NT - 11.01.1985, Page 13
■ Sally Ride er fyrsti banda-
ríski geimfarinn af kvenkyni.
Rússar státa að vísu af fyrsta
kvengeimfaranum, Valentinu
Tereshkova, sem var skotið út
í geiminn á árinu 1963, en þar
sem Sally hafði vit á því að
vera óvenju stórvaxin af konu
að vera og sneri þannig á þá
sem framleiða geifarabúning-
ana, og það aðeins í karl-
mannsstærðum, er full ástæða
til að útnefna hana sem „Fyrsta
geimkonan".
■ Nastassja Kinski, fegurð-
ardís, ógift móðir og stjarna í
17 myndum, $em fóru á mark-
að á árinu 1984, hefur sýnt
fram á að það er engin þörf á
að hafa hinn minnsta snefíl af
leikhæfíleikum, ef aðeins útlit-
ið er í lagi.
■ Lisa Marie kemur til með
að erfa allan auð föður síns
þegar hún verður 25 ára. Ekki
hefur hún reyndar mikið á
milli handa eins og er, því að
hún hefur mjög takmarkaða
vasa peninga, og er þá miðað
við venjulega eyðslu
skólafólks og ekkert fram yfír
það.
Lisa Marie var oft hjá pabba
sínum, þó foreldrar hennar
hefðu skilið, og hún dvaldist á
Graceland þegar faðir hennar
dó.
■ Ginger Alden var síðasta manneskjan sem sá Elvis Presley
á lífí 16. ágúst 1977. Ginger er svarthærð Súðurríkjastúlka. Hún
bjó síðustu mánuðina með Presley í Graceland stórhýsi hans.
Ginger segir að hann hafí kropið fyrir sér og beðið sín og síðan
sett hring á fíngur henni, og hún varð svo lukkuleg að hún grét.
„Ég ber enn hringinn og mun alltaf gera það“, hefur Ginger sagt.
Hún segir einnig, að Elvis og hún hafí átt indælar stundir saman,
stundum hafí þau lesið saman í biblíunni, en líka setið í
hugleiðslu.
■ Sarah Tisdall áleit það
skyldu sína að brjóta trúnað
við yfírmenn sína og skýrði frá
eldflaugaflutningi í heimildar-
leysi. Mikið varð hún hissa,
þegar blaðið Guardian, sem
hún hafði treyst að þegði yfír
því hver hefði Ijóstrað upp
leyndarmálinu, brást trúnaði
hennar.
■ Zola Budd, suður-afríska hlaupadrottningin, sem tókst að
upplýsa að innanríkisráðuneytið breska getur verið snart í
snúningum, þegar að því kemur að veita ríkisborgararétt í
Bretlandi. Það eina sem umsækjandinn þarf að hafa til að bera
er að vera hvítur, afburða manneskja í íþróttum á Ólympíuári og
skjólstæðingur Daily Mail.
Föstudagur 11. janúar 1985
■ Ruth Lawrence var að vísu
hæst í stærðfræði í sínum bekk
í Oxford. En það er þó barna-
leikur miðað við | þau ósköp,
þegar hún lenti á milli tann-
anna í einum aðaltalsmanni
fornra kvenlegra dyggða í
Bretlandi, Victoriu Gillick,
sem hélt því blákalt fram opin-
berlega, að stærðfræðisnill-
ingurinn væri ófær um að fara
ein til læknis vegna vanþroska!
■ Linda Thompson varð kærasta Presleys eftir
skilnaðinn við Priscillu, en það varð aldrei úr hjónabandi
hjá þeim. Hún gafst upp á sambandinu nokkrum
mánuðum áður en rokk-kóngurinn lést. Nú er Linda gift
íþróttahetju, Bruce Jenner, og hann tók þátt í
Ólympíuleikunum. Þau eiga 2 börn. Linda segir um
Elvis: „Hann var góður náungi, en frægðin og
peningarnir fóru illa með hann, og má segja að hafí
eyðilegt líf hans“.
■ Jayne Torvill gaf löndum
sínum kost á því að geta
sprungið af þjóðarstolti eftir
sigurinn í listdansi á skautum á
Ólympíuleikunum. Hún hefur
ekkert látið á sig fá, þó að hún
sé oröin flestum gleymd núna.
■ Victoria Gillick, sem gerði
sitt besta til að koma óorði á
Ruth Lawrence, hefur afrekað
að skipta bresku þjóðinni í
tvær andstæðar fylkingar. Ann-
ars vegar þá, sem dá hina
fórnfúsu móðurímynd, heil-
brigða og töfrandi, sem hún
hefur komið sér upp og heimt-
ar að allar aðrar konur geri
líka, og hins vegar þá, sem
vildu helst útrýma henni.
■ Priscilla var barnung þegar hún
kynntist Elvis Presley í Wiesbanden í
Vestur-Þýskalandi, en þá var EIvis í
bandaríska hernum þar. „Við urðum
bálskotin við fyrstu kynni, “ sagði
Priscilia. Þau giftust seinna, eða 1.
maí 1967 og eignuðust dótturina Lisa
Marie, sem nú er 17 ára. Hjónabandið
stóð í 5 ár, en þá fluttist Priscilla burt
frá Gracelands, en þau héldu samt
góðu sambandi og engar slúðursagnir
urðu vegna skilnaðar þeirra.
■ Indira Gandhi, voldugasti
stjómmálaskörungur af veikara
kyninu, sem er jafnvel enn
voldugri látin.
„Kona ársins“
■ Margaret Thatcher sýndi
það og sannaði, að hún er
gjörsamlega ómóttækileg fyrir
reiði, sprengjuárásum, ógnun-
um fortölum, atvinnuleysi...
Það er vinsæll leikur
margra aðila að velja
„konu ársins“ cða „karl
ársins“. Fer þetta val oftast
fram í fúlustu alvöru og
beinist þá að þeim, sem
þykja sérstaklega virðing-
arverðir fyrir framúrskar-
andi úrangur. En svo eru
aðrir, sem ástunda þetta
val í hálfkæringi og gefa þá
einhvers konar skýringar
með.
í enska blaðinu The
Observer hefur Katharine
Whitehorn upp á sitt eigið
eindæmi útnefnt nokkrar
i konur, sem mega bítast um
titilinn „Kona ársins" og
cru sumar skýringar henn-
ar allkyndugar. 1 formáls-
orðum sínum að útnefning-
unni segir hún m.a.: Eg
ætla ekki að úthluta verð-
launum til kvenna fyrir að
hafa sýnt frábæra frarnmi-
stöðu, hvað þá að gefa
glóðarauga. Þessar konur,
sem nefndar eru hér á eftir,
hafa einfaldlega ekki kom-
ist hjá því að hafa náð
athygli almennings á árinu
1984. Sumar þeirra eru
stórkostlegar, aðrar aumk-
unarverðar. Lescndur
geta sjálfir ákveðið í hvor-
um flokknum hver þeirra
lendir!
■ Sade afrekaði það að eiga
eltt söluhæsta plötualbúmið á
markaði á sl. ári, þrátt fyrir
harða samkeppni frá fígúrum
eins og Boy George, sem lítnr
út cins og ólöguleg stclpa,
Marilyn, sent grunur leikur á
að sé strákur, og Michael
Jackson, sem ekkert skal full-
yrt um heldur.
■ Geraldine Ferraro braut
endanlega á bak aftur þá bá-
bilju að konan sé eign
mannsins, enda hafa eignir
■nanns hennar verið óþægilega
í sviðsljósinu. Hún braut líka
ísinn, þegar henni var falið það
hlutverk að annað hvort feykja
Mondale í forsetaembætti eða
jarðsetja endanlega alla
drauma hans um að hreppa
hnossið, þ.e.a.s. ef bandarískir
kjósendur tækju yfírleitt eftir
því að kona var í framboði til
varaforseta.
■ Geraldine James sýndiog
sannaði að hún er mikil og góð
leikkona í Dýrasta djásninu,
líklega einum of góð, því að
hún fínnur ekki náð fyrir aug-
um leikstjóra, sem ráða yfir
stjörnuhlutverkum. Þcir hafa
bafa augun á Nastassja Kinski
og álíka fyrirbærum.
13