NT - 11.01.1985, Page 2

NT - 11.01.1985, Page 2
lil Föstudagur 11. janúar 1985 Setið fyrir ávísanafalsara: Sveik út 120 þús. Bjó tii 600 þúsund án skilríkja ■ Rannsóknurlögreglan hefur síðan um helgi setið fyrir manni sem 3. janúar sveik 120 þúsund Skákþing Reykjavíkur: Hefst á sunnudag ■ Skákþing Reykjavík- ur hefst á sunnudaginn í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Teflt verður i tveim flokkum, opnum flokki, þar sem verða 11 umferðir og kcppendum raðað saman eftir Monrad kerfi, og í flokki 14 ára og yngri, þar sem tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad kerfi. Keppni í þeim flokki Itefst laugar- daginn 19. janúar. Núverandi skákmeistari Reykjavíkur er Sævar Bjarnason. út úr Sparisjóði Kópavogs. Fyrirsátin Itefur ekki borið árangur og talin borin von að hún geri það úr þessu. Maður þessi stofnaði 20. des- ember ávísnareikning í Spari- sjóði Kópavogs á röngu nafni. Mun Itann ekki liafa verið kraf- inn skilríkja við stofnun reikn- ingsins. 3. janúar opnaði hann svo 10 sparisjóðsbækur í jafn- mörgum bönkunt með rúmlega 60 þúsund króna innistæðu- lausri ávísun á hverjum stað. Síðar sama dag tók hann allt fé út úr tveimur þessara bóka. Á þriðja staðnum tók starfsfólk eitthvað að grennslast fyrir um innistæðu ávísunarinnar og hætti hann þá snarlcga við úttektina. Síðan hefur ekkert til mannsins spurst. Strax föstudaginn 4. |komst upp um brotið við uppgjör kassa og var frá þeim tíma viðbúnaður í öllum bönkum en án árangurs. Maðurinn var í engu tilfelli krafinn skilríkja en hann notaði rangt nafn eins og fyrr segir. Vinna við BlöndU'l virkjun á áaedun: ■ Vinnuflokkar við Blöndu- virkjun náðu 300 metra markinu í greftri aðkomugangna að stöðvarhúsi virkjunarinnar snemma á miðvikudagsmorgun. Þá eru 520 metrar eftir og að sögn Sveins Þorgrímssonar staðarverkfræðings við Blöndu er reiknað með, að þeim áfanga verði náð í mál. Við 820 metra markið verður síðan grafin út hvelfing fyrir sjálft stöðvarhús virkjunarinnar. Göngin eru 5 x5.5 m víð og skeifulaga. Aðkömugöngin eru grafin til þess, að hægt sé að koma vél- búnaði inn í stöðvarhúsið og einnig til að hægt sé að koma þangað tækjum til eftirlits. Dag- legt eftirlit með stöðvarhúsinu mun þó fara fram um lóðrétt göng frá stjórnhúsinu á yfir- borði jarðar. Aðkomugöngin orðin 300 m Gröftur aðkomugangnanna er hverjar tafir, sem urðu vegna tíma vöktum. Innan við tíu eina jarðvegsvinnan, sem fer verkfalls opinberra starfsmanna menn eru á hvorri vakt og um fram á Blöndusvæðinu í vetur í haust. Framkvæmdir við jarð- tveir þriðju hlutar þeirra eru og hefur allt gengið samkvæmt gangnagerðina hófust í lok sept- íslendingar, hinirNorðmennfrá áætlun, ef frá eru taldar ein- emberogerunniðátveimurtíu fyrirtækinu Jernbeton. Helgarskákmót í Kópavogi ■ 28. helgarskákmótið hefst kl. 16.00 í dag í menntaskólan- um í Kópavogi. Tefldar verða. sjö umferðir eftir Monrad kerfi eins og venja er á helgar- mótunum. Búist er við þátt-1 töku sterkustu skákmann- anna að undanteknum þeim sem nú sitja að tafli í Gausdal. ■ Stórvirkar vinnuvélar eru notaðar við gerð aðkomugangnanna að væntanlegu stöðvarhúsi Blönduvirkjunar. Göngin eru nú orðin 300 metra löng, en ennþá eru 520 metrar eftir. NT-mynd Birgir -i Talstöðva múgæsing ■ Enn um þrettándann í Hafnarfirði. Meðan fullvaxnir unglingar gengu um brjótandi rúður og skeytandi skapi sínu á jólatrjám stóð einhver í fjöl- miðlun af vettvangi. Frá því kl. I! um kvöldið til 3 um nóttina var lýst beint úr mið- bæ !iim á FR rás 1. Athygli ýmissa vaknaði við lýsinguna og munu einhverjir hafa verið lagðir af stað úr Keflavík til að taka þátt í fjörinu, enda bar lýsingin það með sér að viðkomandi „fjöl- miðill“ var sáttur við eyðilegg- ingarstarfsemi þá sem fram fór. Það er athygli vert, eftir þá blaðaumfjöllun sem þessir „hvernig-heyrirðu-í-mér“ kall- ar hafa hlotið, og hvernig þeir hafa sannfært alþjóð um að þessi leikföng þeirra séu í raun og veru mikil öryggistæki, hvernig þeir misnota síðan þessi tæki sín. Varla hefur það verið ætlunin að talstöðvarnar væru notaðar til múgæsinga eða hvað. Setulaus sýslumaður! Tæknivæðing er yfirleitt tal- in af hinu góða en þegar eitt- hvað bilar í þeim ágæta hug- búnaði sem hún styðst við geta oft á tíðum komið upp hinar grátbroslegustu og ankana- legustu aðstæður. Víkurblaðið hefur orðið fyr- ir barðinu á þessu vandamáli, sem felst í því að tölvubúnaður blaðsins strækar um þessar mundir á Z-etuna hans Sverris Hermannssonar. Hefur blaðið verið prentað undanfarið „setulaust" og hef- ur það valdið nokkrum vand- ræðum, sérstaklega þegar um er að ræða föðurnafn yfirvalds- ins á Húsavík. Er eins og fógetinn missi eitthvað af virðuleika sínum þegar föður- nafnið er skrifað án z-etu, Gisurarson. Einnig er þetta mjög mein- legt þegar er fjallað um ítalska réttinn pizza, en „pissa“ höfðar einhvern veginn miklu síður til hinnar gasrónómísku gleði, sem þessi réttur annars ætti að vekja í huga lesenda. En þetta eru tæknileg en ekki mannleg mistök og ættu sýslumaður og ítalska eldhúsið að fá uppreisn æru í Víkur- blaðinu strax og viðgerð verð- ur lokið á hugbúnaðinum góða. Svæðamótið í Gausdal: Hvítt og svart ■ Það er alkunna að hvítur hefur oftast nokkurn hag af fyrsta leiknum og oftast vinnast mun fleiri skákir á hvítt en svart. Fjölmargir skákmenn gera sig yfirleitt ánægða með jafntefli á svart og reyna síðan að færa sér í nyt ávinninginn af því að hafa hvítt. Skákirnar í einvígi Karpovs og Kasparovs eru gott dæmi um þetta. Með svörtu setja þeir stefnuna á jafn- tefli og reyna síðan að vinna með hvítu, enda hefur aðeins ein skák unnist á svart, sjötta skákin, en þar missti Kasparov af röktum vinningi. Hér í Gausdal hefur gengi svörtu mannanna verið mjög gott þegar fjórar umferðir hafa verið tefldar er staðan 9:4 svört- um í hag. Við íslendingarnir höfum enn ekki unnið skák á hvítt en fjórum sinnum á svart. í skáksögunni eru mörg dæmi þess að mönnum gengur betur með svörtu. Á áskorendamót- inu í Júgóslavíu 1959 hlaut Poul Keres aðeins 6 1/2 vinning af 14 mögulegum með hvítu, en 12 vinninga af 14 með svörtu. Bent Larsen er einn þeirra sem teflir yfirleitt betur með svörtu, enda nær bjartsýnin vanalega þá ekki slíkum heljartökum á honum eins og þegar hann stýrir hvítu mönnunum. Bent virðist vera kominn í gang eftir hörmulega byrjun og hefur þegar þetta er skrifað unnið tvær skákir í röð. Sigurskák hans við Ernst, sem hér fylgir með, er dæmigerð fyrir taflmennsku hans þegar best lætur. Þekkt er dálæti hans á kantpeðunum og í þessari skák tekur a-peðið á rás snemma tafls og í endataflinu, sem upp kemur, gegnir það því hlutverki að lama athafnafrelsi hvítu peðanna á drottningar- væng. Á miðborðinu og á h-lín- unni glímir hvítur við veikleika í peðastöðunni, sem að lokum verða honum að falli í tíma- þröng. 4. umferð: Hvítt: Ernst. Svart: Larsen. 1. e4 c6 20. Be3 a4 2. d4 d5 21. a3 Bf6 3. Rd2 dxe4 22. g4 Ild8 4. Rxe4 Bf5 23. f4 Rd6 5. Rg3 Bg6 24. Bcl Bxe5 6. h4 h6 25. fxe5 Rc4 7. Rf3 Rd7 26. g5 hxg5 8. h5 Bh7 27. Bxg5 Hd5 9. Bd3 Bxd3 28. Bcl c5 10. Dxd3 e6 29. Kc2 Ra5 11. Bf4 Bb4+ 30. Hh4 b5 12. c3 Be7 31. Bg5 f6 13. 0-0-0 Rgf6 32. Bcl fxe5 14. Kbl a5 33. dxc5 Hxdl 15. Re4 Rxe4 34. Kxdl Kd7 16. Dxe4 Rf6 35. Hg4 Hxh5 17. Dd3 Dd5 36. Hxg7+ Kc6 18. Re5 De4 37. He7 Kd5 19. Dxe4 Rxe4 38. Be3 Rc4 101 llilll III III ilB m 11 11114 11 01 10 a iiiiiii 101 illlllllll! 191 íllllll 1111 39. Bf2 og hvítur gafst upp um leið. Helgi Ólafsson skrifar um skák

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.