NT - 22.01.1985, Síða 19

NT - 22.01.1985, Síða 19
1 Þridjudagur 22. janúar 1984 19 L lL Útlönd Frakkland: Fjölmiðlabylting Frakka kæfð í einokun einkaaðila? ■ Franskur fjölmiðlafursti, Robert Hersant, sagðist í gær hafa lagt grunn að nýju sjón- varpssendinganeti sem yrði tekið í notkun eftir frönsku þingkosningarnar á næsta ári. Hann tilkynnti á forsíðu hins íhaldssama dagblaðs, Le Fi- garo sem hann á sjálfur, „lagður hefur verið grunnur að sjónvarpssendinganeti sem mun ná til allrar Evrópu og mun sýna 18 tíma á sólar- hring“. í tilkynningunni kom fram að evrópskir og bandarískir aðilar myndu standa saman að þessu nýja sendinganeti. I meðfylgjandi athugasemd- um með yfirlýsingu Hersants kom fram að íhaldsmenn von- ast til að hægrisveifla verði í þingkosningunum og að hægri- flokkar muni fá meirihluta. Ef svo verður vonast hægrimenn til þess að ný lög verði sett sem bindi enda á einkaleyfi ríkisins til útsendinga. Einokandi einkaaðilar Hersant sem ræður yfir stór- um hluta íhaldssamra blaða í Frakklandi, náði nýlega undir sig fjölda staðbundinna út- varpsstöðva í einkaeign. Ríkisstjórn sósíalista reyndi eftir lögformlegum leiðum að ráðast gegn einokunarveldi Hersants, en sú atlaga rann út í sandinn. Margir óttast nú að heilaþvottareinveldi fjölmiðla- furstans muni margfaldast og ný lög verði sett af nýrri hægri- stjórn eftir þingkosningarnar, enda er fylgi sósíalista í algeru lágmarki um þessar mundir. Ríkisstjórn sósíalista virðist hafa komist að þeirri niður- stöðu að vegna tækniþróunar sé óhjákvæmilegt annað en að afnema einkaleyfi ríkisvaldsins á sviði útvarps og sjónvarps. Við útbreiðslu kapal- og gerfi- hnattatækni verði ekki spornað. Auknar líkur á að leyfi til reksturs einkastöðva verði verulega rýmkuð, hefur leitt til harðrar samkeppni milli fjöl- miðlafyrirtækja, stjórnmála- samtaka og auglýsenda um út- sendingatíma. Francois Mitterand sagði að ríkisstjórnin hefði það hlut- verk að koma reglu á þessa upplausn en sagði „vanda- málið er hver er að koma skipulagi á þetta frelsi". Stjórnin vonaðist til að lausn á deilunum um einkaleyfi ríkis- valdsins á útsendingum fengist með lögum sem sett voru 1982, en þau lög leyfðu takmarkaðan fjölda af einkastöðvum. Síðan 1982 hafa orðið miklar tækniframfarir á þessu sviði og gerfihnattasendingar ná yfir mörg lönd svo stjórnvöld í einstökum löndum eiga erfið- ara með að hafa afskipti af útsendingum. Fjólmiðlastefna sósíalista Laurent Fabius, for- sætisráðherra, hefur fengið það verkefni að kanna mögu- leikana á fjölgun staðbundinna einkastöðva. Niðurstöðu er ekki að vænta í bráð en ríkis- stjórnin hefur skýrt tekið fram að mið verði ekki tekið af „ítölsku fyrirmyndinni". Sam- kvæmt henni eru hundruð stöðva leyfðar og þær geta sýnt. hvaða myndir sem er hvenær sem er. Franskir sjónvarpsnotendur hafa í dag val milli þriggja ríkisrekinna sjónvarpsstöðva auk nýrrar opinberrar afnota- gjaldsstöðvar. Frakkar munu skjóta á loft fyrri sjónvarpsgerfihnetti sín- um í júlí n.k. Umsóknir um útsendingatíma hlaðast upp þessa dagana. Reuter o.fl. El Salvador: Almenningurvillað friður verði saminn San Salvador-Reuter ■ Unt finim þúsund rnanns tóku þátt í mótmælaaðgerðum í E1 Salvador nú fyrir síðustu helgi til að krefjast þess að samningaviðræðum milli stjórn- arinnar og vinstrisinnaðra skæruliða verði haldið áfram. Mótmælendurnir kröfðust þess líka að ríkisstjórnin hæfi aðgerðir til að draga úr verð- bólgu, sem er nú urn 35% á ári, og legði af skattlagningu á sam- vinnufélög í landbúnaði. Meirihluti þátttakenda í mót- ntælaaðgerðunum voru félagar í verkalýðs- og bændasamtökum sern studdu Jose Napoleon Du- arte í forsetakosningunum í maí á síöasta ári en þá sigraði Duar- te rnjög hægrisinnaðan and- stæðing Roberto D'Abuisson. í fyrradag hófst líka formlega kosningaundirbúningur vegna þingkosninga og bæjarstjóra- kosninga sent eiga að fara fram í EI Salvador þann 17. mars næstkomandi. Sem stendur hafa ýmsir hægriflokkar meirihluta í löggjafarsamkundunni í El Salvador. Vinstrisinnar í E1 Salvador hafa hvatt fólk til að kjósa ekki í kosningunum. Borgarskæruliðar handteknir á Spáni Madrid-Reuter ■ Spænska lögreglan handtók 18 borgarskæruliða í GRAPO- samtökunum nú um síðustu helgi. Þessi hópur var stofnaður árið 1975 og hefur síðan lýst ábyrgð á hendur sér vegna fjölda sprengjutilræða og morða. Að- gerðir lögreglunnar gegn hópn- um náðu til sjö borga og lögregl- an gerði miklar vopnabyrgðir upptækar í sextán húsum sem skæruiiðarnir höfðu notað. GRAPO-hópurinn framdi fyrsta morð sitt 1. október 1975 og af því dró hann nafnið „1. október-andstöðuhópar andfas- ista“. Að sögn lögreglunnar voru fjórir af hæst settu leiðtog- unt samtakanna í hópi hinna handteknu. Reagan sver embættiseið ■ Ronald Reagan sór embætfiseið sinn í gær og sýnir ntyndin frá athöfn- inni forsetann, Nancy konu hans, og forseta hæstaréttar Bandaríkj- anna, Warren E. Burger. Við þetta tækifæri hélt Reagan mjög hefðbundna eiðræðu þar sem hann sagði m.a. að Bandaríkin væru land guðs og tæki- færanna; að vandainál fá- tækra og aldraðra væru best leyst af elskandi ætt- ingjum en umsvif hins opinbera ættu að vera í lágmarki og loks sagði hann að besta leiðin til að útrýma kjarnorkuvopnum af yfirborði jarðar væri að byggja upp öflugt varnar- kerfi í geintnum gegn eld- flaugum óvinanna. Símamynd-POLFOTO Loftmengun mæðir Vestur-Þjóðverja Kyrrt veður í iðnaðarhéruð- um Ruhr í Vestur-Þýskalandi í lok seinustu viku og nú um helgina leiddi til mikilla loft- mengunar. Yfirvöld í austurhluta Ruhr- héraðs gripu til þess ráðs að banna bílaumferð að mestu leyti í sjö borgum og mörg iðnfyrir- tæki urðu að stöðva framleiðslu sína til að draga úr menguninni. Sums staðar var skólum líka lokað. Flokkur umhverfis- verndarmanna í Þýskalandi hef- ur ásakað stjórnvöld um að- gerðarleysi í mengunarmálum og er búist við að þessi mikla mengun í síðustu viku auki enn frekar fylgi þeirra og að þeir styrki stöðu sína í kosningum sem verða í Nordrhein West- falen í maí en þar búa 17 milljónir manna. ■ Loftmengunin í sumum þýskum borgum í Ruhr varð svo mikil nú í síðustu viku að það varð að aflýsa skólum. Hér hefur skilti með áletrunjnni „MENGUNARSKÝ! Skóla aflýst“ verið sett á biðstöð skólavagns í Duisburg. Símamynd-POLFOTO Bandaríkin: Loftvarnabyssur not- aðar við forsetagæslu Washington-Reuter ■ Bandarískir lögreglu- menn og leyniþjónustumenn gripu til mikilla öryggisráð- stafana til að gæta Reagans Bandaríkjaforseta þegar hann tók formlega við emb- ætti á öðru kjörtímabili sínu. Meðal annars voru örygg- isverðir vopnaðir loftvarna- byssum uppi á þaki. Öryggisráðstafanir hafa alltaf verið miklar við slík tækifæri en þó aldrei meiri en nú. Embættismenn segja hinar miklu öryggisráðstaf- anir-stafa m.a. af því hvað hryðjuverkum hefur fjölgað á undanförnum árum. Mörg þúsund lögreglu- menn tóku þátt í því að gæta forsetans og það var haft eftir ónefndum leyniþjón- ustumanni að enginn hefði getað genngið út á svalir eða opnað glugga við vegina sem forsetinn fór um án þess að vera hafður í sigti hjá skytt- um forsetans. Sjálfur ók Regan 1,6 km leið frá Capitolhæð til stjórn- arhallarinnar í skotheldum lúxusbíl. Á leiðinni veifaði forsetinn til mannfjöldans í gegnum 2,5 cm þykkt skot- helt gler. Auk hefðbundinna tækja, sprengjuleitartækja, skot- vopna, varðhunda, sjón- auka, talstöðva og þyrlna, voru nú einnig notaðar loft- varnabyssur fyrir Stinger- tlugskeyti sem verðir mund- uðu upp á þökum til vonar og vara ef hryðjuverkamenn skyldu reyna að ráðast á for- setann úr lofti. Þrátt fyrir allan þennan viðbúnað þurftu þessir varð- menn forsetans samt ekki að grípa til skotvopna þar sem allt for mjög friðsamlega fram.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.