NT - 11.01.1985, Síða 5

NT - 11.01.1985, Síða 5
!i IU [ Föstudagur 11. janúar 1985 5 j 1 Fréttir Pólarprjón í erfidleikum vegna skulda D. Egilsson - fyrrverandi framkvæmdastjóri of bláeygur Auknar niðurgreiðslur raforku til húshitunar ■ Ákveðið hefur verið uð auka niðurgreiðslur á raforku til húshitunar frá og með 1. janúar '85. Verða þær nú 0,63 kr. á kílóvattstund í stað0,53 kr áður á aðalhitataxta Rafmagns- veitna ríkisins og tilsvarandi hjá öðrum orkufyrirtækjum sem fyrirgreiðslu njóta. í skýrslu frá iðnaðarráðuneyt- inu segir að þetta sé gert í franthaldi af hækkun á gjald- skrám orkufyrirtækja um sl. áramót. Þá hækkuðu t.d. hita- taxtar Rafmagnsveitna ríksins unr 17% en aukning niður- greiðslnanna nú nernur 19%. Auk þess kemur fram að ekki sé búist við frekari hækkunum á raforkuverði á þessu ári. Skáíafelli ■ Skíðasvæði KR í Skálafelli verður opnað almenningi laug- ardaginn 12. janúar. Þar verður opið frá kl. 10.00 til 18.00 alla virka daga fram á vor. Skíðakennsla verður fyrir al- menning allar helgar meðan svæðið er opið. Haldið verður uppi áætlunar- ferðum á svæðið og eru gefnar upplýsingar unr þær og annað sem viðkemur svæðinu í síma 666099. ■ Pólarprjón hf. á Blönduósi. ■ Þau miklu vandræði sem fyrirtækið Pólarprjón hf. á Blönduósi á nú í - fyrst og fremst vegna um 10 milljón króna vanskila hjá helsta við- skiptamanni fyrirtækisins í Bandaríkjunum - valda nú þungum áhyggjum meðal fólks á Blönduósi, sveitarstjórnar- manna, þeirra 50-60 manna sem starfa hjá fyrirtækinu og ein- staklinga sem lagt hafa fram hlutafé. Menn eru sammála um að það yrði mikil blóðtaka fyrir svo fámennt byggðarlag ef svo stórt fyrirtæki neyddist til að ieggja upp laupana, en á því cr talin mikil hætta fáist fyrr- nefnd skuld ekki greidd. Ætlaði sér of mikið Hinn skuldseigi er Doriet Eg- ilsson, scm sett hefur á fót einar 8 eða 9 verslanir með íslenskar ullarvörur í mörgum fylkjum Bandaríkjanna. Raunar er það álit manna sem NT talaði við að vanskil hennar stafi kannski fyrst og frenist af því að þar hafi konan ætlað sér að gleypa of stóran bita - fjárfest og auglýst fyrir of stórar upphæðir sem síðan hafi ekki skilað sér í jafn miklum viðskiptum og hún ætl- aði. Hún sitji nú uppi með verulegar óseldar birgðir og sé komin í kröggur með allt saman. Tvö önnur fyrirtæki auk Pólarprjónsurðu t.d. fyrir því að Doriet afpantaði á síðustu stundu vörur sem búið var að framleiða fyrir hana og senda átti vestur í nóvember sl. Ólöglegt að hækka verð fyrir útsölu D. Egilsson hefur ofan í kaupið verið kærö af Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins, fyrir hönd Hildu hf., fyrir ólöglegar auglýsingar. Ólögmæti þeirra er talið felast í því að auglýstur er 50% afsláttur án þess að til- greint sé það verð sem afsláttur- inn er gefinn af. Þar er hins vegar talið að um tilbúið og allt ot' hátt verð sé að ræða, þannig að 50% afslátturinn sé ekki raunverulegur. En því átta við- skiptavinir sig ekki á fyrr en komið er á staðinn. Sambandið búið að vara menn við Hin miklu vandræði Pólar- prjóns stafa af því hve fyrrver- andi framkvæmdastjóri fyrir- tækisins helur verið „bláeygur" að lána D. Egilsson vörur fyrir stórar upphæðir - yfir 200 þús. dollara - án þess að hafa nokkr- ■ í tilefni blaðaskrifa um ullarvöruútllutning til Banda- ríkjanna, brá starfsmaður NT, Sigrún Edda Lövdal,. sér í há- móðins ullarföt, alíslensk að sjálfsögðu. Fötin lánaði Ram- magerðin. NT-niynd: Árni Bjarna ar tryggingar fyrir greiðslu. Sér í lagi þykir þarna um kæruleysi að ræða í ljósi þess að Samband ísl. samvinnufélaga hafði varað menn eindregið við að skipta við konuna, eftir slæma reynslu af henni sem umboðsmanni vestra, en því var ekki sinnt hér heima. Margir gætu tapað verulegu fé Hlutafé í Pólarprjóni er um 7 milljónir króna. Fyrst og fremst er það í eigu nrargra einstakl- inga á Blönduósi, sá stærsti - fyrrverandi framkvæmdastjóri - á um 25% og nokkrir aðrir einstaklingar - þeirra á nreðal sýslumaður, læknir og góð- bændur í sveitinni - eiga allt upp í 10%, eða um 700 þús. kr. Eitthvaö af. þessu fé fcngu við- komandi að láni hjá Byggða- sjóði og eru persónulega ábyrgir fyrir þeim skuldum þótt fyrir- tækið yrði að gefast upp. Þá á Álafoss hf. 12% hluta í fyrirtæk- inu, sem kom til vegna milli- ’ göngu Framkvæmdasjóðs, þeg- ar hluthafi í Pólarprjóni var aukið fyrir nokkrum árum. Aðstandendur Pólarprjóns hyggjast þó ekki gefast upp fyrr en'í fulla hncfana-segja að allt veröi rcynt til að bjarga málun- um og halda fyrirtækinu gang- andi. Núverandi óvissa með greiðslur frá D. Egilsson gerir þó allt erfiðara viðfangs í þeim efnum. Atvinnuleysi 1984: 25%meira en 1983 - en mun minna en spáð hafði verið ■ Á síðasta ári voru skráðir atvinnuleysisdagar á landinu sem jafngildir því að 1500 manns hafi verið atvinnulaus allt árið, eða 1,3% af áætluð- um mannafla á vinnu- markaðnum. Þetta er fjölgun um 76 þúsund at- vinnuleysisdaga frá fyrra ári eða 25%, en þó jókst atvinnuleysi mun minna, en Þjóðhagsstofnun spáði í upphafi ársins að gæti orðið, en hún taldi að atvinnuleysi gæti farið upp í um 2% af mannaflá. í desember voru skráðir 40.000 atvinnuleysisdag- ar, 24 þúsund hjá konum, en 12 þúsund hjá körlum. Þetta er nokkuð yfir meðaltali ársins, en skýrist at' því að mikið var um að uppsagnir á kauptrygging- arsamningum hjá frysti- húsum kæmu til fram- kvæmda síðari hluta mán- aðararins. Leiðrétting: Ekkií Norræna húsinu ■ í grein NT á miðvikudaginn um sumarvinnu á Norðurlönd- um var haft eftir Agnetu Björkl- und að upplýsingabæklingur og umsóknareyðublöð myndu m.a. liggjaframmi íNorrænahúsinu. Ingibjörg Björnsdóttir hjá Norræna húsinu hafði samband við blaðið og kvað þetta enn óráðið. Sagði hún meira en vafasamt að Norræna húsið treysti sér til að anna þessu verkefni. ■ Theodór Júlíusson og Guðlaug María Bjarnadóttir í hlutverkum sínum í „Ég er gull og gersemi". M>nd: píii Leikfélag Akureyrar: Æfingar á söngleikn- um Edith Piaf hafnar ■ Á Akureyri eru hafnar æfingar á söngleiknum „Edith Piaf" sem leikfélagið nrun frumsýna 8. mars n.k.. en nú standa yfir sýningar á leikriti Sveins Einarssonar „Ég er gull og gersemi". Uppselt var á fyrstu þrjár sýningar félagsins nijlji jóla og nýárs og þokkaleg aðsqkn að fyrstu tveimur sýningum eftir áramót. Nú um hclgina verður leikritið sýnt þrisvar, á föstu- dag og laugardag kl. 20.30 og á sunnudag kl. 15. Leikritið fjallar um lista- manninn ogflakkarann Sölva- Helgason, og byggir að hluta á sögu Davíðs St'efánsson- ar," Sólon íslandus." Ekki hefur verið ákveðið hvenær sýningum á verkinu verður hætt, en Signý Páls- dóttir, leikhússtjóri á Akur- eyri, sagði í samtali við blað- ið að venjan væri sú að sýningum væri hætt u.þ.b. tíu dögum fyrir næstu frum- sýningu. Edith Piaf verður frum- sýnd 8. mars n.k. undir leik- stjórn Sigurðar Pálssonar. Edda Þórarinsdóttir fer með hlutverk söngkonunnar.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.