NT - 11.01.1985, Síða 23

NT - 11.01.1985, Síða 23
■ Matthías Einarsson var besti maður KR í leiknum gegn ÍS í gærkvöldi, skoraði 24 stig og hitti mjög vel. Hér er hann í baráttu undir körfunni (nr. 11). NT-mynd Ari Evrópuleikur FH á sunnudaginn kemur ■ Fyrri leikur FH og hollensku meistaranna í 8 liða úrslitum Evrópukeppni meist- araliða verður háður á sunnu- daginn kemur í Laugardalshöll- inni og hefst viðureignin kl. 20.30. Þessi leikur er. mjög mikil- vægur fyrir FH-inga ef þeir ætla sér að komast í undanúrslitin. Hagstæð úrslit á heimavelli eru hverju liði nauðsyn í keppni sem þessari og geta áhorfendur skipt sköpum, eins og gerðist er FH vann hið fræga stórlið Honved í desember síðastliðn- um hér í Höllinni. Hollenska liðið hefur orðið meistari þrjú síðastliðin ár og sigraði franska liðið Marseilles í síðustu umferð. Föstudagur 11. janúar 1985 23 ________Iþróttir______ Á köflum eins og pollaæfing - leikleysa hjá KR og ÍS í gærkvöldi ■ Leikur ÍS og KR var eins og minniboltaæfing meiri hlut- ann af seinni hálfleik. Boltan- um var grýtt í áttina að körfu andstæðinganna og svo hlupu allir eins og þeir ættu lífið að leysa á eftir honum og allir leikmennirnir á vellinum lentu í einni kös. En þrátt fyrir þetta skoruðu liðin 182 stig samtals og ber það vitni lélegum varnarleik en ekki góðum sóknarleik. KR-ingar stóðu uppi sem sigurvegarar að lokum, skor- uðu 102 stig gegn 80 stigum ÍS. Staðan í hálfleik var 46-36. Fyrri hálfleikur var öllu ró- legri þó ekki hafi verið leikinn góður körfubolti. KR-ingar höfðu yfirhöndina en ÍS var í seilingarfjarlægð og minnkaði muninn niður í 2 stig á milli þess sem KR hafði 10 stiga forystu. I seinni hálfleik komust KR- ingar fljótlega 22 stig yfir 62-40 en ÍS minnkaði þann mun í 64-66. Fljótlega upp úr því hætti maöur að geta fylgst nokkuð að gagni með og áður en auga væri blikkað var staðan orðin 93-67 fyrir KR. Ringul- reiðin var svo mikil að ómögu- legt var að átta sig á því hvað sneri upp og hvað niður. í>að var eins og áhorfendur væru að fylgjast með borðtennisleik, hausarnir heyfðust svo hratt til hliðanna. Guðmundur Jóhannsson átti góðan leik hjá ÍS og var besti maðurinn á vellinum. Hann skoraði 31 stig, hirti 15 fráköst og varði 4 skot. Hreint frábært. Hjá KR var Matthías Einars- son bestur, hitti mjög vel og skoraði 24 stig. Annars vantaði KR-ingana tilfinnanlega fráköst, þeir höfðu ekki roð í Guðmund. Spilið og yfirvegun vantaði í bæði liðin svo og varnarleik, hann var lélegur. ■ Meðlimir hins sigursæla OL-liðs Bandaríkjamanna í hjólreiðum voru „blóðdópað- ir“ fyrir keppnina að sögn tíma- ritsins Rolling Stone. „Blóð- dópun“ felst í því að blóð er tekið úr keppendum nokkru fyrir keppni en síðan dælt aftur í þá rétt áður en keppnin hefst. Meðal þeirra sem nefndir voru eru Steve Hegg, gullverð- launahafi, Leonard Nits sem vann til bronsverðlauna. Brent Emery og Rebecca Twigg sem unnu til silfurverðlauna. Að minnsta kosti þrír aðrir Stigin í leiknum skoruðu: Fyrir ÍS: Guðmundur 31, Árni 15, Jón 10, Ragnar 8, Ágúst og Karl 6, Eiríkur og Helgi 4. Fyrir KR: Matthías 25, Ólafur 24, Guðni 16, Ástþór 11. Þorsteinn 10, Birgir M. 8, Birgir J. 4, Jón og Ómar G. 2. Enski dómarinn Rob Illiff dæmdi í gær sinn fyrsta leik og lofar ekki góðu. Það má segja honum til málsbóta að það hafi ekki verið hægt að dæma þessa endaleysu en hann var ekkert betri í þessum leik en okkar dómarar eru yfir höfuð. fengu blóð en urðu fyrir slæm- um eftirverkunum og stóðu sig illa á Ólympíuleikunum. Framkvæmdastjóri hjól- reiðaliðsins, Mike Fraysse, neitaði ekki þessum ásökununt heldur sagði að þetta væri ekki ólöglegt samkvæmt lögum Al- þjóða Ólympíunefndarinnar. Að sögn blaðsins var litlu hótelherbergi breytt í „blóð- dópsverksmiðju" og blóðið sem dælt var í keppendurna hafði hlotið sérstaka meðferð svo það framleiddi mikið af rauðum blóðkornum, en í því voru engin önnur efni, að sögn. Bandarískir hjólreiðamenn á ÓL: „Blóðdópaðir" fyrir keppni Tengd verð- tiyggingu Há og örugg ávöxtun. Kjörbókin gefur 35% ársvexti strax frá innleggsdegi. Verðtrygging. Til að tryggja öryggi Kjörbókarinnar er ávöxtun hennar borin saman við ávöxtun 6 mánaða vísitölutryggðra reikninga í árslok. Ef vísitölutryggðu reikningarnir ávaxta bet- ur fær Kjörbókareigandi verðtryggingar- uppbót að viðbættum gildandi ársvöxtum 6 mánaða vísitölutryggðra reikninga. LANDSBANKINN Græddur cr i’cynulur cyrir

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.