NT - 22.01.1985, Side 5

NT - 22.01.1985, Side 5
Vestmannaeyingar viija nýjan banka Þriðjudagur 22. janúar 1984 5 Forsenda þess að eðlilegt viðskiptalíf geti þróast ■ Bjössi bolla, ein af persónum Magnúsar. ■ í nepjunni og garranum síðustu daga er gott að geta tyllt sér á SkjÓiSælUm Stað. NT-mynd: Ámi. ■ „Eins og er er allt fjár- streymi til Reykjavíkur og við teljum að megi minnka það m.a. með því að fá hingað nýjan banka,“ sagði Bragi Ólafsson einn fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins í bæjarstjórn Vestmanna- eyja við NT en hann hefur flutt, ásamt Sigurbjörgu Axelsdóttur, tillögu um að bæjarstjórn Vest- mannaeyja beiti sér fyrir því að annar banki verði starfræktur í Vestmannaeyjum. í greinargerð með tillögunni kemur fram að 12% útflutnings- tekna landsmanna sé aflað í Vestmannaeyjum og það verði að teljast óeðlilegt að bæjar- félagið hafi aðeins einn banka, Útvegsbankann, sem varla virð- ist geta annað sjávarútveginum, hvað þá öðrum atvinnugrein- um, auk Sparisjóðs Vestmanna- eyja. Er því haldið fram að til þess að eðlilegt viðskiptalíf geti þróast í Vestmannaeyjum sé nauðsynlegt að annar banki verði starfræktur þar. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur vísað tillögunni til bæjar- ráðs sem óskað hefur eftir fundi með forsvarsmönnum Útvegs- bankans og Sparisjóðsins um innláns- og útlánsstarfsemi bankans og á grundvelli þeirrar greinargerðar verður málið tek- ið fyrir að nýju í bæjarstjórn, ekki seinna en um miðjan næsta mánuð. Að sögn Braga er hér ekki verið að ráðast á einn eða neinn með því að óska eftir nýjum banka heldur er vonin sú að koma á breiðara og betra at- vinnulífi í Vestmannaeyjum. Eins og málin standa núna fær fólk í nýjum atvinnurekstri ekki nægilega góða fyrirgreiðslu í Vestmannaeyjum þannig að það bindur fjármagn sitt í Reykjavík og fær fyrirgreiðslu þar, meðan eðlilegra væri að það hefði viðskipti við lána- stofnanir sem væru í Vest- mannaeyjum. Magnús með skemmti* dagskrá ■ Þorrablót og árshátíð- ir landsmanna fara í hönd og þá er oft leitað til skemmtikrafta um sprell og gaman. Magnús Ólafsson skemmtikraftur og leikari hefur sett saman skemmti- dagskrá fyrir alla aldurs- hópa með söng, eftir- hermum og gamanmáli og ætti því að geta létt skapið í skammdeginu hjá landanum. Hafnarfjörður: 65 útköll hjá slökkviliðinu ■ Slökkviliðið í Hafnarfirði var kallað 65 sinnum út vegna elds á síðasta ári en alls voru útköll 84 talsins. Árið á undan voru útköll 76, þar af 63 vegna elds. Mestu tjónin urðu er eldur kom upp í hesthúshlöðu við Kaldárselsveg í september og vegna sprengingar er varð þann 4. október við Trönuhraun 7. Flutningar með sjúkrabifreið urðu 1102 á árinu 1984 og eru það 17 færri en árið á undan. 140 þessara útkalla voru bráða- tilfelli, vegna slysa og annarra áfalla. Talsverð brögð hafa verið að því að slökkviliðið hafi verið kvatt til vegna íkveikju í rusli, en það er bannað samkvæmt lögreglusamþykkt að kveikja í rusli og er fólki bent á að fara heldur með úrgang á sorphauga bæjarins. Innbrot og bílveltur Ölvun á Akureyri Frá Halldóri Ásgcirssyni fréttaritara NT á Akureyri: ■ { nógu var að snúast fyrir lögregluna á Akur- eyri um helgina. Brotist var inn í ullarverksmiðj- una Gefjun og þar unnin skemmdarverk. Þá urðu tvær bílveltur, 10 árekstr- ar og tvær ákeyrslur um helgina. Talsvert eignar- tjón varð en engin meiðsl á fólki. Snjór, sem kyngdi niður fyrir helgi, olli hálku á Akureyri og nágranna- bæjum. Brotist var inn í Gefjun á Gleráreyrum aðfaranótt sunnudags og miklar skemmdir unnar, m.a. rúður brotnar á austurhlið hússins svo og útihurð. Víða hafði verið farið um innandyra, millihurðir brotnar upp svo og skjala- skápur ög skúffur rifnar úr skrifborðum. í fljótu bragði virðist sem ekkert fémætt hafi horfið en lög- reglan vinnur að rannsókn málsins. Tvær bílveltur urðu á Ólafsfjarðarvegi, báðar í nánd við bæinn Hof í Arn- arneshreppi. í öðrum bíln- um voru hjón og sluppu bæði ómeidd en bíllinn skemmdist talsvert. í hin- um bílnum var kona með þriggja ára barn og sluppu bæði ómeidd en bíllinn er talinn ónýtur. Þá var ekið á tvo kyrr- stæða bíla á Akureyrarbæ um helgina en í báðum tilvikum forðaði tjónvald- ur sér. Utanríkismálanefnd Framsóknarflokksins: Ráðstefna um öryggismálin á nokkrum mánuðum ■ Símahallæri á höfuð- borgarsvæðinu ætti að fara að heyra sögunni til - að sinni a.m.k. - þar sem Póst- ur og sími hefur unnið að fjölgun símanúmera á hverri stöðinni á fætur ann- arri nú undanfarna mánuði, að sögn Þorvarðar Jónsson- ar verkfræðings. Taldi hann að númerum hefði fjölg- að um fjögur þúsund nú á rúmu hálfu ári. Þorvarður sagði 1.000 númerum hafa verið bætt við í Landssímahúsinu og öðrum 1.000 númerum á Seltjarnarnesi á s.l. sumri. í Hafnarfirði hafi verið bætt við 500 nýjum númerum og 500 númera stækkun sem unnið hefur verið að í Kópa- vogi ætti að vera tilbúin eftir 1-2 vikur. Þá sagði Þor- varður vinnu nú á lokastigi við 1.000 númer í nýju húsi uppi í Árbæ sem ættu að verða tilbúin eftir unt 2-3 vikur. Eitthvað muni þó vanta af línulögnum inn í húsin, þannig að nokkru lengri tími muni líða þar til allir hafa fengið síma frá þessari nýju stöð. Með henni losni svo mörg númer í Breiðholti og frá Múla- stöð, sem þá geti komið til úthlutunar til fólks á þeim svæðum. „Ég tel því að það sé gamall misskilningur að það sé mikil númeravöntun unt þessar mundir,“ sagði Þorvarður. ■ „Öryggismál þjóðarinnar hafa löngum verið deilumál meðal landsmanna og umræður hafa oft einkennst meira af tilfinningahita en rökhyggju. Upplýsingastreymi um þessi mál til almennings hefur oft verið lítið og oft og tíðum áróð- urskennt og úr því þarf að bæta.“ Svo segir í fréttatilkynningu frá utanríkismálanefnd Fram- sóknarflokksins um ráðstefnu sem nefndin boðar til á laugar- daginn undir heitinu „Öryggi Islands og kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum". Þar verða Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra og Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra meðal ræðumanna Ráðstefnan hefst kl. 10.00 á laugardaginn á Hótel Hofi. Þar flytja ræður og ávörp: Guð- mundur G. Þórarinsson, Stein- grímur Hermannsson, Þórarinn Þórarinsson, Þórður Ingvi Guðmundsson, Gunnar Gunn- arsson, Geir Hallgrímsson, Páll Pétursson, Thomas J. Hirschfeld, bandarískur sér- fræðingur um öryggis- og af- vopnunarmál, Annemarie Lor- entzen sendiherra Noregs á ís- landi, Gunnar Axel Dahlström sendiherra Svíþjóðar Martin Is- akson sendiherra Finnlands, og sovéski sendiherrann á íslandi, Evgeniy Kosarev. Fundarstjórar verða Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Ólafur Þ. Þórðarson. 4.000 ný símanúmer á höfuðborgarsvæðinu Eldvarnir í Hafnarfirði: 770 orðsendingar til húsráðenda! ■ Skoðunarmaður eld- varnareftirlitsins í Hafnar- firði fór á 518 staði í Hafnarfirði og gaf út 770 orðsendingar til húsráð- enda um endurbætur vegna eldhættu, en í Garða- kaupstað var farið á 102 staði og gefnar út 173 orðsendingar í sama skyni. Þá voru send bréf til 16 fyrirtækja sem um langan tíma hafa ekki farið að ábendingum eldvarnareft- irlitsins og voru því brot- leg við reglugerðir um brunavarnir og brunamál.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.