NT - 22.01.1985, Blaðsíða 7

NT - 22.01.1985, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 22. janúar 1984 7 Klakhús Veiðifélags Árnesinga að Laugabökkum í Ölfushreppi. Myndir EH. iskerjum, sem sjó er dælt í og fiskurinn fóðraður þar. Jarðhiti er víða Eins og aikunna er, er jarð- hiti mjög víða á Suðurlandi, og góð skilyrði því til fiskeldis. En svo þarf þó ekki að vera, því fleira kemur til en einhver jarðhiti. Það þarf að vera lind- arvatn á staðnum, auk heita vatnsins, helst sjálfrennandi, það er best. Á sínum tíma gerði fiskifræðingur Veiði- málastofnunar athugun á möguleikum til fiskeldis á Suðurlandi. Náði athugunin til um tæplega 60 staða í ll hreppum í Árnes- og Rangár- vallasýslu. Sýndi það sig að víða er aðstaða til fiskeldis á svæðinu, þó að hún sé misjöfn. Þá hefur verið framkvæmd borun eftir heitu vatni gagn- gert til fiskeldis, t.d. í Ölfusi. Og í sambandi við þá stóru laxaseiðaeldisstöð, sem stefnt er að því að byggja í Ölfusi, er gert ráð fyrir að borað verði eftir heitu vatni. Þannig er orkan, sem nota á til fiskeldis sótt djúpt í jörðu. Slíkri fram- kvæmd er unnt að koma við víðar á Suðurlandi, t.d. hefur verið rætt um að bora eftir heitu vatni í Landssveit, Vík í Mýrdal og víðar. Laxeldi í sjó Hér að framan hefur verið gert að umtalsefni fyrst og fremst fiskeldi ! fersku vatni, að undanskildu því sem greint var frá um eldi í sjó á Stokks- eyri, jafnframt því sem vikið var að eldismálum, tengt Þor- lákshöfn. Eldi á laxi í sjó með því að nota sérstakar netkvíar eða dæla sjó í svonefnt strand- kvíaeldi, verður vissulega reynt í auknum mæli hér á landi. Reynslan sem fékkst á Stokkseyri er góður vísir að frekari tilraunum með eldi á laxi í sjó á Suðurlandi. Þá má einnig minna á strandkvíaeldi með silung, sem var í Vest- mannaeyjum fyrir tveimur árum. Vitað er að sjór við Suðurland er hlýrri en víð- asthvar annars staðar við land- ið og því hagstæðari til fiskeld- is. Góðar horfur Ætla má, að í næstu framtíð muni til viðbótar þeim fiskeld- isstöðvum sem þegar eru komnar og þeim sem eru í undirbúningi, rísa ffeiri fisk- eldismannvirki á Suðurlandi, ef vel tekst til með framleiðslu á laxi og silungi og sala á aíurðum kemst í gott horf. Þörfin fyrir töluvert seiðaeldi til fiskræktar á svæðinu er þegar fyrir hendi og verður brýnni á næstu árum, því vissu- lega munu víðáttumikil svæði í ánum, ofan ófiskgengra hindr- ana, verða tekin til ræktunar. Þegar er vitað um 200 hektara svæði, sem henta til ræktunar í þessu skyni og þyrfti að slcppaþarum l milljón sumar- seiða, að því talið er. Þá gera menn sér vonir um góðan markað erlendis á laxi og sil- ungi. Einar Hannesson tognnltfiifeifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar AöstoðarritstjQri Fulltrúar ritstjóra hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Þetta ákvæði um þriggja ára reynslutíma hefur raunar verið haldreipi þeirra sem vilja af- saka þann mikla hraða sem er á þessu máli, en þeir sem engra gróðahagsmuna eiga að gæta hafa bent á það að miklu eðlilegra sé að fara hægt í sakirnar. Þetta sé óvissuspor sem við séum að stíga og miklu vitulegra sé að leyfa einni eða tveim útvarpsstöðvum að reka tilraunaútvarp í tvö ár, án þess að of mikið fé sé lagt í fyrirtæk- ið, staðan sé síðan metin upp á nýtt að þeim tíma liðnum. Það væri ógæfa þessarar þjóðar ef til ristjórnar á áhrifamesta blaði landsins hafa valist menn sem rugla saman þjóðarhag og hagsmunum þeirra sem ætla sér að nýta hið komandi frelsi til þess að ganga af því dauðu. Það er einmitt ástæða til þess að „fjölmiðlarisinn" ís- film fái ekki leyfi til útvarps eða sjónvarpsrekstrar. Það er af hinu góða að einstaklingar fái að spreyta sig við rekstur útvarps og sjónvarps, en það er verra af stað farið en heima setið ef í stað einokunar Ríkis- útvarpsins kemur einokun helstu auðhringa landsins. Morgunblaðsins, Sambandsins og DV. Það er f rauninni sjálfsagt mál að setja það í lög að aðilar sem gefa út dagblöð, aðilar sem stunda umfangsmikinn innflutning og verslunarstarf- semi fái ekki leyfi til þess að reka útvarps-.og sjónvarps- stöðvar. Aðeins þannig kom- um við í veg fyrir hringamynd- un á þessu sviði. Aðeins þannig tryggjum við frelsi einstakling- anna til aðgangs að þessum dýrmæta tjáningarmiðli. Því að frelsið er ekki bara frelsi hins óvirka neytanda til þess að sitja með fjarstýringu heima hjá sér og skipta á milli stöðva, frelsið er ekki síður frelsið til þess að reka útvarps- eða sjón- varpsstöð, til þess að eiga að- ganga að slíkri, án þess að vera ríkur og valdamikill í marga ættliði. Stjórnmálamenn ráða engu Raunar er útvarpslagafrum- varpið dæmi gert fyrir það að stjórnmálamenn ráða engu heldur þröngur hópur fjármálamanna í helstu fyrir- tækjum landsins. Þannig ætla stjórnmálamenn að láta teyma sig til þess að þjóna hagsmun- um gróða punga og braskara í stað þess að þreifa sig hægt áfram og finna út á nokkrum árum hvaða fyrirkomulag hentar okkur best. Þjóð sem stendur frammi fyrir fimm milljón króna við- skiptahalla á næsta ári. Þjóð sem skuldar nú þegar fjörtíu og eitthvað milljarða eríendis hlýtur að geta beint afgangs- fjármunum sínum, milljóna- i tugum, í eitthvað vitlegra en fjöldamargar útvarps og sjón- varpsstöðvar sem munu spila graðhestamúsík og sýna Dallas og Dynasty þætti dag út og dag inn. Við það eykst ekki frelsi nokkurs manns, en frelsi DV og Morgunblaðsins til þess að stjórna viðhorfum þjóðar- innar, frelsi þeirra til að - maka auglýsingakrókinn enn betur, eykst. Baldur Krístjánsson, Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. RiBtj.: Magnús Ólafsson (ábm). Márkaðsstj.: Haukur Haraldsson Auglýsingastj.: Steingrimur Gíslason Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson Tæknistj.: Gunnar Trausti Guðbjörnsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavik. Sími: 686300. Auglýsingasimi: 18300 Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: BlaSaprent h.f. 'BggsmmmMBmmsemBiimaimitmi&Kr' Beðið um kraftaverk ■ I fyrradag hófst formlega annað kjörtímabil Ronalds Reagans sem forseta Bandaríkjanna. Eins og við er að búast, reyna sérfræðingar á sviði alþjóðlegra stjórnmála víða um heim að gera sér grein fyrir líklegri framvindan mála á næstu misserum. í skrifum sérfræðinganna kenn- ir ýmissa grasa, en þó virðast flestir þeirrar skoðunar, að sambúð Bandaríkjanna við Sovét- ríkin komi til með að batna á næstunni, enda virðist margt benda til þess, að Reagan hafi nú í fyrsta sinn fullan hug á að bæta samkomulagið við risann í austri. í grein á bls. 11 í NT í dag, fjallar Þórarinn Þórarinsson, fyrrverandi ritstjóri blaðsins, um líklega þróun næstu missera og segir Þórarinn þar m.a.: „Sitthvað bentir til þess, að Reagan hafi á því fullan vilja, að ná samkomulagi við Sovétríkin, en mörg ljón eru í veginum, þótt Sovétmenn hafi einnig svipaðan áhuga. Bæði í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum eru áhrifamikil öfl, sem hafa vantrú á slíkum samningum. Pá er hér um mjög flókin og tæknileg mál að ræða, sem jafnvel færustu sérfræðingar eiga erfitt með að koma sér saman um. Það heyrir í raun undir kraftaverk að ná samkomulagi um þessi mál.“ Við viljum öll búa í friðsamari heimi og öruggari en við búum nú í. Þurfi kraftaverk, eins og Þórarinn skrifar, til að svo geti orðið, förum við fram á ekkert minna í upphafi þessa nýja valdatímabils Reagans. Sofið á verðinum ■ í viðtali, sem NT átti í gær við Arnar Jensson, nýskipaðan yfirmann fíkniefnalög- reglunnar, kom m.a. fram að sífellt fleiri eiturlyf séu nú komin í umferð á íslandi. Þá hafa nýjar aðferðir einnig borist til landsins og það á sama tíma og verulegt peningaleysi háir embætti fíkniefnalögreglunnar. Því miður erum við hér að tala um mjög alvarlegt vandamál, eins og NT hefur ítrekað lagt mikla áherslu á í úttektum, fréttum og leiðaraskrifum. Það er með öllu óafsakanlegt, að yfirvöld skuli halda fíkniefnaeftirliti í lág- marki meðan nýjar aðferðir og ný efni berast stöðugt til landsins og verða til þess að ný og ný fórnarlömb falla í valinn. Hér hefur of lengi verið sofið á verðinum og kominn er tími til að ráðamenn geri sér grein fyrir að fyrirbyggjandi aðferðir munu reynast hagkerfinu ódýrari en aðgerðarleysi, þegar fram sækja tímar.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.