NT - 28.12.1984, Side 15

NT - 28.12.1984, Side 15
Útlöncfl Ránfuglar ráðast á skokkara Boston-Reuter ■ Ránfuglum á meginlandi Evrópu virðist uppsigað við skokkara sem reyna að halda sér í góðu formi með langhlaupum. Þeir ráðast á skokkarana á afskekktum stöðum og gera að þeim aðsúg þar til þeir gefast upp og hætta að hlaupa. Evrópskum vákum virðist vera sérstak- lega illa við skokkarana, en vákar eru ránfuglar af haukaætt. Hópur svissneskra lækna segist vita um tólf tilvik á tveim árum þar sem skokkarar urðu að leita til lækna vegna sára eftir viðureign við váka og aðra ránfugla. Ránfuglarnir steypa sér yfir skokkarana aftan frá hvað eftir annað þar til skokkararn- ir hætta hlaupunum. Þá hætta fuglarnir líka árásunum. Hópur svissneskra lækna í Liestal, sem hefur rannsakað árásir fuglanna, segir að skokkararnir verði að gæta þess að náttúran fylgi sínum eigin lögmálum og hefni sín fyrir átroðning á yfirráðasvæði sínu. Kaþólskur kardínáli f ær sovéska friðarorðu Moskva-Reufer Föstudagur 28. desember 1984 15 STOFNFJÁRREIKNINGUR Framlög einstaklinga til atvinnurekstrar eru frádráttarbœr frá skatt skyldum tekjum að vissu marki skv. nýjum ákvœðum skattalaga. Frádráttur má vera allt að kr. 25.000.- á ári hjá einstaklingi eða kr. 50.000." hjá hjónum. SKATTALÆKKUN , OO EIGIN FJARFESTING ■ Eini kaþólski kardínálinn í Sovétríkjun- um hefur verið sæmdur friðarorðu sovéska Friðarsjóðsins að sögn Tass-fréttastofunnar. Fréttastofan sagði að kardínálinn, sem heitir Julian Vaivods, hafi fengið orðuna vegna „virkrar þátttöku í friðarhreyfingunni og stuðnings við friðsamlega stefnu sovéska ríkisins" eins og það var orðað. Kardínálinn er 89 ára að aldri. Hann hefur sagt að ekkert verkefni sé mikilvægara en að varðveita friðinn þar sem nútímavopn geti tortímt mannlegri menningu og lífi á jörðinni. Júgóslavar aflétta bensín- skömmtun Belgrad-Rcuter ■ Ríkisstjórn Júgóslavíu hefur til- kynnt að bensínskömmtun verði aflétt nú um áramótin og Júgóslavar, sem ferðist til útlanda, þurfi ekki lengur að leggja ákveðna upphæð inn á lokaðan bankareikning. Bensínskömmtun var tekin upp árið 1982. Þá var hún sögð liður í almennum aðhaldsaðgerðum vegna mikilla er- lendra skulda sem nema um 19 milljörð- um dollara. Einkabílaeigendur fengu sérstaka skömmtunarmiða sem gáfu þeim rétt á 40 bensínlítrum á mánuði. Júgoslavneskir feðamenn hafa orðið að greiða 5000 dinara (um 1000 ísl. kr) inn á vaxtalausan bankareikning, sem er lokaður í eitt ár, í hvert skipti sem þeir hafa farið til útlanda. Nokkuð var slakað á þessari reglu fyrr á þessu ári þannig að leyfilegt var að fara í eina ferð til útlanda á ári án þess að leggja inn á slíkan reikning. En nú verður þessu alveg hætt og Júgoslavar mega fara eins oft til útlanda og þá langar án þessa lausnargjalds. SKILYRÐI Til þess að njóta þessara skattafríðinda geta einstaklingar m.a. lagtfé inn á stofnfjárreikning í því skyni að stofna síðar til eigin atvinnu rekstrar. Stofnun atvinnurekstrar má fara fram hvenœr sem er innan 6 ára frá lokum innborgunarárs. INNLÁNSKJÖR Stofnfjárreikningarnir eru sérstakir innlánsreikningar bundnir í 6 mánuði. lnnstæður eru verðtryggðar samkvæmt lánskjaravísitölu. HAGDEILDIN AÐSTOÐAR Hefur þú í hyggju að stofna til eigin atvinnurekstrar með þessum hœtti? Sé svo getur þú leitað til sérfrœðinga Hagdeildar Landsbankans að Laugavegi 7 Reykjavík og ráðfært þig við þá um rekstur fyrirtœkja þér að kostnaðarlausu. Upplýsingar um stofnun stofnfjárreikninga eru veittar í sparisjóðs- deildum Landsbankans LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir Áskriftasími: 6116300 Lifandi blað

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.