NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 22.01.1985, Qupperneq 20

NT - 22.01.1985, Qupperneq 20
Þriðjudagur 22. janúar 1984 20 Verða fornar risa- eðlur endurskapaðar? ■ Þótt teiknari þcssarar myndar sýni litla menn vopn- aða spjóti læðast framhjá dín- osár er víst alveg öruggt að engin mannleg augu sáu þessa risa fornaldar þegar þeir ríktu á jörðinni í grárri forneskju. En nú hugleiða vísindamcnn möguleika á því að endurskapa útdauð dýr einhvern tímann í framtíðinni. Kannski afkom- endur okkar eigi eftir að sjá lifandi dínosára og önnur út- dauð dýr? London-Keuter ■ Breskir vísindaincnn telja að það sé alls ekki útilokað að dag nokkurn verði hægt að endurskapa lifandi risaeðlur aft- an úr grárri forneskju. Dr. Michael Denton heldur því fram að hugsanlega verði hægt að nota prótein í beinum dinosára og annarra útdauðra dýra til að endurskapa alla erfða- eiginleika þeirra og endurskapa lifandi dýr sem verði eftirmynd hinna upphaflegu. Dr. Denton segir að það sé hægt að greina alla grunvallarerfðaþætti út frá próteini sem finnist í beinunum. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifaði í nýjasta hefti tímaritsins The New Scientist (Nýi vísindamaðurinn) sem er gefið út í Bretlandi. Dr. Denton er fyrirlesari við Drottningarhá- skólann (Queen’s University) í Belfast. Hann leggur samt áherslu á það í grein sinni að þetta séu eingöngu vangaveltur enn sem komið sé og að vísindamenn eigi enn langt í land með að framkvæma þessar hugmyndir. ■ Ljónið, konungur dýranna, skelfir önnur dýr svo mikið að lyktin af Ijónaskít er sögð duga til að fæla grasætur frá túnum bænda. Kannski girðingar verði óþarfar í framtíðinni. Ljónaskítur í stað girðinga London-Reuter ■ Breskur lávarður gerir nú tilraunir með að nota Ijóna-og tígrísdýraskít til að fæla dádýr frá landareign sinni í Skotlandi. Um tíma leit út fyrir að hann væri að verða uppiskroppa með skít en nú hafa forsvarsmenn dýragarða á Skotlandi og í Englandi lofað honum nægum birgðum til að hann geti haldið áfram tilraunum sínum. Ljónaskítur hefur einnig verið notaður í ísrael til að halda gasellum frá ræktuðu landi. Burton lávarður telur að hann ætti ekki síður að duga til að halda grasætum frá landareign sinni Drochfour í Inverness á Skotlandi. Þegar Burton lávarður sá fram á að hann væri að verða uppiskorppa með Ijónaskít til tilraunanna ræddi hann við forsvarsmenn dýragarða á ýmsum stöðum. Edinborgar- og Basildon-dýragarðarnir á Skotlandi hafa þegar lofað að senda reglulega ljónaskít til lávarðarins þótt Ijónin í þessum dýragörðum gefi ekki af sér nema fáeinar fötur af skít á dag. Milljónamæringur- inn John Aspinall, sem á tvo dýragarða í Englandi, segist einnig geta sent Burton lávarði nóg af tígrísdýraskít frá þeim 35 tígrísdýrum sem hann á. Hollendingar kynnast alvöru vetrarhörkum ■ Mikill kuidi hefur verið hér í Hollandi upp á síðkastið, eins og annarsstaðar í Evrópu, og hefur mikill snjór haldist óvenjulengi. Þó er ekki lengra en 22 ár síðan síðast var svo harður vetur sem nú, eða 1963. Frostið náði -24°C að deginum þegar kaldast var fyrir nokkrum dögum. Snjórinn hefur sett svip sinn á umferð liðinna daga en þó hefur hreinsun og söltun vega gengið tiltölulega fljótt fyrir sig. Þó nokkuð hefur verið um árekstra vegna færðarinnar en engin slys hafa orðið á mönnum. Ohemju fé hefur farið í hreinsun og saltaustur um allt land sem hefur farið langt fram úr áætlunum. Margir vegir eru mjög illa farnir vegna veðursins. Það kemur m.a. til af því hve lítið sumum vegum hefur verið haldið við síðustu árin. Það sem var sparað á viðhaldi síðustu árin, mun því hverfa margfalt í lagfæringar og viðgerðir með vorinu. Lestarsamgöngur riðluðust mikið vegna kuldans, mikið var um seinkanir og sumar leiðir féllu niður um tíma. Ástæðan var sú að skiptiteinar frusu fastir. Um 200 lestir, þ.e. 5% af öllum lestum Hollend- inga, biluðu vegna kuldans/él- arnar gáfust hreinlega upp. Margir farþegar kvörtuðu yfir kulda í vögnunum en þeim var sagt að ekki væri hægt að búa lestarnar fyrir veðráttu sem aðeins kæmi fyrir á 20 ára fresti. Það yrði að miða útbún- aðinn við meðalaðstæður. Lestarfarþegum fjölgaði samt mjög mikið, vegna lélegrar færðar fyrir bílaumferð. Síki og ár lagði í frostinu, svo og Ijssel-haf í Norður- Hollandi. Skip sem áttu erindi inn á hafið þurftu aðstoð ís- brjóta til að komast leiðar sinnar með olíu og aðrar nauðsynjar. Börnin hafa reyndar verið yfir sig glöð vegna kuldanna sem hafa gert þeim kleift að komast á skauta. Er þetta í fyrsta skipti sem mörg þeirra fá tækifæri til þess þar sem hollensku síkin eru svo sölt að það þarf töluvert frost til að þau leggi. Mikið saltmagn í síkjum og ám stafar m.a. af því að Frakkar dæla miklu af salti út í ár hjá sér sem síðan renna til Hollands. Hafa Hollendingar nú fengið Frakka til að sam- þykkja að minnka þetta salt- magn nokkuð. Vonir standa nú til að hægt verði að halda Elfstedentocht, sem er 200 km langt skauta- hlaup eftir síkjum á Fríslandi í Norður-Hollandi. Fríslending- ;,l-i \\\ ';i; *f H', * þar sem síkin hefur ekki lagt að neinu marki á öllum þeim tíma. Þess vegna hafa Hollend- ingar neyðst til að flytja skauta- hlaup þetta til Finnlands þar sem þeir hafa þreytt það á finnsku vötnunum. Þýða í gær og í dag hefur samt aftur sett strik í reikninginn þannig að menn eru ekki alveg vissir um það hvort hlaupið geti' orðið í þessari viku. En veður- fræðingar spá því að það kólni aftur eftir nokkra daga og þýðan nú hefur ekki hækkað hitastigið nema rétt upp í frost- mark svo að margir telja að hlaupið getí orðið um næstu helgi. Verði úr hlaupinu má búast við því að um 16.000 manns taki þátt í því. Vegna kuldanna að undan- förnu jókst gas- og rafmagns-- notkun Hollendinga mjög mik- ið og á það að öllum líkindum eftir að koma illa við pyngju manna. Sumt eldra fólk reynir samt að kynda lítið til að spara. En það hefur haft alvar- legar afleiðingar fyrir heilsu þess. Þann 8. janúar lést t.d. 85 ára gömul kona á heimili sínu vegna ofkælingar. Hún var að reyna að koma í veg fyrir að reikningarnir hækk- uðu. Grænmetisverð hækkaði upp úr öllu valdi vegna kuldans Fríslending- ar taka aftur upp 200 km skautahlaup og þá aðallega á hinu svonefnda vetrargrænmeti eins og t.d. rósakáli og púrru. Grænmetið fraus á engjunum og það tókst ekki að bjarga nema litlum hluta uppskerunnar. Fannfergi var svo mikið á tímabili að nokkrir smábæir einangruðust þar sem ökuleið- ir til þeirra urðu ófærar, enda eru ökutæki Hollendinga mjög illa búin undir akstur í snjó. Hér þekkjast engin snjódekk og því síður snjókeðjur. Fjöldi fugla hefur yfirgefið búsvæði sín í Hollandi og leit- að ýmist suður á bóginn eða til Bretlands. Eru það að stærst- um hluta villigæsir og aðrir sundfuglar sem haldið hafa til m.a. á Ijssel-hafi sem nú er ísi lagt. Hundruð fugla sem venjulega halda til í mýrlendi í Hollandi á veturna hafa einnig flúið á brott. Veðurfarið hefur verið mjög svipað í nágrannalöndunum. Lestarsamgöngur féllu alveg niður um tíma í Belgíu og einn daginn varð að stöðva salt- dreifingu vegna frostsins. Eins og fyrr segir hefur nú aftur hlýnað nokkuð og fer hitastigið upp í tvö til þrjú stig á daginn en á nóttunni er allt að sjö stiga frost ennþá og veður- fræðingar spá því að það geti aftur farið að kólna eftir nokkra daga. ■ Börn á meginlandi Evrópu kunnu vel að meta vetrarveðrið að undanförnu þótt fullorðnum þætti nóg um kuldana og fannfergið. ar segja ævagamla hefð fyrir ellefu borgir. En nú hefurekki þessu hlaupi, sem tengir saman verið hægt að halda það í 22 ár Reynir Þór Finnbogason fréttaritari NT í Hollandi:

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.