NT - 08.02.1985, Blaðsíða 10

NT - 08.02.1985, Blaðsíða 10
Indversk kvöld á Keisaranum í Kína ■ í kvöld, föstudagskvöld, og annað kvöld verða „Ind- versk kvöld“ með mat og söng á Keisaranum í Kína, Lauga- vegi 22. Það er indversk-port- úgalska söngkonan Leoncie Martin, sem hefur eftirlit með matnum, en hann er frá Goa. Að borðhaldi loknu syngur hún svo fyrir gesti á barnum á efri hæð. Leoncie Martin semur sín eigin lög og syngur þau og þau hafa verið tekin upp í upptöku- stúdíóinu Mjöt. Hún hefur verið búsett hér á landi í u.þ.b. 3 ár. Blokkflauta og orgel í Hafnarfjarðarkirkju ■ Tónleikar Musica antiqua með Camillu Söderberg blokkflautuleikara og Herði Áskelssyni orgelleikara, sem voru haídnir i janúar s.l. verða endurteknir í Hafnarfjarðar- kirkju n.k. laugardag (á morgun) 9. febrúar kl. 17. , Leikin verða samleiks- og ein- leiksverk frá barokktímanum eftir ítölsk og frönsk tónskáld. Camilla leikur á 4 ólíkar gcrðir af blokkflautum. Orgel Hafn- arfjarðarkirkju er 30 radda með 3 hljómborð og pedal smíðað af Walcker orgelverk- Matargestir eru beðnir um að tilkynna þátttöku í athvarfinu, Safnaðarheimilinu, í kvöld kl. 5-6 til kirkjuvarðar. Kvennalistafundur ■ Kvennalistinn heldur fund í Félagsgarði í Kjós laugardag- inn 9. febrúar kl. 14. Kynnt verður kraftmikið kvennastarf í Reykjaneskjördæmi. Árshátíð Eskfirðinga- og Reyðfirðingafélagsins ■ Verður haldin laugardag- inn 9. febrúar næstkomandi í Fóstbræðraheimilinu við Langholtsveg. Samkoman hefst með borðhaldi kl. 20. Húsið verður opnað kl. 19. Aðalfundur Kvenstúdentafélagsins ■ Kvenstúdentafélagið og Fé- lag íslenskra háskólakvenna halda aðalfund sinn í Hallar- garðinum, Húsi verslunarinn- ar, á morgun, laugardaginn 9. febrúar, kl. 11.30. Gestirfund- arins verða þær Henríetta og Rósamunda, valinkunnar sæmdarkonur, sem ætla að segja frá Parísarferðum sínum og annarra. ■ Grease lightning í sviðsniy ndinni. dansatriði úr kvikmyndinni Grease vöktu mikla athygli, og þá ekki síst glæsivagninn sem var aðaluppistadan NT-raynd: Ari I ■ Kolbeinn Bjarnasoni flautuleikari Myrkir músíkdagar 1985; Flaututónleikar Kolbeins Bjarnasonar ■ Síðustu tónleikar Myrkra músíkdaga verða að Kjarvals- stöðum sunnudagskvöldið 10. febrúar kl. 21.00. Þá leikur Kolbeinn Bjarnason íslensk og amerísk verk fyrir ílautu, það elsta frá 1973. Islensku tónverkin eru eftir Atla Ingólfsson, Atla Heimi Sveinsson, Áskel Másson og Þorkel Sigurbjörnsson, en auk þeirra eiga Bandaríkja- mennirnir Robert Dick og Harvey Sollbergcr og Kanada- maðurinn Robert Aitken verk á efnisskránni. Þeir eru allir flautuleikarar og tónskáld og hafa mikið fengist við framúr- stefnu í list sinni. smiðjunum í Þýskalandi árið 1955. Neskirkja - þorrahátíð aldraðra ■ Samverustund aldraðra verður laugardaginn 9. febrúar kl. 16. Efnt verður til þorrahá- tíðar. AlþingismennirnirHelgi Seljan og Karvel Pálmason skemmta við undirleik Sigurð- ar Jónssonar tannlæknis. Frú Hrefna Tynes stjórnar sam- kvæmisleikjum. Þá verður fjöldasöngur og Reynir Jónas- son mun leika gömlu góðu lögin á harmónikuna sína. 1 flestum verkanna eru farn- ar áður óþekktar leiðir (eða a.m.k. ónotaðar) í flautuleik. Kolbeinn Bjarnason lærði á. flokkflautu hjá Sigríði Pálma- dóttur í Barnamúsíkskólan- um, og síðan þvertlautu hjá Jósef Magnússyni, þar og í Tónlistarskólanum í Reykja- vík, og þaðan útskrifaðist hann vorið 1979. Síðan stundaði hann nám hjá Manúelu Wiesl- er í rúm tvö ár. Hann var í Sviss veturinn 1982-'83 og lærði hjá japanska flautuleik- aranum Kioshi Kasai, og í Bandaríkjunum veturinn 1983-’84 og sótti tíma hjá Ro- bert Dick, Harvey Sollberger og Julius Baker. Þá hcfur Kol- beinn einnig dvalist um tíma í Toronto við nám hjá Robert Atiken. Félagsvist og dans í Templarahöllinni ■ S.G.T. heldur félagsvist og dans í Templarahöllinni í kvöld. Félagsvistin hefst kl. 21, en kl. 22.30 hefjast gömlu dansarnir. Það er hljómsveitin Tíglar, sern leikur. Ball á Borginni ■ FélagiðORATORstendur fyrir dansleik að Hótel Borg föstudaginn 8. febrúar. Veit- ingasalirnir eru hins vegar lok- aðir laugardagskvöldið 9. febr. vegna einkasamkvæmis. ■ Tvær píur úr „Gæjum og píuin“ Uppselt á allar sýningar Þjóðleikhússins um helgina ■ Gæjar og píur og barna- leikritið Kardimommubærinn eru alltaf sýnd fyrir fullu húsi. Söngleikurinn hefur verið sýndur alls yfir 50 sinnum, en barnaleikritið 20 sinnum. Nú um helgina verða þrjár sýningar á Gæjum og píum, á föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld og er uppselt á þær allar. Tvær sýningar verða um helgina á Kardimommu- bænum, á laugardag og sunnu- dag. Báðarsýningarnarhefjast kl. 14.00. Þegar er uppselt á þessar sýningar. Gertrude Stein á Litla sviðinu Uppselt hefur verið á fystu sýningarnar á Gertrude Stein Gertrude Stein Gertrude Stein. Næsta sýning á þessu ieikriti vetður að kvöldi þriðju- dagsins 12. febrúar n.k. Plakat-list í Listamiðstöðinni v/Lækjartorg ■ Sýning á Plakat-list verður opnuð kl. 14 laugardaginn 9. febrúar í Listamiðstöðinni v/ Lækjartorg. Sýningin er á veg- um plakatverslunarinnar „Hjá Hirti", Laugavegi 24 og Lauga- vegi 21. Plakötin eru frá þekktum hollenskum fyrirtækjum: Art Unlimited og Verkerke. Þau eru flutt inn í mjög takmörk- * uöu upplagi, frá 1-5 eintökum af hverri rnynd. Verslunin „Hjá Hirti", Laugavegi 24 hcfur margs kon- ar plaköt til sölu, en verslunin að Laugavegi 21 er sérstaklega ætluð þeim sem áhuga hafa á hljómsveitaplakötum. Sýningin stendur yfir dagana 9.-17. febrúar og er opin dag- lega kl. 14-18. Ókeypis að- gangur. í innri sýningarsal Listamið- stöðvarinnar verða svo verk eftir ýmsa innlenda og erlenda listamenn til sýnis, sölu og leigu. Einnig verða til sölu möppur með eftirmyndum af verkum nokkurra íslenskra listamanna. Góð skemmtun ■ Verslunarskólanemendur héldu sitt 53, nemendamót í Háskólabíó, síðastliðinn mið- vikudag. Mótið fór frant með stakri prýði, og voru skemmti- atriðin mörg hver til fyrir- myndar, og þá sérstaklega eftir hlé. Fyrirhugað er að sýna skemmtunina aftur á laugar- dag 9. febrúar. Foreldrar og velunnarar skólans eru sér- staklega velkomnir. Miðaverð er krónur 250, og hefst sýning- in klukkan 13.30 og stendur til klukkan 16. Það var gífurleg stemmning og húsið troðfullt. Mótið setti Arnór Guðmundsson, en hann er formaður Mótsnefndar. Fyrsta atriðið var glæsilegt, og Leikfélag Akureyrar: Næstsí ðasta sýningarhelgi á Ég er gull og gersemi ■ Um helgina er næstsíðasta sýningarhelgi á leikriti Sveins Einarssonar „Ég er gull og gersemi" sem byggt er á sögu Davíðs Stefánssonar, Sólon Is- landus. Sýningin er á laugar- dag kl. 20.30. Theódór Júlíusson leikur aðalhutverkið, Sölva Helga- son. Sveinn Einarsson leik- stýrði, Atli Heimir Sveinsson samdi nýja tónlist fyrir leikinn, Ömlngi gerði leikmynd, Freygerð- ur Magnúsdóttir hannaði bún- inga og Davíð Walters annast lýsingu. ■ Á myndinni eru þau Berg- Ijót Friðgeirsdóttir í hlutverki prestsdótturinnar og Torfi Ólafsson sem barnið Sölvi Helgason. Þau Jóhanna Sara Kristjánsdóttir og Páll Finns- son leika líka þessi hlutverk.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.