NT - 22.01.1985, Page 14

NT - 22.01.1985, Page 14
Sjónvarp Þriðjudagur 22. janúar 1984 14 Saga um síðustu „trítla„fjölskylduna, líf hennar ■ í gærmorgun hófst lestur nýrrar sögu í Morgunstund barnanna í útvarpinu og heldur þýöandi sögunnar, Kristín Steinsdóttir, áfram lestri henn- ar í dag kl. 9.05. Sögunni hefur hún gefið nafniö „Trítlarnir á Titringsfjalli" á íslensku, en höfundurinn er þýsk-rússnesk kona, Irina Korschunow að nafni. Um söguna sjálfa vill Kristín hafa sem fæst orð, enda eiga þar margir óvæntir atburðir eftir að líta dagsins Ijós. Sögu- hetjurnar eru agnarlitlar verur, sem búa í fjalli. Þær hafa öll einkenni manna og tala mannamál, en eru harðar á því að þær eru ekki dvergar. Þess- ar verur kallar Kristín „trítla“ og þarna er síðasta trítlafjöl- skyldan komin, tveir trítla- krakkar, pabbi, mamma, amma og frændi. Fjölskyldan lendir í ýmsum raunum, bæði vegna atburða innan fjölskyld- unnar sjálfrar og utan frá, og gengur sagan út á þær uppá- komur allar, sem þjappa fjöl- skyldunni saman. - Erþásagansorgleg, spyrj- um við. „Nei, alls ekki,“ segir Kristín. „En hún kennirokkur ýmislegt. Þessi 6 manna fjöl- skylda stendur fyrir ýmsa þjóð- félagshópa, finnst mér. Mamman er t.d. sívinnandi, alltaf að reyna að gera öllum til geðs og allir ætlast til að hún geri alla hluti, eins og mömmur gera gjarna, meðan frændinn er svo latur að hann nennir ekki að vinna fyrir mat. Það er ýmislegt sem mér finnst höf- undurinn vera að reyna að undirstrika íþjóðfélaginu. Það koma upp á ýmsar uppákomur og raunir ■ Kristín Steinsdóttir var bú- sett í Þýskalandi í mörg ár. Nú situr hún við að þýða sína þriðju sögu fyrir útvarpið. í sögunni sem gera þetta mjög ævintýralegt og spennandi að mínu áliti,“ segir Kristín. Höfundur sögunnar, Irina Korschunow, er af þýsk-rúss- neskri fjölskytdu og býr í Múnchen. Hún hefur skrifað mikið fyrir útvarp og sjónvarp í heimalandi sínu og hlotið mörg verðlaun fyrir barna- og unglingabækur sínar. Kristín Steinsdóttir er þýsku- kennari við fjölbrautaskól- ann á Akranesi, en í fyrra kenndi hún líka við barnaskóla og þá las hún þessa sögu fyrir nemendur sína, 7 ára gamla. Kvað hún þá hafa haft mjög gaman af, og er þá engin ástæða til að halda að aðrir jafnaldrar þeirra hafi ekki sömu skoðun. ■ Derrick kann að taia við konur. Þær treysta honum og segja honum ailt. Hér sjáum við Horst Tappert sem Derrick og Evu Rieck í Derrick-þætti í íslenska sjónvarpinu 1983. Sjónvarp kl. 21.15: 128 Derrick-þættir hafa verið sýndir víða um heim á 12 árum ■ Nú kemur 2. þátturinn um Derrick í þessari sextán þátta syrpu. Hann heitir „Unt nótt í ókunnu húsi“ og í aðalhlut- verkunt eru auðvitað þeir Horst Tappert sem Derrick og Fritz Wepper í hlutverki Kleins. Þýðandi er Veturliði Guðnason. DERRICK-þátturinn hcfst kl. 21.15 og stendur í réttan klukkutíma. Sjónvarpsþættirnir um Derrick hafa hlotið miklar vin- sældir hér á landi sem annars staðar. Blaðamaður NT náði síma- sambandi við leikarann Horst Tappert á fimmtudag sl. og birtist viðtal við leikarann í föstudagsblaðinu. Tappert var staddur í Sviss þegar Egill Helgason blaða- maður NT náði tali af honum. Þar er Tappert nú að leika á sviði, en hann segist skipta starfsárinu hjá sér á milli leik- hússins og sjónvarpsupptöku í Múnchen, þar sem Derrick- þættirnir eru myndaðir. Horst Tappert sagði að sér hefði boðist að heimsækja ís- land í október á sl. ári. en ekki getað það sökum anna. Hann vonaðist samt til að geta látið verða af því áður en langt um liði að heimsækja landið. Tappert var mjög viðræðugóð- ur í símanum og var rætt um hina margvíslegustu hluti, frá leikhússtarfi til veðurfars, bæði eins og það er nú í Mið-Evrópu pg þá ekki síður um veðrið á íslandi, - og óskaði leikarinn okkur íslendingum til ham- ingju með góða veðrið! Utvarp kl. 9.05: ■ Tæknimenn við upptöku á framhaldsleikritinu Landið gullna Elidor voru þau Áslaug Sturlaugsdóttir og Vigfús Ing- varsson. Lengst til hægri er leikstjórinn Hallmar Sigurðs- n (NT-mynd Árni Bjarna) 2. þáttur framhaldsleikritsins Hvað leynist á ókunnu strönd- í kastalarústunum? inniog ■ í kvöld kl. 20verðurfluttur í útvarpi annar þáttur fram- haldsleikritsins „Landið gullna Elidor“ eftir Alan Garner í útvarpsleikgerð Maj Samze- lius. Þessi þáttur heitir Leyni- dyrnar. Sverrir Hólmarsson þýddi leikritið en Lárus Gríms- son samdi tónlistina. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson. í fyrsta þætti voru þau Róland, Davíð, Nikki og Hel- ena að leika sér að því að finna götur á stóru korti af borginni Manchester, þar sem þau eiga hcima. Ein gatan heitir því undarlega nafni Fimmtudags- gata. Krakkarnir halda af stað til að leita að henni og finna hana loks í skuggalegu hverfi í borginni. í Ijós kemur að búið er að rífa öll húsin við götuna, nema hrörlega kirkju, sem stendur þar auð og yfirgefin. Á meðan krakkarnir dvelja á staðnum heyra þau leikið á fiðlu í grenndinni en fiðlu- leikarinn er hvergi sjáanlegur. Helena hendir boltanum sín- um óvart inn um glugga í kirkjunni og fer að leita að honum en kemur ekki aftur. Þegar drengirnir fara að skyggnast um eftir henni, verða þeir viðskila. Róland rekst á hinn dularfulla fiðlara sem biður hann að opna fyrir sig dyr á einum veggnum. Allt í einu er Róland staddur á ókunnri strönd og sér dökkar kastalarústir bera við himin uppi á háum kletti. Leikendur í 2. þætti eru: Viðar Eggertsson, Emil Gunn- arsson, Kristján Franklín Magnús, Kjartan Bjargmunds- son, Sólveig Pálsdóttir og Ró- bert Arnfinnsson. Þriðjudagur 22. janúar 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdi- mars Gunnarssonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöur- fregnir. Morgunorö - Eggert G. Þorsteinsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: , „Trítlarnir á Titringsfjalli“ eftir Irina Korschunow. Kristin Steins- dóttir les þýöingu sina (2). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. i Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Man ég það sem löngu leið“ Ragnheiöur Viggósdóttir sér um þáttinn. 11.15 Við Pollinn Umsjón: Ingimar Eydal. (RÚVAK). 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.20 Barnagaman Umsjón: Sigrún . Jóna Kristjánsdóttir. 13.30 Spænsk, frönsk og grisk lög sungin og leikin. 14.00 „Þættir af kristniboðum um víða veröld“ eftir Clarence Hall Blóö pislanrottanna - útsæöi kirkj- unnar. Pislan/ottar I Ecuador. (Annar hluti). Ástráöur Sigur- steindórsson les þýöingu sina (15). 14.30 Miðdegistónleikar Kammer- sveit Jean-Pierre Paillards leikur Brandenborgarkonsert nr. 2 i F- dúr eftir Johann Sebastian Bach. 14.45 Upptaktur - Guðmundur Benediktsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Sinfónía nr. 2 eftir Vaughan-Williams. Sinfón- iuhljómsveit Lundúna leikur; André Previn stj. 17.10 Siðdegisútvarp-18.00 Fréttir á ensku. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Siguröur G. Tóm- asson flytur þáttinn. 20.00 Barna- og unglingaleikrit: „Landið gullna Elidor" eftir Alan Garner 2. þáttur: Leynidyrnar. Út- varpsleikgerð: Maj Samzelius. Þýöandi: Sverrir Hólmarsson. Leikstjóri: Hallmar Sigurösson. Tónlist: Lárus Grímsson. Eyjólfur Bj. Alfreðsson leikur á víólu. Leikendur: Viðar Eggertsson, Emil Gunnar Guömundsson, Róbert Arnfinnsson, Kristján Franklín Magnús, Kjartan Bjargmundsson og Sólveig Pálsdóttir. 20.40 Forvígismaður i orði og verki Minnst Jónasar Þorbergssonar út- varpsstjóra á aldarafmæli hans. Baldur Pálmason tók saman dagskrána, þar sem borið er niöur í útvarpsávörpum Jónasar og við- tölum viö hann. Einnig lesiö úr ritum hans og minningarorðum, sem birtust aö honum látnum. Lesarar meö Baldri: Jón Þórarins- son og Þorsteinn Hannesson. 21.35 Utvarpssagan: „Morgun- verður meistaranna" eftir Kurt Vonnegut Þýðinguna geröi Birgir Svan Símonarson. Gísli Rúnar Jónsson flytur (5). 22.00 Tónlist 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Frá tónleikum Tónlistarfé- lagsins í Austurbæjarbiói 5. janú- ar sl. Edda Erlendsdóttir leikur pianóverk eftir Felix Mendelssohn, Robert Schumann, Claude De- bussy og Frédéric Chopin. Kynnir: Knútur R. Magnússon. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. én Þriðjudagur 22. janúar 10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn- andi: Páll Þorsteinsson. Þriðjudagur 22. janúar 19.25 Sú kemur tíð Níundi þáttur. Franskur teiknimyndaflokkur i þrettán þáttum um geimferða- ævintýri. Þýöandi og sögumaður Guöni Kolbeinsson. Lesari meö honum Lilja Bergsteinsdóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 14:00-15:00 Vagg og velta. Stjórn- andi: Gísli Sveinn Loftsson. 15:00-16:00 Með sínu lagi. Lög leikin af íslenskum hljómplötum. Stjórn- andi: Svavar Gests. 16:00-17:00 Þjóðlagaþáttur. Stjórn- andi: Kristján Sigurjónsson 17:00-18:00 Frístund. Stjórnandi: Eövarð Ingólfsson. 20.35 Heilsað upp á fólk. 6. Þórunn Eiríksdóttir. Ingvi Hrafn Jónsson spjallar viö Þórunni Eiriksdóttur, húsfreyju á Kaðalstöðum II í Staf- holtstungum i Borgarfiröi. 21.15 Derrick 2. Um nótt í ókunnu húsi. Þýskur sakamálamynda- flokkur í sextán þáttum. Aðalhlut- verk: Horst Tappert og Fritz Wepper. Þýöandi Veturliði Guðna- son. 22.15 Kastljós Þáttur um erlend mál- efni. Umsjónarmaöur Einar Sig- urösson. 22.50 Fréttlr í dagskrárlok.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.