NT - 03.03.1985, Blaðsíða 15

NT - 03.03.1985, Blaðsíða 15
óæskilegir andar og öfl geti gert manni mein. En ef þetta dugar ekki til að reka drauginn út úr húsinu þarf að finna út hvers konar draugur þetta er, t.d. hvort hann er tengdur Merkúrí eða Venus og þá finn- ur maður viðeigandi aðferð." Nú þykir blaðamanni Árni vera talsvert almennur í út- skýringu sinni og spyr hann hvernig hann geti fundið hver sé viðeigandi aðferð og hvernig hann geti vitað hvers konar andi sé hér á ferðinni. „Þegar maður er búinn að vera í þessu talsverðan tíma og hefur náð ákveðnu viskustigi eins og það er kallað kemur þetta mikið til af sjálfu sér og það er hægt að þekkja hvað er á ferðinni. Þó er lagt til grund- vallar, í allri dulspeki, kerfi af hebreskum uppruna sem heitir Kabbala og er kortlagt með lífstrénu svokallaða." Með grasið í skónum „Ef við ímyndum okkur ai- heiminn sem stafrófið þá er Kabbala málfræðin sem raðar hinum ýmsu stöfum saman í orð og setningar og gefur þeim merkingu. Út frá Kabbala er hægt að finna þá helghiði, og tákn liti og tölur sem eiga við hverju sinni. Kerfið skiptir til- verunni í lagskipt þrep. Tíma og rúmstilvistin er það jarðlíf sem við þekkjum og er hún lægsta þrep lífstrésins. Fyrir ofan koma svo níu þrep til viðbótar sem er tilvera handan tíma og rúms, svokallað „astral", og eru hin ýmsu þrep „astralsins‘% kennd við stjörn- ur sem eru áhrifavaldar um mismunandi þætti lífsins. Til að útskýra þetta betur mætti segja, að ef þú vildir vinna ástir konu, þá yrði helgiathöfn- in að tengjast Venusar-þrepinu sem hefur með ástina að gera. Lífstréð segir okkur að þá sé græni liturinn og talan 7 sér- staklega mikilvæg. Þá myndir þú vera í grænum kufli með sjö græn kerti og aðra viðeigandi hluti, sem Kabbala bendir á, þegar helgiathöfnin fer fram." Blaðamaður telur réttast að fara ekki mikið lengra í þessum efnum því hver veit nema hann freistaðist til að fara að kukla í grænum kufli? Þó er eitt merki- legt í þessu sambandi. Er gras- ið ekki grænt sem maður geng- ur með í skónum á eftir stúlkum? Með Crowley á kaffihúsi Áður en lengra er haldið vill blaðamaður vita ögn meira um dulspekistarfsemi Árna sjálfs og þeirrar reglu sem hann tilheyrir. „Reglan er félagsskapur þar sem stundaðar eru skipulagðar rannsóknir á alls kyns dulspeki og heimspeki sem tengist myst- ískum táknum. Þar er blandað saman vestrænum, austur- lenskum og séríslenskum dul- fræðum. Þó svo að allir, eða næstum allir geti gengið í regl- una, þá eru meðlimir þó bundnir þagnarloforði hvað varðar siði og venjur." Blaðamanni er kunnugt um að reglur af þessu tagi eru yfirleitt fjörgamlar og með skringileg og dularfull nöfn, en um það hafði Árni þetta að segja. „Hún er kennd við fuglinn Fönix og byggir á mjögfornum grunni. í núverandi mynd er reglan ung og ólíkt öðrum dulspekireglum leggjum við ekkert sérstakt kapp á að sýna fram á að hún hafi verið til frá örófi alda eða upphafi verald- arinnar. Flestir telja að hún eigi rætur sínar að rekja til Sunnudagur 3. mars 1985 15 Galdrar „Já, það er alveg sérstaklega varasamt að vekja upp Pan, hann virðist búinn einhverjum sérstaklega öflugum krafti, enda held ég að enginn haí'i lagt út í það eftir að þetta gerðist." Innan og utan hringsins Hafið þið vakið upp guði? „Ja, það er nú eiginlega flóknara, en svo að hægt sé að tala um einhverja eina athöfn; „að vekja upp guði“. Tengslin sem náð er við guðina í gegn- um helgisiði eru tvennskonar. Annars vegar er guðinn eða guðlegi krafturinn framkallað- ur fyrir utan hringinn þar sem allar seremóníurnar fara fram, og þá getur hann birst á ýmsan hátt t.d. á astral sviðinu sem óhlutkennd vera og enginn sér hann nema sá sem er innan hringsins. Hins vegar getur maður kallað guðinn inn í hringinn sjálfan og hleypir honum að sér og þá í raun breytist maður sjálfur í guðinn og verður eitt með honum." Trúlega hefur það verið eitt- hvert afbrigði af seinni aðferð- inni sem fór svo illa með Crowley og Neuberg, en það hafði líka fylgt sögunni að þcir kumpánar væru í einhverjum tengslum við djöfulinn og því er ekki fráieitt að spyrja Árna hvort það sé þá ekki tilfellið líka með Reglu fuglsins Fönix. „Nei alls ekki. Það er hreint ótrúlegt hve misskilinn Alast- air Crowley var, en hann var að mínu mati mesti dulspek- M Hér er verið að rígja ný- norn inn í söfnuðinn. Musterisreglu Jacques de Mol- ey á 13. öld. Seinna birtist hún í mynd reglunnar „Illuminati“ sem Adam Weishaupt stofnaði 1. maí 1776 og á 19.-20. öld sem Austurlenska Musteris- reglan. í dag er reglan nokkuð undir áhrifum frá hinni frægu ensku dulspekireglu „The Her- metic Order of the Golden Dawn“ og snillingsins Alastair Crowley. Hérna á íslandi er þó skemmtilegur séríslenskur blær á starfi reglunnar." Þessi nafnasúpa kann að vera merkingarlaus fyrir flesta eins og hún reyndar var fyrir blaðamann, að mestu leyti. Við lestur handbókarinnar áð- urnefndu um galdra var talað um Crowley, en hann var dul- spekingur starfandi í byrjun þessarar aldar. Af honum er sú saga sögð, að hann hafi farið til Parísar ásamt nokkrum læri- sveinum sínum og dvalist við helgiathafnir í litlu kaffihúsi þar í borg. Eitt kvöldið fara Crowley og aðstoðarmaður hans Neuberg upp í herbergi tveir einir og sögðu öðrum úr söfnuðinum að halda kyrru fyrir niðri og koma ekki inn í herbergið hvað sem á gengi. Hugmyndin var að vekja upp skógarguðinn Pan. Nóttin leið og mikill gauragangur var í herberginu en enginn þorði að fara inn og trufla athöfnina. Skömmu eftir sólarupprás var allt orðið hljótt og enginn svar- aði þegar bankað var á dyrnar. Þegar menn brutust inn fundu þeir Neuberg dauðan en Crowley var allsnakinn og vit- firrtur í einu horninu og skalf eins og hrísla. Það tók hann fjóra mánuði á hvíldarheimili að jafna sig eftir þetta. Ekki virtist blaðamaður vera að segja Árna neinar fréttir með þessari sögu, en hann svaraði með stóískri ró. M Norn við helgiathöfn sem fólgin eríþvíað liggja kyrrmeð sverð á maganum íheilan sólarhring. ingur20. aldarinnar. Hins veg- ar er staða okkar reglu nokkuð skýr þó það sé ógerningur að skýra liana að nokkru gagni í svona viðtali. Ætli það mætti ekki segja að við leggjum áherslu á viljafrelsið og að geta komist í tengsl við okkar æðra sjálf sent er á „astral" sviðinu. Til þess að geta gert þetta áskiljum við okkur rétt til að geta framkvæmt þá helgisiði sem við viljum og sá réttur er okkur helgur. En við erum ekki djöfladýrkendur frekar en þú, enda held ég að það færi enginn ógeðbilaður maður og alls ekki alvöru dulspekingur að praktísera svartagaldur eða Satanisma." Nornir í nútímanum Eins og við minntumst á í innganginum að spjalli okkar Árna virðist vera talsverð gróska í dulspekinni nú á miðri öld geimrannsókna og tölvu- stýringar. Við spurðum Árna hverjir þetta væru og hvort þetta væri mikið tíðkað á ís- landi? „Já, það er náttúrlega rúm- lega 2000 frímúrarar á íslandi sem starfa í stúkum um landið allt - bak við luktar dyr. Sömu- leiðis starfar samfrímúrara- reglan á sviupuðum grunni nema þar fá konur aðgang. Oddfellowar hafa líka sína helgisiði og dulspeki. Félag Nýalsinna starfar hérlendis á grundvelli kenninga Helga Pjeturss. Nú, ekki ntá gleyma Ásatrúarsöfnuðinum en þar er mjög þjóðlegt fólk. Innhverf íhugun á vaxandi fylgi að fagna. Rósakrossreglan er að vísu ekki ntjög fjölmenn en reglustarfið er reglulegt og áhugi mikill skilst mér. Þá má nefna Guðspekifélagið og fjöl- mörg sálarrannsóknarfélög um allt land. Regla musterisridd- ara starfar hér og svo hafa örfáir nornasöfnuðir fest hér rætur. Sagt er að Satanistar séu hérlendis, en varla er það meira en hópur skólakrakka sem hefur náð í vasabrotsbók um efnið. Svo þú sérð að áhugi á hinu dularfulla og yfirnátt- úrulega hefur síður en svo minnkað við tilkomu tækni- báknsins." Marga af þessum flokkum hafði blaðamaður nú heyrt nefnda, þó hann hafi ekki alltaf tengt þá við dulspeki og leynilega helgisiði. En eitt hafði hann þó aldrei heyrt og Íiað var að það væru nornir á slandi. Því spurði hann hvort það gæti verið að hér væru nornir á stjái árið 1985 og hvort þetta væru ekki persónur sem hittu djöfulinn á laun, hefðu við hann mök og flestar verið brenndar á báli á Vest- fjörðum fyrir 300 árum? „Það er hinn mesti misskiln- ingur. Jurtalækningar, gáfa til að sjá óorðna hluti og kraftur til þess að hneppa fólk í álög er allt hluti af gamalli arfleifð sem nornir þekktu og þekkja enn þann dag í dag. Það var þó ekki fyrr en nú á 20. öld sem nornir fara að skipuleggja starfsemi sína og sameina hana í eitt kerfi eða trúarbrögð. Sá sem virtist eiga mestan þátt í þessu var Englendingurinn Gerald Gardner. Mest blómstra nornasöfnuðir á Englandi og nú á seinni árum í Bandaríkjunum og eins og ég sagði þá eru þær líka starfandi hér á lslandi. Klofningur er þó kominn með enskum nornum þannig að nú er hægt að tala um tvær meginfylkingar þeirra. Annars vegar eru það I

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.