NT - 11.01.1985, Page 4
IH' Föstudagur 11. janúar 1985 4
LlL Fréttir
„París inspírer-
andi og falleg“
- segir Björg Þorsteinsdóttir myndlistar-
maður, sem opnaði sýningu þar í gær
■ Björg Þorsteins-
dóttir myndlistarmað-
ur opnaði sýningu á
„collage“ verkum í
sýningarsal Cité Int-
ernationale des Arts í
París í gær. Sýningin
stendur til 21. janúar
og á henni eru 30-40
myndir, sem Björg
hefur unnið að á
undanförnum mánuð-
um í París, þar sem
hún hefur dvalist,
steinsnar frá Signu-
bökkum.
Myndirnar hefur Björg unnið
á japanskan pappír, sem hún
hefur sjálf litað með vatnslitum,
olíulitum eða guass. Björg er
kannski þekktust sem grafík-
listamaður, en hún hefur engu
að síður unnið lengur að mál-
verkinu en grafíkinni. „Ég var
byrjuð að vinna svona myndir
heima í sumar og langaði til að
halda því áfram,“ sagði Björg,
þegar tíðindamaður NT leit við
hjá henni í París skömmu eftir
áramót. Hún segist þó ekki vera
hætt við grafíkina.
„Ég er alltaf spurð að því, ef
ég leyfi mér að gera eitthvað
annað,“ segir hún. „Mér finnst
mjög gott að skipta um efni,
það endurnýjar mig. Maður sér
líka meira eftir sig, þegar maður
málar eða gerir „collage"
myndir, og mér finnst mjög
skemmtilegt að vinna þetta.“
Björg fór til Parísar í byrjun
september og til stóð, að hún
kæmi heim nú um áramótin, en
þá bauðst henni óvænt að taka
þátt í sýningu með þremur öðr-
um listamönnum, allt konum,
frá ísrael, Frakklandi og
Argentínu. Björg var spurð
hvernig henni félli að vinna í
borginni.
„Eg þekki það vel til í París,
að mér finnst mjög þægilegt að
vinna hér. Ég þarf ekki þennan
aðlögunartíma, eins og þegar
maður kemur á nýja staði, held-
ur get ég byrjað strax. Pað eru
einmitt margir, sem halda, að
hér sé vont að vinna, að París sé
búin að vera, en mér finnst
borgin alltaf inspírerandi og
falleg.“
Björg Þorsteinsdóttir ætlar að
halda sýningu í Norræna húsinu
í apríl og þar verða sömu verk
og á sýningunni í París, auk
annarra verka.
■ Björg Þorsteinsdóttir við
tvö verka sinna, sem hún sýnir í
París frá og með deginum í dag.
NT-mynd GB
Skólisemsyngur
■ Syngjandi skóli er dagskrá
sem efnt verður til í Kennslu-
miðstöðinni dagana 14. til 19.
janúar. Dagskráin er ætluð
kennurum, kennaranemum,
fóstrum og þroskaþjálfum til
þess að efla almennan söng og
tónmenntir hverskonar í skól-
um og öðrum uppeldisstofnun-
um. Námsgagnastofnun í sam-
vinnu við námsstjóra og Kenn-
araháskólann stendur fyrir
framtakinu.
Haldnir verða fyrirlestrar,
námskeið og fræðslufundir,
bæði í tali og tónum. Fyrst
verður komið saman á mánu-
daginn 14. ÞáræðirJón Ásgeirs-
son tónskáld um gildi söngs og
annarra tónmennta í skóla-
starfi.
Gífurleg veltuaukning í
orkufyrirtækjunum 1983:
Velta ÁTVR meiri
en Landsvirkjunar
■ Mikil gróska var hjá hinum stóru
orkufyrirtækjum ísiendinga árið 1983, þ.e.
ef gróskan er mæld í aukinni veltu, sem í
þessu tilfelli hlýtur fyrst og fremst að ráðast
af verði hverrar orkueiningar fremur en
aukinni sölu.
Þegar hin opinbera
verðbólga var um 72%
þetta ár náði Landsvirkjun
185% veltuaukningu.
Næst í röðinni varð Hita-
veita Reykjavíkur með
145% veltuaukningu, Raf-
veita Akureyrar 132%,
Rafmagnsveita Reykja-
víkur 129% og Rarik með
122% veltuaukningu á
þessu eina ári.
Eitt var hins vegar það
opinbert „orkufyrirtæki"
sem búa mátti við slaka
afkomu þetta ár - tæpa
46% veltuaukningu milli
ára - það var Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins.
Meðrúmlega l,6milljarða
króna veltu en ÁTVR þó
ellefta stærsta fyrirtæki
landsins og veltan um 110
milljónum króna meiri en
hjá Landsvirkjun (í 13.
sæti) þrátt fyrir eindæma
velgengni hennar sem fyrr
segir. Miðað við gjald-
skrárhækkanir framan-
greindra fyrirtækja á síð-
asta ári er þó tæpast vafi á
því að ÁTVR hefur þá
tekist að skjóta Lands-
virkjun langt aftur fyrir sig
í veltutölum og þar með á
lista stærstu fyrirtækja
landsins.
■ Nýja flugstöðin á Sandodda við Patreksfjörð.
Ný f lugstöð vígð
við Patreksfjörð
■ Ný flugstöð á Sandodda við
Patreicsfjörð var formlega tekin
í notkun í fyrradag.
Stöðin stórbætir aðstöðu flug-
vallarfarþega og starfsfólks en
hingað til hefur þurft að notast
við litla skúrbyggingu.
Séra Þórarinn Þór vígði húsið
að viðstöddum Matthíasi
Bjarnasyni, samgöngumálaráð-
herra, tveimur þingmönnum
Vestfirðinga, flugmálastjóra og
fulltrúum Flugleiða, auk
annarra gesta.
Byggingin hefur tekið rúm
þrjú ár 'Og kostar fullgerð milli
6,5 og 7 milljónir. Benjamín
Magnússon, arkitekt, teiknaði í
samráði við flugmálastjóra.
Stöðin er 240 ferm að stærð með
flugturni, byggð úr einingum og
er sömu gerðar og flugstöðin á
Þingeyri sem nýlega var tekin í
notkun.
Flugvöllur hefur verið við
Patreksfjörð frá 1965 og þjónar
hann mikilvægu hlutverki í sam-
göngum íbúa þar í kring. Árið
4978 var keypt þangað slökkvi-
bifreið og brautarlýsing sett upp
árið eftir.
Næsta skref er, að sögn flug-
málastjóra, að bæta aðflugsbún-
að og leggja varanlegt slitlag á
völlinn ásamt úrbótum í snjó-
ruðningsmálum, en þá hlið hef-
ur vegagerðin séð um síðustu ár.
■ Pétur Einarsson, flugmála-
stjóri, ávarpar gesti við vígslu
Fiugstöðvarinnar.
NT-myndir Sverrir