NT - 02.02.1985, Page 8
ur haf
Laugardagur 2. febrúar 1985 8
■ Páll Magnússon.
ÁFRAM
PÁLL!
■ Isfirðingur hringdi og
kvaðst vilja koma því á fram-
færi fyrir sína hönd og vinnufc-
laga sinna, að þátturinn Sctið
fyrir svörum á þriðjudags-
kvöldið hefði verið góður.
Framkoma Halldórs Ásgríms-
sonar, sjávarútvegsráðherra
var til fyrirmyndar, þótt við
séum reyndar ekki sammála
honunt í pólitík.
Páll Magnússon er líka
greinilega fréttamaður sem er
starfi sínu vaxinn og hefur
áhuga fyrir því sem hann er að
gera. Það hversu vel þessi þátt-
ur heppnaðist vekur von um
góða þætti af þessu tagi í
framtíðinni og við viljum skora
á Pál að halda þessu áfram og
taka fyrir fleiri mál.
Pað er kannski ekki allt
merkileg mál sem spurt er unt
í þætti sem þessum en það er
spurt unt það sem á þessu fólki
brennur.
Páll er út af fyrir sig kjark-
maður að leggja út í þessa
tilraun, - en hún tókst og við
lýsum stuöningi við Pál og
þáttagerð af þessu tagi.
Áfrani Páll!
■ Halldór Asgrímsson.
Alvöru brennivín
fyrir alvörufólk
- en ekkert gerlaropvatn
■ Nú get ég ekki lengur orða
bundist. Ég hef setið heima í
stofu og horft á fréttirnar í
sjónvarpinu og yfirleitt í hverj-
um fréttatíma stend ég sjálfan
mig að því að klökkna fyrir
framan sjónvarpið. Nú síðast-
liðið miðvikudagskvöld brást
ég síðan alfarið í grát, þegar ég
heyrði í útvarpinu að við Ís-
lendingar höfðum sigrað stór-
veldiö Ungverja í handknatt-
leik.
Ég veit það að ég var ekki
cinn um grátinn, því að víða
mætti fólk í vinnu á fimmtu-
deginum með sælubros á vör
og rauðþrútin augu eftir gleði-
grátur næturinnar.
íslendingar cr fallegt fólk.
íslendingar eru sterkastir a.llra
í heimi, og hann Jón Páll félagi
okkar og vinur, ásamt öðrum
vormönnum íslenskrar
menningar hefur sýnt heimin-
um, að við íslendingar erum
hinir einu sönnu afkomendur
VÍKINGANNA sem eru há-
punktur menningar sem
mannkynið þekkir í dag.
íslcndingar cru mcð lauslát-
ustu þjóðum í heimi og sannar
þaö hversu heilbrigt sjónar-
horn á liflnu við höfum. Laus-
læti ber vott um heilbrigðan
líkama og hreystisemi, þar sem
bæði kynin mætast á jafnrcttis-
grundvelli, en það er sá grund-
völlur sem við lslendingar erum
hvað þekktastir fyrir meðal
útlendinga.
Hvernig stendur á þessari
hreysti? Þessari spurningu leit-
ast menn við að svara víða út
um heim. Ég tel að ástæðan
liggi fyrst og fremst í því að
íslendingar hafa ekki komist í
bjór í jafn ríkum mæli og aðrar
þjóðir í heiminum. Sem sagt
alvöru brennivín fyrir alvöru
fólk.
Alvörumaður.
Ekkert mál!
Omurlegir popp-
tónlistarþættir
Smellur liriugdi:
■ Þetta nær ekki nokkurri
átt mcð þessa popptónlist sem
sí og æ er spiluð í útvarpsþátt-
um og skonrokki sjónvarpsins.
Þaö eru alltaf sömu lögin sem.
ganga þarna aftur og aftur og
aftur og yfirleit einhver bölvuð
súkkulaðivella, svo ekki sé
nteira sagt.
Því í ósköpunum er ekki
hægt að bjóða upp á eitthvað
annað með, svona í bland. Ég
bara spyr. Auövitað er ég ekki
að mælast til þess að hætt verði
að spila þessi Duran Duran lög
og Whamslagara en það mætti
halda að enginn annar hefði
gcrt neitt af viti í poppi!
Ég vil benda á nýja plötu
með VanMorrison, Kinks.The
Dream Syndicat, REM, Big
Country, Red Guitars og fleiri
hljómsveitum sem sjaldan eða
aldrei heyrast í útvarpi eða
sjást í sjónvarpi, bara svo
eitthvað sé nefnt.
Hvenær á þessari forheimsk-
un í poppþáttum ríkisútvarps-
ins að linna?
■ Smcllur vill fá að heyra og sjá Kinks. Þeir félagar munu reyndar hvorki hafa heyrst né sést lengi
í útvarpi eða sjónvarpi - enda er myndin nokkuð gömul í samræmi viö það.
Grammy
verðlaunin
■ Mig langar að beina þeirri
spurningu til sjónvarpsins,
hvort það ætli að sýna frá
afhendingu Grammy verð-
launanna. í músíkheiminum
eru þessi verðlaun á við Óskars-
verðlaunin í kvikmyndaheim-
inum og þar sent sjónvarpið
sýnir frá afhendingu Óskars-
verðlauna finnst ntér eðlilegt
og sjálfsagt að Grammý verð-
launin séu sett á sama pall.
Sem mikill Dallas aðdáandi.
þætti mér gaman að vita, hvort
Dallas sé horfið af skjánum
fvrir fullt og allt.
Að lokum: Skonrokk er
mjög vinsæll þáttur sem mætti
vera oftar á dagskrá. Nýir
umsjónarmenn eru nú teknir
við þættinum og byrjunin var
að mínu áliti hreint afleit,
vægast sagt.
Sem sagt: Söðlið um hið
snarasta. Öngull.
Guðsþjónustur í Reykjavík-
urprófastsdæmi sunnudag-
inn 3. febrúar 1985.
Kirkja Óháða safnaðarins
Barna- og fjölskyldumessa
kl. 11. sr. Baldur Kristjáns-
son.
Hafnarfjarðarkirkja
Sunnudagaskóli kl. 10.30
Guðsþjónusta kl. 14, séra
Gunnþór Ingason.
Keflavíkurkirkja
Fjölskylduguðsþjónusta kl.
14. Vænst er þátttöku ferm-
ingarbarna og foreldra
þeirra. Sóknarprestur.
Árbæjarprestakall
Barnasamkoma í Safnaðar-
heimili Árbæjarsóknar kl.
10.30. Guðsþjónusta í Safn-
aðarheimilinu kl. 2.00. Org-
anleikari Smári Ólason. Mið-
vikudag 6. febr. fyrirbæna-
stund í Safnaðarheimilinu kl.
19.30. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
Áskirkja
Barnaguðsþjónústa kl.
11.00. Guðsþjónusta kl.
2.00. Kaffisala Safnaðarfé-
lagsins eftir messu. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtsprcstakall
Barnasamkoma kl. 11.00.
Messa kl. 14.00 í Breiðholts-
skóla. Fermíngarbörn að-
stoða. Sr. Lárus Halldórs-
son.
Bústaðakirkja
Barnasamkoma kl. 11.00. Sr.
Sólveig Lára Guðmunds-
dóttir. Guðsþjónusta kl. 2.00
Organleikari Guðni Þ.
Guðmundsson. Æskulýðs-
fundur þriðjudagskvöld.
Félagsstarf aldraðra mið-
vikudag kl. 2-5. Aldraðir íbú-
ar sóknarinnar sem óska eftir
bílfari fyrir messuna láti vita
í síma 35507 milli kl. 10 og
12 á sunnudag. Sr. Ólafur
Skúlason.
Digranesprestakall
Barnasamkoma í Safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg
kl. 11.00. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11.00.
Aðalfundur kirkjufélagsins í
Safnaðarheimilinu fimmtu-
dagskvöld kl. 20.30. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
Dómkirkjan
Laugardag:- Bamasamkoma í
kirkjunni kl. 10.30. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Sunnudag:
Messa kl. 11.00. Sr. Agnes
M. Sigurðardóttir messar.
Sr. Þórir Stephensen. Messa
kl. 2.00. Sr. Hjalti Guð-
mundsson. Dómkórinn
syngur. Organleikari Mar-
teinn H. Friðriksson.
Ellihcimiliö Grund
Messa kl. 10.00. Sr. Lárus
Halldórsson.
Fella- og Hólaprestakall
Laugardag: Bamasamkoma í
Hólabrekkuskóla kl. 14.00.
Sunnudag: Barnasamkoma í
Fellaskóla kl. 11.00. Guðs-
þjónusta í Menningarmið-
stöðinni við Gerðuberg kl.
14.00. Sr. Hreinn Hjartar-
son.
Fríkirkjan í Reykjavík
Almenn guðsþjónusta kl.
14.00. Ræðuefni: Talentur í
víngarði. Hjónavígsla verður
í messunni og tvö börn skírð.
Fríkirkjukórinn syngur, org-
anleikari og söngstjóri Pavel
Smid. Sr. Gunnar
Björnsson.
Grensáskirkja
Barnasamkoma kl. 11.00.
Guðsþjónusta kl. 14.00.
Organleikari Árni Arin-
bjarnarson. Sóknarnefndar-
fundur mánudag kl. 17.30.
Æskulýðsstarf föstudag kl.
17-19 Sr. Halldór S.
Gröndal.
Hallgrímskirkja
Barnasamkoma og messa kl.
11.00. Altarisganga. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Kvöldmessa
með altarisgöngu kl. 17.00.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30, beðið fyr-
ir sjúkum. Fimmtudag:
kvenfélagsfundur í safnað-
arsal kl. 20.30. Laugardag:
Samvera fermingarbarna kl.
9-14. Félagsvist í safnaðarsal
kl. 15.00.
Landsspítalinn: Guðsþjón-
usta kl. 10.00. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson.
Háteigskirkja
Messa kl. 10.00. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Sr. Arn-
grímur Jónsson. Messa kl.
2.00. Sr. Tómas Sveinsson.
Borgarspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr.
Tómas Sveinsson.
Kársnesprestakall
Laugardag: Barnasamkoma
í safnaðarheimilinu Borgum
kl. 11 árd. Sunnudag: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju
kl. 2.00. Miðvikudag: Spila-
kvöld á vegum þjónustu-
deildar safnaðarins í Borgum
kl. 20.30. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja
Óskastund barnanna kl.
11.00. Söngur - sögur -
myndir. Sögumaður Sigurð-
ur Sigurgeirsson. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Prestur sr.
Pjetur Maack. Organleikari
Jón Stefánsson. Sóknar-
nefndin.
Laugarneskirkja
Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11.00. Skólakór Kársnes-
skóla syngur. Fermingarbörn
aðstoða. Mánudag 4. febr.
aðalfundur Kvenfélags
Laugarnessóknar kl. 20.00.
Þriðjudag, bænaguðsþjón-
ustá kl. 18.00. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson.
Neskirkja
Laugardag: Samverustund
aldraðra. Heimsókn í athvarf
aldraðra í Ármúla 32. Kynnt
verða réttindi ellilífeyrisþega
á afslætti á ýmis konar þjón-
ustu á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Kaffiveitingar.
Brottför frá Neskirkju kl.
15.00. Sr. Frank M. Hall-
dórsson. Sunnudag: Barna-
samkoma kl. 11.00. Messa
kl. 14.00. Orgel og kórstjórn
Reynir Jónasson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
Mánudag: Æskulýðsstarf kl.
20.00. Miðvikudag: Fyrir-
bænamessa kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafs-
son. Fimmtudag: Biblíulest-
ur kl. 20.00. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Ath. Opið
hús fyrir aldraða þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 13-17
(húsiðopnað kl. 12)J<venfé-
lagið.
Seljasókn
Barnaguðsþjónusta í Öldu-
selsskóla kl. 10.30. Barna-
guðsþjónusta í Seljaskóla,
ath. ekki f íþróttahúsinu
vegna viðgerðar þar. Guðs-
þjónusta í Ölduselsskólanum
kl. 14.00. Þriðjudagkl. 20.00
fundur æskulýðsfélagsins í
Tindaseli 3. Videókvöld.
Fyrirbænasamvera Tindaseli
3, fimmtudagskvöld kl.
20.30. Sóknarprestur.
Seltjarnarnessókn
Barnasamkoma í Sal Tón-
skólans kl. 11.00. Sóknar-
nefndin.
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Barnasamkoma í kirkjunni
kl. 10.30. Sr. Einar Eyjólfs-
son.
Prestar Reykjavíkur-
prófastsdæmi:
Hádegisfundur í Hallgríms-
kirkju mánudag.