NT - 11.01.1985, Page 11

NT - 11.01.1985, Page 11
Föstudagur 11. janúar 1985 11 Menning Þýsk bók- menntasaga ■ Fáar þjóðir eiga sér ríkari eða lengri bókmenntahefð en Pjóðverjar. Bókmenntir á germanskri tungu eru til allt frá ármiðöldum - og eldri dæmi mætti nefna, ef grannt er skoðað. Blómaskeið þýskra bókmennta má hins vegar telja frá 18. öld og fram til loka rómantíkurinnar, en síðan hef- ur þýsk bókmenntasaga ein- kennst af stuttum glæsitímabil- um, en inn á milli hafa komið lægðir, sem oft hafa farið sam- an við pólitísk niðurlægingar- tímabil. Eins og vænta má eru til ótal útgáfur af verkum um þýska bókmenntasögu, bæði heild- arverkum og verkum um ákveðin tímabil, einstakar bókmenntagreinar, stefnur og höfunda. Ritið sem hér liggur fyrir, er heildarsaga þýskra bókmennta frá elstu tíð og fram til vorra daga. Höfundarnir eru þrír júgóslavneskir fræðimenn og var ritið fyrst samið og gefið út á serbó-króatísku, en síðan þýtt á þýsku. Bókin er skipt í alls sautján kafla og hefst frásögnin á um- fjöllun um elsta germanskan skáldskap, en lýkur með kafla um þýskar nútímabókmenntir. Kaflaskipti ráðast af efnis- þáttum og fjalla sérstakir kafl- ar um allar helstu stefnur og tímabil í sögu þýskra bók- mennta. 1 hverjum kafla er greint frá helstu einkennum viðfangsefnisins og fjallað um þau skáld og rithöfunda, sem helst mega teljast merkisberar viðkomandi stefna eða bók- menntahefða og greint frá helstu verkum þeirra. Eins og áður greinir eru höfundarnir þrír Júgóslavar, allir prófessorar í þýsku og þýskum bókmenntum við há- skólann í Zagreb. Við fyrstu sýn kann það að koma á óvart að menn af því þjóðerni væru ráðnir til að skrifa þýska bðk- menntasögu, menn skyldu ætla að Þjóðverjar ættu nóg af hæf- um mönnum til þess verks. Ástæðan er sú, að ritið var fyrst gefið út í Júgóslavíu í ritröð um bókmenntasögu Evrópu og þótti svo vel heppn- að sem stutt og hnitmiðað yfirlitsverk, að rétt þótti að snara því á þýsku. Af því leiðir, að bókin hefur að geyma ýmsar upplýsingar, einkum ætlaðar útlendingum og koma þær vissulega fleirum að góðu gagni en Júgóslövum einum. Allur frágangur ritsins er með miklum ágætum, það er prýtt mörgum myndum, sem auka á gildi þess og eru sumar mjög skemmtilegar og má þar nefna mynd af ritvél Nietsches sem var fornfálegur gripur, upprunninn í Danmörku, en hefur sýnilega gert sitt gagn. Jón Þ. Þór. Viktor Zmegac, Zdenko Skreb, Ljerka Sekulic: Kleine Geschichte der deutschen literat- ur. Von den Anfáng- en bis zur Gegenwart. 2., durchgesehene Auflage. Athenáum 1984. 424 bls. ■ Ritvél Nietsches. ■ Prentlistin er upprunnin í Þýskalandi. áttu til að leggja dóm á ágæti þessa verks, auk þess sem óræðir leyndardómar úr sér- stökum reynsluheimi kvenna kunna að vera fólgnir í því, en mér þótti það fremur fjörlegt og laglegt. Hitt nýja íslenska verkið sem Edda flutti heitir Hans variationer, 13 tilbrigði um brot úr laginu Kóngurinn ræddi við riddarann Stíg og samið fyrir sænskan spilara, Hans Palsson. Eins og vonlegt er gætir margra grasa í 13 tilbrigðum, sum hefðu getað verið eftir Schumann, en önn- ur voru 20,-aldarlegri. Tónlist Þorkels er oftast kunnáttulega samin og áheyrileg, og svo var um þetta verk. Eins og fyrr brestur mig lærdóm til að leggja æðri rökstuddan dóm á verk sem þetta. Hins vegar er það líklega svo, að sjónarmið neytenda muni reynast hinn hinsti dómur um öll tónverk: Ef áheyrendur vilja heyra þau og/eða tónlistarmenn flytja þau, lengist líf verkanna, ann- ars ekki. Einstaka sinnum kemur fram verk sem hefur raunverulega þýðingu fyrir framgang tónlistarinnar sem listgrein - það skeður sjaldan og skiptir tónskáldin meiru en hinn almenna hlust- anda á tónleikum. Semsagt, á næsta stigi þroska síns sem píanisti þarf Edda að leggja meira undir, taka meiri áhættu, en jafn- framt uppskera meira þegar vel tekst til. Til þess hefur hún vafalaust alla tæknilega og músíkalska burði. S. St. ■ Eins og kunnugt er eiga þrjú stór-tónskáld einhvers konar afmæli á þessu ár, Bach (f. 1685), Hándel (f. 1685) og Scarlatti (d. 1725). í tilefni af stórmælum þessum hyggja tónlistarmenn á mikil hátíða- höld víða um heim, hljóðfæra- leikarar með flutningi verka eftir meistarana, en tónskáld Breiðfirsk Þarablöð J.S. BACH. Bach-afmælið byrjar með flutningi eigin verka og vona sinna, að því er mér heyrðist í viðtali í útvarpinu. Kammersveit Reykjavíkur reið á vaðið með Bach-tón- leika í Áskirkju hinn 7. janúar, og lá við að færri kæmust að en vildu, auk þess sem skráin varð uppseld. Sýnir þetta veg hins forna meistara hér á landi, sem Páll ísólfsson leitaðist við að kynna fyrir hálftómu húsi fyrir ekki svo mörgum áratug- um. Tónleikar þessi voru í flestri grein afburða fínir og ánægjulegir, og til marks um þann mikla árangur sem mark- visst tónlistaruppeldi þjóðar- innar í 40 ár hefur borið. Fyrst léku Kristján Step- hensen og Daði Kolbeinsson einleik á óbó í Hljómsveitar- svítu nr. 1 í C-dúr fyrir 2 óbó og strengi. Síðan Rut Ingólfs- dóttir í Konsert í E-dúr fyrir fiðlu og strengi. Hægi kaflinn í þessum konsert er ein hin yndis- legasta tónlist í heim, en ég var mjög ósáttur við hlut kné- fiðlunnar sem ber stefið lágu gísin voru alltof stutt og óróleg (fannst mér). Rut er í einu orði sagt afburða kammer-fiðlari, með sérstaklega fínan og mik- inn tón. í þriðja stað lék Helga Ingólfsdóttir einleik í d-moll konsert fyrir sembal, strengi og grunnbassa - um semballeik Helgu þarf ekki að fjölyrða - og loks kom hinn vinsæli 2. Brandenborgarkonsert í F- dúr. Lárus Sveinsson lék á F-trompet, Kristján Stephens- en á óbó, Helga á sembal og Rut á fiðlu, en konsertmeistari var Einar G. Sveinbjörnsson, og er ángæjulegt að sjá hann hér aftur, þó tímabundið sé. „Bach-trompetar" eru víst grá- bölvaðir að spila á, bæði að „ná þeim hreinum", og yfirleitt að hitta á tóninn. Enda gekk á ýmsu hjá Lárusi, þótt hann slyppi allvel. Þó hygg ég ekkert sé í þessum konsert sem Lárus gæti ekki gert með léttum leik af hann het'ði æft sig ögn meira. Að því er mig minnir var þessi konsert fluttur hér síðast fyrir svo sem 30 árum í Mela- skólanum á vegum Kammer- músíkkiúbbsins. Þá treystist enginn trompetleikari til að spila, og Egill Jónsson lék í staðinn á C-klarinettu. Svona stefnir allt til hins bezta í heimi hér. í heild voru þessi hljóm- leikar afar ánægjulegir og Kammersveit Reykjavíkur og Jóhanni Sebastían Bach til sóma á afmælinu. S.St. ■ Bergsveinn Skúlason: Þarablöð. Þættir frá Breiða- firði. Víkurútgáfan 1984 180 bls. Hinn þjóðkunni breiðfirski fræðaþulur, Bcrgsveinn Skúla- son, sendi frá sér bók fyrir jólin og nefndi því skemmti- lega og sérstæða nafni Þara- blöð. Á Þarablöðum kennir margra grasa, þau hafa að geyma sagnaþætti frá Breiða- firði og eru eins og fyrri rit höfundar heimildir um fólk og atvinnuhætti fyrri tíma á æskuslóðum hans vestra. Eng- inn þáttanna getur talist strangvísindalegur að efni eða framsetningu, en allir eru þeir þannig vaxnir, að efni þeirra er sannarlega betur geymt en gleymt. Bókin hefst á þætti, sem nefnist „Fast þær sóttu sjóinn" og geymir«frásagnir af ellefu sjókonum, þ.e.a.s. konum, sem höfðu sjósókn að starfi, sumar að aðalstarfi, og gáfu karlmönnum ekkert eftir um áræði, sókn og aflabrögð. Á skipum sumra þeirra voru ein- göngu konur. Þessu næst fylgja þrír þættir um skipamjaltir, sem svo voru kallaðar, cn í Breiðafjarðar- eyjum háttar víða svo til, að þegar kýr voru látnar liggja úti á sumrum, varð að fara á bátum til mjalta. Ekki er mér kunnugt um að þetta hafi tíð- kast annars staðar á landinu, þótt víst megi svo vera. „Staðir og leiðir" nefnist næsti hluti og fjallar um Flatey og Skáleyjar. Þá er kafli. er ber yfirskriftina „Sitt lítið af hvoru" og er safn ýmissa þátta, ■ Bergsveinn Skúlason. og loks er alllangur þáttur, er nefnist „Slætt upp af minnis- blöðum Jóns Kristins Jóhann- essonar". Jón Kristinn var Breiðfirðingur, fæddur í Skál- eyjum árið 1903, en dvaldist á Hrafnistu síðustu ár ævinnar. Þar festi hann á blað minningar sínar frá fyrri dögum, sem Bergsveinn hefur unnið úr og birtirnú. Eru minninarþættirn- ir allir stórfróðlegir og skemmtilegir, en Jón var fróð- ur vel og ritfær í betra lagi, auk þess sem hann fékkst a.m.k. eitthvað við málararlist. Eins og áður sagði eru þættir Bergsveins Skúlasonar, sem hann hér hefur fært í letur á Þarablöð, allir betur geymdir en glevmdir. Bergsveinn er hafsjór af fróðleik urn líf og starf fólks við Breiðafjörð á fyrri tímum og vonandi verður þess ekki langt að bíða að við fáum meiri fröðleik frá hans hendi. Jón Þ. Þór. ■ Edda Erlendsdóttir. ■ Edda Erlendsdóttir píanó- leikari skemmti félögum Tón- listarfélagsins á fyrstu hljóm- leikum þess 1985 hinn 5. janú- ar. Edda er mjög músíkalskur og vandaður tónlistarmaður, sem víða hefur gert garðinn frægan, nú síðast í Svíþjóð þar sem umsagnir voru allar í efsta- stigsorðum. Efnisskráin nú, með verkum eftir Mendelson, Schumann, Debussy og Chopin, og þau Þorkel Sigur- björnsson og Karólínu Eiríks- dóttur, var með fáum undan- tekningum „innhverf moll- tónlist", og báru tónleikarnir að sjálfsögðu keim af því. Hins vegar tel ég, sem tilheyri þeirri kynslóð sem telur Sviatóslav Richter og píanóstíl hans mest- an og bestan, að Edda hefði annað hvort mátt spila hraðar á köflum, eða með meiri þunga. Því þrátt fyrir allt er það tilgangur tónleika að hafa áhrif á áheyrendur á einn veg eða annan, helst svo sem tónlist- in segir til um. Mér fannst sem sagt vanta kraft og lit í flutning- inn, svo fágaður og vandaður sem hann var. Edda Erlendsdóttir er að talsverðu leyti franskmenntuð. enda held ég að flutningur hennar á Kátu eyjunni eftir Debussy hafi verið alveg réttur - a.m.k. var verkið mjög skemmtilegt að heyra. Einna mest fútt var þó í Eins konar rondo (1984) eftir Karólínu, sem nú var frumflutt á íslandi, en samið var sérstaklega handa Eddu til að flytja á Alþjóðlegri tónlistarhátíð kvenna í París sl. október. Ég hef enga kunn- Píanótónleikar Eddu Erlendsdóttur

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.