NT - 11.01.1985, Blaðsíða 9
Föstudagur 11. janúar 1985
9
Tímar
10
■ Ekki vantar úrvalið - en hvað skyldi vera best?
■ Þetta línurit sýnir þróun verðiags í átta Evrópulöndum síðan
1977 í formi þess tíma sem það tekur að vinna fyrir samtals 15 kg
af jafnmörgum tegundum matvæla. Fjöldi vinnustunda er sýndur
á lóðrétta öxlinum.
Að vinna fyrir matnum:
Fljótlegra í Englandi
Hagstæðustu snyrtivörukaupin:
Apótek eða stórmarkaður?
■ Apótekin hafa jafnan á
boðstólum ýmsar vörur sem
einnig fást annarsstaðar,
einkum ýmiss konar hreinlæt-
is- og snyrtivörur. Oft heyrist
því fleygt að apótekin séu
dýrseldari á þessar vörur en
gengur og gerist annarsstað-
ar.
Til að kanna hvað hæft
væri í þessu, athuguðum við
verð á nokkrum vörutegund-
■ Verðmunur milli apóteks-
ins og stórmarkaðarins var
yfírleitt ekki mjög mikill. Allt
verð er hér tilgreint í heiium
krónum.
um annars vegar í apóteki og
hins vegar í einum af stór-
mörkuðunum í Reykjavík.
Fyrst var farið í apótekið
og þar reynt að velja algengar
tegundir sem reikna mátti
með að fengjust víðar. Síðan
var farið í stórmarkaðinn og
reynt að finna sömu vöru-
merkin þar. Þetta gekk mis-
jafnlega vel eins sjá má á
meðfylgjandi töflu yfir niður-
stöðurnar.
Ekki er hægt að segja að
þessar niðurstöður staðfesti
neinn verulegan verðmun.
Að vísu var verð í fleiri
tilvikum hagstæðara neytand-
anum í stórmarkaðnum, en á
því voru þó undantekningar,
t.d. var sjampó yfirleitt ódýr-
ara í apótekinu. Samkvæmt
því verði sem tilgreint er hér
í töflunni virðist verðmunur-
inn geta verið kringum 15%,
stórmarkaðnum í hag. Er þá
einungis reiknað með þeim
tilvikum þar sem sömu vöru-
merki voru til á báðum
stöðum.
Þegar ekki er tekið tillit til
vöruinerkja, er langmestur
verðmunur á bleimm. ís-
lensku Bangsableiurnar eru
miklum mun ódýrari en þær
innfluttu og þegar við vorum
á ferðinni fengust þær í apó-
tekinu og kostuðu þar 174 kr.
(60 stk) en í stórmarkaðnum
voru þær ekki til. Viðskipta-
vinir stórmarkaðarins hefðu
því orðið að fjárfesta í 40
innfluttum blej um fyrir nær
helmingi hærra verð.
Það virðist því gilda hér
sem annars staðar að ef þú
vilt vera viss um að gera
hagstæð kaup, þá er um að
gera að gefa verðmiðanum
gaum. Það er eina örugga
aðferðin.
- en tekur lengri tíma í Noregi og Svíþjóð
■ Það tekur lengri tíma að
vinna fyrir matnum í Svíþjóð
og.Noregi nú, heldur en árið
1977. Þetta kemur m.a. fram í
þeirri könnun sænska viku-
blaðsins Lands, sem við skýrð-
um frá hér á neytendasíðunni
í gær. Land hefur gert þessa
könnun í sama formi í átta ár
og mælt hversu langan tíma
taki að vinna fy rir þeim samtals
15 kg af ýmsum matvælum sem
verðkönnunin nær til.
Eins og sjá má á línuritinu
hefur gengið á ýmsu í gegnum
árin, en í heild liggja þó flestar
línurnar niður á við, sem þýðir
að nú tekur styttri tíma að
vinna fyrir matnum. Undan-
tekningar frá þessari reglu eru
þó sem sagt Noregur og Sví-
þjóð þar sem lífskjörin, eða
a.m.k. þessi þáttur þeirra virð-
ist hafa farið heldur versnandi.
Athyglisverðust er kannski
þróunin í Englandi en þar tók
meira en níu og hálfan tíma að
vinna fyrir þessum matvælum
árið 1977, þegar fyrsta
könnunin var gerð. 1 síðustu
könnuninni sem gerð var í
haust voru Englendingar hins
vegar komnir niður í u.þ.b.
fimm og hálían klukkutíma.
Að undanteknu fyrsta árinu,
þegar vinnan fyrir matnum tók
lengstan tíma í Englandi, hafa
Finnar allan tímann búið við
erfiðustu lífskjör að þessu
leyti. Þeir hafa þó nokkurn
veginn stöðugt sótt í sig veðrið
og nú er ekki orðinn ýkja
mikill munur á þeim og Norð-
mönnum, sem ár frá ári eru
lengur að vinna fyrir matnum.
Bæði Norðmenn og Finnar
eru þó stórum mun fljótvirkari
en við íslendingar, en með
sömu reikningsaðferðum og
Land beitir tekur það okkur
hátt í 11 klukkustundir að
vinna fyrir þessum 15 matar-
kílóum eins og fram kom hér á
síðunni í gær.
Vörutegund: Apótek Stórm.
Bleyjur:
Lotus (3-6 kg) 40 stk 376 322
" (6-10 kg) 40 stk 436
" (8-12 kg) 20 stk 272 233
Bangsableyjur nr 1 60 stk 174
Bleyjuplast:
Pussicat (nr 3-4) 20 stk 96
Esska (0-2 mán) 20 stk 51
Sjampó:
El'Vital 74 79
Timotej 74 83
Kopral 49 44
Henara 71 74
Kiki Herbal 48 49
Tannburstar:
Jordan (stórir) 51 52
" (litlir) 47 47
Sensodyne (stórir) 90 68
" (litlir) 77
Tannkrem:
Colgate 60 ml 35 32
" fluor 60 ml 40 30
Close up 50 ml 39 31
Revive 75 ml 102 106
Vogue sokkabuxur 75 65
Svíþjóð:
Stúlka deyr vegna eitr-
unar af völdum tíðatappa
Frá Guðbjörgu Lindu Kafnsdóttur,
fréttaritara NT í Svíþjóð.
■ 14 ára sænsk stúlka lést á
sjúkrahúsi í Stokkhólmi fyrir
nokkru vegna eitrunar sem
hún fékk eftir að hafa notað
tíðatappa.
Þegar stúlkan var lögð inn
á sjúkrahúsið, hafði hún m.a.
þjáðst af háum hita og niður-
gangi í nokkra daga. Fljót-
lega þótti ljóst að stúlkan var
með svokallaða tíðatappa-
eitrun eða TSS (Toxic Shock
Syndrome), eins og sjúk-
dómurinn nefnist á lækna-
máli. Er á sjúkrahúsið kom
versnaði stúlkunni snögglega
og lést innan fárra tíma.
Stúlkan er fyrsta fórnarlamb
þessa sjúkdóms í Svíþjóð.
Sjúkdómurinn uppgötvað-
ist fyrst árið 1975, þrátt fyrir
að tíðatappar hefi verið not-
aðir í nærfellt fimmtíu ár.
Það var svo fyrst árið 1980
sem menn þóttust fullvissir
um sambandið á milli sjúk-
dómsins og notkunar tíða-
tappa.
Að sögn prófessors Lars
Olof Kallings, sem hefur
rannsakað sjúkdóminn,
verður að jafnaði tveggja
tilfella vart í hverjum mánuði
í Svíþjóð. Nýlegar tölur frá
Bandaríkjunum sýna að hans
sögn, að ein kona af hverri
100.000 fái sjúkdóminn. Af
2207 konum sem fengu sjúk-
‘dóminn létust 103, eða 5%.
Að sögn Kallings má í
stuttu máli lýsa sjúkdómnum
á þennan hátt:
Þegar blæðingar eiga sér
stað breytist sýrustigið (ph) í
leggöngunum. Þá eiga bakterí-
ur, sem m.a. geta verið í
tíðatöppum, auðvelt með að
þrífast og hætta á sýkingu
eykst. Bakteríurnar geta
m.a. myndað eitur sem heitir
„enterotoxin FF“, sem kom-
ist getur út í blóðrásina í
gegnum þunnar æðar sem
eru í leggöngunum.
99 af hverjum hundrað
sem fá þennan sjúkdóm eru
konur sem nota tíðatappa.
Sjúkdómurinn getur þó herj-
að á karlmenn og konur sem
ekki nota slíka tappa.
Kallings segir helstu ein-
kenni sjúkdómsins vera
þessi:
- Hár hiti
- Blóðþrýstingur lækkar og
menn fá svima.
- Útbrot, sem gjaman er mglað
saman við útbrot sem fylgja
skarlatsótt.
- Húðin á fótleggjum og í
lófum flagnar.
- Niðurgangur
- Slæmir vöðvaverkir.
- Roði í augum.
Aðeins fáein þessara ein-
kenna geta bent til þess að
sjúklingurinn hafi fengið
eitrun. Flest einkennin koma
aldrei í ljós fyrr en sjúkdóm-
urinn er u.þ.b. genginn yfir.
Ungum stúlkum virðist
hættast við sýkingu af völd-
um tíðatappa, þar sem lík-
ama þeirra hefur ekki unnist
tími til að byggja upp mót-
efni gegn eitruninni.
Að lokum eru hér nokkur
ráð til að koma í veg fyrir
sýkingu:
Forðist tíðatappa sem
sjúga mikið í sig. Þar sem
þeir þenjast mikið út, geta
þeir límst við legið og dregið
með sér hluta slímhúðarinn-
ar. Þá geta tapparnir skilið
eftir sig ló, sem leitt getur til
sýkingar.
Skiptið oft um tappa. Not-
'ið þá hvorki í svefni, né
þegar blæðingar eru litlar.
Notið aldrei tappa á milli
blæðinga. Það ertir legið og
getur leitt til sýkingar og sára
á slímhimnunni. Tappinn
getur breytt náttúrulegum
sýkingarvörnum legsins.
(Þýtt og endursagt úr Ex-
pressen).