NT - 28.12.1984, Síða 17
IU
Föstudagur 28. desember 1984 17
Utlönd
Sovéski herinn þaul
sætinn í Afganistan
■ í gær voru liðin fimm ár frá
því að Sovétmenn sendu her inn
í Afganistan til að „bjarga Af-
gönum frá gagnbyltingu" eins
og þeir orða það sjálfir. Björgun
þessi hefur gengið með afbrigð-
um illa og er nú talið vera
115.000 manna sovéskt herlið í
Afganistan.
Flest bendir til þess að herset-
an eigi eftir að verða löng.
Óbreyttir hermenn í afganska
stjórnarhernum sýna lítinn
áhuga á því að fórna sér fyrir
sósíalismann í bardögum við
landa sína. Skæruliðarnir virð-
ast hins vegar kunna vel við
flökkulíf og bardaga enda koma
margir þeirra úr hópi hirðingja
sem flakka á milli staða alvopn-
aðir og bera ekki einu sinni
virðíngu fyrir landamærum milli
ríkja.
Við upphaf þessarar aldar var
Afganistan bresk nýlenda. Öll
stjórn var samt mjög brota-
kennd í landinu enda eru stórir
hlutar þess afskekktir og landið
erfitt yfirferðar. Eftir seinni
heimstyrjöld fengu Afganir
sjálfstæði og var þá um það
samkomulag milli stórveldanna
að Afganistan skyldi tilheyra
áhrifasvæði Sovétríkjanna.
Yfirgnæfandi meirihluti Afg-
ana er enn ólæs og fátækt er þar
mikil. Sovétmenn beittu áhrif-
um sínum m.a. til að styðja þau
öfl í Afganistan sém vildu taka
upp sovéskt skipulag og hafa
stjórnarkerfi kommúnista sem
fyrirmynd. Kommúnistaflokkur
Afganistans var stofnaður fyrir
tuttugu árum. Á undanförnum
árum hefur hann reynt að breyta
gömlu eignarskipulagi þar sem
fáir höfðingjar ráða mestu í
sveitunum yfir í smábændabú-
skap þar sem stórum landar-
eignum hefur verið skipt upp.
Stór hluti Afgana er miður
hrifinn af því nýja þjóðfélags-
kerfi sem menntamenn í Kabul
hafa reynt að koma á með
aðstoð Sovétmanna. Margir
hafa hafnað breytingunum og
snúist gegn stjórnvöldum sem í
staðinn hafa neyðst til að halla
sér æ meira að Sovétmönnum.
Kabulstjórnin er nú svo háð
hernaðaraðstoð Sovétmanna að
hún félli vafaiaust á stuttum
tíma ef sovéski herinn yrði
skyndilega dreginn til baka.
Bandaríska leyniþjónustan,
C1A( og ýmsir aðrir erlendir
aðilar hafa veitt skæruliðum
nokkurn stuðning í baráttunni
gegn sovéska hernum og af-
gönskum stjórnarliðum. Sovét-
menn segja þennan erlenda
stuðning við skæruliða megin-
Pólland:
Prestmorðingj
ar fyrir rétti
Torun-Reuter
■ Réttarhöld yfir pólsku leyni-
þjónustumönnunum þrem, sem
hafa viðurkennt að hafa myrt
föður Jerzy Popeiluszko, hófust
í Torun í Póllandi í gær.
Fimm erlendir fréttamenn
fengu að fylgjast með réttar-
höldunum í gær en lögregla hélt
vörð í nágrenni við réttarsalinn
til að koma í veg fyrir mannsöfn-
Bretland:
Sviku undan
skatti með
mafíugull-
peningum
London-Reuter
■ Breskur dómstóll hefur
dæmt átta menn í allt að sex
ára fangelsi fyrir að svíkja
skattyfirvöld um margar
milljónir punda með því að
smygla gullpeningum inn í
landið. Smyglið var fjár-
magnað af mafíunni.
Mennirnir smygluðu gull-
myntum inn í Bretland með
því að setja þær í belti á
sendimönnum sem sóttu
myntina til útlanda. Síðan
voru peningarnir seldir til
löglegra fyrirtækja í Bret-
landi með 15 prósent tollá-
lagi sem smyglararnir stungu í
eigin vasa. Lögreglan segir
að þeir hafi þannig smyglað
inn gullmyntum fyrir um 20
milljón sterlingspund og
svikið skattinn um fjórar
milljónir punda.
uð og óeirðir.
í framburði prestmorðingj-
anna kom m.a. fram að þeir
skipulögðu ránið á prestinum
með löngum fyrirvara og gerðu
sér vel grein fyrir því að hann
myndi ef til vill láta lífið í
höndum þeirra þótt þeir fullyrtu
að þeir hefðu ekki ætlað að
drepahann. Þeirhéldu þvíeinn-
ig fram að þeir hefðu talið sig
hafa stuðning frá æðri stöðum
og að ránið á prestinum hefði
verið þjóðþrifaverk. Þeir sögð-
ust meira að segja hafa búist við
umbun fyrir verknaðinn.
Einn mannanna sagði að þeir
hefðu áður gert tilraun til að
ræna Popeiluszko þann 13. okt-
óber. Sú tilraun hefði mistekist
en síðan heppnaðist ránið 19.
október.
Vísinda-
menn búa
til jóla-
stjörnu
Washington-Reuter
■ Bandarískir og
Evrópskir vísindamenn
bjuggu í gær til fyrstu
halastjörnuna úti í geimn-
um sem gerð hefur verið
af mannahöndum. Hala-
stjarnan, sem búin var til
úr barium, hafði 12.000
km langan hala og var 600
km í þvermál.
Upphaflega var ætlunin
að gera halastjörnuna á
jóladag en við það var
hætt vegna þess að þá
huldu ský mest allt yfir-
borð Vesturheims þar sem
stjörnusmíðin átti að fara
fram. Þótt veður væri enn
óhagstætt í gær ákváðu
vísindamenn að gera til-
raunina þá þar sem þeir
hefðu annars orðið að
bíða í hálft ár en þá verða
gerfihnettirnir þrír, sem
notaðir voru við tilraun-
ina, aftur í réttri stöðu.
Könnunarflugvélar,
sem flugu yfir skýjahjúpn-
um tóku myndir af hala-
stjörnunni. Stefnt er að því
að búa til aðra halstjörnu
á næsta ári.
Markmið tilraunarinnar
er m.a. að rannsaka
hvernig halastjörnur
myndast og hvernig sól-
stormar hafa áhrif á segul-
svið jarðar.
ástæðuna fyrir áframhaldandi
andspyrnu í Afganistan. En
staðreyndin er samt sú að stór
hluti Afgana lítur á baráttuna
gegn Sovétmönnum sem þjóð-
frelsisbaráttu og þeir herskáustu
í hóp þeirra segjast aldrei munu
leggja niður vopn svo lengi sem
erlendar hersveitir traðki á af-
ganskri grund.
Herskáir
fiskimenn
Moskva-Reuter
■ Sovéskt dagblað segir
að kínverskir sjómenn frá
Taiwan hafi hvað eftir
annað siglt bát sínurn á
sovéskt strandgæsluskip
sem stóð þá að ólöglegum
veiðum í sovéskri land-
helgi.
Báturinn var að veiðum
skammt frá Kúríl-eyjum,
sem Sovétmenn náðu af
Japönum við lok heims-
styrjaldarinnar síðari.
Eftir nokkurn eltinga-
leik tókst sovésku strand-
gæslumönnunum samt að
ná skipinu. Taiwanbúar
hafa samþykkt að greiða
skemmdirnar á strand-
gæsluskipinu sem eru
metnar á 117.000 Banda-
ríkjadali.
■ Margir Afganir stunda enn hirðingjabúskap og lifa frjálsu og óbundnu lífi þar sem þeir flakka á
milli svæða með búfénað sinn. Þeir hafna þeim breytingum á lífsháttum sem Sovétmenn og afganskir
kommúnistar eru að reyna að þvinga þá til með nöktu vopnavaldi.
BLAÐBERA VANTAR
HATUN
MIÐTÚN
HÖFÐATÚN
SAMTÚN
SIGTÚN
BORGARTÚN
LAUGARNESVEGUR
SUNNUVEGUR
DRAGVEGUR
AUSTURBRÚN
DYNGJUVEGUR
NORÐURBRÚN
KLEPPSVEGUR
KÓPAVOGURvesturbær
BREIÐHOLT Bergin
SKERJAFJÖRÐUR
EINNIG VANTAR
BLAÐBERA Á BIÐLISTA
í ÖLL HVERFI.