NT - 02.02.1985, Blaðsíða 2

NT - 02.02.1985, Blaðsíða 2
 fff? Laugardagur 2. febrúar 1985 2 LlK Fréttir Fölsuðu pappíra fyrir innflutningi 100 bíla: Mótorskip undir smásjá heilt ár Hafa haft hundruð þúsunda upp úr krafsinu ■ Lögreglan lét í gær til skarar skríöa gegn inntlutningsfyrir- tækinu Mótorskip sem síöan 1982 hefur flutt tugi ef ekki nær 100 bifreiðir inn á fölsuðum nótura. Með því hefur fyrirtæk- ið svikið undan innflutnings- gjöld sem heimildir NT teíja nema fleiri hundruðum þús- unda. Fyrirtækið hefur verið undir smásjá opinberra aðila í að minnsta kosti ár. Framkvæmdastjóri Mótor- skips hf. var í fyrradag úr- skurðaður í vikulangt gæslu- varðhald en auk hans eru það þrír aðrir sem hafa haft lifibrauð sitt af þessu. Mennirnir ráku áður bílasölu í Síðumúlanum en fóru út í þennan bílainnflutn- ing árið 1982. Þeir keyptu nýjar bifreiðir, rnest Toyota, af ýms- um bílasölum í Þýskalandi, á fullu verði. Síðan voru falsaðar nótur sem bæði sýndu lægra kaupverð bílanna og að þeir væru eldri. Við innflutning lækkuðu öll aðflutningsgjöld vegna þessa verulega og síðan seldi fyrirtækið bílana á aðeins 15 til 20 þúsund krónum minna heldur cn Toyota um- boðið gerði á sama tíma. Við húsrannsókn fann Rann- sóknarlögreglan pappíra sem taldir eru sýna meinta fölsun og brot á tollalögum. Talið er að viðskiptaaðilar Mótorskips í Pýskalandi séu samsekir í pappírafölsuninni en þúsundir aðila þar selja nýjar Toyota bif- reiðir. Um árs skeið hafa tollayfir- völd og Bifreiðaeftirlit haft ákveðnar grunsemdir varðandi innflutning Mótorskips. Þannig þurfti hver sá einstaklingur sem keypti bíl hjá Mótorskip að fá vottorð hjá réttum innflutnings- aðila viðkomandi tegundar um það hvaða árgerð hún tilheyrði áður en Bifreiðaeftirlitið skráði bílinn. Sömuleiðis hafa tollayf- irvöld notað skrá frá Toyota- umboðinu til þess að skera úr um aldur bifreiða Motorskips í stað þess að treysta pappírum þeirra sjálfra. Þannig hefur tek- ist að nokkru að koma í veg fyrir svik. Ríkisendurskoðun hefur svo haft þetta mál til skoðunar um nokkurn tíma og kærði það fyrir skemmstu til ríkissaksóknara sem síðan sendi Rannsóknar- lögreglu málið. Hón lét svo til skarar skríða með húsleit og handtöku. Yfirheyrslur stóðu yfir í gær og sagði Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlög- reglustjóri í samtali við NT að yfirheyra þyrfti marga menn vegna þessa máls. ChetBakeráíslandi ■ Einn fremsti jazzsöngvari og trompetleikari heims, Chet Baker, kom til landsins í gær og mun koma fram í Gamla Bíói í dag klukkan 15:00. „Það er álíka kalt og það var en ég hef þrjátíu árum meiri reynslu,“ sagði Baker þegar koma hans til íslands 1955 bar á góma í samtali við blaðamann NT við komuna til Reykjavíkur í gær. Með honum á myndinni eru Kristján Magnússon, píanóleikari og Sveinn Óli Jónsson, trommuleikari. NT-mynd: Kóbert „Græddur er geymdur eyrir“: Um 2.655.000.000 kr. af sparifé okkar „glataðist“ árið 1983 ■ Þótt 3.380 milljóna króna nýr sparnaður liafi verið lagður inn í bankana á árinu 1983 (iim 14.000 kr. á hvern íslending að meöaltali) hækkaði raunveru- legur höfuðstóll heildarinnlána bankanna aðeins um 725 millj. Var boðið mjólkur- glas en stal veski ■ Ungur drengur stal veski frá konu í Reykjavík þar sem hann sat á heimili hennar og beið veitinga. Atvikið var með þeim hætti að sá litli bankaði upp á og bauð barnaefni á segulbandsspólu til kaups. Konan tók erindi hans vel og bauð honumjnn úr kuldanum að fá mjólkurglas og kökusneiö. En meðan konan gekk frá til þess að færa drengnum vcitingarnar stakk hann á sig peningavcski og hljóp á brott. Hefur síðan ekkert til hans spurst. Hinar 2.655 milljónirnar fóru í „glatkistuna“, eins og Bjarni Bragi Jónsson, aðst. seðla- hankastjóri orðar það í grein sem birtist í blaðinu í dag. Þessar 2.655.000.000 krónur sem íslenskir sparifjáreigendur „glötuðu“ í bönkunum hafa því þeir, sem peningana fengu að láni, fengið í „meögjöf“ með skuldumim sínum. (Til saman- hurðar má geta þess að heildar- útlán Byggingarsjóðs ríkisins 1983 námu 696 millj. þannig að „glatkistan" hefur t.d. Iiirt nær fjórfalda þá uppliæð. Heildurinnlán í bankakerfinu í ársbyrjun 1983 námu 10.643 millj. króna. Meðalávöxtun þcssa fjár segir Bjarni Bragi metna 48,4% yfir árið, eða 5.147 millj. króna, þannig að óbreyttur höfuðstóll hefði orðið 15.781 millj m. vöxtum. Láns- kjaravísitalan hækkaði hinsveg- ar um 73,4% þetta ár, þannig að höfuðstóllinn hefði þurft að verða 18.439 millj. í árslok til þess einungis að halda vcrðgildi sínu frá upphafi til loka ársins. Með 3.383 millj. króna nýjum sparnaði á árinu hækkaði höfuð- stóllinn í 19.164 millj. Verðgildi hans jókst því aðeins um 725 millj., sem fvrr segir, en 2.655 millj. fóru í „gatið" sem varð ntilli „ávöxtunar" bankanna og hækkunar lánskjaravísitölunn- ar,sent verðgildið er mælt með. í fyrra fóru „aðeins" 460 millj. í „glatkistuna“. Heildar- innlán námu þá 19.164 í upphafi ársins, sern fyrr segir. Ávöxtun þeirra í bönkunum telur Bjarni Bragi hafa verið um 16,5%, eða 3.162 milij. á árinu, og óbreytt- an höfuðstól í árslok því 22.326 millj meó vöxtum. Hækkun lánskjaravísitölunnar var 18,9% svo að fullverðtryggður hefði höfuðstóllinn átt að vera 22.786 milljónir. Þarna þurfti því „aðeins" 460 millj. kr. í „gatið". Nýr sparnaður í fyrra varð því að stórum hluta til hækkunar á sameiginlegum höfuðstól sparifjáreigenda í landinu, sem kominn var í 25.681 milljón krónaumsíðustu áramót. Stokkseyrarhöfn: Brotsjór lagði 47 tonna bát á hliðina í gær ■ Áhöfnin á Hásteini frá Stokkseyri var hætt komin þeg- ar gekk yfir bátinn í innsigling- unni í Stokkseyrarhöfn í gær- kvöld og báturinn lagðist á hlið- ina. Við þetta bar bátinn af leið og tók niðri á leið inn í höfn en slapp án frekari áfalla. Skemmdir urðu á bátnum. „Það mátti sáralitlu muna,“ sagði Henning Friðriksson skip- stjóri Hásteins þegar NT ræddi við hann nýkominn í land. Sagði Henning að gefið hefði yfir bátinn fjórum eða fimm sinnum og þar af þrisvar eða fjórum sinnum þar sem hann lá á hlið- inni. Skjólborðið bakborðsmeg- in sópaðist burt og sömuleiðis fór margt lauslegt sem var á dekki. Meðan á þessu gekk hélt áhöfnin sem er 6 manna fyrir í stýrishúsinu og frammi í lúkar. Aðspurður um tjón sagði Henning að erfitt væri að ætla það nú en bjóst við að skjól- borðið kostaði nokkra tugi þús- unda. Hásteinn er 47 tonna vertíðarbátur. Dattí sjóinn ■ Lítill drengur datt í sjóinn í Hafnarfirði skammt frá sund- lauginni í gærdag. Hann komst upp og kom blautur og kaldur í sundlaugarhúsið þaðan sem hringt var í lögreglu sem keyrði strák heim. Skugga-Sveinn af fjölunum ■ Skugga-Sveinn, leikrit Matthíasar Jochumssonar, verður sýnt í allra síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu nú að sinni sunnnudaginn 3. febrúar n.k. Leikstjóri er Brynja Ben- ediktsdóttir, en Sigurjón Jó- hannsson gerði leikmynd og búninga. Bylting í vinnuvernd Gott í bili Ef marka má ánægju þátt- takenda í Japans- og Singa- poreferð þeirra sem Iðntækni- stofnun stóð fyrir, til að kynn- ast iðnaðarþróun í þessum löndum, geta íslendingar átt von á byltingu í atvinnu- og iðnaðarmálum innan skamms. Sérstaka athygli ferðalang- anna vakti hve fyrirtækin í Japan bera mikla umhyggju fyrirstafsmönnum sínum. Þeg- ar forráðamenn eins japanska stórfyrirtækisins voru spurðir útí vinnuvernd stóð ekki á svörunum: Ef starfsmaður er t.d. farinn að slappast eða fitna óhóflega er hann strax kallaður fyrir og spurður um matarræðið heima fyrir. Ef það þykir ekki nógu heilsusam- legt er eiginkonan kölluð á teppið og henni fengnar sér- stakar mataruppskriftir og fyrirmæli um hvernig eigi að láta Eyjólf hressast. Og ef matarkúrinn ber engan árang- ur er starfsmaðurinn settur á sérstakt trimmprógramm sem ætti að sjá fyrir aukakílóunum og koma starfsorkunni í lag. Óstaðfestar fregnir Dropa herma að ýmis fyrirtæki íslensk séu nú að fjárfesta í trimmgöll- um og matreiðslubókum um hcilsufæði... ■ Það liðu ekki nema 2-3 mánuðir frá því að Seðlabank- inn brá á það ráð til að þyngja örlítið launaumslag litla mannsins, í orðsins fyllstu merkingu, að gefa út tíu krónu blíhlunka, -þangað til borgar- yfirvöld í Reykjavík tvöföld- uðu stöðumælagjöldin, upp í tíkall! Það eru vinsamleg tilmæli okkar, sem holum steininn, að Seðlabankinn láti alveg eiga sig að gefa út 50 krónu mynt á næstunni! EnDori á sjóinn ■ Framsóknarmenn geta borið sig mannalega þessa dag- ana, Eftir að ekki hefur heyrst um annað talað en fundamet Jóns Baldvins, þar sem fleiri mættu í litlum plássum en nokkurn hafði órað fyrir að byggju þar, varð nú annað uppi á teningnum. Dóri Ásgríms sló semsagt manninn hennar Bryndísar út eins og ekkert væri á fundi með Skagamönnum í fyrra- kvöld. Þar hafði Jón verið aðeins nokkrum dögum áður Erjárnfrúinsexý? Lostafullur hefðarmaður girntist Thatcher Ertu nú viss um að þú sért maður til að sinna mér vinurinn? og segja heimildir að miklu fleiri hafi sótt fund Halldórs eða vel 200 manns. Það má náttúrlega fylgja sögunni að Jakob Jakobsson var með í för og kynnti niðurstöður loðnu- rannsókna við fagnaðarlæti loðnusjómanna. Jón er nú búinn að ferðast um landið og spyrja þráfald- lega þessarar spurningar: Hver á landið? Sjálfsagt í þeirri von að eignast sjálfur. Aftur á móti hefur Jóni ekki dottið í hug að spyrja hver á sjóinn. Enda vita það allir að það er Dóri sem á sjóinn, hver það svo aftur er sem á Dóra.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.