NT - 08.02.1985, Side 9
Sjónvarp sunnudag kl. 21.45:
Þættir um Þuríði for-
mann og Kambsránsmenn
Föstudagur 8. febrúar 1985
9 Blaðll
ÁBÓT
■ Stundum cr sagt að æfingin geri meistarann. Það virðist þó ekki eiga við í tilfelli þeirra
Dortmunder (Robert Redford) og Kelp (George Segal), sem hafa langa æfingu í afbrotum, en alltaf
með sama vesæla árangrinum.
■ Ronald Merrick (leikinn af Tim Pigott-Smith) er hér að
kveðja Guy Perron (Charles Dance). Merrick segist vonast til að
Perron komi á eftir sér, - en Guy Perron bíður eftir að íosna
undan stjórnsemi Merricks, og vonast til að komast sem fyrst
hcim til Englands.
■ Á sunnudaginn kl. 13.20
verður fluttur þáttur í útvarpinu,
sem ber heitið Þuríður formaður
og Kambrránsmenn. Dagskrá
þessi er að mestu byggð á bók
Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-
Núpi. ogen víðarerleitaðfanga.
Þættirnir eru alls þrír og verða
þeir fluttir á sunnudögum í febrú-
armánuði.
Kambsránið var framið fyrir
rösklega einni og hálfri öld. Þetta
rán er alveg einstæður atburður í
íslenskri glæpasögu og mála-
reksturinn í sambandi við það
einhver hinn mesti og víðtækasti
í nokkru sakamáli hér á landi fyrr
og síðar. í málinu voru haldin 52
réttarþing og vitni leidd úr öllum
hreppum Árnessýslu milli Hvítár
og Þjórsár, og þar að auki úr
Nú fer að síga á seinni hlutann
í kvöld er næstsíðasti þátturinn
■ Það er Klcmenz Jónsson sem
hefur tekið efnið um Þuríði for-
mann og Kambsránsmenn saman
og stjórnar flutningi.
Ölfusi. Allt var málið rekiö með
óvenjulegum dugnaði og hraöa.
Rannsókn þess stóð yfir í nær 11
mánuði og um 30 manns voru
dregnir fyrir dóm. Hafa Árnes-
ingar sjaldan haft jafn duglcgt og
skörulegt yfirvald sem Þórður
sýslumaður Sveinbjörnsson, síð-
ar háyfirdómari, var, og enginn
sýslumaður hefur gert slíka
héraðshreinsun í sýslu sinni sem
hann gerði meö framgöngu sinni
í Kambsránsmálinu.
Þuríður formaður þekkti vel
til alira þeirra sem þátt tóku í
Kambsráninu og þrír þeirra
höfðu verið hásctar hjá henni.
Hún kemur mikið við sögu viö
rannsókn málsins, og það var
glöggskyggni hennar og góðri
eftirtekt að þakka, hversu fljótt
tókst að upplýsa þetta stórmál og
fá sakborninga til að játa sekt
sína.
Það er Klemenz Jónsson leik-
ari, sem tók efnið saman og
stjórnar jafnframt Outningi.
Þetta er samfelld dagskrá bæði
lesin og leikin. Tónlistin er eftir
Jón Leifs. Tæknimaður er
IJreinn Valdimarsson.
Helstu flytjendur eru Hjörtur
Pálsson, Sigurður Karlsson, Þor-
steinn Gunnarsson, Steindór
Hjörleifsson. Hjalti Rögnvalds-
son, Guðrún Stephcnsen. Róbert
Arnfinnsson, Valur Gíslason.
Guðmundur Pálsson. Þórhallur
Sigurðsson. Margrét Ólafsdóttir
og fleiri.
■ Þrcttándi og næstsíðasti þátt-
urinn af Dýrasta djásninu cr nú
sýndur í sjónvarpinu (sunnud.
kl.2l.45).
Það virðist svo sem Ronald
Merrick hafi getað heillað Susan
Layton svo að hún hefur játast
honum. „Hann er svo góður viö
drenginn minn," segir hún bros-
andi. Annars hefur áhorfandinn
haft það á tilfinningunni, að nú
fari hringurinn að þrcngjast utan
um Merrick hinn einhenta her-
foringja, og illvirki hans í lög-
reglustjóraembættinu fari að
koma hortum í koll. A.m.k. er
hann á lista hjá stjálfstæðishreyf-
ingu Indverja yfir þá Breta, scm
þeini finnst hafa brotið gróflega
af sér í embætti.
Nú hafa Japanir gefist upp og
losarabragur kemst á herflokka
Breta í Indlandi. og yfirmenn
þeirra eru kallaðir til yfirboðara
sinna að gcfa skýrslur og taka við
öðrum fyrirmælum og embætt-
um.
Tónlistarkrossgátan
■ Á sunnudaginn er komið
að tónlistarkrossgátuþætti á
Rás2kl. 15-16. Aðþessusinni
er það gáta no. 19, sem er á
feröinni og umsjónarmaður cr
sem fyrr Jón Gröndal.
■ Múría-unglingar í Indlandi.
Sjónvarp sunnudag kl. 17.
Eru unglingarnir í Indlandi
ólíkir jafnöldrum sínum hér?
■ Á sunnudagseftirmiðdag -
eftir Húsið á sléttunni kemur
heimildamynd frá BBC. Hún á
að byrja kl. 17.00 og nefnist
„Sinn er siður í landi hverju".
r myndinni segir frá múríum,
en múríar nefnist einangraður
þjóðflokkur á Mið-Indlandi.
Margt er ólíkt í siðvenjum múría
og því sem annars staðar tíðkast
’meðal Indverja, svo ekki sé talað
um meðal vestrænna þjóða, t.d.
hér hjá okkur. Ekki kemur síst á
óvart frjálsræði unglinganna hjá
múríum í ástmálum. Þó fer það
svo, að það eru foreldrarnir sem
að lokum ákveða ráðahaginn.
Þýðandi er Höskuldur Þráins-
son.
Rás2sunnudag kl. 15.
Útvarp sunnudag kl. 13.20:
Dýrasta djásnið
20.50 Um okkur Jón Gústafsson
stjórnar blönduðum þætti fyrir
unglinga.
21.00 íslensk tónlist (frumflutt) a.
„Vetrartré eftir Jónas Tómasson.
Hlíf Sigurjónsdóttir leikur á fiðlu. b.
„Myndhvörf" fyrir málmblásara eft-
ir Áskel Máson. Trómet-blásar-
asveitin leikur. Þórir Þórisson stj.
Einleikari: Ásgeir Steingrimsson.
c. „Gloria" eftir Hjálmar H. Ragn-
arsson. Dómkórinn í Reykjavík
syngur; Marteinn H. Friðriksson stj.
21.30 lltvarpssagan: „Morgun-
verður meistaranna“ eftir Kurt
Vonnegut Þýðinguna gerði Birgir
Svan Símonarson. Gísli Rúnar
Jónsson flytur (12).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kotra Umsjón: Signý Pálsdótt-
ir. (RÚVAK)
23.05 Djassþáttur - Jón Múli Árna-
son.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
NV
Föstudagur
8. febrúar
10:00-12:00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteinsson og
Sigurður Sverrisson.
14:00-16:00 Pósthólfið Stjórnandi:
Valdís Gunnarsdóttir.
16:00-18:00 Léttir sprettir Stjórn-
andi: Jón Ólafsson.
HLÉ
23:15-03:00 Næturvaktin Stjórnend-
ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir
Ástvaldsson.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar 1.
Laugardagur
9. febrúar
14:00-16:00 Léttur laugardagur
Stjórnandi: Ásgeir Tómasson.
16:00-18:00 Milli mála Stjórnandi:
Helai Már Barðason.
HLÉ
24:00-24:45 Listapopp Endurtek-
inn þáttur frá rás 1. Stjórnandi:
Gunnar Salvarsson.
24:45-03:00 Næturvaktin Stjómandi:
Margrét Blöndal.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar1.
Sunnudagur
10. febrúar
13:20-15:00 Krydd i tilveruna
Stjórnandi: Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir.
15:00-16:00 Tónlistarkrossgátan
Hlustendum er gefinn kostur á aö
svara einföldum spurningum um
tónlist og tónlistarmenn og ráða
krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón
Gröndal.
16:00-18:00 Vinsældalisti hlust-
enda rásar 2 20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Ásgeir Tómas-
son.
Föstudagur
8. febrúar
19.15 Ádöfinni UmsjónarmaðurKarl
Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs-
dóttir.
19.25 Krakkarnir í hverfinu 8. Pétur
tekur áhættu. Kanadiskur
myndaflokkur i þrettán þáttum, um
atvik i lifi nokkurra borgarbarna.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fróttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Margeir og Agdestein Þriðja
einvígisskákin. Jóhann Hjartarson
flytur skákskýringar.
20.55 Kastljós Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður Sigur-
veig Jónsdóttir.
21.25 Með grimmdina i klónum -
Haukar Aströlsk náttúrulífsmynd
gerð af sömu aðilum og mynd um
fálka'sem sjónvarpið sýndi nýlega.
I þessari mynd um haukategundir
í Ástraliu er einnig sýnt hvaða
aðferðum kvikmyndatökumennirn-
ir beita til að ná jafngóðum nær-
myndum af ránfuglum og raun ber
vitni. Þýðandi og þulur Oskar Ing-
imarsson.
21.55 Við freistingum gæt þín (The
Marriage of a Young Stockbroker).
Bandarísk bíómynd frá 1971. Leik-
stjóri Lawrence Turman. Aðalhlut-
verk: Richard Benjamin, Joanna
Shímkus, Elizabeth Ashley og
Adam West. Ungur verðbréfasali
hefur staðnað í leiðinlegu starfi og
dauflegu hjónabandi. Hann styttir
sér stundir við dagdrauma um
ungar stúlkur og ástarævintýri. En
svo gerast atburðir sem fá hann til
að hrista af sér slenið. Þýðandi
Björn Baldursson.
23.30 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
9.febrúar
14.45 Enska knattspyrnan Fyrsta
deild: Liverpool - Arsenal Bein
útsending frá 14.55-16.45.
17.15 íþróttir. Umsjónarmaöur
Ingólfur Hannesson.
19.00 Margeir og Agdestein Einvíg-
inu lýkur. Jóhann Hjartarson flytur
skákskýringar.
19.25 Ævintýri H.C. Andersens 1.
Tindátinn staðfasti Danskur
brúðumyndaflokkur f þremur
þáttum. Sögurnar eru skreyttar
með teikningum og klippimyndum
eftir H.C. Andersen. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. ÞulurMar-
ia Sigurðardóttir (Nordvision -
Danska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Við feðginin Fjórði þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
þrettán þáttum. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen.
21.00 Demantsránið (Hot Rock)
Bandarísk biómynd frá 1972. Leik-
stjóri Peter Yates. Aöalhlutverk:
Robert Redford, George Segal,
Zero Mostel, Paul Sand og Ron
Lebman. Fjórir skálkar taka hönd-
um saman um að komast yfir
demant, sem vart verður metinn til
fjár og varðveittur er á safni i New
York. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.40 Ástvinurinn (The Loved One)
Bandarísk bíómynd frá 1956, gerð
eftir samnefndri skáldsögu eftir
Evelyn Waugh. Leikstjóri Tony
Richardson. Aðalhlutverk: Robert
Morse, John Gelgud, Rod Steiger,
Liberance, Anjanette Comer og
Janathan Winters. Myndin gerist i
Kaliforníu þar sem ungur Breti fer
að fást við útfararþjónustu sem sér
um greftranir gæludýra. I myndinni
er gert napurt gys að útfararsiöum
i Bandarikjunum og nær það há-
marki með hugmyndum kunningja
söguhetjunnar um að sjá ástvinun-
um einnig fyrir himnaför. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
00.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur
10. febrúar
16.00 Sunnudagshugvekja Séra
Hjalti Þorkelsson, sóknarprestur
við Kristskirkju, Reykjavík flytur.
16.10 Húsið á sléttunni. 11.Mitter
þitt. Bandarískur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
17.00 Sinn er siður í iandi hverju
Heimildamynd frá BBC. Múríar
nefnist einangraður þjóðflokkur á
Mið-lndlandi. Margt i siðvenjum
múria er ólikt því sem annars
tiökast meöal Indverja, ekki síst
frjálsræði unglinga í ástamálum. Á
endanum eru það þó foreldrarnir
sem ákveða ráðahaginn. Þýðandi
Höskuldur Þráinsson.
18.00 Stundin okkar. Umsjónar-
menn: Ása H. Ragnarsdóttir og
Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp-
töku: Þrándur Thoroddsen.
19.20 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjón:
Guðmundur Ingi Kristjánsson.
20.55 Glugginn Þáttur um listir,
menningarmál og fleira. Umsjónar-
maöur Sveinbjörn I. Baldvinsson.
21.45 Dýrasta djásnið Þrettándi
þáttur. Breskur framhaldsmynda-
flokkur I fjórtán þáttum, gerður eftir
sögum Pauls Scotts frá síðustu
valdaárum Breta á Indlandi. Þýð-
andi Veturliði Guðnason.
22.35 Kvöldtónleikar. Þorsteinn
Gauti Sigurðsson leikur pianó-
konsert nr. 2 f g-moll ópus 16 eftir
S. Prokofjev. Upptakan er frá
norrænni tónlistarhátíð í Osló í
október 1984 þar sem saman
komu ungireinleikararog einsöng-
varar. Útvarpshljómsveitin i Osló
leikur. (Nordvision - Norska sjón-
varpið).
23.20 Dagskrárlok.