NT - 02.02.1985, Page 4
Laugardagur 2. febrúar 1985 4
BUR vill selja Ingólf:
Borgarráð f restaði af-
greiðslu til þriðjudags
- Ögurvík hf. er væntanlegur kaupandi
■ Borgarráð frestaði á fundi
sínum í gær að taka ákvöröun
um sölu á BÚR-togaranum Ing-
ólfí Arnarsyni fram á þriðjudag.
Meirihluti útgerðarráðs sam-
S'kkti á fundi í fyrradag að selja
gurvík hf. togarann, en Krist-
ján Benediktsson fulltrúi Fram-
sóknarflokksins og Sigurjón
Pétursson fulitrúi Alþýðu-
bandalagsins voru á móti og
lögðu fram bókanir þar um.
Að sögn Brynjólfs Bjarna-
sonar framkvæmdastjóra BÚR
stendur ekki til að selja fleiri af
togurum fyrirtækisins en Bjarni
Benediktsson var seldur í haust
eins og kunnugt er.
Kauptilboð Ögurvíkur gerir
ráð fyrir að borgaðar verði 17
milljónir fyrir togarann og yfir-
teknar þær 60 sem á honum
hvíla. Auk þess fari fram nokkr-
ar viðgerðir á togaranum á
kostnað BÚR.
Ingólfur Arnarson er einn af
stóru Spánartogurunum systur-
skip Bjarna Benediktssonar
sem BÚR seldi fyrir skemmstu.
Að sögn Brynjólfs hafa þessir
togarar verið mjög óhagkvæmir
í rékstri og er Ingólfur seldur til
þess að bæta fjárhagsstöðu
BÚR. Sagði Brynjólfur það
nægja BÚR að hafa fjóra togara
til þess að halda uppi atvinnu i
fiskvinnslu fyrirtækisins. Ekki
stendur til að selja þriðja stóra
Spánartogara fyrirtækisins,
Snorra Sturluson, en hinir þrír
togararnir eru af minni gerð-
inni.
Sigurjón Pétursson sagði í
samtali við NT að hann teldi að
með þessu væri meirihluti Sjálf-
stæðismanna að færa bæjarút-
gerðina smátt og smátt í hendur
einkaaðila. Ef það væri rök-
semd að togarinn bæri sig ekki,
mætti eins selja þá alla því
enginn þeirra skilaði rekstraraf-
gangi.
Aðspurður um þá fullyrðingu
Sigurjóns að til stæði að leggja
bæjarútgerðina niður smátt og
smátt, sagði Brynjólfurþað vera
alrangt og vísaði til ummæla
borgarstjóra um málefni BÚR.
Eigendur Ögurvíkur hf. eru
bræðurnir Gfsli, Sverrir og Hall-
dór Hermannssynir og er fyrir-
tækið í Reykjavík.
Myrkir músíkdagar:
Tvennir tónleik-
ar um helgina
■ Myrkum músíkdögum
verður fram haldið með
tvennum tónleikum um
helgina. í dag klukkan
17.00 leikur strengja-
kvartett í Bústaðakirkju,
en kvartettinn skipa
Guðný Guðmundsdóttir
og Szymon Kurtan fíðlur,
Robert Gibbons víóla og
Carmel Russell selló.
Á efnisskrá er „Net til
að veiða vindinn" eftir
Gunnar Reyni Sveinsson
og er verkið frumflutt,
„Kaupmannahafnarkvart-
ett“ eftir Þorkel Sigur-
björnsson, „Sex lög fyrir
strengjakvartett" eftir
Karólínu Eiríksdóttur og
„Strengjakvartett nr. 7 í
fís moll“ eftir Shostako-
vitsj.
Á morgun verða aftur
tónleikar á sama stað og
sama tíma. Þar flytur
Bernard Wilkinson „Viva
strætó“ fyrir einleiksflautu
eftir Skúla Halldórsson,
fumflutt verðu „Duo fyrir
bassethorn og selló" eftir
Atla Ingólfsson. Kjartan
Óskarsson og Inga Rós
Ingólfsdóttir flytja, Car-
mel Russell leikur
„Hrím“ fyrir einleiksselló
eftir Áskel Másson, loks
verður fluttur sextett fyrir
flautu, klarinett, horn,
fagott, fiðlu og selló eftir
Fjölni Stefánsson og tón-
leikunum lýkur með þrem
þáttum fyrir níu blásara,
eftir Pál P. Pálsson, Wern-
er Schulze og Herbert H.
Ágústsson.
Sjötugur
ídag
■ Sjötíu ára er í dag
Einar Jóhannsson fyrrum
bóndi á Bakka í Bjarnar-
fírði.
Hann tekur á móti gest-
um laugardaginn 9. febr.
eftir kl. 15.00 á heimili
sínu Sólvallagötu 12 í
Keflavík.
Tréskurðarlist
í Borgarnesi
Frá fréttaritara NT í Borgarnesi, J.A.E.:
■ Sýning á 16 tréskurðarmyndum, unnum úr
rekaviðardrumbum verður haldin í Borgarnesi nú
um helgina, 1.-3. febrúar. Að sýningunni stendur
myndlistarmaðurinn Sæmundur Valdimarsson í
samvinnu við Verkalýðsfélag Borgarness og verður
hún í húsi félagsins, Snorrabúð. Sæmundur, sem
kominn er af Barðaströnd, hefur um árabil búið í
Reykjavík og starfað í Áburðarverksmiðjunni.
Hann hefur áður tekið þátt í samsýningum og
haldið einkasýningar m.a. á Kjarvalsstöðum í mars
■ Sæmundur Valdimarsson ásamt höggmynd
siimi „Helgu fögru“. NT-mynd Ragnheiöur.
Ábataskipti í stað bónuskerfa?
Skipting hagnaðar milli
starfsmanna og fyrirtækis
■ Tölvuvædd upplýsingaöflun
í framleiðslu og svonefnd ábata-
skipti eru þau málefni sem rædd
verða á öðrum fræðslufundi
Hagræðingarfélags Islands á
þessum vetri, sem haldinn verð-
ur að Borgartúni 6 n.k. mánu-
dag, 4. febrúar.
Ábataskipti eru skipti sparn-
aðar eða hagnaðar milli starfs-
manna og fyrirtækis. Með þeim
opnast möguleiki á sameiginleg-
um aðgerðum fyrirtækisins og
starfsmannanna, sem allir h
hag af. Meðal margra ko
þessara kerfa sé sá, að auðve
ara er að koma þeim upp
hinum hefðbundu kaupaul
kerfum (bónus).
Tveir tæknifræðingar
verkfræðingur munu fjalla i
ábataskiptin. Allir hafa þ
reynslu af ábataskiptakerfum
hafa kynnt sér þau erlendis j
sem notkun þeirra er nú sc
fara mjög vaxandi.
Vesturgötuhraðahindranirnar:
skoða málið
- vonast til að samkomulag náist segir
Guttormur Þormar framkvæmdastjóri
■ Engin ákvörðun var tekin á
fundi umferðamefndar á fímmtu-
dag um breytingar á hraða-
hindrununum á Vesturgötu að
sögn Guttorms Þormar fram-
kvæmdastjóra nefndarinnar en
fyrir fundinum lá tillaga frá
Sveini Björnssyni forstjóra SVR
að þær yrðu teknar niður.
Sagði Guttormur að málið
hefði verið rætt ítarlega en
nefndarmenn vildu kynna sér
það enn frekar. Sagði hann að
þeir hjá umferðarnefnd vildu fá
eitthvað í staðinn, ef til kæmi að
núverandi hindranir yrðu fjar-
lægðar, því áhugi væri á því hjá
íbúum að draga úr hraða á
þessari leið.
Það kom fram hjá Guttormi
að hann teldi persónulega betra
að vera með bungur á þessari
leið en þrengingar og kvaðst
hann vonast til að samkomulag
næðist við SVR um lausn sem
allir gætu sætt sig við.
Þess má geta að árið 1983 var
sett hraðahrindrun svipuð
þeirri, sem er á Vesturgötunni,
á Öldugötuna og vakti hún litla
hrifningu vagnstjóra sem aka þá
leið. Skapaðist óþarfa hætta
sökum þess að börn héngu á
grindverkinu beggja megin og
teygðu sig í vagnana er þeir óku
yfir. Varð það úr að hindruninni
var breytt nokkuð. Annað
grindverkið var tekið burtu og
hitt fært nær gagnstétt og síðan
hefur ekki staðið verulegur styrr
um þessa hindrun. Hún er hins
vegar sömu annmörkum háð og
Vesturgötuhindrunin. Vagn á
austurleið þarf að fara inn í
hindrunina á öfugum vegar-
helmingi og getur það skapað
viss óþægindi en ekki er vitað til
þess að slys hafi orðið þarna
síðan hindrunin var sett upp.
■ Leið 3 Nes-Háaleiti á leið
vestur Öldugötuna þar sem
komið var fyrir hraðahindrun,
þrenginu, árið 1983. Á hægri
hönd sést í gamla Stýrimanna-
skólann.
NT-mynd: Árni Bjarna
■ Heimildarmyndin Lífið er
saltfiskur, sem Lifandi myndir
hafa gert fyrir Sölusamband ís-
lenskra fiskframleiðenda, verð-
ur sýnd í Nýja bíói í dag kl.
14.30. Áhugamenn um atvinnu-
sögu landsins og aðrir velunnar-
ar saltfisksins eru velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
Sýndir verða tveir af þremur
hlutum myndarinnar, sá fyrsti
og sá þriðji. Fyrsti hlutinn sýnir
þverskurð saltfiskmálanna á 50.
starfsári SlF, árið 1982. Þriðji
hlutinn sýnir þróun saltfisksöl-
unnar frá heimsstyrjöldinni fyrri
til okkar daga. Annar hluti
myndarinnar, sem á að fjalla
um saltfisktímabilið fram að
1918 er enn ófullgerður.
Stjórnandi myndarinnar og
handritshöfundur er Erlendur
Sveinsson. Kvikmyndatöku
önnuðust Sigurður Sverrir Páls-
son og Þórarinn Guðnason og
frumsamin tónlist er eftir Jón
Þórarinsson.
Wv\a b,°
Saltfiskmyndirnar sýndar almenningi