NT - 02.02.1985, Blaðsíða 7

NT - 02.02.1985, Blaðsíða 7
V Laugardagur 2. febrúar 1985 7 fæti fyrir sjávarútvegi, heldur hann þó enn höföi upp úr skuldafeninu svo sem nýleg samantekt leiðir í ljós, en hún var gerð eftir stöðu eigna og skulda í september sl., með endurmati þeirra til loka nóve- mber, þ.e. eftir gengisbreyt- inguna. Of langt yrði að rekja það mat í nánari atriðum, en helstu niðurstöður eru þessar. Skuldir útgerðar við opin- bert lánakerfi og útlönd nema 76% af þjóðarauðsmati flotans, afskrifuðu og endur- metnu kostnaðarverði, en 65% aftryggingarvirði. Lausaskuld- ir við viðskiptaaðila gætu hækkað þetta síðara hlutfall aftur upp í 73% en þá vantar á móti ýmsa veltufjármuni og eignir í landi, sem í skýrslum eru taldar með vinnslunni. Vinnslan skuldar hins vegar aðeins 53% á móti eignum, að meðtöldum birgðum og óg- reiddum útflutningi, en ýmsa lausafjármuni vantar í eign- imar. Sökum óskýrra marka milli undirgreinanna er mest Ifeggj- andi upp úr skuldahlutfalli sjávarútvegsins í heild, sem telst 64% m.v. þjóðarauðsmat flota, en 59% m.v. tryggingar- mat hans. Skammtímaskuldir við einkaaðila o.fl. gætu fært þetta síðara hlutfall upp undir hið fyrra, en á móti koma vantaldar eignir. Skynsamlega metið skuldahlutfall sjávarút- vegsins fer því væntanlega ekki mikið yfir 60%. Vonandi verður áframhald á skoðanaskiptum við Nútím- ann um eðli og hlutverk vaxta, þessa torráðnu gátu, sem fylgt hefur mannkyninu frá því það tók að hafa eitthvað meira umleikisen til hnífsogskeiðar. þrota, ásamt landbúnaðinum. Hann mun væntanlega í þeirra hópi, sem telja, að vandinn stafi að miklum hluta af offjár- festingu, sem aftur stafi af langvinnu agaleysi i auðlinda- stjórnun og arðsemiskröfum. Vissulega hefur raunvaxta- krafan bætt þar einhverju við, en hvað sjávarútveginn snertir tekur hún einkum á sig mynd beinnar tengingar við lána- markað umheimsins og stafar einkum af styrk og vaxtahæð dollarans o.fl. lántökugjald- miðla. Þótt þyngst hafi undir ■ í þessu dæmi hafa vextir og verðtrygging meginþýð- ingu til skamms og langs tíma, þótt fleiri þættir komi til, og árið 1984 er lýsandi dæmi um gildi raunvaxtastefnu við erfiðar aðstæður. Þróunin frá upphafi raunvaxta- stefnu sýnir, að markviss endurreisn bankakerfisins fer fram eftir þessari leið, þveröfugt við niðurrifshjal úr- tölumanna og nöldurseggja. og vantaði 70 þúsund til þess að brúa bilið fram að því. Hann fór því í Búnaðarbank- ann, en fékk þau svör að bankinn gæti aðeins lánað 50 þúsund. Því miður ekki meira. Engir peningar til. Bjarni dró sfðan upp sýnishorn af því hvernig nefndur banki auglýsir fyrir hundruði þúsunda jafnvel milljónir í dagblöðunum og í sjónvarpi, þar sem hann sýndi þjóðinni myndir af skríðandi börnum. Bjarni kom með lyk- ilinn að þessari sjónvarpsaug- lýsingu sem svo margir hafa átt erfitt með að skilja. Auðvitað ■ Það er kominn tími til að menn geti eytt bestu árum æfí sinnar í það sem þeir kunna best... á auglýsingin að sýna okkur það hvernig fólk á að haga sér fyrir framan bankastjóra. 20 Laugardalsvellir Stefán Ingólfsson hjá Fast- eignamatinu fræddi okkur á því að á verðbólguárunum fram að 1979 hefðu skuldarar hagnast svo mikið á verðbólg- unni að það jafngilti því að 25.000 - tuttugu og fimm þús- und - íbúðir hefðukskipt um eigendur. Jafngildir þetta 40- 50 milljörðum króna. Því mið- ur væri fé þetta ekki lengur til. Það væri allt saman grafið í steinsteypu. Annars benti Stef- án á það hverskonar ægileg vitleysa viðgengist. hér í hús- næðismálum. Á hverju einasta ári byggðu íslendingar yfir flöt sem samsvaraði 20 Laugardals- völlum (stór fótboltavöllur í Reykjavík) eða sem svaraði 0,4 ferm. á hvert mannsbarn. Það hefur áður verið bent á það í þessum dálki hvað þess- ari þjóð gæti liðið vel fjárhags- lega ef hún væri ekki haldin þeirri fáránlegu áráttu að grafa alla sína fjármuni í allt of stór hús. Heiðarlegt fólk verður vanskilamenn Niðurstaðan úr þessum vangaveltum er auðvitað sú að við þurfum að afnema það fáránlega kerfi að hækka skuldir en ekki laun. Við þurf- um að þvo af okkur þá ósvinnu að heiðarlegt fólk verði upp til hópa vanskilamenn vegna þess að það að stofna til skulda, og geta ekki byggt á öðru en heiðarlegu starfi, er það sama og rétta skrattanum einn fingur. Hendin öll fer. Og allir sem ætla að byggja eða kaupa verða að stofna til skulda. Við þurfum að koma upp þannig þjóðfélagi að það eitt að koma yfir sig húsnæði leggi ekki fjölda manns í gröfina á besta aldri. Við þurfum að sjá til þess að á bestu árum æfinnar geti menn einbeitt sér að því sem þeir kunna best. Það á að verða okkar helsta verkefni á næstunni. Baldur Kristjánsson Verð i lausasölu 30 kr. og 35 kr. um helgar. Áskrift 330 kr. Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstj.: Magnús Ólafsson (ábm). Markaösstj.: Haukur Haraldsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaðsstj.: Oddur Ólalsson Tæknistj.: Gunnar Trausti Guöbjörnsson Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild 686538. Setnins og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð i lausasölu 30 kr. og 35 kr. um helgar. Áskrifl 300 kr. Stjórnvöld hafa brugðist ■ Samkvæmt upplýsingum frá Stefáni Ingólfssyni hjá Fasteignamati ríkisins fækkar stöðugt því unga fólki sem byggir eða kaupir eigin húsnæði. Nú búa milli 80 og 90% íslendinga í eigin húsnæði Ef sú stjórnlausa þróun heldur áfram sem verið hefur undanfarin ár verður þetta hlutfall komið niður í 60-65% eftir 30 ár. Það er því ljóst að stjórnvöid hafa brugðist þeirri stefnu sinni að gera ungu fólk kleift að eignast sitt eigið húsnæði. Verðtrygging skulda og ofání hana afnám verðtrygg- ingar launa hefur skapað aðstæður sem eru gersamlega óþolandi. Tafarlaust þarf að leiðrétta það ranglæti að skuldir vaxi miklu hraðar en laun. Jafnhliða þarf stóraukið félagslegt átak í húsnæðis- málum. Fólk sem ekki getur eða vill festa kaup á eigin húsnæði verður að fá aðgang að öruggu húsnæði á hagkvæmurri kjörum. Stjórnvöld hafa sjálf gengið af séreignastefnunni dauðri og skilja stöðugt fleiri fjölskyldur eftir á berangri ótryggs og lélegs leigumarkaðar. Liður í þessari stefnubreytingu er að gera búseturéttarfyrirkomulagið að raunhæfum valkosti. Öruggt húsnæði til að búa í er eitt þeirra atriða sem teljast til grundvallarþarfa sérhvers manns. Öll siðment- uð þjóðfélög keppa að því að uppfylla þessa grundvall- arþörf þegna sinna. Við höfum um skeið slakað á klónni í þessum efnum. Tímabært er að úr rætist. Byggðastofnun í fréttaskrifum NT hefur berlega komið í ljós að fólksstreymið til höfuðborgarsvæðisins er að aukast. í leiðurum blaðsins hefur verið á það bent að áframhald- andi byggðaröskun þjóni hvorki hagsmunum dreifbýlis- ins né höfuðborgarsvæðisins. Það er tvímælalaus skylda okkar að tryggja og efla byggð um allt land en til þess að svo megi verða þurfum við raunhæfa byggðastefnu. Án sérstakra aðgerða heldur byggðaröskun áfram samkvæmt því lögmálin að fjármagn leitar þangað sem fjármagn er fyrir og þar sem fjármagn er til staðar þar eru atvinnutækifærin. Byggðasjóður hefur því miður þróast þannig að vera bara einn sjóður af mörgum sem veitir fjármagni til atvinnuuppbyggingar í öllum landshlutum. Jafnt til Reykjanessvæðisins sem hinna dreifðu byggða. Hann ber því að leggja niður. Við þurfum í hans stað Byggðastofnun sem einbeitir sér að byggðavandamálum.og hefur það markmið að treysta byggð þar sem hún á í vök að verjast. Landbúnaðurin skiptir að sjálfsögðu meginmáli í þessu sambandi. Um leið og við þurfum að upphefja þá styrki til hans sem stuðla að rangri fjárfestingu þarf að tryggja þeim sem vinna landbúnaðarstörf sambærileg fjárhagsleg og félagsleg kjör og aðrir landsmenn njóta.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.