífið framundan, en getur ómögu- lega ákveðið hvar hann skuli hefjast handa. Foreldarar hans halda honum veglega veislu, Sjónvarp föstudag kl. 21.40: Fanný og Alexander - annar hluti Bergmans-myndarinnar ■ Á föstudagskvöld kl. 21.40 sýnir sjónvarpið annan hluta nýjustu myndar Ingmars Bergman, Fanný og Alexander, sem kom frá Óskarsverðlaunaveitingunni hlaðin verðlaunum. Þriðji hlutinn verður síðan sýndur á nýársdag og sá fjórði og síðasti föstudagskvöldið 4. janúar. Rás 2 sunnudaginn kl. 15. 32 -16. 23 T ónlistarkrossgátan hans Jóns Gröndal Sjónvarp föstudag kl. 20.40: Duran Duran ■ Hljómsvcitin Duran Duran á sér fastan og tryggan hóp aðdáenda hér á landi, sem hal'a séð til þess að Simon Le Bon og félagar hafa vcrið þaulsætnir í efsta sæti vinsældalista Rásar 2, auk þess sem þeir hafa löngum átt lög á listanum yfir 10 vinsælustu lögin í Brctlandi. Á föstudaginn verður sjónvarpað tæplega klukkutíma löngum þætti, scm tckinn var upp á hljómleikum þeirra félaga í Kaliforníu á þessu ári. gegn vilja hans, og þar kynnist hann miðaldra konu, frú Rob- inson, sem er gift starfsbróður föður hans. Henni tekst að tæla þennan unga og óreynda mann og þau taka upp eldheitt ástarsamband. Enn valda foreldrar Benja- mins traumhvörfum í lífi hans, þegar þau sjá svo til að hann hittir Elaine Robinson, dóttur ástmeyjar hans. Og enn verður Benjamin ástfanginn, móður Elaine til mikillar skelfingar. Þegar Elaine kemst að raun um að Benjamin hefur staðið í ástarsambandi við móður hennar, verður hún æfareið og vísar honum á bug. En sagan heldur áfram með alls kyns flækjum, sem frú Robinson á svo sannarlega sinn þátt í að skapa. Myndin Lokapróf, með Dustin Hoffman og Ann Banc- roft í aðalhlutverkum, varsýnd í kvikmyndahúsi í Reykjavík fyrir nokkrum árum við fá- dæma vinsældir. Hún er gerð 1967 og leikstjóri er Mike Nichols. Þýðandi er Jóhanna Þráinsdóttir. Sjónvarp föstudag kl. 22.55: Föstudagur 28. desember 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurö- ar G. Tómassonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð-Jóhanna Sig- marsdóttir talar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Grenitréð" eftir Tove Jansson. Guðrún Alfreðsdóttir les seinni hluta þýðingar Borgars Garðars- sonar. 9.25 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson frá Hermundar- felli sér um þáttinn. (RÚVAK). 11.15 Morguntónleikar 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Kjallarinn", smásaga ettir Pár Lagerkvist Róbert Arnfinns- son les þýðingu Margrétar Odds- dóttur. 14.30 Á léttu nótunum Tónlist úr ýmsum áttum. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónieikar a. Fiðlu- konsert í E-dúr eftir Johann Se- bastian Bach. Anne-Sophie Mutter leikur með Ensku kammersveit- inni; Salvatore Accardo stj. b. Konsert fyrir fiðlu, píanó og hljóm-, sveit ettir Bohuslav Martinu. Nora Grumlikova og Jaroslav Kolar leika með Tékknesku filharmoniusveit- inni;ZdenekKoslerstj. 17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. i 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 20.00 Lög unga fólksins. Póra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Heim í jólaleyfi 1925 Jórunn Ólafsdóttir frá Sörla- stöðum les frásögu eftir Pál Sig- urðsson frá Lundi. b. Jólakveðja Helga Þ. Stephensen les jólaljóö. c. Jól á styrjaldarári Óskar Þórð- arson frá Haga flytur frásöguþátt frá styrjaldarárunum síðari. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. ' 21.30 Hljómbotn Tónlistarþáttur í umsjón Páls Hannessonar og Vals Pálssonar. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Traðir Síðasti þáttur. Umsjón: Gunnlaugur Yngvi Sigfússon. 23.15 Á sveitalínunni Umsjón: Hilda Torfadóttir. (RÚVAK) 24.00 Sinfóniuhljómsveit fslands leikur lög úr amerískum söng- leikjum á tónleikum í Háskóiabí- ói 22. nóv. sl. (Fyrri hluti) Stjórn- andi: Robert Henderson. Ein- söngvari: Thomas Carley. Kynnir: Jófi Múli Árnason. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00. Föstudagur 28. desember 10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn- endur: Páll Þorsteinsson og Sig- urður Sverrisson. 14:00-16:00 Pósthólfið. Lesin bréf frá hlustendum og spiluð óskalög þeirra ásamt annarri léttri tónlist. Stjórnandi: Valdís Gunnarsdóttir. 16:00-17:00 Listapopp. Stjórnandi: Gunnar Salvarsson. 17:00-18:00 Léttir sprettir. Stjórn- andi: Jón Ólafsson. Hlé 23:15-03:00 Næturvaktin. Stjórn- endur: VignirSveinssonog Þorgeir Ástvaldsson. Rásirnar samtengd- ar aö lokinni dagskrá rásar 1. Föstudagur 28. desember 1984. 19.15 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 19.25 Krakkarnir í hverfinu. 2. Kleina fer á sjúkrahús. Kan- adískur myndaflokkur i þrettán þáttum, um atvik í lifi nokkurra borgarbarna. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Duran Duran í sviðsljósinu. Dægurlagaþáttur með hljómsveit- inni Duran Duran. Þátturinn var tekinn upp á þessu ári í Oakland i Kaliforniu sem var einn viðkomu- staða Duran Duran í hljómleika- ferð kringum jörðina. Þar léku þeir félagar tólf vinsælustu lög sín fyrir 60.000 áheyrendur. 21.40 Fanný og Alexander. Annar hluti. Sænsk framhaldsmynd í fjór- um hlutum eftir Ingmar Bergman. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. Þriðji hluti er á dagsrká aö kvöldi nýársdags. (Nordvision - Sænska sjónvarpið). 22.55 Lokapróf (The Graduate). Bandarísk gamanmynd frá 1967. Leikstjóri Mike Nichols. Aöalhlut- verk Dustin Hoffmann, Anne Banc- roft og Katharine Ross. Lífið blasir við háskólanemanum Benjamin en hann er óráðinn um framtiðina. hann kemst í tygi við miðaldra konu en veröur ástfanginn af dóttur hennar. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. 00.35 Fréttir í dagskrálok.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.