NT - 11.01.1985, Page 3
HafnariiaM®
laetur heudur
standa ft**1
úf ermum’.
Hlutafélagið verður
stofnað um helgina
- beðið með að senda togarana á veiðar en lofað að
fiskiðjuverið komist í gang um miðjan mánuð
■ Nýtt hlutafélag um rekstur BÚH verður form-
lega stofnað um helgina þótt hlutafjársöfnun sé ekki
lokið.
Þá verður kosin bráðabirgðastjórn til að fara með
málefni fyrirtækisins fram að framhaldsstofnfundi.
I Ijósi þessa ákvað meirihluti útgerðarráðs á fundi
í gærmorgun að fresta ákvörðun um að senda togara
BÚH veiðar fram á mánudag.
Að sögn Haraldar Sigurðs-
sonar bæjarfulltrúa, sem einnig
á sæti í útgerðarráði og undir-
búningsnefnd að stofnun hlutafé
lagsins, var þessi ákvörðun tek-
in til að bráðabirgðastjórn nýja
félagsins gæti verið með í ráðum
um reksturinn.
Á fundi með starfsfólki BÚH
í fyrradag lofuðu fulltrúar
bæjarins því að rekstur fiskiðju-
vers BÚH hæfist um miðjan
þennan mánuð en vinna hefur
legið þar niðri samfleytt í á
fjórða mánuð. Mun ákvörðun
útgerðarráðs seinka því um
a.m.k. 3 daga.
Nokkur uggur er í forystu-
mönnum verkalýðsmála yfir
þessari hröðu afgreiðslu, og ótt-
ast þeir að það verði einungis
fulltrúar bæjarstjórnarmeiri-
hlutans sem nái ítökum í hinu
nýja hlutafélagi, þar sem engin
formlega hlutafjárkaup séu
komin frá öðrum aðilum.
í samtali við NT staðfesti
Haraldur að þegar væru aðilar
farnir að skrifa sig fyrir hlutafé,
en á þessu stigi málsins væri
ekki tímabært að ræða það
frekar. Hann nefndi þó að þar
væri ekki um neina stóra aðila
að ræða, svo ótti við að verið
væri að reyna að ná meirihluta-
ítökum í félaginu væri ástæðu-
laus.
Undirstrikaði hann að í sam-
þykkt bæjarstjórnar um stofnun
hlutafélags væri kveðið á um að
bæjarstjórn kysi árlega fimm
bæjarfulltrúa til að fara með
eignarhut bæjarins á hluthafa-
fundum og skiptist atkvæðarétt-
ur bæjarins jafnt á mili þeirra.
Tryggði þetta að sjónarmið
Blönduvirkjun:
Viðræður við
3 fyrirtæki
■ Stjórn Landsvirkjunar hef-
ur heimilað framkvæmdastjórn
fyrirtækisins að taka upp við-
ræður við þrjá aðila um tilboð í
rafala og hverfla í Blönduvirkj-
un. Fyrirtækin eru Sumitomo,
Siemens og norska fyrirtækið
Finores.
Með þessu er í engu verið að
hfana tilboðum annarra aðila.
Viðræður eru teknar upp við
þess 3 aðila til að kynna sér
nánar tilboð þeirra en útboðið í
hverfla og rafala Blöndu-
virkjunar nemur um 60% af
heildarútboðinu. ■ Tilboðum í
Blönduvirkjun var skilað í
ágúst.
■ Slökkviliðið í Reykjavík var í gær kallað að mótorbátnum Fróða, þar sem hann lá við Ægisgarð.
Eldur hafði kviknað út frá logsuðutækjum í einangrun milli lestar og forlestar. Greiðlega gekk að
slökkva og urðu hverfandi skemindir. NT-mynd: Sverrir!
minnihlutans yrðu tekin til
greina hvað varðaði eignarhlut
bæjarins.
Fulltrúar bæjarstjórnar hafa
ekki verið kosnir en það verður
gert fyrir framhaldsaðalfund.
Á fundi starfsfólks BÚH í
fyrradag var samþykkt með
þorra atkvæða fundarmanna að
beina því til bæjarstjórnar að
tryggt væri að Hafnarfjörður
ætti á hverjum tíma meirihluta
í nýja hlutafélaginu. Staðfesti
Haraldur Sigurðsson að svo
yrði, enda kæmi það fram í
samþykkt bæjarstjórnar. Efa-
semdir sem hefðu heyrst þar um
„væru ekki spurningar um vilja,
heldur orðanna hljóðan“.
í samtali við Sigurð T. Sig-
urðsson varaformann Verka-
mannafélagins Hlífar, kom
fram að honum fyndist ákvörð-
un útgcrðarráðs um að senda
togarana ekki út strax á
niorgun, eins og ráðgert hafði
verið, undarleg en seinkunin
hlyti að kosta BÚH mikla pen-
inga og væri ekki á erfiðleika
fyrirtækisins bætandi.Því fyrr
sem vinnslan kæmist í gang
réöist bót á liinu ískyggilega
atvinnuástandi sem ríkt hefur í
Firðinum, en nú cru 236 á at-
vinnuleysisskrá og eru þeir flest-
ir tengdir starfsemi BÚH.
Ekki vann
Kasparov!
■ l’rátt fyrir meiri liös-
alla tókst Kasparov ekki
að knýja fram vinning í
40. cinvígisskákinni, sem
fór í hið í fyrradag. Tekið
var til viö taflið að nýju í
gær og eftir þæling í 70
leiki var samið um iafn-
tefli.
Á morgun munu því
tveir þreyttir menn setjast
við taflborðið í Verkalýðs-
höllinni í Moskvu og hefja
41. skákina. í gær voru
liðnir 4 mánuðir frá því að
einvígið hófst og fimmti
mánuður einvigisins því
að hefjast.
BMMHHWBar
Sigurður Helgason
fékk einróma kjör
- stuðningsmenn Sigurgeirs Iðgðu niður vopnin
■ Sigurður Helgason yngri
var einróma kjörinn forstjóri
Flugieiða í gær. Þessi niður-
staða kemur nokkuð á óvart,
eftir það sem á undan er
gengið, en heimildarmenn
NT töldu í gær, að stuðnings-
menn Sigurgeirs Jónssonar
hefðu séð þann kost vænstan
að styðja Sigurð, þegar Ijóst
var að þeir voru í minnihluta.
Bæði til að sýna samstöðu
Flugleiða út á við og til að
standa ekki uppi sem sigraðir
innan fyrirtækisins.
„Þetta leggst vel í mig,“
sagði Sigurður Helgason,
þegar blaðið ræddi við hann
í gær en hann er nú yfirmaður
Flugleiða í Bandaríkjunum.
Hann kvaðst ekki hafa fylgst
með þeim deilum sem uppi
voru fyrir kjörið og því ekk-
ert um þær geta sagt.
Sigurður hefur starfað hjá
Flugleiðum síðan 1974 og
verið yfirmaður félagsins í
Bandaríkjunum síðan 1981.
Hann tekur við forstjóra-
starfinu 1. júní n.k.
Sigurður Helgason svarar fjármálaráðherra:
Flugleiðir hafa
staðið í skilum
■ „Flugleiðir hafa fyllilega staðið í skilum með vexti og afhorganir
af lánum sem félagið hefur tekið með ríkisábyrgð. Má geta þess til
fróðleiks, að á síðasta ári greiddi félagið sem svarar 116.4 milljónir
króna, af lánum með ríkisábyrgð og í þessum mánuði eru greiddar
samtals 43 milljónir króna.“ Svo segir m.a. í yfíriýsingu frá Sigurði
Helgasyni stjórnarformanni Flugleiða í tilefni af ummælum Alberts
Guðmundssonar fjármálaráðherra í NT í gær.
■ Sigurður Helgason stjórn-
arformaður Flugleiða: „Ráð-
herra ruglar“. NT-mynd: Eiia
Sigurður segir ennfremur í
yfirlýsingunni að hann viti ekki
hvað að baki liggur, en segir að
vera kunni að ráðherrann rugli
saman ríkisábyrgðarlánum og
skuldabréfum sern Flugleiðir
hafi á sínum tíma undirritað í
Seölabankanum. Þau bréf hafi
átt að greiðast af ríkinu sarn-
kvæmt ákvörðun Alþingis um
tímabundinn stuðning við
Norður-Atlantshafsflug fyrir-
tækisins.
Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra vildi ekki ræða
þessa yfirlýsingu í gær, sagðist
fyrst vilja sjá hana á prenti.