NT - 02.02.1985, Page 23

NT - 02.02.1985, Page 23
Nýir möguleikar: Polyethylene geymarnir taka 870 lítra. Þú notar þá hvort sem er undir matvæli, hráefni, vinnslu- vökva eöa sterk fljótandi efni. Þeir leysa af hólmi fjölmargar aörar pakkningar sem eru ýmist of veikburða, einhæfar eöa dýrar. Augljós sparnaður: Þegar þú kaupir vökva í litlum pakkningum, t.d. 10-20 lítra, greiðirðu 4 til 6 krónur pr. lítra fyrir umbúðir sem þú í mörgunrtilfellum fleygir. En um 870 lítra geymi úr grimmsterku plastefni, með traustum á- og aftöppunarbúnaði gegnir öðru máli. Þú notar hann aftur og aftur til áfyllingar innanlands og utan. Hann þolir langan flutning og mikið álag. Hann borgar sig upp með tveim áfyllingum og þá átt þú eftir að nota hann hundrað sinnum ef því er að skipta! Fjölbreytt nýting: Mjólkurbúið: Fyrir rjómann, mysuna, sódann eða sýruna. Bóndinn: Fyrir matvæli, sýrur, meltu o.fl. o.fl. Frystihúsið og fiskvinnslan: Fyrir klór, jafnt til áfyllingar og fyrir fast kerfi hússins og undir sýrur til vinnslu og geymslu, t.d. á lifur. Við framleiðum fieira fyrir matvæiaiðnaðinn: Ker - 580 og 760 lítra Brúsar - 20 og 25 lítra Vörubretti - 80 x 120 sm og 100 x 120 sm. Tunna - 100 lítra. Veitum viðgerðaþjónustu á allar okkar vörur! MEMBER BORGARPLASTl HF VESTURVÖR 27 — KÓPAVOGI SÍMI: (91) 46966. Samúel Örn Erlingsson skrifar frá Frakklandi Mjólkurbú*Bændur*Frystihús«Fiskvinnslur Sparið fjármuni og fyrirhöfn með Polyethylene geymum ■ Pirmin Ziirbriggen, skíðakappinn frá Sviss er kominn á sigurbraut 19 dögum eftir að hann var skorinn upp í hné. Hér sést hann sigra í bruni á heimsmeistaramótinu í alpagreinum skíöaíþróttanna sem fram fer nú í Bormio á ftalíu. Egyptar gengu útaf ■ Landslið Egypta í knattspyrnu gekk afleikvelli þegarandstæðingum þeirra var dæmt mark í landsleik í fyrradag. Þeir héldu því fram að boltinn hefði farið í hliðarnetið en ekki í markið. Eftir nokkurra mínútna þras við dómarann gat leikurinn hafist á ný því framherji andstæðinganna, Fíiabeinsstrandarmaðurinn Gadji Celi, tók boltann og kom honum fyrir á markteig Egypta þar sem útspörk eru tekin og sagði að það hefði ekki orðið mark. Egyptar unnu leikinn því ineð skallamarki sem Mohamed Hazem skoraði á 1. mín- útu eftir hornspyrnu Moustafa Abdu. Það skal tekið fram að hér var um vináttulandsleik að ræða. Páll er alheill Frá Samúel Erni í Frakklandi ■ Páll Ólafsson, lands- liðsmaöurinn í hand- knattleik meiddist á hné í fyrsta leik íslenska liðsins, sigurleiknum gegn Ungverjum og nokkur vafi lék á því hvort hann gæti leikið gegn Frökkum. Sagði hann blaðamanni NT fyr- ir þann leik að hann yröi að bíða og sjá til, Páll lék síðan með en byrjaði ekki inná. Hann kom þó fljótlega inná völlinn og átti eins og öllum er kunnugt stórleik þar til Frakkar lögðu sér- staka áhrslu á að halda honum niðri, með ýmsum ráðum. Blaðamaður NT fékk svo þær upplýsingar í gær fyrir leikinn gegn ísrael að Páll væri orðinn alheill og myndi leika af fullum krafti það sem eftir lifði móts. Svo er bara að bíða og vona að íslensku strák- arnir verði ekki fyrir frek- ari meiðslum, því engir skiptimenn eru fyrir úti- spilarana. Laugardagur 2. febrúar 1985 23 Toumoi de France: Frakkar stefna á sigur Frá Samúcl Erni Erlingssyni í Eakklandi: ■ Sigur Frakka á íslendingum vakti mikla ánægju meðal Frakkanna, bæði leikmanna, þjálfara og Frakka almennt sem fylgjast með liðinu. Peir eru mjög stoltir af því að vinna íslendinga og sigurinn glæðir mjög vonir þeirra um að sigra í mótinu, en þess ber þó að geta að þeir eiga enn eftir aó leika gegn bæði Ungverjum og Tékkum sem eru með mjög sterk lið. Pað virtist helsta eftirvænting Frakka fyrir mótið hversu sterkir Tékkar væru. Stærsta dagblað Lyon-borgar, Le Progress, segir í fyrradag eftir leik Tékka og Frakka-B að franska liðið sé talsvert veikara en búist var við og góðar vonir eru bundnar við að A-liðinu takist að sigra Tékkana. Það gefur þeim einnig byr undir báða vængi að þeir sigruðu íslendinga, sem daginn áður höfðu unnið Ungverja. Brynjar hvílir og njósnar Frá Samúel Erni í Frakklnndi Jens Einarsson markvörður hvíldi, var ekki í liðinu, í tveimur fyrstu leikjunum, gegn Ungverjum og Frökkum. íslendingarnir eru 13 og þar af 3 markverðir, svo einn þeirra verður alltaf að hvíla.' Brynjar Kvaran var varamarkvörður í þeim leikjum, en kom reyndar ekkert inná. Hann hvíldi svo í gær gegn Israelsmönnum en Jens kom inní liðið. Brynjar fór ekki með íslenska liðinu til Bourg þar sem leikurinn fór fram í gær heldur hélt tii St. Fons og fylgdist með viðureign Ungverja og Tékka. Hann ætlaði að kortleggja tékkneska Iiðið, bæði fyrir sig sem markvörð og einnig fyrir íslensku liðsstjórnina. VALFODUR INNIHALDSRIKT OO FÖDURSPARANDI l^dfóður er fljótandi dýrafóöur, l^dfóður er fóóursparandi, vegna framleitt úr nýjum fiski. Vió fram- þess hve prótein i ööru fóðri nýtist leiðsluna er ekki notast við hita, sem vel, sé Valfóöur gefió meó. skaóar næringargildi hráefnisins. Iralfóður er mikilvægt meö ööru fóóri, vegna líffræðilegs gildis þess. V leid L 'alfóður er ódýr, innlend fram- leiósla. eitið nánari upplýsinga. VID SETJUM GEYMSLUTANK HEIM Á BÆ, ÞÉR AD KOSTNAÐARLAUSU. P.O BOX 269 222 HAFNARFJÖROUR SÍMI: 91-661211 SIMI i VERKSMIÐJU: 92-2273

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.