NT - 02.02.1985, Page 21

NT - 02.02.1985, Page 21
Laugardagur 2. febrúar 1985 21 Vestur-Þýskaland: Skæruliðar myrða hergagnaforstjóra Aftökusveitir Rauðu herdeildanna að verki Múnchen-Beja-Reuter m— Grænlend- ingarúrEBE Kaupmannahöfn-Reuter. ■ Grænlendingar gengu formlega úr Efnahags- bandalagi Evrópu í gær. Eeir eru fyrsta þjóðin sem gengur úr bandalaginu síðan það var stofnað 1. janúar 1958. Upprunalega var gert ráð fyrir að úrsögnin yrði formleg 1. janúár en henni var frestað vegna deilna um fiskveiðiréttindi og vegna þess að írska þing- inu tókst ekki að staðfesta úrsögnina í tæka tíð. Efnahagsbandalagið hefur gert samning við Grænlendinga um fisk- veiðiréttindi bandalags- ríkja á miðum Grænlend- inga. Bandalagsríkin munu greiða 20 milljónir dollara árlega næstu fimm árin fyrir fiskveiðiheimild- ir. ■ Framkvæmdastjóri her- gagnaframleiðslufyrirtækis í V- Þýskalandi var skotinn í höfuðið í gær á heimili sínu í nágrenni Múnchen. Hann lést á sjúkra- húsi nokkrum klukkustundum síðar. Rauðu herdeildirnar hafa lýst yfir ábyrgð á verknaðinum. Talsmaður iögreglunnar í Ba- varíu sagði Ernst Zimmerman, 55 ára, hafa verið skotinn einu skoti í höfuðið með vélbyssu af manni sem ruddist inn á heimili hans er hann sat að morgun- verðarsnæðingi. Kona hans hafði opnað bakdyr hússins fyrir konu sem sagðist vera með bréfasendingu. Árásarhjúin bundu Zim- merman og konu hans, kefluðu hana og færðu Zimmerman síð- an inn í svefnherbergi þar sem hann var skotinn. Rauðu herdeildirnar hringdu nokkru síðar í dagblað í Múnc- hen og tilkynntu að „hersveit 0‘Hara" hefði framkvæmt árás- ina. Zimmerman var formaður samtaka fyrirtækja í flug- og hergagnaiðnaði. Hann var for- stjóri MTU fyrirtækisins sem framleiðir hreyfla íTornado-or- ustuþotuna og vélar í Leopard- skriðdreka. Þotur þessar og skriðdrekar eru framleidd fyrir NATO. Sprengjutilræði í Portúgal Átta sprengjur ollu skemmd- um á bílum og heimilum v- þýskra herflugmanna í gær í Portúgal. Portúgölsk yfirvöld segja sprengjuaðgerðir þessar vera hluta af samræmdum að- gerðum evrópskra borgar- skæruliða gegn herstöðvum og mannvirkjum NATO. Skæruliðasamtökin FP-25 hafa lýst yfir ábyrgð á spreng- ingunum en í þeim særðist ein v-þýsk kona óverulega. 18 bílar skemmdust og rúður í íbúðar- húsum hermannanna brotnuðu. Fyrir fimm dögum síðan skutu FP-25 skæruliðar sprengjum að sex herskipum NATO sem lágu við akkeri í höfninni í Lissabon. Engar skemmdir urðu á skipun- um. _ Árásin á Zimmerman kemur í kjölfarið á aftöku frönsku skæruliðasamtakanna „Bein aðgerð“ (Action Directe) á háttsettum embættismanni í franska varnar- og hermála- ráðuneytinu. Rauðu herdeildirnar og Bein- ar aðgerðir hafa lýst yfir sameig- inlegri herferð gegn NATO og „heimsvaldasinnum". ■ Ernst Zimmerman. Rauðu herdeildirnar tóku hann af lífi í gær. Hann var forstjóri verk- smiðju sem framleiðir hreyfla í herþotur og vélar í skriðdreka NATO. FalsaðirNígeríu- seðlar erlendis Lagos-Reuler. ■ í yfirlýsingusemherstjórnin í Nígeríu hefur gefið frá sér segir að falsaðir nígerskir pen- i ingaseðlar séu í umferð í Banda- ríkjunum og Evrópu. Herstjórnin segir að leyni- þjónustumenn frá Nígeríu hafi i lagt hald á falsaða tíu og tuttugu i naira seðla (1 naira samsvarar j rúmum 5 ísl. kr.) sem hafi verið j í umferð erlendis. í Nígeríu liggur dauðarefsing við peningafölsun og peninga- smyglarar geta fengið allt að tíu ára fangelsisdóm. Stjórnvöld í Nígeríu segja að peningafalsinu sé ætlað að eyðileggja efnahag landsins. BardagaríSídon Sídon-Reuler ■ Hópur óþekktra byssu- manna réðist í gær á hermenn Suður-Líbanonshersins í Sídon en hann er talinn hliðhollur ísraelsmönnum. Israelsmenn eru nú að undir- búa brottför sína frá Sídon, sem er í Suður-Líbanon. Ákvörðun þeirra um að draga lið sitt til baka hefur leitt til aukinna átaka frekar en hitt. í átökunum í Sídon í gær voru bæði notaðar vélbyssur og litlar flugsprengjur. ■ Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Perez De Cuellar (t.v.) ræðir við forsætisráðherra Víetnama, Pham Van Dong (t.h.) á Hanoi fyrr í þessari viku. Aðalritarinn hefur hvatt deiluaðila í Kambódíu til að semja frið en á sama tíma og hann ræddi við víetnamska ráðamenn í Hanoi voru Víetnamar að hefja stórsókn gegn skæruiiðum Rauðra Khmera. símamynd-FOLFOTO Kambódía: Víetnamar reyna að útrýma skæruliðum Rauðra Khmera Bangkok-Reuter ■ Víetnamski herinn í Kam- bódíu hefur hafið umfangsmestu herferð sína til þessa gegn skæru- liðum Rauðra Khmera sem hafa haldið uppi skæruhernaði gegn víetnamska setuliðinu í Kambódíu síðastliðin sex ár. Tilraunir aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Javier Perez De Cuell- ar, til að fá stríðsaðila í Kambódíu til friðarviðræðna að undanförnu hafa skilað takmörkuðum árangri. Á einni viku hefur hann bæði heimsólt Víetnam og Laos og rætt við ráðamenn þar auk þess sem hann hefur hitt Sihanouk og rætt við hann í Thailandi en Sihanouk er einn helsti leiðtogi kambódískra stjórnarandstæðinga. Áfundi með fréttamönnum í Thailandi sagði aðalritarinn að ákveðnar upplýs- ingar, sem hann hefði fengið í Víetnam, hvettu til áframhaldandi friðarumleitana. En hann vildi ekki lýsa því nánar hvers eðlis þessar upplýsingar hefðu verið. Það er áætlað að í Kambódíu séu um 160.000 víetnamskir hermenn. Þeir eiga í höggi við um 50.000 manna skæruliðaher stjórn- arandstæðinga sem hafa haldið uppi árásum á víetnamska setulið- ið frá því að það kom til Kambódíu fyrir sex árum. Víetnamar sækja nú fram gegn skæruliðum Rauðra Khmera í Battambanghéraði nálægt thai- lensku landamærunum. Áð sögn hafa þeir aldrei kallað til jafn fjölmennt herlið til að berjast gegn skæruliðunum á þessu svæði. Um fjórar herdeildir víet- namskra fótgönguiiða njóta stuðn- ings skriðdreka og stórskotaliðs við sóknina. Skæruliðar Rauðra Khmera halda uppi stöðugum ár- ásum á birgðalínut Víetnama en Víetnamar hafa svarað með stór- skotahn'ð á bækistöðvar skæru- liða. Vilja stríð við ísrael Kairó-Reuter. ■ Um 300 ntanns tóku þátt í mótmælaaðgerðum á alþjóðlegri bókasýningu í Kaíró, höfuðborg Eg- yptalands, í gær. Mótmæl- endur kröfðust þess að Egyptar hæfu stríð við ís- raej. Á bókasýningunni voru m.a. ísraelskar bækur í fyrsta skipti frá því 1982. Lögreglumenn voru í við- bragðsstöðu í nágrenni sýningarstaðarins en ekki korn til átaka við mótmæl- endur. Aðalritari OECD: Atvinnuleysið mesta vandamál iðnríkjanna - siðferðislega óréttlætanlegt Strassbourg-Reuter. ■ Atvinnuleysi er mesta vandamál iðnríkjanna í dag, sagði aðalritari OECD, Jean-Claude Paye, í gær. Atvinnuleysið er ekki í beinum tengslum við þróun hagvaxtar. „Það er Ijóst að sköpun atvinnutækifæra er ekki í réttu hlutfalli við aukinn hagvöxt OECD-ríkja á síðustu tveim árum,“ sagði Paye á Evrópu- þinginu í gær. Atvinnuleysi hefur ekki minnkað í Evrópu þrátt fyrir að hagvöxtur hafi að meðaltali verið 2,25%. Bandaríkjamönnum hefur hins veg- ar tekist að minnka atvinnuleysið úr 9,7% í 7,25%. Meginmarkmið efnahagsstarf- seminnar er að „auka almenna velferð" sagði Paye og varaði við að hagvöxtur sem kæmi aðeins hluta þjóðarinnar til góða væri „...fé- lagslega, stjórnmálalega og siðferð- islega óréttlátur“. En þrátt fyrir atvinnuleysið sagði. Paye að í löndum OECD (Éfnahags og þróunarstofnunarinnar) hefðu framleiðni og viðskipti aukist og verðbólga minnkað. Bjóðum upp á 5ÓI, 5auna og vatnsnudd í hrelnlegu og þægllegu umhverfí. ___

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.