NT - 11.01.1985, Side 24

NT - 11.01.1985, Side 24
 Við tökum við ábendingum um fréttir alian sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT Síðumúli 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 I— V Amfetamínsmyglið: Tveggja mill- jóna hreinn gróði Sunnanvindur... ■ Það verður sunnanátt og rigning um nær allt land um helgina. Og ekkert meira um það að segja. elgarveðrið 7 J 4 ■ Ætla má að amfetamín sem lögreglan gerði upp- tækt nú í vikunni hefði gefið handhöfum þess 2,1 milljón króna í hreinan gróða. Kaupverð þess er talið hafa verið 400 þúsund en söluverð um 2,5 milljón- ir. Eins og fram kom í NT í gær sitja þrír nú í gæslu- varðhaldi vegna smygls á 120 grömmum af amfeta- míni en nokkuð til viðbótar fannst við húsleit. Efnið var ætlað til sölu og eigin neyslu. 10 grömmum af amfetamíni var framvísað til viðbótar við þau 140 sem komin voru fram við yfirheyrslur í gærdag. Alls tengjast 10 einstaklingar þessu máli en ekki var talin ástæða til að halda nema þremur þeirra inni. Efnið, sem hér um ræðir, er óþynnt amfetamín og má ætla að það eigi eftir að þynna fimmfalt. Söluverð hvers gramms á íslandi er svo um og ■ yfir 3500 kr. þannig að heildar- verðið er um 2,5 milljónir. í Amsterdam, þar sem efnið er keypt, sagði Arnar Jensson hjá fíkniefnalögreglunni aftur á móti að efni þetta gengi á um 50 hollensk gyllini grammið, (575 krónur) þannig að heildarkaup- verð þess er rétt rúm 400 þúsund. Þremenningarnir voru úr- skurðaðir í gæsluvarðhald í gærmorgun frá 5 og upp í 30 daga. ■ Ekið var á gangandi mann á gangbraut á Kleppsvegi á móts við Laugarásbíó. Maðurinn fótbrotnaði. NT-mynd: Sverrir ■ Sigrún Edda Lövdal dregur nafn vinningshafa í áskrifendagetraun NT. Haukur Haraldsson, markaðsstjóri, Kjartan Ásmundsson, dreif- ingarstjóri og fulltrúi borgarfógeta fylgjast með. NT-mynd: Ari ■ Kjartan Ásmundsson, dreifingarstjóri afhendir Gunnari lyklana að bifreiðinni. Við hlið Gunnars standa þær Kristín Gunnarsdóttir og Jónína Bender. NT-mynd: Ari Vinningshafi fær nýjan bíl frá NT ■ Fimmtíu og timm ára gamall húsvörður í Austurbæjarskóla, Gunnar Hallgrímsson datt heldur betur í iukkupottinn í gær er Kjartan Ásmundsson, dreifingarstjóri NT, afhenti honum lykla að nýjum Opel Corsa, að verðmæti 305.000 krónur. Nafn Gunnars var dregið úr fjölda réttra úrlausna í áskrifenda- getraun er NT stóð fyrir á heimilissýningunni í haust. Gunnar var á árum áður húsa- ( vinnuslysi fyrir 15 árum og smiður á Selfossi, en slasaðist starfaði eftirþaðsem húsvörð- ur við Gagnfræðaskólann á Selfossi, en er nú nýfluttur til Reykjavíkur. Gunnar, sem er ekkjumað- ur, er að kaupa íbúð í höfuð- borginni svo „þetta kemur sér mjög vel núna,“ sagði hann. Að sögn Kjartans hefur fólk sýnt getrauninni mikinn áhuga en þátttaka var mikil meðal nýrra áskrifenda á heimilssýn- ingunni, sem voru vel á annað þúsund. Vinningshafinn nú hefur verið áskrifandi að Tímanum og NT í 35 ár, eða frá 25 ára aldri og er því vel að vinningn- um kominn. Hann sagði blaðinu upp í vor er hann flutti til Reyk javík- ur, en gerðist síðan aftur áskrifandi á heimilissýning- unni. Getraunin var með þeim hætti að nýjum áskrifendum að NT gafst kostur á að svara nokkrum léttum spurningum og í gær dró síðan Sigrún Edda Lövdal, starfsmaður NT, úr réttum lausnum. Garðaskóli í Garðabæ: Innbrot og spellvirki ■ Mikil skemmdarverk voru unnin í Garðaskóla í Garðabæ í fyrrinótt og stol- ið þaðan peningum að upp- hæð 11 þúsund krónur. 12 hurðir voru spenntar upp þar inni svo karmar skemmdust, farið var inn á skrifstofur og skemmdar- verk unnin og víða hlutir skemmdir. Talið er að spellvirkinn hafi. farið inn í skólann þegar fundur i stóð þar yfir snemma í gær- kvöldi og látið síðan læsa sig inni. Málið er óupplýst. Að sögn Helga Daníelssonar yfirlögreglu hjá Rannsóknar- lögreglu hafa innbrot í skóla á höfuðborgarsvæðinu færst mjög í vöxt á undanförnum árum. ■V hi:l(.arblai> helgarblaðinu er nóg að gerast að vanda. Einn blaðamanna okkar fór suður að Kaspíahafi á dögunum og ræðir við einn tíræðan suður í Kákasus. Þá er spjallað um skáldkonuna Gertrud Stein, sem hafði opið hús fyrir snillinga Parísar á sínum tíma. Einnig rifjum við upp hvað var að gerast á vígstöðvum úti í heimi fyrir 40 árum, segjum frá tveimur söngleikjum í Reykjavík o.fl. o.fl... mm mm mmm mm i Dópað verð- mæti 2,5 m

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.